Morgunblaðið - 24.05.1962, Qupperneq 3
Fimmludagur 24. maí 1962
MORGVNBLAÐIÐ
3
H I N gífurlega f jölgun
flóttamanna frá Kína til
Hong Kong undanfarna
daga hefur vakið nokkra
furðu í Bretlandi. Ekki
það að Bretar skilji ekki
að flóttamennimir yfir-
gefa „sæluríkið“. En það
undarlega er að kínverskir
landamæraverðir hafa lát-
ið óáreitt og ekkert gert til
að hindra för þess yfir
landamærin þar til í gær.
Undanfarin 12 ár hafa um
ein mliljón Kínverja leitað
hælis í Hong Kong'. Hefur
þessi flóttamannastraumur
yfirleitt verið nokkuð jafn,
en aukizt þegar uppskeru-
brestur hefur orðið í íjína. t
síðustu viku skýrði Regin-
ald Maudling nýlendumála-
ráðiherra frá því í Brezka
þinginu að undanfarin þrjú
ár hafi komið að jafnaði um
30.000 flóttamenn til Hong
Kong, en í þessum mánuði
einum hafa um 50.000 flótta-
menn komið þangað.
MATARSKORTUB
Ekki ber fréttum saman
um ástæðuna fyrir flóttan-
um. Brezki nýlendumálaráð-
herrann sagði að flóttafólk-
ið væri ekki þjáð af hungri
eða næringarskorti, en í öðr-
baníu og Austur-Þýzkalands.
VERÐIRNIR AÐSTOÐUÐU
Um miðja síðustu viku var
svo komið í Hong Kong að
grípa varð til róttækra ráð-
stafana til að stemma stigu
við flóttamannastraumnum.
Voru settar upp gaddavírs-
girðingar á landamærunum
og þeir flóttamenn, sem til
náðist, voru umsvifalaust
sendir aftur heim. En allt
kom fyrir ekki og um síðustu
helgi voru 4—6000 flótta-
menn teknir á dag, en ein-
hverjir munu hafa komizt
framhjá landamæravörðun-
um. Og flóttamennirnir, sem
náðust, skýrðu frá því að ekk
ert hafi verið gert frá Kín-
verja hálfu til að hindra
flóttann. Sumir sögðu jafn-
vel að kínverskir landamæra
verðir hafi aðstoðað þá á
flóttanum og ráðlagt þeim
hvernig bezt væri að kom-
ast tiil Hong Kong.
í gær varð breyting á fram
komu kínversku landamæra-
varðanna. Segir í fréttum frá
Hong Kong að kínverskir
landamæraverðir hafi hand-
tekið fjölda flóttamanna og
flutt þá burt frá landamær-
unum á vörubifreiðum. Engu
að síður náðust 3.500 flótta-
menn Hong Kong megin
landamæranna og voru þeir
sendir heim.
UOKUÐU FYRIR VATNIÐ
. Vegna fólksfjölgunar í
Hong Kong hefur reynzt erf-
itt að fá nægilegt vatn handa
íbúunum. Eitt vatns'bólanna
er Kínamegin við landamær-
in og jók það enn erfiðleik-
Brezkur hermaður flytur kínverskan dreng í flótta-
mannabúðir í Hong Kong.
Fldttinn til Hong Kong
* _______________
Kínverski flótlamaðurinn Yip Yat-yin á leið
mannabúðir í Hong Kong ásamt grátandi
sinni og syni.
um fréttum er skýrt frá mann
falii meðal flóttafólks vegna
matarskorts. Enn aðrar heim
ildir skýra frá því að það
sé óttinn við að matarskortur
verði í Kína, sem rekur flótta
menn út úr landinu. Flótta-
menn hafa skýrt frá þvi að
kommúnistar reyni að flytja
fjölda fólks úr stærri borg-
unum út á land vegna yfir-
vofandi matarskorts í sum-
um héruðum Kína.
Vitað er að uppskerubrest-
ur hefur orðið víða í Kína í
ár og einnig að mjög hefar
dregið úr matvælakaupum
Kínverja erlendis frá. 1 fyrra
fluttu Kínverjar t.d. inn 6
milljón lestir af korni, en
hafa nú samið um kaup á
aðeins 3,5 millj. lestum. En
þrátt fyrir yfirvofandi mat-
arskort halda Kínverjar
áfram að senda matvæli úr
landi, aðallega til Kúbu, Al-
í flótta-
eiginkonu
ana þegar Kínverjar stöðv-
uðu vatnsrennsli þaðan í gær.
Segjast Kínverjar hafa
neyðst til að loka fyrir vatn-
ið til Hong Kong venga lang-
varandi þurrka, sem orsaka
það að þeir verða sjálfir að
nota vatnið. Brezka útvarp-
ið skýrði frá þessari ráðstöf-
un Kínverja í gær og hafði
það eftir fréttaritara sínum
í Hong Kong að engin ástæða
væri til að rengja það að
vatnsskortur væri handan við
landamærin né heldur að
álíta að Kinverjar væru af
ásettu ráði að auka vandræð-
in í Hong Kong.
BEÐIÐ UM AÐSTOB
Leitað hefur verið eftir að
stoð alþjóða liknarfélaga við
flóttamenn og farið fram á
það við ýms ríki að þau taki
við flóttamönnum frá Kína.
En lítinn árangur hafa þess-
ar umleitanir borið. Kanada-
stjórn hefur að vísu heitið
því að taka við 100 kínversk-
um fjölskyldum og Banda-
ríkjastjórn hefur málið til at-
hugunar. En eina ríkið, sem
hefur heitið verulegri aðstoð
er Formósa. Sendir stjórn
Formósu 1000 lestir af hrís-
grjónum til Hong Kong og
hefur heitið því að taka við
fjölda flóttamanna frá Kína.
En Bretar eiga erfitt með að
semja við Chiang Kai-shek,
því ekkert stjórnmálasam-
band er millr Bretlands og
Formósu.
Hópur kínverskra flóttamanna matast í Hong Kong og bíða þess að verða fluttir nauð-
ugir heim aftur til Kína.
STAKSTEIIVAR
Undirlægjuháttur
afhjúpaður
Þegar Moskvumálgagnið kona
út í gær hafði ritstjóri þesa
stappað í sig stálinu til að taka
upp vöm fyrir njósnir kommún-
ista á íslandi. Auðvitað hefur
hann langað til að gera það þeg-
ar í stað m<eð sinu stærsta og á-
hrifamesta letri, en var ráðvillt-
ur fyrsta daginn, vegna þess að
svo illa hittist á að uppvíst varð
um njósnirnar nokkrum dögum
fyrir kosningar, en ekki af hinu
að Magnús Kjartansson sé ekki
staðákveðinn í því að berjast
fyrir húsbændur sána í Kreml,
hvað sem þeir gera.
En í þetta skiptið er þjónustu-
semi hans farin að færast hast-
arlega nærri réttarvitund ts-
lendinga og samúð þeirra með
heiðarleika og hollustu.
Þessi ritstjóri Moskvumál-
gagnsins leyfir sér að brigzla
Sigurði Ólafssyni, flugmanni
um, að hann hafi hugsað sér
að hagnast á að skýra frá
því, að hann skyldi beðinn að
njósna fyrir erlent ríki. Það er
skiljanlegt að sá hugsunarháttur
að sýna þjóðhollustu og forðast
landráðastarfsemi sé fjarri
kommúnistum, þvi að einmitt
gagnstætt hugarfar einkennir
allar þeirra athafnir.
„Fyrlr vlðviklð"
Um petta mál skrifar Magnús
Kjartansson tvær greinar. Á
öðrum staðnum segir m. a.:
„Annars er það einkennilegt,
að hernámsblöðin skuli ekki
geta um stjórnmálaskoðanir Sig-
urðar Ólafssonar, flugmanns.
Slíkt tiðkast ævinlega erlendis,
þegar njósnamál skjóta upp koll
inum skömimi fyrir kosningar.
Kannske er ástæðan sú, að Sig-
urður er tryggur og áhugasamur
Sjálfstæðisflokksmaður."
Morgunblaðinu er ókunnugt
um það, hvort Sigurður Ólafs-
son er Sjálfstæðismaður, en hins
vegar þykist það þess fullvisst
að hann muni að minnsta kosti
ekki verða kommúnisti héðan í
frá. Hitt er athyglisvert,
að kommúnistar virðast hafa
kynnt sér stjórnmálaskoðanir
flugmannsins, ' áður en þeir
reyndu að beita hann fjárkúgun
til að ganga i þeirra þjónustu,
og þá ekki talið það einskisvert,
ef hann er talinn Sjálfstæðis-
maður.
Fyrirsögn hinnar greinarinn-
ar er svohljóðandi:
„Vill fá 420 þúsund krónur
fyrir viðvikið.“
Sú aðdróttun verður skiljan-
leg, þegar hliðsjón er höfð af
því, að kommúnistav töldu að
þeir gætu fengið þennan mann
og ýmsa aðra til þjónustusemi
við sig með fjárkúgunum og
mútum. Hugsunarháttur heiðar-
leika og réttsýni er þeim. nægi-
lega fjarlægur til þess að þeir
haldi að allt sé hægt að gera
fyrir Rússagull.
Játa þjéðfylkinguiui
Tíminn víkur loks í gær að
þeim upplýsingum Morgunblaðs
ins, að Framsóknarmenn og
kommúnistar hafi gert samsærl
í Genf til þess að reyna að
styðja þar málstað Rússa. þótt
það kynni að stofna hagsmun-
um okkar i hættu. Áfellist Tím-
inn Morgunblaðið fyrir að
minnast á þessa staðreynd, en
athyglisvert er að Tíminn gerir
ekki minnstu tilraun til að
hrekja þá staðhæfingu, að slíkt
sanr.særi hafi verið undirbúið.
Er augljóst að blaðið vill ekki
hætta á að styggja vini sína í
kommúnistaflokknum hérlendis
og austan tjalds.