Morgunblaðið - 14.04.1962, Blaðsíða 9
Laugardagur 14. aprfl 1962
VORGl'N Jll 4 fílÐ
9
Sæmundur Bjarna-
son — Minníng
ÞANN 29. roarz s.l. andaðist Sae-
rnundur Bjarnason, einn af elztu
borgurum Víkurkauptúns í Mýr-
dal. Hann lézt í Landakotsspítala
eftir löng og erfið veikindi. Út-
för hans er gerð frá Víkurkirkju
í dag.
Sæmundur var faeddur að
Hraunbæ í Álftaveri, 4. október
1880. Hann var sonur Bjarna Þor
Bteinssonar, bónda, og konu hans
Margrétar Bárðai dóttur.
Föður sinn mijsti Saemundur,
þegar hann var 5 ára gamall, en
dvaldist með móður sinni til
fermingaraldurs. Fór hann þá að
heiman til þesis að berjast sinni
eigin lífsbaráttu, sem nú er lok-
ið eftir langt og mikið starf.
Hann stundaði alls konar störf
til sjós og lands, var í vinnu-
mennsku, réri í Þorlákshöfn,
Vestmannaeyjum og í Mýrdal.
Hann stjórnaði skipi frá Vest-
tnannaeyjum og við Jökulsá og
var kappsamur og happasaell for
maður. Það var elcki öllum hent
að vera formaður við hina opnu
brimaströnd Suðurlands á opn-
um áraskipum, og völdust því
aðeins til þess áræðnir og út-
ejónasamir dugnaðarmenn. Sæ-
tnundur var og á yngri árum mik
ill og góður ferðamaður og sá
um fjárkaup og rekstra úr Skafta
fellssýslu til Beykjavíkur fyrr
meir. Hafði hann traust manna
fyrir dugnað og ársfeði.
Haustið 1908 gekk Sæmundur
að eiga Oddnýju Runólfsdóttur
frá Fossi í Mýrdal, mikila ágætis-
og dugnaðarkonu, sem nú lifir
mann sinn, farin að heilsu. Þau
hjón hófu búskap í Sólheimahjá-
leigu í Dyrhólahreppi, en bjuggu
þar aðeins eitt ár. Fluttust þau
þá að Eyjarhólum í sömu sveit
og bjuggu þar til ársins 1924,
er þau brugðu búi og settust
að í Vík. Þar áttu þau heimili
æ síðan.
í Vík stundaði Sæmundur
margvisleg störf, er til féllu, en
hafði auk þess nokkurn búskap.
Til þess síðasta átti hann nokkr
ar kindur, sem hann hugsaði um,
meðan kraftar entust.
Þau hjónin eignuðust 10 böm
og eru 8 þeirra á lífi; 5 dætur
og 3 synir. Þau eru;
Guðlaug, gift Sigurbirni Hall-
dórssyni, vélstjóra í Kópavogi;
Guðrún, gift Holger Gíslasyni,
rafvirkjameistara í Reykjavík;
Margrét, gift Jóni Þórðarsyni,
kaupmanni, Reykjavík; Elín,
gift Grími Guðmundssyni, verzl-
unarmanni, Reykjavík; Guðrún,
gift Teiti Magnússyni, skipstjóra,
Hafnarfirði; Bjarni, bifreiðastj.,
Vík, lcvæntur Huldu Vilhjálms-
dóttur; Ingólfur, verzlunarmað-
ur, Vík, kvæntur Svölu Magnús
dóttur og Runólfur bifreiðastj.,
Vik, kvæntur Sigríði Karlsdótt-
ur.
Tvö börn þeirra dóu á unga
aldri; Guðný, á fyrsta ári og
Finnur, 17 ára.
Ég kynntist Sæmundi Bjarna-
syni fyrst á efri árum hans.
Börnin voru þá flogin að heim-
an og búin að stofna eigin heim-
ili. Gömlu hjónin voru ein eftir
í litla húsinu sínu í Vík. En þótt
fjölskyidan væri orðin nokkuð
dreifð, var áberandi, hvað sam-
heldnin var mikil og samband-
ið milli foreldra og barna náið.
Þótt dæturnar væru búsettar í
fjarlægð, voru þær tíðir gestir á
heimili foreldra sinna og skipt-
ust á að dvelja þar, ef veikindi
steðjuðu að. Hlutu menn að taka
eftir þessu og virða, og sýnir það
m.a. þau uppeldisáhrif, sem börn
in hafa orðið fyrir á æskuheimil
inu og þá virðingu, sem þau
báru fyrir foreldrum sínum.
Sæmundur stundaði vinnu vet
ur og sumar, þegar færi gafst,
allt þar til kraftar þrutu fyrir
fáum árum. Hann var fríður
maður, beinn í baki og kvikur á
fæti. Hann gekk að störfum sín-
um með áhuga, hnyttinn í svör-
um, glettinn án græsku og ætíð
í góðu skapi. Mér fannst hann
vera gleðimaður af guðsnáð, og
hann átti hægt með að skemmta
sér með ungu fólki fram á elli-
ár.
Sæmundur var einarður mað-
ur og hreinskiptinn og fór ekki í
felur með skoðanir sínar, enda
ekki gefinn fyrir að biðjast vægð
ar, þótt við andbyr væri að etja.
Gæðaúrið öllum fremra og frægra - um lönd og höf - hvað gefur betur til ^
kynna örugga smekkvísi nútimamannsins. Aðeins ROAMER býður mér einmitt þaö er ég þarfnast:
j^|. Fyrsta flokks gæði. 2. Ósvikinn glæsileik.
3. Alla kosti (100% vatnspétt, gengur af
sjálfu sér, sýnir dagatal o. s. frv.).
Ijja, 4. Furðusamlega hagkvæmt verð.
É II 1
OF SWIT, 1 R 1. A N D
Hið heimsfræga
svissneska
gaeðaúr
Óvini hygg ég, að ,hann hafi
enga átt, en vini og kunningja
marga.
Mér er ljúft að minnast þessa
vinar míns, nú þegar hann er
allur. Hann mætti mér ætíð með
ljúfmennsku og bros á vör.
Þeim, sem bera gleðina með sér
varður óhjákvæmilega vel til
vina. Sæmundur Bjarnason var
einn af þeim.
Við, sem þekktum hann, sökn-
um hans, er hann hverfur yfir
móðuna miklu. En „eitt sinn skal
hver deyja“, og Sæmundur hafði
lokið löngu og erfiðu dagsverki.
Heilsan var þrotin og þá er öll-
um gott að fá hvíld. Ég kveð því
þennan merka Mýrdæling, ekki
með harmi, enda hefði það ekki
verið að skapi hans. Ég feveð
hann með þafeklæti fyrir samver
una og samfylgdina og óska hon
um góðrar ferðar og góðrar heim
komu til landsins éilífa og bið
höfund lífsins að gefa honum frið
og ástvinum hans styrk í nútíð
og framtíð.
Ragnar Jónsson.
Félagslíi
VfKINGUR
Knattspyrnudeild.
Æfingar hefjast hjá meistara-
og ÍI. flokki á Melavellinum n.k.
sunnudag kl. 10.30. Nýr þjálfari
mætir.
Víkingar 4. og 5. fl.
A og B, 5. fl. æfing, laugard
kl. 6.
C og D, 5. fl. æfing, laugard
kl. 5.
4. fl. æfing sunnud. Xd. 1.30
Þjálfarar.
VALSMENN!
Dvalarkort fyrir páskadvöl í
Valsskálanum varð'a afhent í
Valsheimilinu á mánudaginn 16.
apríl kl. 20—22.
Skíöadeild.
Skíðaferðir í Jósepsdal.
Dvalið verður í Ármannsskál- J
anum um helgina. Ferðir frá
B.S.R. í dag kl. 2 og 6 og í
fyrramálið kl. 9.
Skíðadeild Ármanns.
Páskadvöl í Jósepsdal.
Dvalarmiðar verða afgreiddir
á skirfstofu félagsins í íþrótta-
húsinu við Lindargötu kl. 8—
9.30 e.h. á mánudag og þriðju-
dag. Tryggið ykkur miða í tíma.
Skiðadeild Ármanns.
&
SKIPAUTGCRe RIKISINS
Ms. ESJA
vestur um land til Akureyrar
18. þ.m. Vörumóttaka í dag og
árdegis á morgun til Patreks-
fjarðar, Bíldudals, Þingeyrar,
Flateyrar, Suðureyrar, ísafjarð-
ar, Siglufjarðar og Akureyrar.
Farmiðar seldir á mánudag.
££LGUFIU£
Til leigu
í V ON ARSTRÆTI 12 3—4
samstæðar stofur, fyrir skrif-
stofur eða léttan iðnað. —
Leigjast 1 einu eða tvennu
lagi.
Jóhannes Lárusson
héraðsdómslógmaður
lögfræðiskrifst. - fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842
Munið okkar vinsæla
kalda borð,
hlaðið bragðgóðum
ljúffengum mat.
Eftirmiðdagsmúsík
frá kl. 3,30
Kvöldverðarmúsík
frá kl. 7,30.
Dansmúsik
frá kl. 9—1.
Hljómsveit.
Björns R. Einarssonar
leikur.
Borðpantanir í síma 11440.
Aldui. iakmark 21 árs.
Gerið ykkur dagamun
borðið og skemmtið ykkur að
Ódýrosta
Sælgætið
INGÓLFS APÓTEK
IDON
er ódýrasta megrunarmeðalið
Dagskammturinn kostar að-
eins lcr. 18.55.
INGÓLFS APÓTEK
Sími: 11330.