Morgunblaðið - 15.05.1962, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.05.1962, Qupperneq 23
T*riðjudagur 15. maí 1962 MOFCUWBLAÐ1Ð 23 —x>»frW^#JiJJH'inAJe<ienWJ^ugJWyuuqu^nr.WC(WjW8flpVe^^g;nijý I>að er í inesia mála ólíkle^t. að þetta | spursmál mn það, hvort konur í Reykja- 1 I vík ííeti soðið við rafmagn, en ekki við I kol, sé svo stórt, að það þurfi að taka 7 I millj. að iání með ríkisóbyrgð. Úr alþingistíðindum 1931, ummæli Jónasar Jónssonar um raímagnsmál Reykvikinga. — Húsmæ&ur Framih. af bls. 24. það skylda stjórnarinnar að stöðva slík hefndarverk sam einaðra andstæðinga og á- frýja þessum stóru og alvar- legu málum til dómstóla þjóð arinnar“. SKAMMA STUND VERBUR HÖND HÖGGI FEGIN. Framsóknarflokknum tókst að koma í veg fyrir samþyldct ríkis óbyrgðar fyrir hinia fyrstu virkj un Sogsfossa á Alþingi 1931. En skamima stund verður hönd höggi fegin. Það sannaðist ræki- lega á Framsóknarmönnum í þessu máli. Þeim tókst að visu að tefja virkjun Sogsins nobkuð. En þar kom að afturhaldið og illviljinn í garð Reykjavikur varð að láta undan síga. Sogsfoss ar voru virkjaðir fyrir forgöngu Sjálfstæðismanna og í aldarfjórð ung hefur orka þeirra veitt ljósi og yl inn á þúsundir heimila, ekki aðeins tiil Reykjavíkur held- ur og í aveitum, kaupstöðum og þorpum Suðurlands. RAFMAGN í STAÐ KOLAELDAVÉLA. Leiðtogar Framsó&narflokks- ins og málgögn hans vilja nú eanna Reykvíkingum vináttu eína og hlýhug. Nú hæla þeir sér af allskonar afrekum í þágu höf uðborgarinnar. Þeir þykjast jafn vel bafa haft forystu um virkjun Sogsins ! ! ! Hafa Reykvíkingar nú heyrt annað eins. Mennirnir, sem rufu Alþingi árið 1931 ti'l þess að hindra sjö milljón króna ríkis- ábyrgð fyrir fyrstu virkjun Sogs fossa þykjast nú hafa verið frum kvöðlar í rafmagnsmálum Reyk- víikinga! Þetta er gott dsemd urn þann fádæma yfirdrepsskap, sem Tíma liðið byggir pólitíska baráttu sína á. Reykvískar húsmæður vita nú, að þegar Sjálfstæðismenn hófust handa um virkjun Sogs ins fannst framsóknarmönn- um það ekki skipta miklu máli hvort þær elduðu við kol eða rafmagn. Tímaliðið snerist gegn þessu glæsilega framfaramáli af þröngsýnu afturhaldi. En það var ekki hægt að hindTa þró- unina til lengdar. Rafmagnið leysti kolaeldavélina af hólmi og skapaði fjölþætt lífsþæg- indi á heimilum þjóðarinnar, aukinn iðnað og afkomuör- ygg». Blik Gagnfræða- skólans í Eyjum BLIK, ársrit Gagnfræðaskólans í Veiitmannaeyjum, hefir borizt blaðinu. Er ritið 404 blaðsíður og hið myndarlegasta, prýtt fjölda mynda. Af greinum má nefna: Hugvekja (Þ. Þ. V.), Bókasafn Vestmannaeyja 100 ára (Haraldur Guðnason), íþrótta- félagið Týr 40 ára, Dulskyggni (Ingibjörg Ólafsdóttir,) Daglegt líf með Ofanbyggjurum (Friðf. Finns.), Saga ísfélags Vest- mannaeyja, 3. kafli (Þ. Þ. V.), Fyrstu íslenzku hjónin í Vest- urheimi (Sigfús M. Johnsen), Þáttur nemenda, margar grein- ar og margir ]oöf., Fyrstu flug- ferðir til Eyja, Hreppstjórahjón- :in Jón Jónsson og Jóhanna Gunn Steinsdóttir, Kennaratal, Séra Jes A. Gíslason og skólabræður hans, Skýrsia Gagnfræðaskólans 1960—1962, Saga leiklistar í Eyj- um eftir Árna Árnason. — Margt fleira er í þessu ágæta ársriti. Framsóknarflokkurinn hafði þvi ekkert upp úr andstöðu sinni við raforkuframkvæmd- ir Reykjavíkur nema van- traust Reykvíkinga. Það van traust er enn fyrir hendi. — Skrum og skjall Tímans breyt ir þar engu um. Milovan Djilas Djilas hlýtur 9 ára fangelsisdóm Belgrad, 14. mai — AP — NTB — Eftir lokuð réttarhöld, sem að- eins stóðu í einn dag, var Milov an Djilas, rithöfundur, og fyrr- verandi varaforseti, dæmdur í 5 ára fangelsi. Alls mun hann bó verða að sitja í fangelsi í 8 ár og 8 mánuði, því að héraðs- dómstóllinn, sem um mál hans fjallaði, ákvað, að hann skyldi taka út þann hluta af fyrri fangelsisvist, er felldur var nið ur á sínum tíma. Þetta er í þriðja sinn, sem Djilas er dæmd- ur fyrir skoðanir sínar. Er réttarhöldin hófust í morg- un ,krafðist verjandi Djilas þess, að þau yrðu haldin fyrir opnum dyrum. Hins vegar ákváðu dóm ararnir, 3 talsins, að réttarthöld- in yrðu lokuð. Lýsti Djilas þá — Serkir Framh. af bls. 1 sínum. Réðust þeir á íbúðar- hverfi Serkja, og notuðu sprengjuvörpur, auk þess sem þeir beittu byssum. Fréttamenn í Algeirsborg segja, að stór hluti borgarinnar hafi enduróm- að af skotshríð og sírenuhljóðuim frá sjúkra- og lögreglubílum. — Ekki var ljóst, hve margir féllu í þessari árás. f Oran héldu hryðjuverk einnig áfram, og a.m.k. 3 Serkir voru vegnir þar í gær. FLN svarar árásinni. Um það leyti, sem árásin með sprengjuvörpunum var gerð, sást tiil ferða hermanna úr liði Serkja. Komu þeir akandi úr Casabah-hverfinu, og skutu við- stöðulaust á Evrópumenn úr vél byssum. A. m. k. 16, eins og áður segir, féllu úr hópi þeirra, en hel sært fólk lá eins og hráviði um götur. Yfirvölldin gerðu þegar ráð- stafanir til þess að stöðva alla urnferð í borginni, og var út- göngubann sett á kl. 6:15 í gær- kvöldi, eftir íslenzkum tíma. Er tilgangi OAS nú náð? Þrátt fyrir margar yfirlýsing- ar frönsku yfirvaldanna, um að allt yrði- gert, sem hægt væri, til að stöðva hryðjuverk OAS, hef- ur þeim haldizt uppi starfsemi sín, að undanförnu. Alls munu samtökin nú haifa myrt á annað þúsund Serki, á skömmum tíma, og hefur helzt virzt, sem hryðju verkin færðust í aukana, 1 seinni tíð. Hefur verið talið, að tilgang- ur OAS, hafi fyrst og fremst ver ið sá, að æsa upp Serki, þannig að þeir hefðu árásir á Evrópu- menn, því að þá gæti svo farið, að frönsku yfirvöldin yrðu að grípa til ráðstafana, ti'l þess að verja Evrópumenn fyrir Serkj- um. Yrði þá greinilega erfiðara að ráða niðurlögum OAS, auk þess, sem sú hætta væri fyrir hendi, að vopnahléssaimningun- um yrði rift. Virðist nú Alsír- máilið komið á mjög hættulegt stig. yfir því, að hann myndi neita að verja sig, og svara spurningum. Hann kvaðst telja sig hafa rétt til þess að svara opinberlega þekn ákærum, sem hann væri borinn, þvi að hann hefði verið svertur opinberlega í augum landa sinna. Tilkynnt var þó, að dómsupp- kvaðning yrði opinber. Er dóm ur var kveðinn upp í gærkvöldi, voru viðstaddir um 40 blaða- menn. Kærur þær, sem Djiilas var borinn nú, hljóðuðu á þá leið, að hann hefði gerzt sekur um opinbera ríkisleyndarmál, með bók þeirri, sem hann hyggst gefa út nú, en hún heitir „Saam- töl við Stalín", og er byggð á einkaviðtölum Djilas við einræð isherrann. Verður bókin að öll- um líkindum gefin út í New York innan Skamims. Djilas var á sínuim tíma dærnd ur fyrir útgáfu bókairinnar „Hin nýja stétt“, þar sem hann lýsir lifnaðarháttum ráðamanna sósíal istaríkjanna. Hlaut hann þá margra ára fangelsisdóm, en var sýknaður fyrir 15 mánuðum síð an, er hann átti enn eftir óaf- 'ylánuð 3 ár og 8 mánuði. — Flugslysið Framh. af bls. 1 Catalina-vélin, sem fórst, var upphaflega herflugvél, en var síðan breytt, með tilliti til þess að hún gæti annazt farþegaflutn inga. Er það ástæðan fyirir því, hvernig hagaði til um útgang úr vélinni. Varðbátur bjargaði þeim, er komust lífs af. Þær varúðarráðstafanir eru viðhafðar, við lendingar á Godt- háb-firði, að varðbátur er ætíð til taks, og getur hann lagt út án nokkurs fyrirvara. Hann var því til reiðu, er vélin bjóst til lend- ingar. Er talið, að hefði hann ekki brugðið svo skjótt við, hefðu allir drukknað, því að sjór er svo kaldur, á þessum slóð um, að enginn hefst við í honum nema fáein augnablik. Var þeim 6, sem af komust, þegar náð um borð í bótinn, og þau flutt í land. Meðal þeirra, sem fórust, voru 2 danskar stúlkur, önnur hjúkr- unarkona, sem ráðið höfðu sig til starfa í Godtiháb. 2 börn voru meðal þeirra, sem létust, eins og áður segir. Þegar var ákveðið, er um slys- ið fréttist til Kaupmannahafnar, að senda sérfræðinga á vettvang, til þess að reyna að komast fyrir orsakir slyssins. Einnig mun kanadiska flugfélagið hafa gert ráðstafanir til þess að senda sér- fræðinga á vettvang. Catalina-flugvélar hafa yfir- leitt verið taldar mjög öruggar. Bæði lendingar- og flugtaks- hraði er lítill, og slys er þær hef- ur hent, frekar fá, enda löng reynsla fengin fyrir þessari flug- vélategund. - Borgarstjórinn Framh. af bls. 10. Jhafa verið gerðar til þess að dreifa starfsþunganum, án þess að dreifa ábyrgðinni, og borgin hefur mörgum prýði- legum starfsmönnum á að skipa. PRÓFIÐ FRÚ ERNA, eiginkona borgarstjóra, er komin heim fyrir góðri stund, og nú er kvöldmaturinn tilbúinn. Það hefði verið freistandi að ræða nokkuð við hana um þátt hennar í starfi eiginmanns- ins, því að borgarstjórafrúin í Reykjavík hefur einnig mörgum skyldum að gegna. Það mun vera sjaldan, sem Geir borgarstjóri getur setið heima á kvöldin í rólegheit- um. Sækja þarf samkomur við ýmis tilefni og ef því er ekki að skipta, þá eru víst oft vænir skjalabúnkar á borði borgarstjórans á kvöld in, sem vinna þarf úr fyrir morgundaginn. Þegar frí- stund gefst, kýs borgarstjór- inn að sitja heima og lesa nýútkomnar bækur eða fara í bíltúr með konuna og börn in, þegar vel viðrar, og skoða sem venjulegur borgari ým- islegt það, sem hann hefur áður kynnt sér sem æðsti embættismaður borgarinnar. Þegar við kveðjum borg- arstjórann, spyrjum við hann, hvort ekki sé meira að gera svona rétt fyrir kosn ingar. — Það má líkja þessum tíma fyrir kosningarnar við próflestur, segir Geir. Við borgarfulltrúarnir erum í próflestri um þessar mundir, eins og skólaæskan. Borgarst j órnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins leggur * fram við þetta próf áætlanir um mestu stórframkvæmdir í sögu höfuðborgarinnar. í fyrsta lagi á að ljúka lagn- ingu hitaveitu í öll hverfi hennar á næstu 4 árum. I öðru lagi verður endanlega gengið frá heildarskipulagi Reykjavíkursvæðisins, þ. e. frá sjó upp um Mosfellssveit og suður fyrir Hafnarfjörð, ásamt skipulagi gamla Mið- bæjarins. Og síðast, en ekki sízt, verður lokið við að full- gera allar götur borgarinnar á næstu 10 árum. Ég geri mér fyrirfram ljóst, að um þessi stórmál verður fyrst og fremst kosið í borgarstjórnarkosningunum, og framkvæmd borgarmála yfirleitt. Veiti Reykvíkingar Sjálfstæðisflokknum enn meirihlutaaðstöðu í höfuð- borginni, og ég verði þar með borgarstjóri næsta kjörtíma- bil, hlýtur Sjálfstæðisflokk- urinn og ég sem borgarstjóri hans að bera ábyrgð á því, að þessum stórverkefnum verði hrundið í framkvæmd í samræmi við áætlanimar. Fjárhagslega eru þær líka byggðar á traustum grunni, og þó hefur þess vandlega verið gætt, að undir engum kringumstæðum þurfi að þyngja útsvarsbyrði borgar- anna. Prófið er á kjördegi og þá dæma Reykvíkingar, sem eru prófdómararnir, um það, hvort við stöndumst prófið eða ekki. Það eru þeir, sem gefa einkunnirnar. J. R. Vorið er komið Valdast. — Sannarlega er vorið komið. Hver dagurinn er öðr- um betri. Túnvinnsla stendur nú sem hæzt. Byrjað er að láta út kýr. Verið er að sleppa fé frá h/úsi, og er sauðburður byrjað ur. Á stöku bæ er töluvert af áim borið. Gróðurnál, skýtur nú óð um upp. Klaki fer ört minnk- andi. Víðasthvar er fólk of fátt við dagleg störf og vinnustunda fjöldi er bjá mörgum sveita- manninum 12 stundir, og lengri hjá sumum. — St. G. Beztu danslagatextarnir Nýtt hefti komið í heftinu eru 30 textar innlendir og útlendir, þar á meðal vin- sælustu T W I S T -textarnir, auk texta úr „My fair lady“, auk ýmsa nýjunga í heftinu. Kaupið beztu dans- lagateztana áður en upplagið þrítur fœst í Hljóðfœra- verzlunum og kvöldsölustöðum I íbúð óskast Höfum verið beðnir að úlvega til leigu 4—5 herbergja íbúð. — Nánari uppl. gefur MÁLFLUTNINGS SKRIFSTOF A Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, í Guðmundar Péturssonar Aðalstræti 6 IH liæð — Símar: 12002 og 13202.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.