Morgunblaðið - 16.03.1962, Page 12

Morgunblaðið - 16.03.1962, Page 12
12 MORGVN BLAÐ1Ð Fostudagur 16. marz 1962 Otgefandi: H.f Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áóm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: (Vðalstræti 6. Augiýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. HVAÐ GERIST íGENF? j’nn einu sinni beinast augu alheimsins til Genfar, hinnar miklu miðstöðvar al- þjóðlegra funda og ráðstefna. Að þessu sinni er nýbyrjað- ur þar fundur 17 þjóða nefndar um afvopnunarmál. 16. þing Sameinuðu þjóð- anna samþykkti í des. sl. að setja á laggirnar 18 ríkja nefnd til þess að vinna að samkomulagi um afvopnun- armálin og banni við kjarn- orkusprengingum. En það eru aðeins fulltrúar 17 ríkja sem hittast í Genf. De Gaulle, Frakklandsforseti, taldi ekki líklegt að slík 18 ríkja ráð- stefna hefði möugleika til þess að komast að nokkurri jákvæðri niðurstöðu um þessi örlagaríku mál. Þegar þessi ráðstefna hófst sL miðvikudag í Genf má segja að afvopnunarmálin hafi verið í algerri sjálf- heldu. Allt frá því að síðari heimsstyrjöldinni lauk og Sameinuðu þjóðimar voru stofnaðar hafa þau verið um- ræðuefni á þingum þess. En þar hefur hvorki gengið né rekið. Sú ráðstefna, sem nú ræðir þessi mál, á að gefa Sam- einuðu þjóðunum skýrslu um árangur af störfum sínum fyrir 1. júní n. k. Skal engu spáð um það á þessi stigi málsins, hver hann verður. Það er mjög illa farið að franska stjórnin skuli ekki senda fulltrúa sína til ráð- stefnunnar. Ber það vott þeim ágreiningi, -sem ríkt hefur um skeið meðal for- ystuþjóða hinna vestrænu lýðræðisþjóða, um aðferðir, enda þótt þær séu sammála um það takmark, sem stefna beri að. Að vísu má segja að veru- legs ágreinings gæti einnig milli kommúnistaríkjanna. Ósamkomulagið milli Rússa og Kínverja verður stöðugt meira áberandi og Krúsjeff er um þessar mundir í mikl- um vanda staddur, vegna erf iðleika rússnesks landbúnað- ar og skorts á korni og kjöti. Fólkið um víða veröld þrá- ir frið. Það væri vissulega mikil ógæfa ef hið tryllta vígbúnaðarkapphlaup héldi áfram. Afleiðing þess myndi fyrr eða síðar verða hernað- arátök, sem hafa mundu ó- fyrirsjáanleg áhrif á framtíð mannkynsins. Þess vegna verður að vænta þess að á Genfarráðstefnunni, sem nú er hafin, geri leiðtogar stór- veldanna úrslitatilraun til þess að ná einhverju sam- komulagi. ALUMINIUM- VERKSMIÐJA gjarni Benediktsson, iðnað- armálaráðherra, skýrði frá því á Alþingi í fyrradag, að aluminiumverksmiðja, sem byggð yrði hér á landi mundi að líkindum kosta ná- lægt 1300 millj. kr. Hann kvað þetta mikla mannvirki hafa verið til umræðu innan margra íslenzkra ríkisstjórna, og upplýsti að sl. tvö ár hefðu ýmis erlend fyrirtæki haft samband við núverandi stjórn um hugsanlegar fram- kvæmdir. H'ér er vissulega um stór- mál að ræða. Hið fábreytta íslenzka atvinnulíf þarfnast nýrra stórfyrirtækja, sem treysta afkomugrundvöll þjóð arinnar og draga úr því ör- yggisleysi, sem hún lengstum hefur búið við. Núverandi ríkisstjórn hefur fullan skiln ing á því, að bætt hagnýt- ing auðlinda landsins er hið mikla mál framtíðarinnar. Þess vegna hefur hún hafizt handa um undirbúning fram- kvæmdaáætlunar, sem vænt- anlega verður lögð fyrirþing og þjóð síðari hluta þessa árs. TOGARARNIR j marga áratugi hafa botn- vörpuskipin verið stór- virkustu framleiðslutæki ís- lenzku þjóðarinnar. Þau áttu ríkan þátt í hinni efnahags- legu uppbyggingu á fyrstu tugum þessarar aldar, og fjölþættum framförum í land inu. Undanfarin ár hefur tog- araútgerðin hins vegar átt við mikla erfiðleika að etja. Er nú svo komið að flestir íslenzku togararnir eru rekn- ir með stór capi. Mörg tog- araútgerðarfyrirtæki hafa hreinlega gefizt upp, og nokk ur hluti flotans var áður en yfirstandandi sjómannaverk- Eftir of- viðrið MYNDIRNAR hérna voru teknar á Long Island og New ■ Jersey eftir fárviðrið í síð- us*u v*ku, en sem kunnugt er geisaði ofsaveður á Atlants- hafsströnd Bandarikjanna og náði allt frá South Caroline til New England. í fárviðrinu fórust 35 manns og 6000 urðu að flýja heimili sín. Neyðarástandi var lýst yfir í nokkrum héruðum. — Gífurlegt tjón varð á mann- virkjum, áaetlað allt að 35 ®JUj. dala. Gerði Kennedy forseti ]>egar ráðstafanir til Þess að senda aðstoð þan'gað sem þörfin var brýnust. Skaftfellingar ganga á fjörur KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 12. marz. — Hér breytti algerlega um tíðarfar með góukomu. Síð- fall hófst, bundinn í höfnum. Orsök þessara vandræða er fyrst og fremst aflabrestur og síaukinn rekstrarkostnað- ur skipanna. Þegar á þetta er litið, sæt- ir það engri furðu þótt bæði togaraútgerðarmenn, sjó- menn og ráðsmenn þjóðar- búsins velti því fyrir sér, hvernig hægt sé að reisa þessa þýðingarmiklu atvinnu grein við. Um vandamál togaraút- gerðarinnar á að vera hægt að ræða af raunsæi og still- ingu. Engum kemur til hug- ar að ofbjóða eigi íslenzkum ’togarasjómönnum með óhóf- legri vinnu. Sjómennimir, útgerðarmennirnir og ráðs- menn þjóðarbúsins verða að finna leiðir til þess að reka hér togaraútgerð á heilbrigð- um grundvelli. Þjóðfélagið hefur ekki efni á því að þessi dýru framleiðslutæki verði látin grotna niður. Við verð- um þvert á móti að hagnýta þau, láta þau draga björg í bú og skapa eigendum sín- um, sjómönmmum, sem vinna á þeim og hinu ís- lenzka þjóðfélagi eins mik- inn arð af þeim og frekast er kostur. an I>orra lauk má tíð heita góð, en nokkuð kaldasamt núna sein- ustu daga. Allfrosthart er á hverri nóttu, en mikið sólfar um daga. Snjór er að mestu horfinn á láglendi, nema stærstu fannir, og sums staðar eru mikil svella. lög. Á flestum bæjum er rafmagn af skornum skammti, því að all- ir lækir eru mjög vatnslitlir, Miklir ísar eiu komnir á öll vötn hér austur á söndunum. Fjöru. eigendur í Fljótshverfi og Öræf. um hafa því notað tækifærið og flutt heim rekavið af fjörum. Til þess eru notaðar dráttarvélar og jeppar. Ekki telja fjörueigend. ur um mikið magn af rekavið að ræða. Samt er þetta tveggja ára reki, því að í fyrravetur kom aldrei færi til að fara á fjörur. — G.Br,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.