Morgunblaðið - 17.04.1962, Qupperneq 12
12
UORUZJn BLAÐÍO
I»riðjuc(agur 17. apríl 1962
CTtgefandi: H.f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
' 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
GÓÐÆRI FRAM-
UNDAN
Veirur geta sennilega
orsakað krabbamein
Ársskýrsla bandaríska krabbameins-
félagsins telur oð brátt muni takasi\
oð færa sönnur á orsakasamband
milli veira og sumra tegunda
krabbameins
ridhúsdagsumræðumar á
^ Alþingi í síðustu viku
staðfestu tvenr.t, svo að eigi
verður vun villzt.
1 fyrsta lagi að vinstri
stjórnin gafst upp við að
stjórna landinu og skildi við
efnahagslíf þióðarinnar í
rústum.
1 öðru lagi að núverandi
ríkisstjórn, sem tók við hin-
um bágborna arfi vinstri
stjómarinnar hefur á 2% ári
unnið þjóðnýtt viðreisnar-
starf og hefur á þessum
skamma tíma tekizt, þrátt
fyrir harða andstöðu stjóm-
arandstöðunnar að skapa
jafnvægi í efnahagsmálum
þjóðarinnar og leggja þar
með grundvöll að vaxandi
framleiðslu og góðæri í land
inu. —
Þessar tvær meginstað-
reyndir er þýðingarmikið að
sem flestir landsmenn festi
sér í huga.
Bjami Benediktsson, dóms-
málaráðherra, vakti athygli
á því í ræðu sinni í útvarps-
umræðunum, að Framsóknar
menn og kommúnistar hefðu
efcki spáð vel fyrir þessari
ríkisstjórn, þegar hún tók við
völdum. Allir könnuðust við
staðhæfingar Karls Kristjáns
sonar um að ríkisstjómin
væri að skapa móðuharðindi
af mannavöldum í landinu.
Hermann Jónasson hefði
sagt, að stefna ríkisstjórnar-
innar myndi leiða stórfellt
atvinnuleysi yfir þjóðina.
En nú væri svo komið,
sagði Bjarni Benediktsson,
þegar allar þessar hrakspár
stjórnarandstöðunnar hefðu
sprungið, að jafnvel Fram-
sóknarmenn væm famir að
viðurkenna hinn heillaríka
árangur af stjómarstefnunni
og teknir að spá góðæri í
landinu. Vitnaði dómsmála-
ráðherrann í þessu sambandi
tii ummæla í forystugrein
Tímans hinn 29. marz sl. en
þar var m.a. komizt að orði
á þessa leið:
„Margt bendir til þess að
árið 1962 verði íslenzku
efnahagslífi hagstætt ár eins
og s.l. ár var“.
Bjami Benediktsson kvað
hér vissulega mikla breyt-
ingu á orðna. Mennimir,
sem fyrir tveimur ámm sáu
fram undan geigvænlegt at-
vkinuleysi og móðuharðindi
af mannavöldum, lýsa því nú
yfir hver í kapp við annan
að hér sé ekkert atvinnu-
leysi og við blasi góðæri með
vaxandi þjóðartekjum og
vaxandi þjóðarauð.
ORÐNIR AÐ
VIÐUNDRI
etta em vissulega athyglis
verðar staðreyndir. Eng-
um kemur til hugar að
stjómarandstæðingar séu að
spá góðæri í landi til þess
að styrkja með því ríkis-
stjómina og auka traust
hennar. Sannleikurinn er sá
að Framsóknarmenn gera
sér ljóst, að þeir em orðnir
að viðundri fyrir hjal sitt
um móðuharðindi af manna-
völdum á sama tíma sem al-
mennari velmegun ríkir í
landinu en oftast áður. Þess
vegna neyðast þeir til þess
að viðurkenna að stjómar-
stefnan hefur lagt heilbrigð-
an gmndvöll að áframhald-
andi framkvæmdum og upp-
byggingu í landinu. Þess
vegna er góðæri framundan.
Hagstætt árferði til lands
og sjávar myndi vissulega
ekki nægja til þess eitt að
skapa velmegun og horfur á
góðæri. Ef bjargræðisvegir
þjóðarinnar væm reknir með
stórkostlegum halla og allt
efnahagslíf hennar væri hel-
sjúkt dygðu hvorki góð afla-
brögð né mikil grasspretta
til þess að skapa góðæri. Það
sannaðist bezt á valdatíma-
bili vinstri stjómarinnar. —
Árið 1958 var mikið aflaár í
sögu íslenzks sjávarútvegs.
Engu að síður var það á því
ári sem vinstri stjórnin gafst
upp og hljóp frá efnahags-
málum þjóðarinnar í rústum.
Það var afleiðing verðbólgu-
og styrkjastefnunnar, sem,
vinstri stjómin fylgdi.
Sjálfstæðismenn munu
halda áfram að berjast fyrir
jafnvægisstefnunni í íslenzk-
um efnahagsmálum. í skjóli
hennar mun framleiðslan
halda áfram að aukast, af-
raksturinn af starfi fólksins
að vaxa, og afkoma alls al-
mennings að batna. Núver-
andi ríkisstjóm má vel við
það una að hafa breytt þeim
rústum, sem vinstri stjórnin
skildi eftir sig, í góðæri,
sem jafnvel stjórnarandstæð-
ingar komast ekki hjá að
viðurkenna.
NÝ FINNSK
RÍKISSTJÓRN
lok síðustu viku tókst loks
að mynda nýja ríkisstjórn
New York, 15. april.
NIJ ER „aukin eftirvænting“
meðal bandarískra vísinda-
manna vegna þess að þeim
tekst ef til vill í fyrsta sinn
að færa sönnur á þá trú, að
veirur orsaki sumar tegundir
krabbameins í mönnum, að
því er segir í skýrslu banda-
ríska krabbameinsfélagsins.
Ársííkýrsla félagsins, sem gefin
var út á sunnudaginn, nefnir eftir
farandi staðreyndir sem urðu
ljósari við veirurannsólknir 1961:
1) Hvítblæði í músum, sem
orsakast af veirum, er mjög
skylt hvítblæði í möninum, „og
má þvi álykta að mögulegt
geti orðið að búa til bóluefni
eða blóðvatn gegn þvi.
2) Ný tækni við vefjarækt-
anir gerir mögulegt að þekkja
krrabbaveiru úr kjúklingum,
áður en hún fer að valda sjúk
dómseinkennum.
3) f blóði krabbameinssjúkl
inga finnast mótefni, sem ekki
finniast í blóði heilbrigðra
manna.
4) Til er veira, sem drepur
krabbameinsfrumur í músum,
án þess að gera þeim mein.
„Af þessu“, segir skýrslan, „er
augljóst að veirur, sem eru
minnstar a!lra þekktra smálíf-
vera, sýna merki um að þær geti
orsakað krabbamein, komið af
stað mótefnaframleiðslu Og lækn-
að krabbamein".
í Skýrslunni er sagt að vegna
árangurs, «em bandarískir vís-
indamenn hafa náð á sviði veiru-
rannsókna „geti þeir orðið fyrstir
til að staðfesta þá vaxandi trú,
í Finnlandi. Var þá rúmur
hálfur þriðji mánuður liðinn
frá því að þingkosningarnar
fóru fram. Úrslit þeirra kosn
inga urðu, eins og kunnugt
er á þá leið, að hægri flokk-
amir unnu verulega á en
kommúnistar og vinstri jafn-
aðarmenn töpuðu.
Sú ríkisstjórn, sem nú hef-
ur verið mynduð í Finnlandi,
er meirihlutastjóm hægri
flokkanna. Má því segja að
hún sé rökrétt afleiðing af
kosningaúrslitunum. Margir
voru þó uggandi um það, að
borgaraflokkunum njyndi
ekki takast að mynda stjórn
saman, ekki sízt vegna íhlut-
unar Rússa um finnsk innan-
landsmál. Öllum eru í fersku
minni hótanir Krúsjeffs í
garð finnsku þjóðarinnar,
þegar framboð til forseta-
að veirur Orsaki að minnsta kosti
sumar tegundir krabbameins í
mönnum-*.
Einnig segir í skýrslunni:
Dánartala af völdum kraibba-
meins í legi hefur lækkað niður
í 13,3 af 100.000 konum. Það er
helmingi lægra en fyrir 25 ár-
um, þegar það olli dauða fleiri
kvenna en nok'kur önnur teg-
und krabbameins, sem olli dauða
í konum.
kosninganna voru kunn á sl.
hausti.
Það er Karjalainen, fyrr-
verandi utanríkisráðherra,
sem hefur myndað hina nýju
ríkisstjórn og verður for-
sætisráðherra hennar. Flokk-
amir, sem standa að stjóm-
inni, eru bændaflokkurinn,
sem á 53 fulltrúa í finnska
þinginu, íhaldsflokkurinn,
sem á 32 fulltrúa, finnski
þjóðflokkurinn með 13 full-
trúa og sænski þjóðflokkur-
inn með 14 fulltrúa. Samtals
eru stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar því 113 af 200
þingmönnum. Em stjómar-
andstæðingar því 87 talsins.
Stefna hinnar nýju ríkis-
stjómar miðar fyrst og
fremst að því að auka fram-
leiðslu þjóðarinnar og
tryggja næga atvinnu í land-
Betur gengur orðið að lækna
krabbamein. Einn af hverjum
þremur læknast nú af lyfjum,
skurðaðgerðum eða geislun. Sam
svarandi tala fyrir 25 árum var
einn af sjö. Auknar rannsófcnir
á lyfjurn, veirum og mótefna-
framleiðslu líkamans, gefa vonir
um nýjar lækningaaðferðir og
möguleika á ónæmisaðgerðum.
Vegna þeirra framfara, sem
verða í baráttunni gegn krabba-
meini, segir félagið „að við verð-
um að gera áætlanir akkar og
framfcvæma þser, eins og hvert ár
sé okkar síðasta", því markmiðið
er að félagið verði leyst upp,
þegar búið er að leysa krabba-
meinsvandamálið. Það segir að
lokasvarið komi ef til vill smátt
og smátt frá ýmsum sviðum vís-
indanna, eða allt í einu.
Bandaríska þjóðin lagði nærri
37 milljónir dollara af mörkum
sem er meira en nofckru sinni
áður, til stuðnings við rannsóknir
félagsins, hjúkrunar krabbameins
sjúk-linga, almennrar fræðslu og
vísindalegrar kennslu.
inu. Ennfremur hefur stjórn-
in heitið því, að unnið skuli
að því að koma á 40 stunda
vinnuviku, en þess verði þó
jafnframt gætt að stofna
ekki samkeppnisaðstöðu lands
ins í hættu á erlendum mörk
uðum. Stjómin hefur einnig
heitið því að tryggja gengi
finnska marksins.
í stefnuskrá stjórnarinnar
er engin afstaða tekin til ut-
anríkismála. Mun það naum-
ast vekja undrun meðal
þeirra, sem vita í hvaða úlfa-
kreppu Finnar eru vegna ná-
lægðar sinnar við Sovétríkin.
En óhætt er að fullyrða, að
þessi nýmyndaða ríkisstjóm
muni fylgja sömu stefnu í
utanríkismálum og minni-
hlutastjóm Bændaflokksins
gerði á síðasta kjörtímabili.
Þarna munaffi mjóu aff yrffi slys sl. laugardag, þegar ofsaflóð-
in voru. Þetta er brúin yfir Suffurá á veginum aff Gvendar-
brunnunum. Jóhannes Kolbeinsson, starfsmaður hjá Vatns-
véitunni, var aff fara í eftirlitsferff aff Gvendarbrunnum og
hafffi í bílnum með sér konu sína og barn, þar eff hann átti
sér einskiis rlls von. Er hann ók út á brúnarsporffinn lét allt
undan og bíllinn vó salt á brúninni. Hann náði í hjálp og
gat dregiff bilinn upp á veginn. Hér sést Jóhannes útskýra
óhappið við brúna.