Morgunblaðið - 17.04.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.04.1962, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 17. apríl 1962 MORCVTSBLAÐIB 13 M »J ! Þcssi mynd var tekin á laugardag rétt neðan við Elliðavatnsstífluna, og sést þar nágranna bústaður konunnar sem húkti á steininum umflotin vatni. Hennar hús er aðeins lengra til hægri við það sem sést á myndinni og lögreglu þjónarnir komu róandi fyrir tangann til vinstri. Elliðaárnar 25 földuðust Kona á steini í ánni í 2 tíma UM kl. 5—6 síðdegis á laugardag brast stíflugarður rafveitunnar úr EUiðavatni og myndaðist um 20 m skarð í hann. Þégar flóðald an mikla kom ofan af Sandskeiði og Lögbergi í EUiðavatnið mynd aðist mikill þrýstingur á garðinn, þar eð ís var á vatninu, að sögn Ingólfs Ágústssonar, verkfræð ings, sem fór upp eftir. Voru allar lokur þá opnaðar og fór rennslið í Elliðaánum upp í 100 teningsnrv á sek. Flóðgáttirnar gerðu ekki meira en hafa við vatninu. Mjakaðist garðurinn fram og lét svo undan síðdegis. Hækkaði þrýstingurinn þá upp í 120—130 teningsmetra og leit illa út um skeið, því takmörkuðu vatni er hægt að hleypa um Ár bæjarstífluna. En þetta fór allt vel og á sunnudagsmorgun fór vatnið að sjatna. Þatta er annað mesta hlaup, sem komið hefur í árnar. Þess má geta til samanburðar við 120—130 tertingsm. rennslið á laugardag, að imeðalrennslið í ónum er 5 teningsm. Lögregluþjónar björguðu. Sumarbústaðir neðan stíflunn ar flæddu á laugardag. Kona ein, Sigrún Einarsdóttir, var ein Iheima í húsi sínu þar rétt fyrir neðan. Þegar vatnið tók að hækka í húsinu, hugðist hún Ikiomast í burtu, en flóðið var þá orðið svo mikið að hún stanzaði á steini, sem var þar skammt frá og bar hærra. Þarna sat konan með beljandi vatnið kringum sig á annan tíma. Lögreglulþjónarnir Kristinn Óskarsson og Þorkell Pálsson voru á eftirlitsferð þarna upp frá og fengu tilkynningu um að fara konunni til hjálpar. Þeir fengu lítinn bát, sem Rafveitan átti uppi á vatninu og hjálpuðu rafveitumenn þeim að flytja hann á bíl niður fyrir og að ónni. Settust þeir félagar við órar og reru um 500 m vegalengd þvert á strauminn. Ekki kváðust jþeir hafa séð konuna er þeir lögðu af stað, sýndist þarna að eins vera steinn, en aðrir vissu af henni. líögregluþjónarnir komust ekki alveg að bonunni á bátn um og fór Kristinn úr honum og óð upp á miðja bringu til henn ar og dró hana með sér að bátn um. Var hann hræddastur um að þau fengju á sig klaka á meðan, þvj noíkkur klaka'burður var og mi'kill straumur. Þau komust þó bæði ómeidd upp í bátinn. Ferðin til baka gekk vel, bát inn hrakti örlítið og lenti neðar. Konan var flutt t.il vinafólks síns. Hún hafði þá húkt þarna á steininum í rigningu og roki á þriðja tíma, eins og áður er sagt, og átti lögregluþjónunuim áreiðanlega lífið að launa. Stór vatnsæð brast Þegar Elliðaárnar beljuðu þarna yfir, sópaðist stórt skarð í Vatnsveituveginn, skammt neð an við húsið þar sem laxaklaikið er. Ofan í veginum lágu vatns æðar og símastrengir, sem fóru í sundur. Er fréttamenn Mbl. komu þarna í gær, var verið að gera við, en vatnsæðarnar lágu enn undir vatni og erfitt um aðstæð ur. Þarna hafði farið í sundur ein aðalvatnsæðin í bæinn, svo •að þar missti bærinn um 1/7 af sínu venjulega vatnsmagni. Kom þetta niður á hæstu stöðunum í bænum, svo sem Skólavörðuholt inu og fleiri stöðum. Önnur æð, nýrri og úr málmi hélt, en hnull ungar lágu á henni og hún var dælduð. Sím'alínubútarnir stóðu upp úr vatninu, en símamenn höfðu lagt aukalínu fram hjá skarðinu, og þarmeð komið lín unni til Selfoss í lag. Vatnsveitumennirnir voru að fylla sandpoka til að mynda stýfiu, svo þeir kæmust að brostna rörinu, en viðgerð var þarna mjög erfið. 800 þús. laxaseiði í vatnl Eriik Mogensen var þarna að huga að laxaklaki sínu. í húsinu höfðu verið um 800 þús. laxa seyði. Á laugardag náði vatns elgurinn á miðja hurð klakhúss ins og var meters vatn í klak húsinu og stokkarnir í vatni Straumurinn var farinn að naga úr húsinu og braut á stafni. Erik komst ekki í klakhúsið fyrr en á sunnudagskvöld og var þá komið dælum út þangað og dælt alla nóttina. Ekki er búið að kanna skemmdir, en Erik seg ir þær furðanlega litlar. Tjón liggur aðallega [ því, að þetta er eina laxaklakstöðin, sem selur seiði og svo mörg veiðifélög byggja afkomu sína á henni. Mikiðumafbrotog slys um helgina Ekið á sjötugan mann, sex ölvaðir bilstjórar teknir, tveir innbrots- bjófar handteknir MIKH> annríki var hjá lögregl- unni í Reykjavík nú um helgina, og bar mikið á imnbrotum. Að- faranótt sunnudagsins voru tveir innbrotsþjófar staðnir að verki og handteknir í smurbrauðsstofunni Birninum að Njálsgötu 49. Höfðu þeir brotið rúðu á bakhlið húss, ins, en maður, sem býr í kjallara, heyrði rúðubrotið. Hraðaði hann sér upp á aðra hæð hússins, og lét hringja þaðan á lögregluna. Kom hún á vettvang og handtók mennima. Hafði annar þeirra stolið 150 krónum og tekið eitt- hvað af sígarettum, sem hann fleygði frá sér er lögreglan kom. Rannsóki'iarlögreglan yfirheyrði þjófana í gær. Þá kærði maður peningaþjófn að til rannsóknarlögreglunnar á sunnudag. Hafði hann setið að drykkju með kunningja sínum og bættist þriðji maður í félagsskap inn. Sofnaði kærandinn út frá drykkjunni, en er hann vaknaði á sunnudagsmorguninn, höfðu tæplega 1000 kronur horfið úr jalkkavasa hans. Rannsóknarlög- reglan hafði upp á sökudólgnum í gær. Var hann mjög dru&kinn, og ekki y.firheyrslufær. Var hann settur í gæzlu og yfirheyrður í gær. Meðgekk hann að hafa stol- ið peningunum. Þá var brotizt inn í verzlunina Kjólinn, Þingholltsstræti 3, en engu mun hafa verið stolið. Ennfremur var brötizt inn í bif reiðina R 10133 á Rrávallagötu og stolið varadekki og felgu. Ef einhverjir kynnu að hafa orðið varir við þjófnað þennan aðfara- nótt sunnudags eru þeir vinsam- legast beðnir að hafa samiband við rannsóknarlögregluna. Þá var komið til rannsóknariög reglunnar á sunndag, með mann, sem stóð ekki í ákilum við leigu- bílstjóra. Á meðan rannsóknar- lögreglan var að yfirheyra mann inn, var hringt frá lögreglustöð- inni og tilkynnt að lögreglan hefði haft afskipti af bróður þessa manns, sem einnig stóð Yfir þetta gap, sem sést á myndinni, lá Vatnsveituvegur í síðustu viku. Elliðaárnar rifu stykki úr honum og eyðilögðu eina aðalvatnsæð og símalínur austur fyrir fjall, sem lágu djúpt í veginum. Lengst til hægri sjást endarnir af síma línunum, þá liggur vatnsæð úr málmi, sem hélt, þó hnullungar lægju á henni, eins og sést nær hinum bakkanum og dökki bletturinn hægra megin við mennina sýnir hvar vatnsæðin sprun gna er undir, sú sem minnkar vatnsmagnið til Reykjavíkur um 1/7 og gerði m.a. Skólavörðu holtið vatnslaust. — Ljósm. Ó. K. M. ekki í skilum með ökugjald í leigu/bíl! Málið leystist loks er þriðji bróðirinn, sem átti ein- hverja peninga, borgaði hina tvo út. Milkið var um að ekið væri á mannlausa bíla. Ekið var á R 4164 fyrir utan Laugaveg 40 Og skemmdist bíllinn talsvert. Einnig var ekið á R 3500 á Vaitns veituvegi, þar sem bdllinn stóð um helgina. Þá var ekið á R 5798 við Verbúð 15 á Grandagarði og sá bíll einnig skemmdur verulega. Loks var ekið á föstudaginn á R 12496 á Óðinstorgi, en þar hafði bfllinn staðið í nokkra daga. Ef einhverjir kynnu að geta gefið upplýsingar um þessi mál eru þeir vinsamlegast beðnif að hafa samband við rannsóknarlögregl- una. Klukkan 9:40 í gærmorgun var ekið á sjötugan mann á Tryggva götu, skammt austan móta Póst- hússtrætis. Rakst bíll á leið aust ur götuna á manninn, sem var á leið norður yfir götuna. Silas- aðist hann töluvert og var fluttur á slysavarðstofuna og þaðan í Landakotsspítala. Meiðsli manns- ins munu ekki að fullu könnuð, en hann hefur verið meðvitundar lítiM. , Um helgina var einnig brotizt inn í Rílasmiðjuna við Suður- landsbraut og stolið þaðan tveim ur rafsuðuvélum. Vélar þessar eru á stærð við meðalstóra sauma vél í tösku og er handfang ofan á þeim til þess að bera þær. Vél- arnar eru þýzkar, af gerðinni Dalex. Þá gerðist það kluk'kan hélf þrjú á laugardaginn að utanbæj- arbíll lenti í árekstri við strætis vagn á mótum Suðurlandsbrautar Og Langholtsvegar. Reyndist öku maður bílsins vera drukkinn. Alls voru sex menn teknir fyrir ölvun við akstur á laugardaginn, tveir um daginn og fjórir um nóttina. í gær gerðist það í Örfirisey að 11 ára drengur, Örn Sigurbergs- son, Víðimel 21, varð undir nóta- bát og meiddist á fæti. Hafði losn að um skorður bátsins, sem féll á drenginn. Var hann fluttur á slyisavarðstofuna. Kosið í úthlutun- arnefnd lista- mannalauna o. fl. Á FUNDI sameinaðs þings í gær fór fram kosning í útblutunar nefnd listamannalauna. Þessir menn urðu sjálfkjörnir í nefnd ina: Sigurður Rjarnason, Rjart mar Guðmundsson, Helgi Sæ- mundsson, Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli og Sigurður Guð mundsson. í stjórn atvinnubótasjóðs urðu sjálfkjörnir: Magnús Jónsson, Sigurður Rjarnason, Emil Jóns- son, Halldór E. Sigurðsson og Tryggvi Helgason, en til vara: Jónas Pétursson, Jón Árna- son, Rirgir Finnsson, Þráinn Valdimarsson og Hannibal Valdi marsson. í stjórn Ryggingarsjóðs verka manna urðu sjálfkjörnir: Þor- valdur G. Kristjánsson, Gunnar Helgason, Eggert Þorsteinsson, Eysteinn Jónsson og Finnbogi R. Valdimarsson, en endurskoðend ur: Rjarni Raohmann og Þórar inn Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.