Morgunblaðið - 16.03.1962, Page 1

Morgunblaðið - 16.03.1962, Page 1
24 síður með Barnalesbók 49. árgangur 63. tbl. — Föstudagur 16. marz 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vatnsveituf ramkvæmdir, sem tryggja vatn fyrir 50-60 þús. íbúaaukningu Á þessu ári verður byggður vatnsgeymir á Litlu Hlíð og aðalæð lógð meðfram IViiklubraut X> A Ð K O M fram á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær, að stefnt er að því, að á næstu 2 árum verði lokið við Vatnsveituframkvæmdir, sem tryggja munu nægilegt vatn fyrir 50—60 þúsund manna íbúaaukningu. Er hér um að ræða nýtingu á nýju vatns- bóli í Bullaugum í Grafar- landi, í Iandi því, sem Golf- völlur Reykjavíkur hefur fengið úthlutað undir nýjan golfvöll. Áætlaður kostnað- ur við þessar og aðrar ný- byggingar í sambandi við aukið vatnsmagn er 33.2 millj. kr. Mun Vatnsveita Reykjavíkur sjálf geta lagt fram 17.2 millj. kr. til fram- kvæmdanna árin 1962 og 1963, en Geir Hallgrímsson, borgarstjóri skýrði frá því á borgarstjórnarfundinum í gær, að á næstunni mundi farið að vinna að því að afla lánsfjár að upphæð 16 millj. kr. til þess að takast megi að ljúka framkvæmdunum á næstu 2 árum. Þá kemur það fram í greinargerð, sem Þór- oddur Th. Sigurðsson, vatns- veitustjóri, hefur sent horg- arstjóra um leit að nýjum vatnsbólum fyrir Reykjavík, að vatnsmagn á svæði þessu muni vera mjög mikið, og telur vatnsveitustjóri, að ó- hætt muni vera að miða virkjunarstærðina við 500 litra á sekúndu með tilliti til þeirra möguleika, sem virð- ast vera fyrir hendi við Bull- augu, en til samanburðar má geta þess að Gvendarbrunn- ar gefa nú 700 1/sek. Hafa þegar verið boraðar 2 holur á svæðinu, og gefur önnur þeirra 120 1/sek., en hin 70 1/sek., og benda allar líkur til þess, að þær geti gefið meira vatnsmagn með bor- holudælu. Einnig kemur það fram í greinargerð vatns- veitustjóra, að jafnframt hafa farið fram rannsóknir á svæðinu milli Gvendar- brunna og Jaðars og að þar er kostur á mjög miklu vatns magni, en Bullaugu eru þó valin vegna þess að stofn- kostnaður við framkvæmdir þar er 2—3 sinnum minni en Jón sem á þessu svæði. Er það Jónsson, jarðfræðingur, einkum hefur unnið að þess- um rannsóknum eða Vatns- veita Reykjavíkur undir leið- sögn hans. GuSmundur H. Guðmundsson (S), formaður vatnsveitunefnd- ar, gerði ítarlega grein fyrir efni greinargerðar vatnsveitu- stjóra á fundi borgarstjómar í gær, en þar var einnig ákveðin bygging vatnsgeymis í Litlu Hlíð, sem stefnt er að, að kom- ist í notkun fyrir næstu ára- mót, en hann mun hafa þá þýð- ingu, að hægt verður að nýta betur þær æðar, sem fyrir eru, og safna næturvatni með því að dæia vatni allan sólarhringinn frá Gvendarbrunnum í stað 14— 15 klst. á sólarhring nú. Mun tilkoma þessa geymis bæta Framh. á bls. 8 Mynd þessi er tekin við Bullaugu í Grafarlandi, á landi því, sem Golfklúbbur Reykjavíkur hefur fengið undir hinn nýja golfvöll sinn, en þar munu á næstu 2 ár- um verða virkjaðir 500 I/sek, sem munu svara til vatnsþarfa 50—60 þús. manna fjölgunar Reykvíkinga. Hafa að undan- förnu verið boraðar þar 2 hol- ur, og sézt á ntdðri myndinni rennsli úr hinni stærri þeirra, sem gefur 120 1/sek. f baksýn sér til Reykjavíkur, og ber þar hæst háhýsin í Háaleiti og Kleppsholti. — Ljósm. Sig- urður Björasson). Ottast að 107 manns hafi farizt í flugslysi Los Angeles 16. marz (AP) ÓXTAST er að 107 manns hafi farizt með bandarískri Super- Constellationflugvél á leiðinni miili Guam og Mánilla á Phil- ippseyjum á fimmtudag. Með flugvélinni eru 96 farþegar, bandarískir hermenn, og H manna áhöfn. Klukkan hálf eitt í nótt eftir ísl. tíma átti flugvélin að vera komin tU Manilla fyrir f jórum klukku- stundum. 20 flugvélar leituðu hinnar týndu flugvélar, sem er eign Flying Tiger flugfé- lagsins, í nótt. — Þegar síð- ast heyrðist frá flugvélinni til kynnti flugmaðurinn að allt væri í bezta lagi og vélin á áætlun. YSirheyrslum haldið áfirom getur brugðið tii beggja vona“. Og hann bætti við: „Enn hefur þó ekkert komið fram sem bendir tii þess að skipið verði kyr- sett“. — Samtcil við Hannes Kjart- ansson um Goðafossmálið Heimskunnur vís- indamaður látinn H. Berkeley, California, 15. marz (AP) Eðlisfræðingurinn Artfiiur H. Compton iézt hér í dag 69 ára að aldri. Hann var heixtnskunnur vísindamaður, Og leiddu rannsókn ir hans m. a. til uppgötvunar kjarnorkusprengjunnar. Cömpton beitti sér miög fyrir friðsamlegri hagnýtingu kjarnorkunnar. Cornp ton var hermskunnur vísindaxnað- ur og (hlaut m. a. Nobelsverðlaun- in í eðlisfræði 1927. — Banamein Comptons var heilablóðfall. MORGUNBLAÐH) átti í gærkvöldi símtal við Hannes Kjartans- son, aðalræðismann íslands í New York, og spurði hann, hvað hefði gerzt nýtt í smyglmálinu varðandi írsku happdrættismið- ana, sem blaöið skýrði frá í gær. Hannes sagði að yfirheyrslur stæðu enn yfir, og engar endanlegar niðurstöður lægju fyrir i nnálinu. Þegar fréttamaður Mbl. spurði hvernig hann teldi að málinu myndi lykta fyrir Goðafossmenn, svaraði Hannes: „Það Hannes Kjartansson sagði enn fremur: í kvöld klukkan sex (kl. 22 eftir ísl. tíma) hafði ekkcrt nýtt komið fram í málinu og engin kæra né kröfur borizt á hendur Eimskipafélaginu vegna þessa máts. Þá leit ekki út fyrir annað en skipið héldi áætlun, það á að fara héðan frá New York n.k. föstudag, eða eftir átta daga. Ekkert hefur enn komið fram, sem bendir til þess, að skipið verði kyrrsett. • Síðan í fyrradag Þá gat nannies þess, að lög- reglurannsókn málsins hefði stað- ið yfir frá því í fyrradag og marg- ir skipverja á Goðafossi verið yfirheyrðir. — Hefur mál þetta vakið at- hygli í Bandaríkjunum? spurði fréttamaður Mbl. — Það hefur talsvert verið um það skrifað í biöð, sérstaklega í New Jersey. — Hvernig líður skipverjum? spurði fréttamaður Mbl. að lok- um. — ÖUum líður vel. • 30. marz Þess má að lokum geta, að í fréttaskeyti frá AP, sem Mbl. barst í gærkvöidi, segir að raan- sókn fyrir dómi i málinu hefjist 30. marz n.k. I skeytinu frá AP segir einnig, að óvist sé um afdrif málsins. ÞETTA er miði úr frska happ drættinu og einnig, sézt horn- ið á miða sem eigandi hans fékk á sínum tima, með til- kynningu um að þetta væri einn af þeim seldu miðum, sem dregnir hefðu verið út, þannig að miðinn héldi áfram að gilda og keppa til vinnings í kappreiðum. Þegar slík við- bót er fengin, þá hefur happ- drættismiðinn hækkað í verði og getm- aftur genigið kaupum og sölum fyrir hærra verð en hann kostaði upphaflega. En það er ckki fyrr en eftir kapp- reiðarnar, sem fram fara haust og vor. að útséð verður um á hverja af þessum útdregnu miðum koina vinningar. Regiurnar í þessu happ- drætti eru þannig, að 25% af innkomiRni upphæð fer til sjúkrahúsa. Eftir að kostnað- ur hefur verið frá dreginn, er upphæðinni skipt upp í 120 punda einingar og hæsti vinn- ingur í hverri einingu 50 þús. punid, sem kemur á fyrsta hest í umræddu veðhlaupi. Ekki er alltaf um sama veðhlaup að ræða, en það, sem þessi miði gildir á hefur verið í Cam- bridge, frska happdrættið er ákaf- lega stórt happdrætti og út- breitt viða um heim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.