Morgunblaðið - 24.05.1962, Side 6

Morgunblaðið - 24.05.1962, Side 6
6 MORGUN BLAÐIÐ Fimmtudagur 24. maí 1962 BYGGJUM BETRi OG FEGURRI BORG BORG ATHAFNA 00 HAGSjELOAR — sagði borgarstjóri í útvarpsumræðunum í gærkvöldi FRAMFARAHUGUR og hófsam- Iegr, en markviss röksemdafærsla, studd góðum málstað og þrótt- miklu starfi s.l. kjörtímabil, ein kenndi ræður fulitrúa Sjálfstæð- isflokksins í útvarpsumræðunum í gærkvöldi. Jafnframt þvi að benda framfarir og uppbyggingu þá, sem orðið hefur, lögðu þeir fram hinar stórfelldu áætlanir flokksins á næsta kjörtímabili. Borgarstjórinn komst m.a. svo að orði í ræðu sinni: u „Mér er ljúft að lýsa því yfir, að ég mun gera allt, sem í mínu valdi stendur, til þess að hvergi verði hvikað frá gerðum áætlun- um, ef borgarbúar veita Sjállf- stæðisflokknum meirihlutafylgi á kjördegi, þannig að ég verði borg arstjóri Reykjavíkur næsta kjör- tímabil." Hér á eftir fer úrdráttur úr ræðum fulltrúa Sjálfstæðismanna í umræðunum, þeirra Gunnars Thoroddsen, Auðar Auðuns, Gísla Halldórssonar, Birgis fsl. Gunnarssonar og Geirs Hall- grímssonar. ★ ' Fyrstur talaði Gunnar Thor- oddsen, fjármálaráðherxa. f ræðu sinni komst ráðherrann m. a. svo að orði: „Meginstefna Sjálfstæðis- manna er sú, að gefa einstakling- unum frjálsar hendiur til athafna og framikvæmda innan eðlilegra marka, að nýta sem bezt orku einstaklinganna og sjálfum þeim til farsældar. Jafnframt er lögð áherzla á að greiða fyrir borg- urunum, létta undir með þeim í lífi þeirra og starfi, en forð- ast að fjötra þá og hefta. Kommúnistar hafa hins vegar lagt höfuðkapp á, að bæjarfélag- ið standi sjálft í ýmsum þeim framkvæmdum, sem við teljum eðlilegra og æskilegra, að ein- staklingar annist“. Sjálfsíbúðastefnan er okkar stefna. Þessi tvö sjónarmið hafa kom- ið einkar glöggt fram í viðhorfi til íbúðabygginga í bænum. Lengstum hafa tillögur komm- únista miðað að því, að baerinn byggði sjálfur sem mest af íbúð- um, ætti þær og leigði þær út. Bæjanbúar ættu helzt allir að vera leiguliðar hins opinbera, eftir hinum beztu fyrirmyndum bak við tjaldið. Leiguliðastefn- an er stefna kommúnista. Sjálfstæðismenn hafa aftur á móti unnið að því að bæjarbú- ar gætu átt sínar íbúðir. Sjálfs- íbúðastefnan er okkar stefna. Til þess að greiða fyrir því, beittu Sjálfstæðismenn á Alþingi sér fyrir þeirri skattlagabreytingu fyrir 13 árum, að vinna við smíði eigin íbúðar væri skatt- frjáls. Sú löggjöf hefur orðið grundvöllur þeirra stórkostlegu byggingaframkvæmda í landi hér, sem byggzt hafa á eigin vinnu fjölskyldnanna. Aðstoð við einstaklinga hefur m. a. verið veitt með því, að borgarsjóður hefur gert íbúð- imar fokheldar, eða tilbúnar undir tréverk og selt þær þann- ig, með hagkvæmari greiðslu- skilmálum en annars staðar voru fáanlegir, Þessi stefna sjálfsíbúðanna, sem Sjálfstæðismenn hófu og stóðu fyrsit einir að, hefur nú gjörsigrað á íslandi. í engri höf- uðborg annarri mimu tiltölulega jafnmargir íbúar vera sjálfir eig- endur þeirra ilbúða, sem þeir búa í“. Traust fjármálastjórn „Um fjármálastjórnina hefur Sjálfstæðisflokkurinn markað á- kveðin höfuðsjónarmið. Áætla út gjöldin sem nákvæmast og næst sanni. Fylgja þeirri fjárhagsáætl un eins og föng eru á og forðast umframgreiðslur. Þessi grund- vallaratriði góðrar fjárstjórnar hafa farið þannig úr hendi flest hin síðustu undangengin ár, að útgjöldin hafa staðizt áætlun og sum árin orðið undir áætlun. Um leið hefur verið kostað kapps um, að borgarsjóður sé rekinn halla- laust, sé þess nokkur kostur. Síð ustu 10 ár hefur það og tekizt öll árin nema eitt, 1'956, þegar sérstakar ástæður ollu smávegi- legum tekjuihalla að upphæð 600 þús. kr. Einnig hefur verið reynt að stilla útsvörum í hóf. svo að þau íþyngdu ekki einstaklingum ög atvinnurekstri um of. Hér hefur verið við ramman reip að draga þar sem' skilningsleysi og þrjózka kom lengi vel í veg fyrir, að sveitarfélögin fengju fleiri tekju- stofna til þess að unnt væri að lækka útsvörin. Það var fyrst eftir myndun núverandi ríkis- stjórnar sem lagfæring fékkst, sveitarfélögum var fengin hluti söluskatts, og um leið lækkaði Beykjavík útsvörin um meira en 20%.“ Vandlegur undirbúningur stórframkvæmda ,,Það hefur jafnan verið meg- inboðorð borgarstjómar-meiri- hlutans að vanda sem mest all- an undirbúning verklegra fram- kvæmda með rannsóknum og á- ætlunum hinna færustu manna, og ráðast þá fyrst í mannvirkið, þegar öllum slíkum undirbún- ingi væri lokið. Með þessu eru meiri líkur til þess að mann- virkið standist vel, og fram- kvæmdin verður ódýrari, ef und- irbúningur er rækilegur. Þessi vinnubrögð hafa t. d. verið höfð um allar virkjanir og stækkanir í Sogi og um fram- kvæmdir hitaveitunnar. Sem dæmi má nefna, að á árinu 1954 réði bærinn tvo færustu vísinda- menn okkar til að undirbúa leit að heitu vatni í bæjarlandinu. Allar bórarnir síðan, sem borið hafa undraverðan árangur, eru gerðar að undangenginni þessari vísindalegu rannsókn. Eftir að vandlegar áætlanir hafa verið gerðar um lagningu hitaveitu í öll hús í Reykjavík og búið að tryggja innlent og erlent fjármagn, þá er ráðizt í framkvæmdir og það af fullum krafti." ★ Annar ræðumaður Sjálfstæðis- manna var frú Auður Auðuns. Hún sagði m.a.: „Dagvistarheimili, þ.e.a.s. dag- heimili og leikskólar, eru í Reykjavík rekin af barnavina- félaginu Sumargjöf, sem er sam- tök mætra borgara, sem eru á- hugamenn um velferðarmál yngstu kynslóðarinnar, en Reykjavíkurborg greiðir Sumar- gjöf rekstrarstyrk og leggur fé- laginu að verulegu leyti til hús- næði til starfseminnar endur- gjaldslaust. Dagheimili rekur Sumargjöf á 4 stöðum. Eitt þeirra, Haga- borg, fullkomið nýtízku dag- heimili, lét Reykjavíkurborg reisa á þessu kjörtímabili og af- henti Sumargjöf í makaskiptum fyrir Tjarnarborg. Dvalardagar á dagheimilum hafa á þessu kjörtímabili aukizt úr nær 63.500 í nær 82.200. Fjölgun dvalardaga í dagheimilum og leikskólum Sumargjafar hefur því numið fram undir 30% á tímabilinu. Hafinn undirbúningur að byggingu 6 heimiia fyrir börn borgarbúa „Vistlheimili fyrir börn starf rækir bærinn sjálfur á 3 stöð- um, Silungapolli, Reykjablíð og Vöggustofuna Hlíð, og auk þess að vetrinum á 2 stöðum f sam- bandi við skólahald. Þótt árásir andstæðinga á okkur Sjálfstæð- ismenn í borgarstjórn um að- búnað á sumum þessum heimil- um séu ýktar og ósanngjarnar, er okkur Sjálfstæðismönnum fyllilega ljóst að búa þarf bet- ur að þessum heimilum enda að því stefnt og er hafinn undirbún ingur að byggingu 3ja heimila, 2ja uppeldisheimilá fyrir börn i tímabundnu fóstri og eins heim ilis fyrir munaðarlaus börn, sem ætla má að þurfi að dvelj- ast á slíku heimili flest eða öll sín uppvaxtarár. Á þessu sumri mun verða tekin í notkun hin nýja vöggustofa Thorvaldsens- félagsins að Hlíðarenda, ætluð fyrir 30 börn, og losnar þá hús- næði vöggustofunnar, sem þar er nú, og er í athugun hvernig það verði bezt nytjað í þágu yngstu borgaranna. Tvöfalt meiri aukning kennslurýmis en nemenda „Að frumkvæði Sjálfstæðis- manna var árig 1957 samþ. í borgarstjórn áætlun um bygg- ingarþörf barna- og gagnfræða- skóla í borginni. Á grundvelli hennar hefur verið unnið síð- an og stórkostlegar framkvæmd ir átt sér stað. 3 nýir skólar hafa verið teknir í notkun á kjörtíma bilinu, Vogaskóli, Hlíðaskóli og Laugalækjarskóli, lokið nýjum áföngum við aðra 3, Breiðagerð- is-, Réttarholts- og Hagaskóla, og hafin bygging nýs skóla, Ár- bæjarskóla, sem lokig verður í sumar, en auk hans mun á þessu sumri verða unnið að byggingu 2ja annarra nýrra skóla, barna- skóla við Álftamýri og Gagn- fræðaskóla verknáms, ennfrem- ur að viðbyggingu við Lang- holtsskóla fyrir gagnfræðastig og nýjum áfanga við Hlíðaskóla. Stórmerkar nýjungar hafa verið teknar upp í skólahaldi á kjörtímabilinu, s.s. sálfræðiþjón usta og kennsla vanvita, og ný- lega hefur borgarstjórn samþ. að veita allt að 100 þús. kr. ár- lega til sérnáms og framhalds- menntunar kennara, þ.á.m. til kennslu afbrigðilegra barna. Aðbúð æskunnar liggur eng- um þyngra á hjarta en mæðrun- um. Eg vil því biðja reykvísk- ar mæður og konur yfirleitt að kynna sér störf og stefnu Sjálf- stæðismanna í þessum efnum — sem og í öðrum borgarmál- efnum.“ ★ Gísli Halldórsson, arkitekt, sagði jr,.a.: „Á þessu kjörtímabili hafa verið byggðar fleiri íbúðir, en nokkru sinni fyrr. Ástæðan fyr- ir því er stuðningur Sjálfstæð- ismanna í byggingarmálum jafnt á þingi, sem í borgarstjórn. Húsnæðiserfiðleikarnir er voru hér fyrir nokkrum árum eru því brátt úr sögunni. Það er því einkennilegt að heyra minnihlutaflokkana tala eins og hér hafi ríkt algjör stöðvun í þessum efnum og borgarstjórn verði nú að hefja byggingarframkvæmdir. Sannleikurinn er sá að það er nú alllangt síðan borgarstjóm hóf þessar framkvæmdir, til þess að bæta úr húsnæðisvandræð- um, einkum þeirra er við erfið- leika hafa átt að búa.“ Á annað þús. íbúðir reistar af Reykjavíkurborg „Alls er Reykjavíkurborg búin að reisa á annað þúsund íbúðir, sem ýmist hafa verið leigðar út eða seldar með hag- stæðum kjörum, en auk þess var 600 fjölskyldum veitt sér- stök fyrirgreiðsla við byggingu smáíbúðahverfisins. Það er einnig yfirlýst stefna sjálfstæðismanna í borgarstjórn að herskálum og öðru lélegu hús næði verði útrýmt á skömmum tíma. í ört vaxandi borg geta ávallt skapast tímabundnir húsnæðis- erfiðleikar, svo var og hér, en vegna þeirra miklu byggingar- framkvæmda sem fóru af stað á árunum 1954 til 1955 og hald- ið hafa áfram síðan, eru þess- ir erfiðleikar nú brátt úr sög- unni.“ 389 íbúðir tilbúnar — 372 braggaíbúðir rifnar „Nú er lokið við að byggja 389 íbúðir, en 128 eru í smíð- um og verður byrjað að úthluta þeim nú í sumar, jafnframt því sem hafnar verða framkvæmd- ir á nýjum áfanga. Þegar þessi starfsemi hófst bjuggu hér um 542 fjölskyldur í herskálum, en nú aðeins um 170 fjölskyldur. Búið er því að rífa 372 íbúðir á þessum tíma. Það er stefna Sjálfstæðis- manna að sem flestir eigi sínar íbúðir. Þessvegna hafa allar þessar íbúðir verið seldar vægu verði. Stórhuga framkvæmdir í íþrótta- og æskulýðsmálum ,Á undanförnum árum hefur öll aðstaða til íþróttaiðkana og æskulýðsstarfsemi verið stór bætt, sem fyrst og fremst má þakka borgarfulltrúum Sjálfstæð ismanna. Þessi árangur hefur náðst með markvissum stuðningi Og slhækkandi framlögum frá borgarstjórn til hverskonar fé- lagssamtaka sem vinna að fþrótta- og æskulýðsmálum. En borgarstjórn hefur ekki látið við það eitt sitja að úthluta lóðum, heldur hafa þessi félög verið styrkt myndarlega úr börg arsjóði. og þeim gert kleift að reisa þrótta'hús, félagsheimili og velli. Árið 1959 var hafizt handa um að byggja sýningar- og íþrótta- hús í Laugardal. Er það ætlað íþróttamönnum til afnota að vetrarlagi, en um sumartímann verður það notað í þágu atvinnu veganna til vörusýninga. Húsið mun rúma um 2000 manns í sæt um við íþróttakeppni, en um 3300 manns við fjöldasamkomur. Hramkvæmdum þes®um miðax nú svo vel að húsið verður fok- helt á þessu ári. Þegar öllum þessum fram- kvæmdum verður lokið, verður þarna glæsileg miðstöð íþrótta- lífs börgarinnar og alls landsins, þar sem ungþ: og gamlir geta stundað íþróttir í fögru um- hverfi." ★ Birgir ísleifur Gunnarsson flutti jómfrúrræðu sína í útvarpsum" ræðunum. Birgir komst m.a. svo að orði. Það er e.t.v. lán í óláni, að í nágrenni Reykjavíkur höfum við dætmi um bæjarfélög, þar sem vinstri menn hafa farið með völdin um árabil, þ.e.a.s. Hafnar- fjörð og KópavOg. Við skulum taka sem dæmi gatnagerðarfram kvæmdir sem mjög hafa verið gerðar að umtalsefni hér í kvöld.“ Dáðleysi og framkvæmdaleysi þar sem vinstri menn ráða. „Samanlögð lengd gatnakerfis- ins í Hafnarfirði, en þar hafa Alþýðuflokksmenn og komimún- istar farið með völd um árabil, er 25 km. Þar af hefur verið steypt eða malbikað aðeins 1. km. og 530 m eða 6 cm. af hiverjum 100. f Kópavogi, höfuðvígi kommún ista til þessa, hefur ebki einn einasti sentimetri verð steyptur eða malbikaður. í Reykjaviik hafa verið steypt- ir eða malbikaðir 59 km. af 143 þ.e.a.s. um 40 cm. af hverjum 100. Allir sjá á þessum samaniburði, að þar sem flokksbræður þeirra vinstri manna fara með völdin ríkir dáðleysi og framkvæmda- leysi. Hvert er borgarstjóraefni vinstri flokkanna? „Sjálfstæðismenn stilla sínu borgarstjóraefni í 1 sæti á fram- boðslistann. Geir Hallgrímsson er ungur og dugandi maður, sem (hefur sýnt og sannað, að hann er þess trausts verðugur. Það er þvi ekki óeðlilegt, þótt spurt sé nú, hvort borgarstjóra- efni vinstri manna, sé einhver þeirra, er nú skipar 1. sætið á listum þeirra flokka, sem Hk- legir eru til einlhverra áhrifa á borgarstjórn, og þá staðnæmist maður helzt við stærsta and- stöðuflokkinn Alþýðubandalagið. Er væntanlegur borgarstjóri ef til vill efsti maður á lista þess? Sá maður er Guðmundur Vigfús- son, sem þekktastur er fyrir tíð- ar ferðir austur til Moskvu. Þannig mætti áfram spyrja og þannig spyrja allir Reykvíking- ar í dag. Við viljum styrka stjórn, þróun og framfarir. Við, sem tillheyrum yngri kyn- slóð kjósenda í Rvík höfum séð borgina okkar vaxa og dafna með degi hverjum. Við vitum, að iþað er fyrst og fremst fyrir störf eldri kynslóðarinnar að Reykja- vík er í dag fögur, athafnasöm og þróttmikil borg og í þeirri þróun hefur Sj álfstæðisflokkur- inn verið í fararbroddi. En hin öra þróun borgarinnar á að vera okkur hvöt til dáða og við, unga kynslóðin, erum staðráðin í að taka upp merki feðra okkar og mæðra og stuðla áfram að þróun borgarinnar. Það starf munum við vinna undir merkjum þeirrar stefnu, sem reynzt hefur Reykjavík heilladrýgst, — undir merkjum Sjálfstæðisstefnunnar. Við viljum áframhaldandi þró- un og framfarir í Reykjavik. Við viljum styrka stjóm borgarmál- efna og hana tryggjum við á þann eina hátt að kjósa Sjálf- stæðisfIokkinn.“ ★ Síðastur ræðumanna í um- ræðunum var Geir Hallgríms- son, borgarstjóri. Fara hér á eftir meginmál ræðu hans: „Nú í kvöld kom fram enn ein sönnun þeirrar upplausnar sem ríkir meðal andstæðinga Sjálfstæðisflokksins — og hví- lík ógæfa það væri, ef stjórn borgarinnar lenti í höndum sundrungaraflanna. Það er ekki nóg, að 7 vinstrt samtök bjóði fram 5 framboðs- lista við þessar kosningar, — heldur er og hátíðlega lýst yfir, að nú sé búið að stofna 8. sam- tök vinstri manna“. Malbikaðar götur hafa lengzt um 9 kílómetra „Frambjóðendur Framsóknar Fraimh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.