Morgunblaðið - 03.06.1962, Side 1

Morgunblaðið - 03.06.1962, Side 1
24 síður, Aðalfundur Eimskipafélags íslands h.f. i Vöruflutningar með E1 aldrei meiri en Guðmundsson flytur skýrslu stjórnar. í'ormaður stjórnar Eimskipafélags íslands Ein ar B. A myndinni sézt einnig m. a. stjórn og framkvæmdastjóri. Stúlku rænt í Berlín TVÆR 17 ára stúlkur frá Vestur Berlin ætluðu að hitta vinstúlku sina frá Austur Berlín við gadda vírsgirðingar kommúnista á mörkum borgarhiutanna í gær. Aðeins önnur þeirra kom aftur úr þeirri ferð, og hafði hlotið skotsár á mjöðm. Sfcúl'kurnar fcvœr, Ursula og Karen, komu að gaddavírsgirð- ingunum í gærkvöldi og biðu þar eftir vinstúikunni að aust- an. En austur þýzkir landamæra verðir kornu auga á þær og kölluðu til þeirra: Komið að girðingunni, vinstúika ykkar bíður. En gaddavirinn er strengdur €>------------------- gær: skipum sl. ár þarna nokkrum metrum austan borgarmarikanna, svo þegar stúlkumar komu að girðingunni vvoru þær í Austur Berlín. Og ,,hjálpsemi“ landamæravarð- anna reyndist blekking. begar Ursula og Karen komu að girðingunni, gripu verðimir til þeirra. Náðu þeir Karen og dróu hana gegnum girðinguna. En Ursulu tókst að losna og lagði á flótta til Vestur Berlán- ar. Skutu verðirnir á eftir Ur- sulu úr hríðskotabysum og hæfði eitt skotið hana í mjöðlm- ina. Herrni tókst þó að komast undan og tiil næstu lögreglu- stöðvar, þar sem hún sagði frá því að vinkonu hennar hafi ver- ið rænt. Lögreglusveit var þegar send á vettvang, en Karen vax iþá horfin austur fyrir. Ursula er nú í sjúkrahúsi. Erlendar fréttir Þörf farmgjaldahækkunar - Nýr framkvæmdastjóri - Óskað eftir auknu athafnasvæði í Rvik — Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta bréfa AÐALFUNDUR Eimskipafé- lags íslands hf. hófst í húsa- kynnum félagsins við Póst- hússtræti laust eftir kl. 13.30 í gærdag. Á fundinum var lögð fram skýrsla um starf- semina á árinu 1961 og end- urskoðaðir reikningar. Alls fluttu hin 10 skip félagsins 283,8 þúsund lestir af vörum á árinu og tæplega 7 þúsund farþega og hafa vöruflutn- ingar aldrei í sögu félagsins verið meiri. Þó stöðvuðust fimm af skipunum í sam- tals 130 daga af völdum verk falls hér í Reykjavík. Brúttó hagnaður af rekstrinum nam 6,6 millj. kr. — en þeg- ar tekið hefur verið tillit til afskrifta af skipunum og öðrum eignum félagsins, svo og gengistaps, er halli á rekstursreikningi urn 44 millj. kr. Leggur félagsstjórnln til, að arður verði ekki greiddur í ár, en fyrir fundinum er einnig til- laga um útgáfu jöfnunarbréfa þannig að fyrir hvert 100 kr. bréfi komi 1000 kr., þ.e. að þau tífaldast. Það er rökstutt álit forráðamanna félagsins, að ekki megi dragast lengur, að leyfð verði hækkun á farmgjöldum til samræmis við rikjandi að- stæður. — Eimskipafélagið hef- ur óskað eftir nýju athafna- svæði í örfirisey. Bæði þessi mál eru nú til athugunar hjá hlutaðeigandi stjórnarvöldum. — Framkvæmdastjóri félagsins, Guðmundur Vilhjálmsson, læt- ur nú af störfum eftir 32 ára starf hjá félaginu, og við tekur Óttar Möller. Þegar fundur hófst í sal efstu hæðar Eimskipaféilagshússins við Pósthússtræti, voru ná- lægt hundrað hluthafar og um- boðsmenn mættir fyrir eigendur meirihiuta af hlutabréfum í fé- laginu. Pormiaður félagsstjórn- Stjórnarkjör í S T J ó R N Eimskipafélags fslands hf. átti að kjósa fjóra menn, og hlutu þessir kosningu: Einar B. Guð- mundsson, Birgir Kjaran (báðir endurkjörnir) og Thor R. Thors. Af hálfu Vestur- íslendinga hafði verið endur- kosinn Grettir Eggertsson. Samþykkt var á fundinum tillaga stjórnarinnar um að greiða engan arð af hlutafé að þessu sinni. Fundinum var ekki lokið, þegar blaðið fór í prentun. arinnar Einar B. Guðmundsson, hrl., setti fundinn og bauð fund- armenn velkomna, þ.á.m. full- trúa Vestur-íslendinga Gretti Eggertsson, sem áfct hefur sæti í stjóm félagsins. Síðan tók við fundarstjórn Lárus Jóhannes- son, hæstaréttardómari, og fund arritari var Tómais Jónsison, borgarlögmaður. Minnst var Gunnars Ólafsson- ar kaupmanns í Vestmannaeyj- um, sem lézt á sl. ári, en hann var umiboðsmaður félagsins frá upphafi. Stjórnarformaðurinn, Einar B. Guðmundsson, gaf þvínæst yfir- lit um starfsemi og afkomu fé- lagsins, en auk þess lá fyrir fundinum „Skýrsla félagsstjórn- ar um hag félagsins og fram- kyæmdir á starfsárinu 1961 og starfstilhögun á yfirstandandi ári.“ Fer hér á eftir ágrip af yfirliti um starfsemina: V öruf lutningar Á árinu 1961 urðu vöruflutn- ingar Eimskipafélgasins samtals um 284 þúsund tonn. Fóru engir vöruflutningar fram með leigu- skipum. Vöruflutningar skiptust þannig: 1) Innflutningur 128.500 tonn 2) Útflutningur 121.000 tonn 3) Flutningur milli hafna erlendis 23.500 tonn 4) Innanlandsflutn- ingur 11.000 tonn Síðast liðin 5 ár hafa vöruflutn ingar Eimskipafélagsins verið þessir: Árið 1957 227 þús. tonn, 1957 260 þús. tonn, 1959 248 þús. tonn, 1960 259 þús. tonn, 1961 284 þús. tonn. í raun réttri var hér um mjög mikinn flutning að ræða, ekki sízt þegar athugað er, að vegna verkfalls Verkamannafélagsins Dagsbrúnar sem stóð frá 29. maí til 29. júní stöðvuðust fimm af skipum félagsins í samtals 130 daga. Nýting skipastólsins hefir því verið mjög góð, svo sem jafnan hefir verið kappkostað af hálfu Eimskipafélagsins. Vöruflutning- ur milli erlendra hafna var mjög verulegur á árinu 1961, eða 23.500 tonn. Þannig voru á árinu flutt um 10 þús. tonn af frystivöru frá Framhald á bls. 23. i stuttu máli Sunnyvale, Kaliforníu, 1, júní. (NTB) — Bandaríski flugherinn skaut í gær á loft gervihnetti, sem vegur 4,§ kg- og sendir út merki á 144,993 megariðum fyrir á- hugamenn að hlusta á. —. Nefnist hnötturinn Oscar II og á að senda frá sér merki í einn mánuð. Þá var einnig skotið á loft tveimur gervi- hnöttum á föstudagskvöld og laugardagsmorgun frá Vand- enberg-flugstöðinni í KaM- forníu, ön ekkert hefur ver- ið látið uppi um tilgang þeirra. — Var þeim skotið á loft með eldflaugum af gerð- inni Thor-Agena. ★ Algeirsborg, 2. júní. (AP) — Samkvæmt opinberum frönskum heimildum fara nú fram viðræður OAS-manna og Serkja um framtíð manna af evrópskum ættum í Alsír eftir að landið verður sjálfstætt. Orðrómur hefur verið á kreiki undanfarna fimm daga um að viðræður fari fram, en nú segjast Frakkar hafa fengið stað- festingu á þessu frá OAS- samtökunum. Aberandi lítið hefur verið um ofbeldisverk í Alsír undanfarna daga og talið að OAS hafi gert hlé á mannvígum til að sýna Serkj um að friður í Alsír er því aðeins mögulegur að samið verði við OAS, ekki ríkis- stjórn de Gaulle forseta. LESBÓK LESBÓK Morgunblaðsins fylgir ekki blaðinu í dag. Guðmundur Vilhjálmsson forstjóri t.h. lætur nú af störfum, en við tekur Óttar Möller t.v.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.