Morgunblaðið - 17.04.1962, Síða 8
8
MORGTJ'NHLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. aprll 1962
Kjarasamningar opinberra starfs-
manna í neöri deild
GUNNAR Thoroddsen, fjármála
ráðherra gerði grein fyrir frum
varpi ríkisstjómarinnar um
kjarasamninga opinberra starfs
manna í neðri deild í gær. Gat
hann þess m.a. að fullt samráð
hefði verið haft við stjórn BSRB
um frumvarpið, eins og ríkis-
stjórnin gekk frá því.
Eysteinn Jónsson (F) kvað hér
raunverulega um að ræða samn
ing milli riikisstjórnarinnar og
BSRB. Framisóknarflokknum
þætti því eðlilegt að styðja mál
ið óbreytt, þar sem það væri á
þessa lund til komið.
Hannibal Valdimarsson (K)
kvað frumvarpið aðeins áfanga
í kjarabaráttu opinberra starfs-
manna. í öllum lýðræðisþjóð-
félögum væri litið svo á, að vertk
fallsrétturinn heyrði tiil al-
mennra mannréttinda. Hér væri
ætlazt til, að Hæstiréttur skip
aði þrjá menn af firrwn og fjár-
málaráðherra einn, en launþeg-
ar hins vegar aðeins einn mann
í Kjaradóminn og sæju allir, að
ekki væri viðunandi fyrir laun
þegastéttina, að ríkisyaldið hefði
svo sterkan meirihluta í dóann
um.
Furðuleg afstaða
Gunnar Thoroddsen, fjármála
ráðherra rifjaði upp, að máil-
svari Alþýðubanda.lagsins í efri
deild hélt því fram, að með frv.
fengju öpinberir starfsmenn
eikki full mannréttindi, þar sean
SPARISKOR
FYRIR
TíLPUR
OIÍMMÍSTÍGVÍL
rauð, hvít, brún:
Stærðir 23—27
Svört: Stærðlr 23—38
Brún: Stærðir 32—38
Skóhiísið
Hverfisgötu 82
Sími 11-7-88.
þeir hefðu ekki
verkfalilsrétt. —
Þessi furðulegá
yfirlýsing hefði
þá ekki verið
teikin alvarlega.
En nú hefði HV
endurtekið, að
verkfallsréttur-
inn heyrði til al
mennum mann-
réttindum í öllum lýðræðisþjóð-
fólögum. í þessu sambandi vé(k
ráðherrann að þvi, að í ná-
grannalöndum okikar, sem eng
in vafi leikur á, að hið bezta lýð
ræði ríki í, hafi opinberir starfs
menn yfirleitt ekki rétt til verk
falla. f Danmörku t.d. eru laun
þeiira ákveðin með launalögum,
í Svíþjóð og Finnlandi er endan
legur úrskurður tekinn af rík-
isvaldinu, Og hér á landi hefur
í nærri hálfa öld rítet sú skipan,
að verkföll opinberra starfs-
manna hafa verið ólögmæt Og
refsiverð. Það sé því næsta furðu
legt að heyra þá yfirlýsingu, að
opinberir starfsmenn njóti etkki
almennra mannréttinda.
En þar sem þessi yfirlýsing
kemur frá fulltrúum heimskomm
únismans, er rétt að líta á ástand
ið eins og það er í þeim löndum,
er hann ríkir í. Þar eru öll verik
föll óheimil, ólögleg og refsiverð.
Eftir kenningu fulltrúa heims-
kommúnismans hér á landi er
því m.ö.o. slegið föstu, að í þess
um rikjum njóti menn ekki al-
mennra mannréttinda.
Frumvarpinu var vísað til 2.
umræðu og fjárhagsnefndar.
//
Kiljans-afmæH
í Háskólabíói
44
Þrjár bækur koma út á afmælis-
degi skáldsins
í TILEFNI af sextugsafmæli
Halldórs Kiljans Laxness og á
sjálfan afmælisdaginn, 23.
apríl, annan í páskum, klukk-
an 2, efnir Helgafell til „Kilj-
ans-afmælis“ í Háskólabíó.
Þar flytur menntamálaráð-
herra, Gylfi Þ. Gíslason, af-
mæliskveðju til Halldórs Kilj-
ans Laxness. Síðan verða flutt
ir þættir úr verkum skáldsins,
sem Lárus PáJsson setti sam-
an.
Flytjendur leikþáttanna eru
Helga Váltýsdóttir, Haraldur
Björnsson, Rúrik Haraldsson og
Dárus Pálsson. Fluttu þau þessa
Beginmunar á gfaldinu til Stofn-
lánadeildar og Bændahallar
Úr jómfrúræðu Gubjóns Jósefssonar
GUÐJÓN Jósefsson, er situr á
Alþingi j stað Einars Ingimund-
arsonar, hélt jómfrúræðu sína
sl. laugardag við umræður um
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
FORDÆMI FYRIR SLÍKUM
SKATTI
Gerði hann m. a. nokkuð að
umtalsefni 1% álagið á fram-
leiðsluvörur bænda og kvað
hann ekkert óeðlilegt, þótt það
væri töluvert rætt og eitthvað
skiptar skoðanir um það. Enda
hefði sér vitandi enginn haldið
því fram, að þetta væri lítilfjör-
legt atriði máLsins.
Fordæmi eru fyrir því, að slík-
ur skattur sé lagður á bændur.
Og þótt það komi þessu máli
ekki beinlínis við, kvaðst' al-
þingismaðúrinn líta svo á, að
það gæfi sér tilefni til að líta á
málið frá fleiri en einni hlið.
Enda gæti hann gjama lýst því
yfir og væri sannfærður um, að
margir bændur yrðu á svipaðri
skoðun um, að reginmunur væri
á, að leggja fram fé til stór-
hallarbyggingar í höfuðstað
landsins, jafnvel þótt það kunni
Guðjón Jósefsson
að vera góð og gagnleg og nyt-
samleg bygging, og því að
byggja upp sína eigin starfsemL
M. ö. o. að leggja nokkurt fjár-
magn af mörkum til að standa
betur að vígi til að byggja upp
land sitt, rækta það og efla
nauðsynlegar framkvæmdir í
sveitunum. En einmitt að því
hafa bændur unnið og þeir munu
halda því áfram og þeir munu
taka við hverjum þeim styrk,
er þeim er veittur í því skyni.
En á móti framlagi því, er
bændur leggja fram, kemur jafn
hátt framlag úr ríkissjóði, auk
þess sem fleiri stoðir renna und-
ir stofnlánadeildina.
Talað er um, að hér sé farið
inn á nýjar brautir. Og vel má
vera, að svo sé. Hin<s vegar
kvaðst alþingismaðurinn halda,
að bændur landsins hefðu ekki
hikað við að brjóta sér land og
leggja brautir til framtíðarinn-
ar í gegnum éitt verk.
„Og þótt þetta framlag bænd-
anna sé þeim ekki algjörlega lít-
ilfjörlegt og kosti þá nokkra
rýrnun í kaupi, er ég sannfærð-
ur um, að þeir muni verða ótal
margir bændurnir, sem telja það
ekki eftir,“ sagði alþingismaður-
inn að lokum. „Og ósk okkar
verður þá miklu frekar sú að
fá kaup okkar greitt gegnum
verðlagsgrundvöllinn á þann
hátt, sem við teljum okkur bera
og eiga rétt til.“
Odýrustn
sælgætið
somu þætti úti á landi í fyrrasum
af og gekk leiksýningin undir
Halldór KiIJan Laxness,
nafninu „Kiljans-kvöld“. Hlaut
hún góðar undirtektir og var
sýnd í nokkur skipti í Iðnó s.l.
haust, en varð að hætta vegna
veikinda eins leikarans.
Halldór Kiljan Laxness verður
ekki hérlendis á afmælisdaginn
sinn. Hann dvelst um þessar
mundir í Kaupmannahöfn og er
væntanlegur til íslands í byrjun
næsta mánaðar.
Aðgöngumiðar að „Kiljans- af»
mæli“ verða seldir í dag og á
morgun í bókaverzlun Lárusar
Blöndal, Vesturveri, og Háskóla-
bíói. Verða þeir einnig til sölu I
Háskólabíói annan páskadag.
ÞRJÁR BÆKUR
Á afmæli Halldórs Laxness
koma út hjá Helgafelli þrjár bæk
ur og eru þær þessar:
Afmæliskveðjur helman og
handan, sem þeir dr. Jakób Bena
diktsson, dr. Sigurður Þórarins-
son Kristján Karlsson og Tómas
Guðmundsson hafa annazt útgáfu
á. Eru i þeirri bók 27 greinar,
ávörp og kveðjur frá milli 30—40
mönnum, rithöfundum, bók«
menntafræðingum og vinum, úr
18 löndum og á jafnmörgum
tungumálum. Árni Böðvarsson
hefur búið bókina undir prentun,
Kemur hún út 1 mjög litlu upp-
lagi og verður meginþorrinn send
ur til útlanda, en þau 200 eintök,
sem til sölu verða á innan«
landsmarkaði fást hjá forlaginu,
en verða ekki send í verzlanir.
Halldór Kiljan Laxness, afmæl
isrit, sem Kristján Karlsson hef«
ur séð um. f bókinni er ritgerð
um skáldið eftir Kristján, á ís«
lenziku og ensku, og ennfremur
ítarleg skrá yfir allar útgáfur af
Laxnessverkum i ýmsum lönd-
um, sem Haraldur Sigurðsson,
bókavörður, hefur tekið saman.
Auk greinar Kristjáns og skýrslu
Haralds eru í bókinni mikill
fjöldi ljósmynda af Nóbelsskáld«
inu.
Vettvangur dagstns, ný útgáfa
af ritgerðasafni skáldsins, sem
ófáanlegt hefur verið í mörg ár.
Fleiri bækur HKL eru væntan,
legar síðar*á þessu ári, þar á með
al ritgerðasafnið Dagleið á fjöll*
um, sem ekki hefur verið til I
yfir 20 ár.
Keflavík
Til sölu
Einbýlishús, 2ja herb.
Margar íbúðir 3ja—4ra herb.
Gott smáhýsi til brottfiutn-
ings t. d. bílskúr eða ann-
að slíkt.
Vilhjálmur Þórhallsson hdl.
Vatnsnesvegi 20 kl. 5—7
Sími 209(2.