Morgunblaðið - 17.04.1962, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.04.1962, Qupperneq 1
110 kindur krókna og drukkna í húsi Lækur hljóp á fjárhús i Vopnafirbi AÐFARANÓTT laugardagsins hljóp mikill vöxtur í læk við bæinn Egilsstaði i Yopnafirði. Komst vatnið í fjárhús um 200 m. frá og drukknuðu eða krókn uðu 110 kindur i húsunum. — Hefur bóndinn að Egilsstöðum, Björn Sæmundsson, orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. í símtali við Mbi. í gær sagði B.i örn að hann hefði sjálfur átt 80—90 kindanna, sem drápust, en annað heimilsféik að Egils- etöðum, þar á meðal móðir sín, hefði átt hinar. Fjárhúsin sem um ræðir eru byggð 1957. Standa þau framar- lega í túninu á Egiisstöðum í um 200 m fjarlægð frá læknum og 400 m fjarlægð frá íbúðar- húsinu. Aðfaranótt laugardagisins hljóp skyndilega mikill vöxtur í lækinn. Fór han-n upp úr farvegi sínum og skall hlaupið á fjár- húsunum. Fylltust þau nær af vatni en þannig hagaði til að skafl var fyrir framan húsin, og fylltust þau áður en vatnið náði að þrengja sér gegnum skaflinn. Einnig kömst vatn í hlöðuna og Skemmdist talsvert af heyi. Er vitjað var um féð á laugar dagsmorguninn var heldur ófög- ur aðkoma í fjárhúsunum. Var mikið af fénu dautt, og höfðu gemlingarnir drukknað en ærnar króknað að þvi er Björn telur. Sagði hann Mbl. í gær að er hann hafi opnað dyrnar á hús- utnum hafi það verið líkast þvi að flóðgátt opnaðist. Streymdi vatnið út og lækikaði a.m.k. um fet. Klofdjúpt vatn var þá í hús unum. Milli 70 Og 80 ær lifðu af voSk ið. Er mest af fé þessu við sæmi lega heilsu, en sumar ærnar aiil slappar. Taldi Björn að búast mætti við lambaláti eftir þetta. Bkikert af skrokkunum er nýti legt, en gærur hafa verið teknar af þeim, og mun kauptfélagið á staðnum kaupa þser. Verða skrökkarnir nú grafnir. Bjöm bóndi hefur orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Er hver kind metin á a.m.k. 1000 krónur með lamibi, og nemur tjótnið því á annað hundrað þúsund krónur. Skriða féll milli fjóss- ins og íbúðarhússins Bæir umflotnir — Vegir spilltir — Sogið flýtur á vegi við Alftavatn — Vandræðaástand af völdum rafmagnsskorts SÍÐDEGIS á föstudag gerðist það að Hvolstungu, Steinum undir Eyjafjöllum, að skriða hljóp fram og þakti stóran hluta af túni bónidans leðju og stórgrýti. Fór skriðan á milli íbúðarhúss og fjóss og hljóp allt niður á veg. Lítið af henni mun þó hafa farið yfir veginn sjálfan. Að Steinum er fimmbýli, og etendur bærinn Hvolstunga uppi undir fjallinu. Um sexleytið á iaugardaginn kom mikið hlaup í b.æjarlækinn og féll aur Og stór- grýtisskriða niður gamla farveg- inn, sem var á aðra mannhæð á dýpt Og fyllti farveginn. Fór skriðan milli Ibúðarbússins Og fjóssins, en á milli þeirra eru um 30 faðonar. Mikill hluti túnsins að Hvols- tungu er nú undir leðju og grjóti. STÓRFLÓÐ í Hvítá í Bisk- upstungum, Soginu og Ólfusá valda skemmdum á raflínum, vegum og mannvirkjum, sem standa umflotin vatni. Vand- ræðaástand hefir skapazt á mörgum bæjum á Skeiðum og í Hreppum vegna raf- magnsskorts og í Auðsholti í Hrunamannahreppi, er bær- inn samgöngulaus nema á bátum, og jafnvel verður að fara í fjárhúsin á bátL — Ekki hefir orðið tjón á grip- um svo vitað sé, en vega- skemmdir eru talsverðar og tilfinnanlegastar voru skemmdirnar á aðalraflín- unni um Sogið og Hreppa. Fréttamaður blaðsins fór snemma í gærmorgun í léiðang- ur austur að Sogi og Hvítá til þess að skoða verksummerki flóðanna. Af Kambsbnin mátti sjá að dropótt myndi í Ölfusá, því ósar hennar voru sem haf- sjór er breiddi sig yfir Ölfusið. Er komið var austur að Sogi sýndist það ásamt Hvitá eitt heljarmikið stöðuvatn er náði allt upp að Sogsbrú. Hús umflotin Vatn flaut heim á tún á Laug- arbökkum undir Ingólfsfjalli og hús voru þar umflotin. Við brugðum okkur fyrst þangað heim og um klukkan 7 í gær- morgun var vatnið enn stígandi og var nýtt hús nær umflotið og vatnaði yfir nokikrar tröpp- ur við innganginn. Heita mátti að eldra íbúðarhús væri einnig umflotið þar skammt frá. Vaka þurfti í alla fyrrinótt og hafa gætur á hænsnahúsi, sem einn- ig var umflotið en efcki hafði enn þurft að flytja burtu hænsn in, sem þar voru 200 talsins. Vegaskemmdir við Álftavatn Næst var haldið upp með Sogi og upp að Álftavatni, sem mjög hafði hækkað í svo flaut yfir veginn hjá Álftahólum. Mun Sogið hafa komizt upp í 320 teningsm. á sek., og hetfur aldrei verið svo mikið síðan rafstöðv- arnar komu þar. Þá var ekið austur um Gríms nes og var vegur víða spilltur, þar sem lækjarsprænur hötfðu flætt ytfir hann en þó hvergi valdið stórvægilegum skemmd- um. í Brúará var mjög mikið og beljaði hún fram og breiddi sig ytfir mýramar vestur atf Skálbolti. Á Spóastöðum hittum við Þór- arin Þorfinnsson bónda við fjósverk og tjáði hann okkur að annað eins flóð myndi hann ekki í Brúará í sinni tíð, nema hvað flóð hefðu verið nálægt þessu 1930 og 1948. Kl.' 6 á sunnudagsmorgun hafði raflín- an slitnað undan Auðsholti hjá Iðubrú og varð þá allt raf- magnslaust um nærliggjandi sveitir. Á Spóastöðum eru rúm- ar 20 kýr í fjósi, vimnumaður- inn veikur af inflúenzu og þá einn maður til að handmjólka alia gripina. Þar komst þó raf- magn fljótt í lag er búið var að klippa burt vírdræsumar undan Auðsholti. Hins vegar var enn rafmagnslaust í Hreppum Framh. á bls. 2. Ibúðarhúsln á Laugarbökkum. undir Ingólfsfjalli voru í gær umflotin vatm úr Ölfusá og mikið af túnmu var einnig undir vatni. Þessi m.ynd er tekin þar. %■ »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.