Morgunblaðið - 24.05.1962, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.05.1962, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. maí 1962 REYKJAVÍK - IÍR BÆ í BORG ÞRJÁTÍU ár eru ekki lang ur tími í sögu einnar borg- ar. En síðustu 30 ár segja sögu stórfelldrar þróunar og vaxtar Reykjavíkur, hér hefur orðið hrein bylt- ing. Umskiptin hafa ekki orðið hvað minnst síðasta áratuginn undir dugmik- illi og framsýnni forystu Sjálfstæðismanna. Reykja vík er glæst merki um at- orku og stórhug og það merki vilja Reykvíkingar ekki fella. Og þessar myndir sýna betur en nokkuð annað hvílíkar breytingar hafa orðið á Reykjavík. Efri myndin er tekin úr lofti yfir Melana nú í vikunni. Fremst á myndinni er Hringbrautin, þá kemur Háskólahverfið, íþrótta- völlurinn, Bændahöllin, — Háskólabíóið, Hagaskóli, Neskirkja og fjölbýlishús við Hagatorg. Þar fyrir vestan er fjöldi nýbygg- inga, en ef vel er að gáð sést þarna Loftskeytastöð- in (á miðri myndinni), hvítmálað lágreist hús. Ef við lítum á neðri myndina, sem tekin var af sama stað árið 1930, þá er það ljóst, að Loftskeyta- stöðin er elzta byggingin á Melunum, rauðmáluð með hvíta glugga. Loft- skeytastangirnar teygja sig þar hátt til himins. en nú hafa þær verið fjar- lægðar. Loftskeytastöðin var þá töluvert fyrir utan hina eiginlegu Reykjavík, því þá var lítil byggð fyrir vestan elliheimilið Grund. Þeir Reykvíkingar, sem muna Melana eins og þeir voru 1930, eru margir. Þetta er stuttur tími, en tími ótrúlega mikillar upp byggingar. Og þó margir barnfæddir Reykvíkingar sakni innst inni gömlu Reykjavíkur, þá eru þeir stoltir af Reykjavík vorra daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.