Morgunblaðið - 11.03.1962, Blaðsíða 15
Sunnudagur 11. marz 1962
MORGVTSBLAÐIÐ
15
leið næstum yfir brúðgumann, og
þurfti að gefa honum sprautu.
Biskupinn, sem gaf brúðhjónin
saman lokaði sig inni, og neitaði
að koma fram í kirkjuna fyrr en
búið væri að ryðja blaðamönn-
um og ljósmyndurum frá og hót-
aði jafnvel að hætta við allt
saman. Eftir giftinguna var þröng
in svo mikil að vinir brúðhjón-
anna ætluðu að brjóta þeim leið
út um hliðardyr, sem reyndust
vera inn á salerni. f>á leið yfir
brúðina og brúðguminn varð að
bera hana gegnum mannþröng-
ina út um aðaldyrnar. En allt
er gott þegar endirinn er góður,
og hér er mynd af hinum ham-
ingjusömu brúðhjónum eftir
vígsluna.
í fréttunum
FRAMFARIRNAR ERU ORAR
Robert Kennedy, dómsmálaráð
herra, litli bróðir Bandaríkjafor-
seta, þykir heldur betur standa
sig. Hann og kona hans Ethel,
hafa þótt afla sér og þjóð sinni
mikilla vinsælda í Asíuferð
sinni. Robert er 37 ára gamall.
Hann þykir ákaflega duglegur,
ef því er að skipta, reytkir ekki
og drekkur helzt mjólk, þó neitar
hann ekki kampavínsglasi. En að
dagsverki loknu þykir honum
skemmtilegast að fá að eyða
kvöldinu heima hjá sér, í 15 km
fjarlægð frá" Washington. Þar,
syndir hann mikið í einkalaug
sinni mað konu sinni, og leikur
og ærslast við krakkana. Hann
fer á hestbak stutta stund á
hverjum morgni, en á kvöldin
hafa krakkarnir hann sjálfan
gjarnan fyrir hestinn sinn. Þau
eru sjö, fjórir drengir og þrjár
stúlkur, það elzta níu ára. Og
sjást þau hér á myndinni talið
frá vinstri: Kathleen, Bobby,
Mary Kerry á hnjám móður sinn
ar, David, Courtney á hnjám-
föður síns, Miohael og Jösepíh. Ef
þau Kennedyhjónin hafa tæki-
færi til, þá þykir þeim gaman að
fara út Og dansa twist í notkikra
klukkutkna.
★
Brúðkaup jazzleikarans Rom-
ano Mussolinis, sonar hins fyrr-
verandi emræðisherra, og Mariu,
systur leikkonunnar Sophiu
Lohren, i Florens á Ítalíu um
daginn, varð dálítið sögulegt. Það
Við altarið lofa eiginkonur að
ítanda við hlið manns síns í
blíðu og stríðu. Það varð þessi
kona, frú Annie Pétain, vissulega
að standa við. Hún hitti Philippe
Pétain, þegar hún var fjögurra
ára Og hann 25. 20 árum seinna
bað hann um hönd hennar, en
fékk neitun hjá foreldrunum.
Loks eftir önnur 10 ár, eftir að
Annie hafði verið gift og skilin,
gif.tust þau. Þá er Philip orðinn
marskálkur í franska hernum,
dáður sem hetja af þjóð sinni
fyrir afrek fyrir fósturjörðina í
stríðinu 1914—18 og var kallaður
„'hetjan frá Verdun“. Góðu árin
endast frarn að seinni heimsstyrj
öldinni. Þá var Petain sendiherra
á Spáni Og var kallaður heim
þegar Þjóðverjar flæddu yfir
land hans — og tók upp sam-
vinnu við þá „til að bjarga því
sem bjargað yrði“ ,eins og hann
sagði sjálfur. Og eftir stríðið var
hetjan frá Verdun orðinn svikar-
inn, sem hafður var í haldi á
Yeu-eyju þar til hann dó, 84 ára
að aldri. Annie bjó í veitinga-
húsi á eyjunni fékk að hitta
gcunla manninn daglega, og þrem
ur mánuðum fyrir dauða hans
fékk hún loks leyfi til að borða
með honum. Nýlega lézt Annie
í París, 10 árum á eftir manni
sínum
ER NÝJA SYNTETISKA
ÞVOTTADUFTIÐ. HAFIÐ ^
ÁVALLT VIÐ HÖNDINA OG
LÁTIÐ LEYSA VANDA
ÞVOTTADAGSINS. ÁNÆGJAN
VEX EF ÞÉR NOTIÐ
©