Morgunblaðið - 04.03.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.03.1962, Blaðsíða 13
f Sunnudagur 4. marz 1962 MORGVTSBIAÐIÐ 13 I Hermann Jónasson skýrir Alþingi frá lausnarbeiðni sinni 4. des. 1958. bygging atvinnuveganna í hröð- um vexti. Atvinnulíf með meiri bíóma en nokkru sinni áður til sjávar og sveita um land allt“. En úr því að ástandið var svona gott, af hverju gáfust þeir þá upp? Framsóknarmenn finna sjálfir að þessu þurfa þeir að svara, og segja: „Það olli á hinn bóginn stjórnarslitum «1958, að ógerlegt reyndist með öllu að fá sam- komulag um, að fallið yrði frá víxlverkun vísitölunnar að vissu marki. Að óbreyttu því fyrirkomulagi var veimegunin í hættu vegna fyrirsjáanlegrar og stórfelldrar dýrtíðarsveiflu á næsta leiti. Hægt var að koma í veg fyrir þessa hættu með því, skv. tillögu Framsóknar- manna, að láta ekki vísitölu- skrúfuna verka að fullu og halda kaupmætti launa eins og hann var í október 1958, því kaupmátturinn var — og er — það sem meginmáli skiptir. En REYKJAVÍKURBRÉFí Laugard. 3. marz Tíminn skýrir afsö^n Hermanns 1 Hermann Jónassonf hefur ver- Ið svo atkvæðamikill í stjórn- málum þjóðarinnar síðustu þrjá- tíu árin, að eðlilegt er, að það vekji nokkra athygli, þegar hann lætur af formennsku Flamsókn- arflokíksins. Ýmsum getum er leitt að þeirri ráðabreytni og Bkulu þær ekki raktar hér, en ein ungis vitnað til þess, sem Tím- inn segir í forystugrein s.l. þriðju dag hinn 27. febrúar: „Þeim flokksbræðrum Her- manns Jónassonar, sem lengst hafa unnið með honum, kom það ekki á óvart, að hann myndi bráð lega hætta flokksstjórninni. Her- mann Jónasson hefur jafnan sagt, að hann myndi leggja nið- ur flokksformennsku áður en hann teldi sig of gamlan til að gegna henni. Þeir, sem þekktu Hermann, vissu að þetta myndi þýða, að hann myndi heldur láta af formennsku fyrr en síðar, því að engum manni er óljúfara að 'láta vera hægt að segja, að hann efni ekki orð sín. Af því vissu samherjar hans einnig, að eftir að hann hafði tekið þá ákvörð- un að hætta formennskunni, yrði því ekki breytt.“ Óneitanlega gefa þessi um- mæli frekar til kynna, að Her- mann hafi verið tekinn á orð- inu heldur en að gefin sé skýring á orsökum þess, sem gerst hefur. Eftirtektarverðara er þó, hvernig þarna er sveigt að hinum fyrrver andi formanni. v Háð en eiri lof r Allir kannast við þessi orð Snorra Sturlusonar í formála hans að Heimskringlu: „En þat er háttr skálda at lofa þann mest, er þá eru þeir fyrir, en engl myndi þat þora et segja sjálfum honum þau verk hans, er allir þeir er heyrði, vissi, at hégómi værí og skrök, ©k svá sjálfr hann. Þat væri þá háð, en eigl lof." Sem betur fer má margt gott um Hermann Jónasson segja. Það væri ekki fagurt vitni stjóm málaþroska fslendinga, ef mað- ur, sem svo oft og lengi hefur farið með æðstu völd í landinu. hefði ekki ýmsa góða kostl til að bera. En um hann sem aðra hefðarmenn verður að gæta þess að haga orðum svo, að fremur verði lof en háð. Framsóknarflokkurinn hefur öllum öðrum fremur á landi hér einkennzt af óstöðvandi valda- streitu, bæði inn á við og út á við. Sjaldan hefur sá lei'kur þó verið grárri en að þessu sinni. ' „Betra að vanta brauð“ önnur af ræðum Hermanns Jónassonar, sem lengst verður munað eftir ,er sú, þegar hann í áheyrn alþjóðar lýsti því fyrir kosningarnar 1956, að betra væri að vanta brauð en hafa erlend- an her í landi. Efndirnar á hinum margend- urteknu loforðum um brottreksf ur hersins hafa menn daglega fyrir augum. Því fer og fjarri, að mönnum sé úr minni fallið heitorðið um úttekt þjóðarbúsins fyrir opnum tjöldum, eða leynd- in, sem lögð var á skýrslu hinna útlendu sérfræðinga, er hingað voru kvaddir til að gera þá út- tekt. Ómöguleiki, breyttar aðstæður óheilindi samstarfsmanna og sitthvað annað kann að nægja til skýringar á því að maður efni ekki orð sín. En þá er að afsaka sig og bera skýringarnar fram en láta ekki svo sem aldrei hafi orðið það, sem við alþjóð blas- ir. Er t.d. hægt að búast við því, að verkalýðurinn gleymi skjót- lega efndunum á loforðinu um, að samráð skyldi haft við sam- tök hans um lausn efnahagsmál- anna og framkomunni á alþýðu- sambandsþingi í nóvember 1958? Ræðan 4. desember 1958 Hinn 4. desember 1958 hélt Hermann Jónasson, þáverandi forsætisráðherra svohljóðandi ræðu á Alþingi: „Herra forseti! Eg hef á ríkisráðsfundi í dag beðizt lausnar fyrir mig og ráðu neyti mitt. Forseti íslands hefur beðið ráðuneytið að gegna störf- um fyrst um sinn og hafa ráð- herrar að venju orðið við þeirri beiðni. Fyrir lá, að hinn 1. desember átti að taka gildi ný kaupgreiðslu visitala, sem fól í sér 17 stiga hækkun. Til þess að koma í ve' fyrir nýja verðbólgu, ef af þessu hlaut að rísa, óskaði ég þess við samráðherra mína, að ríkisstjórn in beitti sér fyrir setningu laga um frestun á framkvæmd hinn- ar nýju vísitölu til loka mánað- arins, enda yrðu hin fyrrnefndu 17 visitölustig þá greidd eftir á fyrir desember, nema samkomu- lag yrði um annað. Leitað var umsagnar Alþýðu- sambandsþings um lagasetningu þessa, samkvæmt skilyrði, sem sett var fram um það í ríkis- stjórninni. Alþýðusambandsþing neitaði fyrir sitt leiti beiðni minni um frestun. Boðaði ég þá ráðherrafund að morgni laugar- dags 29. nóvember, en þar náð- ist ekki samkomulag um stuðn- ing við frumvarpið. Af þessu leiddi, að hin nýja kaupgreiðslu visitala kom til framkvæmda um mánaðamótin, og ný verð- bólgualda er þar með skollin yfir. Við þessu er svo því að bæta, að í ríkisstjórninni er ekki samstaða um nein úrræði í þess- um málum, sem að mínu áliti geti stöðvað hina háskalegu verð bólguþróun, sem verður óviðráð anleg, ef ekki næst samkomu- lag um þær raunhæfu ráðstaf anir, sem lýst var yfir að gera þyrfti, þegar efnahagsfrumvarp ríkisstjórnarinnar var lagt fyrir Alþingi á s.l. vori.“ Dómur verka- lýðsins I þessari ræðu kemur berlega fram, að fyrir Alþýðusambands- þing 1958 voru ekki lagðar nein ar raunhæfar tillögur til lausn- ar verðbólguvandanum. Tilgang urinn með hinni eftirminnilegu för þáverandi forsætisráðherra á það þing var einungis sá að biðja um frest, sem átti að nota til að semja um vandann eftir að Alþýðusambandsþingmenn væru allir á bak og burt. Nú þykjast Framsóknarmenn kunna þau ráð, sem dugað hefðu til frambúðar. En ef svo var, af hverju lagði forystumaður þeirra þá ekki tillögur sínar fyrir sjálft Alþýðusambandsþingið, heldur fór einunugis fram á að fá frest, svo að hægt væri að ráða mál- inu til lykta, þegar fulltrúarnir væru víðsfjarri? Og fyrir Al- þingi lagði hann allsengar til- lögur ! Framsóknarmenn eru furðu Iostnir yfir þeim straUmhvörf- um, sem orðið hafa í verkalýðs- félögunum síðustu mánuðina. í samningum sínum við kommún- ista á s.l. sumri þóttust Frarn- sóknarmenn hafa komið ríkis- stjórnina í slíka herkví, að hún ætti ekki undankomu auðið. En verkalýðurinn skilur hvað felst á bak við sýndarvináttu Fram- sóknarmanna og kommúnista. Almenningur ætlast til þess, að þeir, sem tekið hafa að sér að stjórna, séu menn til þess að þeir skilji ekki við vandann né reyni að skjóta honum fram af sér, heldur geri hiklaust þær ráðstafanir, sem hverju sinni þarf að gera. Það er vinsælla að gera „óvinsælar" ráðstafanir, sem óhjákvæmilegar eru, en að lyppast niður fyrir vandanum og hlaupa fyrir borð, þegar aldan er risin. Allt í blóma en uppgjöf engu að síður! Framsóknarmenn eiga að von- um erfitt með að skýra við- skilnað sinn 1958. Verulegum hluta stjórnmálaályktunar mið- stjórnar flokksins nú fyrir skemmstu er varið í árangurs- lausa tilraun til þessa. — Þar segir m.a. um ástandið 1958: „Framleiðslan mikil, upp- samstarfsmennirnir skildu ekki sinn vitjunartíma". „Ný verðbólgu- alda skollin yfir44 Nú segir miðstjórn Framsókn- ar, að stórfeild „dýrtíðarsveifla hafi verið fyrirsjáanleg" „á næsta leiti". Hinn 4. desember 1958 sagði Hermann Jónasson aftur á móti réttilega: „ — — — hin nýja kaup- greiðsluvísitala kom til fram- kvæmda um mánaðamótin og ný vergbólgualda er þar með skollin yfir“. Að eigin dómi sat Hermann sannarlega meðan sætt var. Það var ekki fyrr en aldan var skollin yfir sem hann hljóp fyrir borð af stjórnarskútunni. Vissulega var útíitið þá ekki efnilegt. Við blasti „hin háska- lega verðbólguþróun, sem verð- ur óviðráðanleg ef ekki næst samkomulag“ um „raunhæfar ráðstafanir". En í V-stjórninni var „ekki samstaða um nein úr- ræði í þessum málum“. Menn geta haft hvert álit, sem þeir vilja, á uppgjöf Her- manns Jónassonar 1 desember 1958, en hann á lof skilið fyrir það, að hann sagði þá hrein- lega frá því, hvernig komið var og að V-stjórnin væri þess alls ómegnug að leysa vandann. Til þessa þurfti vissan mann- dóm, og því fremur sem þarna varð skipbrot heillar ævi mikil- hæfs manns. Þau örlög urðu því sárari sem möguleikarnir voru þá meiri en nokkru sinni fyrr, því að árið 1958 var mesta framleiðsluár sem yfir ísland hafði komið allt frá upphafi vega, Árferðið var gott, en stjórnafarið bráist. Veldur hver á heldur Þetta var Ijóst þá þegar, og er orðið enn ljósara eftir þann samanburð, sem nú er unnt að gera. Strax snemma árs 1958 tókst Alþýðuflokknum með at- beina Sjálfstæðisflokksins að stöðva „hina háskalegu verð- bólguþróun", sem Hermann Jón asson hugði hinn 4. desember „óviðráðanlega". Það var hægt að leysa vandann, ef réttum ráðum var beitt af samhentum mönn- um. Ógæfa Framsóknar Og V- stjórnarinnar var sú, að innan hennar var aldrei „samstaða um nein úrræði“ Hinn gamalreyndi stjórnmálamaður Hermann Jón- asson skildi þetta strax haustið 1958, þegar hann hældi. sér af því einu, norður á Hólmavilk að stjórn sinni hefði tekizt að setja Sjálfstæðismenn „til hlið- ar“, um það væri þó samstaða innan stjórnarinnar. Eftir á er hann hinsvegar farinn að halda því fram, að einnig í því hafi honum skjátlast, vegna þess að Sjálfstæðismenn hafi á árinu 1958 haft margskonar samstarf ýmist við kommúnista eða Al- þýðuflokksmenn. Þó að slíkt séu tómir hugarórar, sanna þeir hví- líkt hyldýpi óheilinda ríkti inn- an V-stjórnarinnar. Eftir stend- ur, að gerbreyting varð á stjórn- arfari jafnskjótt. og Sjálfstæðis- menn voru kvaddir til. Með sam- tökum þeirra og Alþýðuflokks- manna tókst að leysa þá þraut, sem hinir hurfu frá. Fyrsta árið síðan styrjöldinni lauk Núverandi ríkisstjórn. hefur frá upphafi hreinskilnislega sagt, að því markmiði, sem hún keppti að yrði ekki náð erfiðleikalaust. Nú liggur fyrir að árið 1961 var fyrsta árið síðan styrjöldinni lauk, sem ekki hefur verið greiðsluhalli á viðskiptum íslend- inga við aðrar þjóðir. Samkvæmt bráðabirgðaáætlun nemur hinn hagstæði greiðslujöfnuður um eða yfir 200 millj. kr. Vöruskipta- jöfnuðurinn reyndist hagstæður um tæpar 100 millj. kr„ ef bæði inn- og útflutningur er talinn á fob.-verði og gjaldeyrisstaðan batnaði um 400 millj. kr. Þessu tókst að ná, þó að birgðir af út- flutningsafu.rðum í landimu ykjust um 180 millj. kr. á árinu. Vill lögleiða vísitöluskrúfuna á ný Fjarri fer, að markinu aé mn náð, en lengur verður ekki vwm það villzt að rétt er stefnt. Lan«t er komið á leið, og hafa erfiS- leikar almennings þó ekki «r®- ið eins tilfinnanlegir og margir höfðu gert ráð fyrir. Siljaniegt ar að Framsókn sárni, að þetta hef- ur tekizt, ekki einungis án henn- ar atbeina, heldur í harðri nné- stöðu við hana. Fyrir valdstreitu flokk er ætíð erfitt að vera utan við stjórn. en mun erfiðara aS þurfa að horfa upp á aðra fran»- kvæma það, sem hann sjálfur veit, að gera þarf og vonað hafði að sjálfum sér tækist. Gremja Framsóknar er því skiljanleg og að vissu leyti fyrirgefanleg. Hitt er ekki fyrirgefanlegt, að hún Skuli enn vilja beita skemmdarverkum gegn þvi, sem hún hlýtur að vita að er þjóðinni fyrir beztu. En það er einmitt þaH, sem Tíminn nú keppir eftir þeg- ar hann dag eftir dag segir, að lausn vandamálanna nú sé sö, að innleiða vísitöluskrúfuna á ný jafnframt því, sem miðstjórn Framsóknar segir að stöðvun þest skrúfugangs „að vissu marki** hafi verið forsenda björgunar 1958. Kvennadeild SVFÍ þakkar KVENNADEILD Slysavarnafé- lagsins í Reykjaví'k þakkar hjart anlega öllum þeirn er veittu þeim hjálp á Góudaginn, sem er merkja og kaffisöludagur deildar innar. Við þökkum lánið á Sjálf- stæðishúsinu. En það var tvennt er gladdi Okkur mikið. Fyrst það, að loft- skeytamaðurinn á Ægi færði deildinni peningagjöf með kveðju frá skipshöfn og fiskifræðingum á Ægi. Þeir þökkuðu konunum fyrir þeirra óeigingjarna starfi Það er einmitt þetta að fá svona kveðju frá hinum starfandi sjó- mönnum er örfar konur til starfa fyrir slysavarnamálin. Hitt var að blómaverzlanir f Reykjavík fengu leyfi til að selja blóm þennan dag og fékk deildin prósentur af sölunni, um 8 þús. krónur. Fyrir þetta nýmæli þökkum við sérstaklega. Það safnaðist yfir 70 þús. krónur þennan dag og hjartans þakkir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.