Morgunblaðið - 04.03.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl
— eftir lokun —
Erleudar Iréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Reykjavíkurbréf
Sjá bls 13.
1
I
mm
í
■
■
111
Afli góður
seinni hluta februar
þegar gaí
Kitaveita í nýtt hverfi
Á myndinni hér fyrir ofan(
sést yfir það svæði, er fyrsti
áifangi hitaveituáætlunarinnar
nær til, en það takmarkast við
Laugarnesveg, Sundlaugaveg,
Da*' raut og Kleppsveg. Pétur
Jónsson, eða Véltækni, hefur
tekiö verkið að sér og voru
samningar við hann undirrit
aðir fyrri laugardag og var
vinna hafin samdægurs. Verk
inu verður lokið 15. des., en
gert er ráð fyrir, að allir bæj
arbúar verði búnir að fá hita
veitu í árslok 1965.
Á myndinni til hliðar sjást
verkamenn við vinnu sína við
Laugalækjaskóla.
SANDGERÐI, 3. marz. — í gær
komu að landi 27 bátar með
238,8 lestir. Hæstir voru Hrönn
II og Pétur Jónsson með 12,4 og
Stefán í>ór með 12,2 lestir.
Seinni hlutann í febrúar vorui
farnir 7—8 róðrar og var afli
góður þegar gaf. Fengu 16 bátar
1199.7 lestir í 107 róðrum. Mest-
an afla í róðri fékk Jón Garðar
þann 27. febr., 29,5 lestir. Afli til
febrúarloka er 2858,8 lestir í 301
róðri, eða 9,5 lestir í róðri að
meðaltali. Aflahæst er Freyjan
með 314,6 lestir í 29 róðrum,
Smári næstur með 282,7 lestir í
28 róðrum, Muninn með 277,1 lest
í 28 róðrum, Hrönn II 239,6 lestir
í 27 róðrum og Stefán Þór 229,9
lestir í 26 róðrum. — Síld kom á
sama tíma, 352,5 lestir og þvi
fiskur í allt 3211,3 lestir í 313
róðrum.
Á sama tima 1961 komu í land
3226.8 lestir í 426 róðrum og með-
alafli þá 7,3 lestir. Og síld var
þá á sama tíma 872,8 lestir og afli
þá alls 3999,7 lestir í 456 róðrum.
— P. P.
Enn kviknar í báti
Dðmarinn kippti í iiö
— og leikurinn tafðist ekkert
Á FÖSTUDAGSKVÖLD fóru
fram tveir leikir í körfuknatt-
leiksmóti íslands. í meistara-
flokki karla vann Ármann lið stú
denta með 74 stigum gegn 40.
Leikurinn var í fyrstu jafn og
skemmtilegur, en smám saman
tóku Ármenningar að ná tökum
á leiknum og unnu með alger-
um yfirburðum.
Óvenjulegt atvik kom fyrir í
þessum !eik Dómarinn Ingi Þor-
steinss. sá að eitthvað hafði konj-
ið fyrir emn leikmann Ármenn-
inga Hafstein Hjartarson Fór Ingi
hans athugaði hendi hans og
kippti baugfingri í lið. Sjálfur
hafði leikmaðurinn ekki gert sér
grein fyrir hvað komið hafði
fyrir og svo fljótur var dómar-
inn að „iæknisstörfum" sínum að
fáir áhorfenda vissu hvað gerzt
hafði. Hafsteinn lék svo áfram
eins og ekkert hefði í skorizt.
í leik milli 1. flokks liða vann
ÍR lið Ármanns með 50 gegn
46 stigum. Höfðu Ármenningar
lengst af yfir, þar til í lokin.
Tvær gamlar kempur léku með
ÍR -liðinu, Ingi Þór Stefánsson og
Gunnar Bjarnason (leiktjalda-
málari). Þeir áttu ekki hvað
minnstan þátt í sigri ÍR.
Níarðvík
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfél.
Njarðvíkingur er í dag sunnu-
dag kl. 2 í samkomuhúsi Njarð-
víkur. — Fjölmennið.
STJÓRNIN
Keflavík, 3. marz.
f MORGUN snemma var v/b
Hólmsteinn dreginn hingað til
Keflavíkur og var talsverður
eldur í vélarrúmi og káetu
bátsins, en slökkviliðinu hér
hafði verið gert aðvart áður og
var það tilbúið á bryggjunni er
báturinn kom og tókst fljótlega
Friðrik
á unna biðskák
STOKKHÓLMI, 3. marz: — Skák
Friðriks Ólafssonar og Cuellars
úr 21. umferð fór í bið, en Frið
rik á betri stöðu og vinnur skák
ina trúlega.
Fischer vann Bolbochan, Bar-
cza vann Uhlmann (Uhlmann
féll á tíma í vinningsstöðu, er
hann átti eftir tvo leiki). Jafn-
tefli varð hjá Schweber og Gell
er, Yanofsky og Petrosjan, Gligor
ic og Kortsnoj og Bisquier og
Bertok. Aðrar skákir fóru í bið.
að ráða niðurlögum eldsins, en
skemmdir á bátnum urðu talsvert
miklar.
V/b Hólmstein var að leggja f
róður er skipverjar urðu eldsins
varir, en skammt þar frá var
V/b Gylfi og reyndi hann að
koma sjóslöngum yfir í Hólm-
stein, en meðan á þeim tilraun-
um stóð slóst afturmastur Gylfa
í reiða og loftnet Hólmsteins meS
þeim afleiðingum að mastrið á
Gylfa brotnaði. Gylfi kom þá
dráttartaugum í Hólmstein og
dró hann hingað inn.
Eldsupptök voru í vélarrúmi
og skemmdir urðu talsverðar.
— Helgi S.
Borgarstjórinn gekk
4 km á skíðum í gær
SKÍÐALANDSGANGAN var haf
in víða um land í gær en hún
var ákveðin frá 3. marz til 23.
apríl (annars páskadags) Vegna
þess hve blaðið fer snemma í
prentun á laugardögum var ekki
vitað hvernig haldið var upp á
fyrsta daginn á hinum ýmsu
stöðum á landinu, en ætla má að
víða hafi verið hátíðabragur á
opnuninni.
GOTT FORDÆMI
í Reykjavíkurdæmi átti gang-
an að hefjast kl. 3 e. h. við
Skíðaskálann í Hveradölum. Borg
arstjórinn í Reykjavík ætlaði þar
að hefja gönguna og gefa borgar-
búum þar með gott fordæmi.
Borgarstjórinn, Geir Hallgríms-
son átti að fara fyrir ýmsum
íþróttaleiðtogum í brautinni, s. s.
stjórn Skíðasambandsins, skíða-
ráðsins o. fl. Síðan var brautin
opin almenningi og jafnframt
átti að opna brautir við skíða-
skála allra annarra félaga. Ef
áframhald yrði á góðu veðri var
búizt við því að fjöldi manna í
Reykjavík leysti þrautina — 4
km skíðagöngu — þegar fyrsta
daginn. Það er aðeins hressandi
að ganga slíka spotta á skíðum,
og hrein unun í slíku veðri sem
verið hefur undanfarna daga
Konan
látin
KLUKKAN 8 í gærmorgun
lézt á Landsspítalanum, Ástrós
Þórðardóttir, öldugötu 59, af
völdum meiðsla, er hún hlaut
síðastliðið miðvikudagskvöld,
er bíl var ekið á hana á Kapla
skjólsvegi.
Sem kunnugt er af fréttum
gaf ökumaður sá, er valdur
var að slysi þessu sig ekki
fram fyrr en daginn eftir, en
kvaðst þá hafa fyllst skelfingu
og ekki hugsað um annað en,
koma sér á brott.
Hafnarfjörður
STEFNISKAFFI verður ekki
í dag. —
Háskóla-
fyrirlestur Olafs
Björnssonar í dag
f DAG, sunnudag 4. marz, flytur
prófessor Ólafur Björnsson fyrir*
lestur í hátíðasala Háskólans,
Fyrirlesturinn nefnist „Skilyrði
efnahagslegra framfara" og er
þriðji fyrirlesturinn í flokki af-
mælisfyrírlestra Háskólans.
Rætt verður um þau skilyrM.
sem fullnægt þarf að vera, tií
þess að efnahagslegar framfarir
geti átt sér stað. Reynt verður
að skilgreina hugtakið efnahags-
legar framfarir og rætt, hvaða
mælikvarða megi nota á það,
hvort um efnahagslegar framfar-
ir sé að ræða.