Morgunblaðið - 22.05.1962, Blaðsíða 16
115. tbl. — Þriðjudagur 22. maí 1962
Reykjavík hæsta síld-
veiðistöðin syðra
FREMUR ógæftasamt var s.l.
viku, þó var landað úr 47 skip-
um samtals 53.063 uppmældum
tunnum.
Heildarmagnið frá byrjun ver
tíðar í haust til laugardagsins
19. maí varð 1.262.062 uppm.
tunnur.
Hæstu veiðistöðvarnar eru
þessar:
Vestmannaeyjar 148.212 upp-
mældar tunnur, Keflavik 179.959
Hafnarfjörður 147.376, Reykja-
vík 395.879, Akranes 238.256.
Hér á eftir er skrá yfir þau
skip, sem aflað hafa 20 þús. tunn
ur eða meira og nú stunda síld-
veiðar:
Bergvík, Keflavík, 28.273
tunnur, Bjarnarey, Vopnafirði,
Frú Soffíu
Horaldsdóttir
lútin
FRÚ Soffía Haraldsdóttir, ekkja
Sveins heitins Sveinssonar, for-
stj'óra í Völundi, lézt í sjúkra-
húsi sl. laugardag. Frú Soffía
var mæt og mikilhæf kona, starf-
aði mikið að félagsmálum og'var
m. a. formaður Kvenfélagsins
Hringsins um árabil.
39.138, Björn Jónsson, Reykja-
vík, 22.873, Eldborg, Hafnarfirði
32.757, Gjafar, Vestmannaeyjum
22.554, Guðm. Þórðarson, Rvík,
44.495, Halldór Jónsson, Ólafs-
vík, 28.452, Haraldur, Akranesi,
35.580, Hringver, Vestmanna-
eyjum 23.597, Höfrungur n.,
Akranesi, 47.288, Jón Trausti,
Raufarhöfn, 36.856, Pétur Sig-
urðsson, Reykjavík, 21.977, Sig-
urður, Akranesi, 22.565, Skírn-
ir, Akranesi, 28.507, Steinunn,
Ólafsvík, 22.215, Víðir XI., Garði
54.698.
Yfirburðir Sjálfslæbismanna
i umræðum í Hafnarfirði
í GÆRKVÖLDI fóru fram um-
ræður um bæjarmál Hafnar-
fjarðar. Höfðu allir vinstri flokk
arnir sameinast um að neita
kröfu Sjálfstæðismanna um op-
inberan framboðsfund.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins, Stefán Jónsson, Eggert
fsaksson, Elín Jósefsdóttir, Páll
V. Daníelsson, Árni Grétar
Finnsson, Þorgeir Ibsen og
Matthías Á. Mathiesen flettu
vægðarlaust ofan af óstjórn
meirihlutans á málefnum bæj-
arins og bæjarfyrirtækja. í
Hafnarfirði eru hærri útsvör en
í næsta nágrenni, húsnæðismál
barnaskólanna komin hreint í
óefni, 6% af götum bæjarins
með varanlegu slitlagi, skulda-
dómar hrynja yfir bæinn, Bæj-
arútgerðin tapaði sem svarar öll
um launagreiðslum fyrirtækis-
ins 1960, en forstjórarnir liggja
Misnota alltaf völdin
ÞAÐ hefur vakið mikla at-
hygli allra þeirra, sem leið
hafa átt fram hjá Bændahöll
inni á Melunum undanfarna
daga, að Framsóknarflokkur-
inn hefur „skreytt“ glugga
hennar með kosningaspjöld-
um sínum, og þannig misnot
að á hinn herfilegasta hátt
ítök sín innan samtaka
bænda. Frá öðru hliðstæðu
dæmi var skýrt fyrir fáum
dögum hér í blaðinu, þegar
framsóknarmenn * létu einn
frambjóðenda sinna hér í
Reykjavík, festa slagorða-
borða frá flokki sínum utan
á kjörbúð SÍS í Austur-
stræti og sýndu þannig einu
sinni enn, að þeir telja það
höfuðhlutverk Sambandsins
að þjóna flokkshagsmunum
íramsóknar. Þeir heyktust þó
á því atferli að þessu sinni,
því að sá borði var skjót-
lega tekinn niður.
Þessi dæmi staðfesta aðeins,'
að framsóknarmenn kunna
ekki með vöid að fara, því að
fyrsta hugsun þeirra er ætið
sú, hvernig þeir geti misnotað
þau til framdráttar annarleg-
um flokkshagsmunum sínum.
SELTIRNINGAR!
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðisflokks-
ins er að Skóla-
braut 17. — Skrif-
stofan er opin á hverju kvöldi
kl. 8—10. — Sími 20622.
Stolið úr skipi
Aðfaranótt laugardags fór þjóf-
ur um borð í norska línuveiðar-
ann Lestaskjer í Reykjavíkur-
höfn og stal þaðan rauðu ferða-
útvarpi, af Kurrier Radionette
gerð. Þeir, sem kynnu að hafa
orðið varir við slíkt tæki boðið
til kaups eru vinsamlegast beðn
ir að láta rannsóknarlögregluna
vita.
Ræðumenn Sjálf-
stæðisflokksins í
útvarpsumræð-
unum
í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM i
í kvöld vegna borgarstjórnar-
kosninganna, verða þeir Geir
Hallgrímsson borgarstjóri og
Þórir Kr. Þórðarsson, prófessor,
ræðumenn Sjálfstæðisfiokksins.
Hefjast umræðurnar kl. 8
og verða talaðar tvær umferð-
ir, 25 og 10 mínútur. Röð flokk-
anna verður þessi: Sjálfstæðis-
flokkur, Þjóðvarnarflokkur,
Framsóknarflokkur, Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og
óháðir bindindismenn.
Annað kvöld, miðvikudags-
kvöld, hefjast umræðurnar á
sama tíma og verða ræðu-
menn sjálfstæðisflokksins þá
þessir: Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, frú Auður
Auðuns, forseti borgarstjórn-
ar, Gísli Halldórsson, arkitekt,
Birgír fsl. Gunnarsson, lögfræð-
ingur og Geir Hallgrímsson, borg
artsjóri. Talaðar verða þrjár um
ferðir, 20, 10 og 10 mínútur, og
verður röð flokkanna þessi:
Framsóknarflokkur, Alþýðu-
flokkur, Alþýðubandalag, Þjóð-
varnarflokkur, ó>háðir bindindis-
menn og Sjálfstæðisflokkur.
á upplýsingum um rekstur 1961,
svo ómögulegt er að gera sér
grein fyrir hvemig ástandið er
í dag.
Lítið var um svör af hálfu
þríflokkanna á rökstuddri gagn
rýni Sjálfstæðismanna, heldur
létu kratar, kommar og fram-
sóknarmenn stóryrðin nægja.
Er það samdóma álit Hafn-
firðinga, að málflutningur Sjálf
stæðismanna hafi borið af, enda
^er Sjálfstæðislokkurinn í stór
sókn í bænum og munu bæjar-
búar veita Sjálfstæðisflokknum
hreinan meirihluta, svo að
óstjórn og -hrossakaupum vinstri
flokkanna linni.
„Verði þeim beitt fyrir vagn
Reykjavikur stendur hann í
stað eða rennur aftur á bak.
Framfarirnar stöðvast." —
Sjá samtai við Ólaf Thors
forsætisráðherra á bls. 1 og 2.
HAFIÐ samband við skrif-
stofu félagsins í Valhöll (sím-
ar 17102 og 20125) og látið
skrá ykkur til aðstoðar viJ
dreifingu á morgun, miðviki
dag.
Bílar á kjördegi
ÞEIR stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem vilja
aka fyrir flokkinn á kjördegi, eru beðnir að láta skrá
sig sem fyrst í síma 20124 eða 17100.
Sjálfstæðisflokkurinn.
KÓPAVOGUR
Kosningaskrifstofa D-listans í Kópavogi er f Sjálf-
stæðishúsinu, Borgarholtsbraut 6 (efri hæð). Skrif-
stofan er opin kl. 9—22
37314. — S lálfstæðismenn
band við skrifstofuna.
alla daga. Símar 19708—•
Kópavogi! Hafið
sam-
Sjálfstæöisfölk!
• Allt Sjálístæðisfólk í Reykjavík er hvatt til að starfa
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, bæði á kjördegi og fyrir kjördag.
Skráning sjálfboðaliða fer fram í Sjálfstæðishúsinu kl. 9—
12 og 13—19, og í hverfisskrifstofum Sjálfstæðisflokksins
frá kl. 13—19.
• Fólk, sem vill leggja Sjálfstæðisflokknum lið sitt í
kosningabaráttunni, er beðið um að láta skrá sig sem fyrst.
Sjálfstæðisfólk sem vill að-
stoða við dreifingu á miðviku-
dag og gctur útvegað bila,
keyrt sjálft, eða útvegað að-
stoð unglinga, er beðið að
hafa samband við viðkomandi
hverfisskrifstofu (sjá augl. á
öðrum stað í blaðinu) eða
skrifstofuna í Valhöll, sími
20125.