Morgunblaðið - 11.03.1962, Side 1
24 siður eg Lesbók
49. árgangui:
59. tbl. — Sunnudagur 11. marz 1962
Prentsmiðja Mor^unblaðslns
Búizt við undirritun
samninga í Evian
Bardögum við Túnislandamærin lokið
— mikil sprenging i Paris
París, Evian Og Algeirsborg
10. marz — AP — NTB
SAMNINGAVIÐRÆÐXJR sendi-
nefnda Serkja ig Frakika héldu á-
(ram í dag. Tafðist fundurinn
nokkuð í fyrstu sökum þess að
serknesku samninganefndarmenni
irnir þurftu að fara á báti yfir
Genfarvatn vegna veðurs, en áð-
nr hafa þeir verið fluttir frá
Sviss til Evian í þyrlu.
Enn ríkir sama leyndin yfir
íamningafundunum og strangur
vörður er umhverfis Du Parc
hótelið, þar sem viðræðurnar
fara fram,
Þrátt fyrir leyndina, eru frétta
menn sarnmála um, að allt bendi
til þess, að vel fari á með sendi-
nefndunum og er búizt við þvi
að samningur um vopnahlé í
Alsír verði undirritaðir innan
(árra daga.
Meðan sendinefndirnar ræða
vopnahlésmálin í Evian gengur
á ýmsu í París Og Alsír. Þrír
menn, þar af tveir lögreglumenn,
létust í morgun í París, er spreng
ing varð í kyrrstæðum bíl í einu
úthverfa borgarinnar. Var spreng
ingin svo öflug að hópur vertka-
manna á strætisvagnastöð
Skammt fm þeyttist til jarðar.
Sagt er að 30 manns hafi særzt.
Bíllinn, sem sprengingin varð í,
stóð fyrir utan byggingu, þar
sem fyrir dyrum stóð tveggja
daga fundur friðarsamtaka
vinstri manna.
Ikeda sendir
Krúsjeff orð-
sendingu
TOKYO, 10. marz. NTB-AFP. —
Ikeda,' forsætisráðherra Japans,
beindi í dag þeim tilmælum til
Krúsjeffs, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna, að gera allt sem
hann gæti til þess að koma á
fót alþjóðaráðstefnu um bann
við lcjamorkusprengjutilraun-
um. Orðsending japanska for-
sætisráðherrans var afhent af
sendiherra Japan í Moskvu. í
orðsendingunni segir Ikeda m.a.
að Japan sé eina landið, sem
orðið hafi fyrir eyðileggingar-
mætti kjarnorkusprengjunnar.
Hafi Japan margoft snúið sér
til stórveldanna og reynt að fá
þau til þess að láta af kjarn-
orkutilraunum.
Útvarpið í Paris greindi frá því
í dag að bardagarnir á landamær
um Túnis og Alsír, sem geisað
hafa undatifarna tvo daga, virð-
ist nú á enda.
Á föstudaginn létu 44 menn
lífið og 31 særðust í 55 árásum
'hryðjuiverkamanna. 18 Serkir og
fimm Evrópubúar voru vegnir í
Oran, og í Algeirsborg tíu
Evrópubúar og tveir Serkir.
Þessi mynd var tekin á strandgötu í Hampton í Virginiafylki í Bandaríkjunum í óveðrinu,
sem geisað hefur á austurströnd Bandarikjanna. Tveir nienn eru að hlaupa í var til vinstri
á myndinni. Gífurlegt tjón varð á mannvirkjum í óveðrinu og a.m.k. 40 manns fórust (AP).
tltanríkisráðherrar stdr-
veldanna hittast í Genf
Gromyko lofar jákvæðri afstöðu
Rússa á afvopnunarráðsfefnunni
London og Gentf 10 marz, AP.
U tanríkisráðherra Bandarikj-
anna, Bretlands og Rússlands
munu hittast í Genf á morgun,
sunnudag i kvöldverðarboði De-
an Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Rusk hélt áleiðis
til Genf í dag. Utanríkisráðherr-
fund sinn á mánudag, en á mið-
vikudaginn hefst afvopnarráð-
stefna 18 ríkja í Genf. Gromyko,
utanrikisráðherra Rússa, kom til
Genf í dag ásamt aðstoðarutan-
ríkisráðherrunum Valerian Zor-
in og Vladimir Semenov, auk
fjölda sérfræðinga og aðstoðar-
arnir munu síðan halda fyrsta manna. Semyon Tsarapkin, sér-
Kroll í nýtt embætti
BONN, 10. marz. — Tilkynnt
var í Bonn í dag að dr. Hans
Kroll, sendiherra V-Þýzkalands,
sem Adenauer kanzlari kallaði
heim á dögunum vegna blaða-
skrifa um að Kroll væri ekki
samþykkur stefnu Bonnstjórnar-
innar, myndi fá annað starf í
utanríkisráðneytinu. — Verður
hann sérlegur ráðgjafi varðandi
málefni Austur-Evrópu. Kroll
hefur borið til baka öil um-
mæli blaða varðandi að hann
hneigðist til mildari afstöðu
gagnvart Sovétstjórninni en
Bonnstjómin. Segir Kroll að
hann sé í einu og öllu sam-
Bretar og Þjóðverjar
deila um herkostnað
LONDON, 10. marz. — Slitnað
hefur upp úr viðræðum Breta
og Þjóðverja varðandi aukin
framlög Vestur-Þýzkalands til
þess að standa straum af kostn-
aðinum við brezka herliðið í
Þýzkalandi. Aðstoðarfjármála-
ráðherra Bretlands, sagði er
hann kom frá Bonn að viðræð-
ur þessar hefðu farið fram í
fullri vinsemd, en enginn árang
ur hefði náðst. Þjóðverjar hefðu
boðizt til að .auka greiðslur sín-
ar nokkuð, en ekki nóg. Kostn-
aðurinn við brezka herliðið í
Þýzkalandi er nú 73 milljónir
punda á ári, og sagði ráðherr-
ann að Bretar mymdu gera sig
ánægða með að Þjóðverjar
greiddu 63 rnilljónir af þessari
upphæð. Vestur-þýzka stjómin
er nú að athuga hvort hún telji
sig geta hækkað tilboð sitt.
þykkur stefnu Bonnstjórnarinn-
ar í málefnum A-Evrópu. Dr.
Kroll mun halda til Moskvu og
dveljast þar um hríð áður en
hann tekur við hinu nýja emb-
ætti. —
fræðingur Rússa í afvopnunar-
máilum, var meðal þeirra, sem
tóku á móti Gromyko.
Gromyko sagði við fréttamenn
í Genf að afvopnunarráðstefnan
mundi leita lausnar á vanda-
máli, sem væri svo mdkilvægt
fyrir allt mannkyn, að erifitt væri
að gera of mikið úr því. Hann
sagði að öll öfl í heimirium yrðu
að sameinast um að stöðva víg-
búnaðarkapphlaupið, og útrýma
hinní miklu hættu á kjarnorku-
stríði, sem vofði ytfix öliu mann-
kyni.
Gromyko sagði að ef stórveld-
in gæfu sama gaum aÆvopnun
og stjórnmálamenn þeirra og leið
togar gæfu framleiðslu gjöreyð-
ingarvopna, værj sigur afivopn-
unarinnar viss.
Gromyko lofaði að Rúissar
myndu gera alt, sem í þeirra
valdi stæði til þess að jákvæður
árangur yrði af afvopnunarráð-
stefnunni, og kvaðst vona aðrir
aðilar sýni viilja til þess að kom-
ast að samikomulagL
Kosningar
27. apríl
LONDON, 10 .marz. — Sir
Edgar Whitehead, forsætisráS
herra Suður-Rhodesiu, hefur
lagt fyrir stjórnir Bretlands
og Mið-Afríku rikjasambandc-
ins tillögur sínar um framtíð
ríkjasambandsins. Segir Sir
Whitehead að hér s% lausn,
sem ekki byggir á kynþátta-
málunum. Er m. a. gert ráð
fyrir því að Nyassaland geti
sagt sig úr ríkjasambandinu.
Tilkynnt hefur verið að kosn-
ingar fari fram í ríkjasamband
inu þann 27. apríl nk.
Jackie
Róm
r
I
RÓM, 10. marz. AP. — Jacque-
line Kennedy, forsetafrú, kom
hingað í morgun á leið sinni til
Indlands og Pakistan. í dag
mun hún heimsækja Ítalíufor-
seta og á morgun mun Jóhannes
páfi taka á móti forsetafrúnnL
Kongóstjórn kaupir sprengju-
flugvélar með mikilli leynd
- segir New York Times
New York, 10 marz — AP.
NEW YORK TIMES sikýrir frá
því í dag að fulltrúi stjórnarinn-
ar í Ueoi>oldville í Kongó hafi
haldið til Bandaríkjanna með
mikilli leynd þeirra erinda að
festa kaup á fjórum bandarískum
sprengjuflugvélum frá heims-
styrjöldinni síðari svo og öðrum
vopnum.
Fréttina hefur New York
Times eftir fréttaritara sínum í
Leopoldville. Segir blaðið að em-
bættismaður þessi, Simon Bou-
hula, hafi umboð til þess að
greiða 3—400 þúsund dollara
fyrir sprengjuflugvélarnar og
önnur vopn.
Blaðið segir að Sameinuðu
þjóðirnar verði vafalítið mót-
fallnar þessum vopnakaupum,
svo og Bandaríkjastjórn, þar eð
þau hljóti að verða til þess að
Kongóstjórn verði óháðari SÞ
en áður, en þessir aðilar telja
það mjög óæskilegt t fréttinni
frá Leopoldville segir að nokikrir
ráðamenn í Kongóstjórn hafi
verið mótfallnir vopnakaupun-
um, og teldu Kongóstjórn hafa
annað þarfara við peningana að
gera, þar sem fátækt og sultur
væri í landinu. Segir fréttaritari
N. Y Times að hinsvegar sé
greinilegt að fyrirhuguð vopna-
kaup séu gerð með samþykki
Adoula forsætisráðherra, seoa
einnig fer með varnarmál.
Þá hefur blaðið það eftir frétta
ritara sínum að Bouhula hafi
einnig áhuga á því að kaupa
brezkar flutningaflugvélar sem
flutt geti brynvarðar bifreiðir
og Vampire orustuflugvélar, sem
séu í einkaeign í Svíþjóð."
Segir blaðið að Bouhula hafi
farið frá Leopoldville til Brússel
sl. miðvikudag ásamt John
Angelides, hvítum ráðgjafa í ut-
anríkisráðuneyti Kongó. Segir
N. Y. Times að talið sé að með
í kaupum flugvélanna eigi að
fylgja að hinir hvítu flugmenn,
sem fljúga vélunum til Kongó,
verði þar í tvo mánuði eftir kom-
una.