Morgunblaðið - 04.03.1962, Side 8

Morgunblaðið - 04.03.1962, Side 8
8 MORGVNBL4ÐIÐ Sunnudagur 4. marz 1962 ► - Kennedy Frh. af bls. 1. kjarnorkusprengjutilraunir á tveim mánuðum. Tilraunir þessar höfðu verið •undirbúnar með leynd mánuðum saman. Þær fóru allar fram í gufuhvolfinu og sýndu fram á ákveðnar fyrirætlamr Rússa um að herða á ný kapphlaupið um kj arnorkuvopn. Þegar augljóst var orðið að öll tilmæli til Rússa um að stöðva þessar tilraunir voru til einskis, Jieimilaði ég 5. sept. að hafnar yrðu tilraimir með kjarnorku- vopn neðanjarðar og tilkynnti síð an 2. nóvemfoer, áður en Rússar höfðu lokið tilraunum sínum, að undirbúningur yrði þá hafinn að tilraunum í gufuhvolfinu — og við myndum gera þær tilraunir, sem öryggi okkar krefðist vegna framfara Rússa á þessu sviði. í þessari viku lauk Öryggis- ráð Bandaríkjanna endurskoðun sinni á þesu vandamáli. Hinir hæfustu vísindamenn landsins hafa rannsakað ítarlega tilgang og takmark tilrauna Rússa. Þeir hafa rannsakað gaumgæfilega á hvern hátt tilgangur fyrirhug- aðra tilrauna Bandaríkjanna rétt lætir að þær verði framkvæmd- ar, rannsakað hverjum tilraunum megi sleppa, hverjum megi skjóta á frest, hverja sé unnt að fran^cvæma neðanjarðar og hverjar séu nauðsynlegastar fyr- ir framfarir Bandaríkjamanna á VÍsindalegum og hernaðarlegum Sviðum. Vandlega hefur verið rannsakað hvemig unnt sé að takmarka úrfall af sprengingun- um, hvernig hagað verði vígbún- aðareftirliti í framtíðinni, og hverjar séu skyldur okkar gagn- vart öðrum þjóðum. Þrautreyndar hafa verið allar leiðir til samkomulags við Rússa. Við höfðum ákveðið að flýta okk ur ekki að fara að dæmi þeirra og erum jafn ákveðnir í því að takmarka tilraunir okkar við það nauðsynlega mark, sem öryggi þjóðarinnar krefst. Meðan hinn margháttaði undirbúningur hefur farið fram, hefur stjórnin vegið og metið þessi atriði og hefur ákvörðun núverandi stjórnar verið jafn gaumgæfilega vegin og metin í öllum smáatriðum. Að lokinni þessarj yfirvegun Og með MiSsjón af þvi að Sovét likin hafa hafnað ölluim tillög uim, sem skerða í nokkru algert frelsi þeirra til að framkvæma hverjar þær tilraunir, sem þá lyst ir, þá hef ég heimilað Kjarnorku málanefnd Bandaríkjanna og landivarnaráðuneytinu að hefja kjamorkutilraunir, þegar undir búningi er lokið — í síðari hluta apríl mánaðar — og Skail þeim, lokið eins fljótt og unnt er eða innan trveggja til þriggja mán- aða. Þessair tiilraunir verða gerðar við skiiyrði, sem gera kleift að haXda geislavirfcu úrfalli í algeru Mgmarki, þannig að það verði mun miinna en af tilraunum Rússa í haust. Með því að fara gaumgæfilega eftir veðurskilyrð um og stöðu vinda á tálrauna- svæðinu og með því að gera til — Sjórinn er ... Frarnih af bls. 6 hana alla eg svo mætti lengi telja. Allt þetta má á beinan Og óbeinan hátt rekja til Báta- óbyrgðarféiagsins, sem aldrei hefir beðið neinn um neitt og allt af verið veitandi í öll þau 100 ár, sem það hefir starfað. Félagið hefir alltaf getað verið að láta gott af sér leiða og því fögnum við 100 ára afmæli þess Og vonum og óskum, að það eigi um alla framtíð eftir að láta gott af sér leiða til hagsældar og bless unar, segir Ársæll að lokum. Félagið hélt hátíðlega upp á af- mælið fyrir nokkru og út er að koma veglegt afmælisrit, sem Jó- hann Gunnar Ólafsson, sýslumað ur, hefir samið. raunirnar yfir opnu hafi, er það von okkar að unnt verði að tak marka sem mest geislavirkt úr- fall af tiiraunum en það mun allt falla á norðurhveli jarðar. Sem kunuugt er, hélt forsetinn áfram hefur ávallt verið fyrir hendi í andrúmsloftiiju eðlileg geislavirkm, sem hefur í för með sér viss líffræðileg áhrif sem koma fyrst fram á löngum tíma. Áætlað er, að geislavirkni af fyrir huguðum tilraunum nemi aðeins um 1% af eðliilegri geisla- vikni andrúmsloftsins. Það hefur reyndar verið áætlað að geisla- áhrif af þessum tilraunum verði innan við 1/50 hluta af mismuni minnstu og mestu eðlilegu geisla virkni andrúmsloftsins. Þessi geislaáhrif verða því ljóslega vel innan þeirra marka, sem örugg eru talin fyrir heilsu manna og öryggi og töluvert minni en það, sem talið er öruggt fyrir fulltíða fól-k, er vinnur við geislavirkni í iðnaði. Þrátt fyrit’ þetta harma ég mjög að nokkuð skuli þurfa að auka á geislavirkni andrúmslofts ins, — harma þótt ekki væri nema einu mannslífi stefnt í hættu í fyrirsjáanlegri framtíð. Þótt þessi áhætta sé hverf- andi í samanburði við þá hættu, sem milljónum manna mundi stafa af skerðingu styrkieika Bandaríkjanna á sviði kjarnorku vopna — í samanburði við önn ur stórveldi — þá harma ég mjög að hana skuli þurfa að taka. En enginn bandarískur forseti, sem ábyrgur er fyrir frelsi og öryggi svo fjölmennr- ar þjóðar, gæti í góðri trú tek- ið aðra ákvörðun. En þar sem staða Bandaríkj- anna á sviði kjarnorkuvopna hefur áhrif á öryggi íbúa Amer- ríku allrar, svo og allra frjálsra manna og sökum þess hve þetta mál veldur almennum áhyggjum vil ég, að heimurinn heyri hverjar staðreyndir liggja tií grundvallar ákvörðun minni. — Margar þessar staðreyndir er tor veit að skýra í stuttu máli og erfitt að þurfa að horfast r augu við sumar þeirra á friðartímum — en allt eru þetta þó stað- reyndir, sem taka verður tillit til, skilja og horfast í augu við. Hefðu tilraunir Sovétmanna s. 1. baust eingöngu verið tilraunir til þess að sýnast í augum heims ins og vekja ógnir, hefði öryggi okkar í engu verið hnekkt. En Ijóst er orðið, að þessar tilraunir sýndu, að þróun Rússa á þessum sviðum er á háu stigi — að ver- ið var að reyna ný vopn og nýja tækni og að stigin voru mikil- væg framfaraspor í smíði kjarn- orkuvopna. Margar tilraunir þéirra miðuðu að því að efla varn ir gegn flugskeytum, aðrar mið- uðu að fullkomnum eldri vopna, en meira en helmingur tilraun- anna voru með ný vopn, einkum með miklu sprengiafli. Eitt meg- inhlutverk þessara tilrauna var að full'komna vopn, sem vegur tiltölulega mjög lítið miðað við •hinn gífurlega eyðileggingarmátt þess. Margt hefur verið fjallað um tilraunir Rússa til að smíða gagn flaugar (anti-missile missiles). Margar tilraunir þeirra voru tengdar þessu verkefni en við erum þeirrar skoðunar, að þeim hafi ekki tekizt að fullkomna þetta vopn. f stuttu máli sagt, teljum við ekki að síðustu tilraunir Rússa hafi gefið.þeim yfirburði á sviði kjarnorkuvopna. Hinsvegar feng ust við þær margháttaðar upp- lýsingar og mikilsverð reynsla, sem rússneskir vísindamenn geta byggt starf sitt á næstu tvö árin til undirbúnings næstu tilrauna- hríð. Færi svo, að Vesturveldin hreyfðu hvorki hönd né fót til þróunar sinna eigin vopna á þessu tímabili, gætu Rússar náð forskoti á sviði kjarnorkuvopna eftir þær tilraunir. Og ættum við að sitja með hendur í skauti meðan Rússar fara fram úr okk- ur á þessu sviði — eða nálgast að fara fram úr okkur, væru mjög skertir möguleikar hins frjálsa heims til þess að standa af sér og svara mögulegri kjarn- orkuárás. Það er staðreynd að við getum ekki náð meiri þekkingu án þess að gera tilraunir í gufuhvoMinu jsufnframt tilraunum neðanjarð- ar. Árangur tilrauna oklkar frá 1958 hefur allur verið kannaður og endurskoðaður. Hann getur ekki veitt okkur frekari upplýs ingar. Og það er einmitt á þessu sviði rannsóknanna — t.d. vörn um gegn eldiflaugum — sem á- framhaldandi tilraunir Rússa, en ekki okkar, gætu stefnt vörnum okkar í voða. Auk þess að gera tilraunir með þær sprengjur, sem fyrir hendi eru, hafa verið ákveðnar tvennskonar tilraunir, sem við nefnum „áhrifa tiilraun- ir“ — til að ákveða hvaða áhrif kjarnorkuárás hefði á möguleika John F. Kennedy oklkar til að standa hana aif olkík ur og svara henni. Við verjum miiklu fé til radar- stöðva, sem eiga að aðvara varn arkerfi okkar; — til að koma okk ur upp gagnflaugakerfi, — til fjarskiptakerfa, sem á að auð- velda svörun árása, — til varnar eldflaugastöðva okkar og sprengjubyrgja gegn beimum árás um — og til þess að búa flug- skeyti okkar þannig út, að þau geti sjálf leitað uppi skotmark sitt. En við vitum efcki hversu mikið af þessum varúðarráðstöf unum reynast haldlausar, ef til kjarnorkuárásar kemur. Við höfurn öðlast nægilega þekk- ingu af fyrri tilraunum til þess að hafa áhyggjur aí þessu. Við vitum að Rússar gerðu slíkar til raunir sl. haust. En þar til við höfum athugað áhrif raunveru- legra sprenginga í gufuhvolfinu getum við ekki með vissu vitað hvernig við eigum að undirbúa varnir okkar í framtíðinni; hvernig bezt er að búa út eld- flaugar okkar svo þær komijt í gegnum gagnflaugakerfi and- stæðingsins, eða hvort við getum komið slíku kerfi upp sjálfir. í öðru lagi verðum við að gera tilraunir í gufuhvolfinu til þess að endurbæta hin ýmsu vopn, sem nauðsynleg eru öryggi okk- ar með tilliti til-nýjustu tilrauna Rússa. Ef við eigum að geta kom ið okkur upp öruggari vopnum getum við ekki takmarkað til- raunir okkar við rannsóknar- stofur Og neðanjarðarhella. Þótt við gerum mun færri til- raunir en Sovétríkin og með miklu minni geislavirkni, eru til þeir menn í öðrum löndum, sem munu skora á okkur að hætta öllum tilraunum. Ef til vill gleyma þeir því að Bandaríkin létu tilraunir liggja niðri um langan tíma og reyndu að koma á algjöru tilraunabanni, með- an Sovétríkin voru með leynd að undirbúa nýjar sprengingar. Ef til vill hafa þeir gleymt ógn unum Sovétríkjanna á síðasta hausti og einhliða afneitun þeirra á öllum tilboðum, bæði frá Bandaríkjunum og frá Sam- einuðu þjóðunum. En ég er sann færður um að þær frjáisu þjóð- ir, sem virða frelsi sitt og ör- yggi — þær, sem þekkja ein- lægan vilja olckar til að binda endir á allar tilraunir og á víg- búnaðarkapphlaupið — vilja að Bandaríkin geri þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru, til að draga úr árásarhættunni. Ef þær héldu að unnt væri að beygja okkur með ógnunum — ef þær héldu að við leyfðum endurtekningu á blekkingum síðasta sumars — misstu þær vissulega trúna á vilja okkar og vizku jafnt og trúna á mátt okkar. Eg efast ekki um að flest ir vinir okkar um allan heim hafa átt þá von sameiginlega með mér að við þyrftum aldrei framar að gera tilraunir — og þá von að þegar til lengdar læt- ur sé eina öryggið á þessari öld kjarnorkuhættunnar ekki í víg- búnaði heldur afvopnun. En ég er jafn viss um að þær krefð- ust þess að við gerðum tilraun- ir þegar það reynist nauðsynlegt til verndar öryggi hins frjálsa heims. Þær vita að við ákveð- um ekki tilraunir af stjórnmála- legum eða sálfræðilegum ástæð um —og þær vita einnig að við getum ekki komizt hjá slík um tilraununm vegna stjórn- málalegra eða sálfræðilegra á- stæðna. Leiðtogar Sovétríkjanna eru einnig að bíða eftir þessari á- kvörðun. Ef við ekki fylgjum kröfum eigin öryggis, munu þeir ekki kenna það góðvilja heldur festuleysi, ekki trú okkar á yfir burði Vesturveldanna, heldur ótta við álit umheimsins, það sama heimsálit, sem þeir sýndu svo miKla lítilsvirðingu. Þess kon ar veikleikamerki gætu verið þeim örfun ti'l að sækjast eftir framlengingu á tilraunahléi án eftirlits — eftir öðru tækifæri til að hindra framfarir okkar á þessu sviði meðan þeir undirbúa í leynd, á grundvelli tilraunanna frá í haust, nýjar tilraunir, sem gætu breytt valdahlutföllunum. Ástæður okkar fyrir að hefja tilraunir að nýju og friðsamlegur tilgangur okkar liggja Ijóst fyrir —■ svo ljóst fyrir að jafnvel Sovétríkin geta ekki litið á nýj- ar tilraunir okkar, með tilliti til þeirra eigin tilrauna, sem ögr- andi eða sem stríðsundirbúning. Þvert á móti er það von mín að friðarhorfurnar megi aukast við þessa ákvörðun — strax og leið- togar Sovétríkjanna gera sér ljóst að Vesturveldin kæra sig ekki um að sitja í sama horfinu og reyna að semja í góðri trú meðan þeir néita eftirliti og geta í næði undirbúið nýjar tilraunir Nú þeg ar nýjar afvopnunarviðræður fara í hönd minnumst við þess, sem við höfum lært á þrem árum og 353 viðræðufundum í Genif — að Sovétríkin vilja ekki sam- þykkja framfcvæmanlegt bann við tilraunum með kjarnorku- sprengjur meðan von er á nýj- um tilboðum og áframhaldandi viðræðum eða nýju tilraunahléi án eftirlits, eða nýjum samning- um án eftirlits, sem gerðu þeim kleift að hindra enn Vesturveldm í því að gera tilraunir meðan þeir sjálfir undirbua tiiraunir á laun. En nú þegar þeir eiga þessa ekki lengur kost skulum við vona að þeir skipti um skoðun varðandi bann við kjarnorkutilraunum. Að þeir kjósi heldur að sjá bund- inn endi á kjarnorkukapphlaup- ið en ekki það aukið með öllum þeim hættum, sem því fylgdu; að aðrar þjóðir fengju kjarnorku- vopn; stöðug aukning spennunn- ar í heiminum, stöðugt minnk- andi vonir um afvopnun, og stöðugt vaxandi öryggis- leysi fyrir okkur öll. Ef Sovétríkin skipta um skoð- un fáum við þegar vitneskju um það. Hinn 14. marz hefst í Genf ráðstefna 18 ríkja um afvopnun. Gengið hefur verið frá yfirlýs- ingu um grundv*! larskilyrði í samráði við Sovétríkin og hefur hún verið staðfest hjá SÞ. Það er þegar til lengdar lætur á samn- ingamöguleikum þessarar ráð- stefnu og ekki á tilraunum með ný gjöreyðingavopn — sem vonir alls mannkyns hvíla. En hve fjar lægar, sem þessar vonir virðast stundum, er aldrei unnt að sleppa þeim. Og hversu erfið, sem sum sporin til afvopnunar virðast, þá eru önnur, sem unnt er að stíga nú þegar. Á GenfKrráðstefnunni munu Bandaríkin leggja fram — ekki vegna þess að þau telja fyrir- fram að þeim -vsrði hafnað og ekki aðeins í áróðursskyni — til- lögur í mörgum liðum um af- vopnun. Við vonum að þær falli öllum þeim þjóðum í geð, sem eru andvígar styrjöldum. í þeim eru sérstaklega tillögur um sann gjarnar og framkvæmanlegan samningsgrundvöll: Að hætta allri framleiðslu kjarnorkuvopna að afhenda öll sþrengjuefni til friðsamlegra no'ta, að eyðileggja sprengjur þær, sem ógna fram- tíð mannsins, að koma í veg fyr- ir hættuna af skyndiárásum, að helga himingeiminn friðsamleg- um rannsóknum og að draga veru lega úr öllum her og koma þann- ig endanlega í veg fyrir allar stríðsógnanir. Og við munuim enn einu sinnl, ásamt Bretlan-di, leggja fraim tii lögur okkar um sérsamning — þar sem gert er ráð fyrir viðeig andi eftirliti — um að hætta fyr ir fullt og allt ölluim tilraunuim með kjarnorkusprengingar hvar sem er: í lofti, úti í himingeimin um, neðanjarðar eða neðansjáiy ar. Fulltrúar okkar eru reiðubún ir til að hefja viðræður um þe9si atriði jafnvel áður en ráðstefnan hefst hinn 14. marz. Og þeir eru reiðubúnir til að undirrita endanlega samninga löngu áður en kemur að þeim tíma, sem fyr irhugað er að tilraunir akkar hefjist. Ef Sovétrílkin eru reiðu búin til að undirrita þann samn ing fyrir síðari hluta aprílmán aðar, og láta hann strax öðlast gildi, ef á þennan hátt er. unnfe að stöðva allar kjarnorkutilraun ir, þá væri loks búið að hægja á kj arnorkukapphlaupinu, trygg- ing fengin fyrir örýggi Bandaríkj anna og möguleikuim þeirra til að standa við skyldrur sínar, og Okkur væri engin nauðsyn að hefja tilraunir að nýju. En þetta yrði að vera öruggur samningur. Við höfum í dag það fulla þekkingu á rofnum saimn- ingaviðræðum, leynilegum undir búni-ngi og hagnaði Rússa ai fjölda tilrauna að við mwnuim aldrei aftur bjóða tilraunahlé án eftirlits. Með öðrum orðum meðan ekki er fyrir hendi ákveðinn saimning ur um að banna tiílraunir með kjarnorkuvopn fyrir miðjan april, munum við halda áfram viðræðum — og reyna að finna nýjar leiðir t / lausnar — en við munum einnig hefja tilraunir. Ef hinsvegar að Sovétrílkin fallast á samkomulag á fyrsta mánuði ráðstefnunnar í Genf væri það markvert spor í friðarátt — og bæði Maomillan forsætisráð- herra og ég teldu bá heppilegt að mæta Krúsjeff forsætisráð- herra í Genf til að undirrita samninga. Því takmark okkar er eklki að gera tilraunir tilraunanna vegna, Hið sanna takmark okkar er að gera tilraunir óþarfar, að fyrir- byggja að aðrir geri tilraunir, að koma í veg fyrir að kjarnorku- fcapphlaupið verði óviðráðanlegt, að stíga fyrsta sporið til almennr ar afvopnunar. Þessvegna er það, þegar allt kemur til alls, að leið- togar Sovétríkjanna verða að bera hina þungu ábyrgð þess, sem á völina. Ef þeir eru sannfærðir um að núverandi stefna þeirra getur ekki lengur þjónað tUgangi sin- um, er það innileg von mín að þeir fallist á raunhæfan samning, En ef þeir halda áfram að neita öllu virku eftirliti, höfum við ekki um annan kost að velja en að hafa varnir okkar nægilega fullfcomnar til að tryggja öryggi allra frjálsra þjóða. Það er ósk okkar og von að þessar miskunnarlausu og óvel- komnu tilraunir þurfi aldrei að hefjast — að þessum dauðavopn- um verði aldrei skotið á loft — og að stríðsundirbúningur Okkar færi okkur frið. Takmark okkar er að hafa hemil á orfcunni en ekki sækjast eftir henni, í heimi þar sem maðurinn getur lifað við öryggi. En hvað sem frajn- tíðin ber í skauti sínu hef ég svarið að viðhalda og verja frelsi bandarísku þjóðarinnar Og ég ætla mér að gera allt, sem gera ber til að standa við þá alvarlegu skuldbindingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.