Morgunblaðið - 15.05.1962, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.05.1962, Blaðsíða 22
22 rMORGINBLÁÐIÐ Þriðjudagur 15. maií 1962 Fram skoraði úr 8 hverju upphlaupi — og vann Víking 8 : 0 Á SUNNl' DAGINN vann Fram Víking — með 8—0 og þeim er sáu leikinn fannst sigur inn ekkert of mikill, þvert á móti gat hann orðið meiri ef Fram hefði sýnt þá leikni í knatt spyrnu sem öll góð lið sækjast eftir að leika. « Fram hafði algera yfirburði í þessum leik, liðið gat eiginlega gert það sem liðsmönnum datt í hug. Mótspyrna Víkings var lítil framan af Og varð engin er á leið. Liðsmenn eltu einu sinni ekki þá menn er þeir áttu að gæta. Framarar fengu næstum alveg að leika lausum hala. Og einmitt þess vegna mega Fram- arar ekki taka þennan leik sem einhverja sönnun um það að þeir séu ,stór'‘-lið. Þvert á móti bendir ýmislegt í leik liðsins til að ekki sé allt eins traust og á stólandi sem virðist. Vörnin fékk enga sérstaka raun í þess- um leik, en þó gátu allir öftustu varnarmenn náð að sýna ýmist kæruleysi eða vanmátt sem getur ráðið úrslitum í jöfnum leik. Framherjarnir fengu helöur ekki Skorað úr jafnvel beztu upp- hlaupunum, en þvældu knettin- um í net Víkings úr öðrum verri. Voru þar næstum allir fram- herjarnir samsekir. Akranes vann Keflavík 4:2 SÍÐARI leikur Akraness og Keflavíkur í „litlu bæjakeppn- inni“ svonefndu í knattspyrnu fór fram á Akranesi á sunnu- daginn. Þá unnu Akurnesingar með 4:2. Fyrri leikinn unnu Keflvíkingar í Keflavík með 3 gegn 0. Það horfði ekki byrlega fyrir Skagamönnum í þessunt síðari leik. í hálfleik stóð 1-0 fyrir Keflavik. En í þeim síðari óx Akurnesingum ásmegin. Þórður Jónsson (bróðir Ríkharðar) skor aði þrjú mörk og Ingvar eitt. Þessu gátu Keflvíkingar aðeins svarað með einu markd. Urslit urðu því 4-2 fyrir Akranes. En þess á móti sýndu Fram- arar hvað þeír geta og ef þeir næðu þeim samleik, sem þeir á köflum áttu í þessum leik, gegn sterkari liðum, þyrftu þeir engu að kvíða. Leikurinn byrjaði með stang- arskoti Guðm. Óskarssonar á 3. mín. eftir gott upphilaup. Og Guðmundur átti síðar mörg stangarskot, sumar spyrnurnar mjög glæsilegar. Mörkán Fram skoraði 8 mörk í leikn- um og var vel að þeirn sigri kom ið. Mörg markanna voru lagleg, en margt gott upphlaupið fór fyrir lítið. Er á leið leikinn lærði Framlinan að pressan að mark- línu er ekki algild til árangurs, miklu betra ex „stöðuspilið“ þar sem hver gerir sitt og í þessu tilfelli varð mótspyrnan engin. Fyrsta markið sköraði Guðm. Óák. Hallgrímur Og Grétar áttu undirbúninginn Grétar endirinn. Annað markið skoraði Guðm. Ósk. einnig. Grétar lék laglega upp kantinn og gaf vel fyrir. Guðm. átti létt með að skora. Þriðja markið skoraði Grétar miðherji aí stuttu færi. Guðm. Ósk. sendi í eyðu og Grétar komst einn inn fyrir og afgreiddi knöttinn laglega í netið. Fjórða markið skoraði Grétar. Hrannar miðframiherji fram- kvæmdi spyrnuna vel. Ásgeir innherji var í markfæri en hon um mistókst Og fyrir það mis- tókst markverði Víkings. En Grétar fylgdi vel Og fékk skörað af meters færi. Fimrnta markið sköraði nýlið inn Hallgrímur Sdheving. Hann kom vel inn í góða sendingu Guðm. Óskarssonar og skoraði laglegt mark af stuttu færi. Sjötta markið sköraði Ásgeir eftir fallegan einleik fyrir fram- an vörn Víkings og glæsilegt skot. Sjöunda markið skoraði Guðm. Óskarsson eftir að hafa leikið á alla vörn Víkings og mark- mann líka á vinstri væng og sendi laglega í mark af þröngu færi. Ármann vann í 10. sinn ÍSLANDSGLÍMAN var háð að Hálögalandi á sunnudaginn. Voru keppendur 8 en þó illa hafi verið auglýst voru áhorf- endur um 200 talsins. Ármann J. Lárusson sem nú keppir fyrir UMF Breiðablik í Kópavogi bar sigur úr býtum í glímunni. Vann hann verðlaun- in í 10. sinn. Hann felldi alla sína keppinauta. Vegna þessa sérstæða afreks Ármanns gáfu nokkrir glímu- vinir honum sérstök verðlaun, sem var silfurkertastjaki. Annar í glímunni varð Trausti Ólafsson sem lagði alla nema Ármann. Þriðji varð Hilmar Bjarnason UMFR sem lagði alla nema þá tvo fyrsttöldu. Áttunda markið skoraði Grét- ar. Guðm. Ósk. átti allan for- leik að því en Grétar lék fallega á markvörðinn. Mörk Fram kömu á 19., 22., 28., 34., 62., 63., 65., Og 72. mín. leiksins. Mörg önnur tækifæri átti Fram. Víkingur aðeins einn möguleika sem tókst að bjarga. Reginmunur var á liðunum en Fram ætti ekki að miklast um of fyrir stórorustur við Val og KR. IR efnir til nám- Ásgeir (t. h.) missti af aukaspyrnu Hrannars — markv. Vík. líka en Grétar fékk skorað með leggskoti. — Ljósm. Sveinn Þormóðsson. skeiða unglinga ÍÞRÓTTAFÉLAG Reykjavíkur hefur ákveðið að efna til íiþrótta- námskeiðs fyrir byrjendur og yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum. Námskeiðið fer fram á Melavellinum, mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga milld kl. 4 og 5 dag hvern, út þennan mánuð, og hefst á morgun mið- vikudaginn 16. maí kl. 4 e. h. Forstöðumaður námskeiðsins og aðalleiðbeinandi, verður Hösk uldur Goði Karlsson, íþrótta- kennari, og eru viðkomandi beðnir að snúa sér til hans til innritunar, en hann mtm verða til viðtals á Melavellinum frá kl 4—5 alla námskeiðsdagana. Á námskeiði þessu munu og aðstoða við þjálfun og leiðbein- ingar allir helztu frjálsíþrótta- menn félagsins. í sambandi við þessi námskeið verða jafnframt haldnir kvöldfundir, þar sem sýndar verða Iþróttakvikmyndir og veitt fræðsla um íþróttir al- mennt. Mun t. d. Vilhjálmur Ein arsson sýna kvikmyndir og skuggamyndir af heimsfrægum íþróttakeppnum erlendis. Sérstaklega skal bent á að námskeið þetta verður jafnt fyx- ir stúlkur sem pilta. 2:0 KR og Þróttur léku í gærkvöldl í Reykjavíkurmótinu. KR vana með 2 gegn 0.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.