Morgunblaðið - 03.06.1962, Qupperneq 12
12
MORGUlVBLAÐIb
Sunnudagur 3. júní 1962
CTtgefandi: H.f. Arvakur Reykjavík.
Frar’kvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson
tJ-Vreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Aug'iýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askrifta Tgjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
t lausasölu kr. 3.00 eintakið.
FRAKKAR YFIRGEFA
ALSÍR
TTvarvetna um siðaðan heim
** hafa menn undanfama
mánuði lesið með hryllingi
fréttimar um hryðjuverk
morðsveita OAS-manna í
Alsír — og þó er heimurinn
orðinn ýmsu vanur, eftir
tvær hryllilegar' heimsstyrj-
aildir, og aðfarir nazista og
heimskommúnismans í ýms-
um löndum. Ef menn furða
sig á atburðunum í Alsír,
eftir öll grimmdarverk
mannanna í styrjöldum og
byltingum síðustu hálfrar
aídar, þá er það meðal ann-
ars vegna þess, að erfitt er
að skilja að hryðjuverk OAS
manna geti haft nokkum
tilgang að yfirskini. Þau
virðast framin í pólitísku
brjálæði.
Hatrið milli Evrópu-
manna og Araba í Alsír
hlýtur, eftir þessa ógnaöld,
að vera meira en svo, að
nokkur von sé til að þessi
tvö kyn geti framar búið
saman í þessu landi, unnið
þar hlið við hlið, treyst
hvort öðru. Þess vegna munu
þykja góðar fréttir, að allur
þorri Evrópumanna, virðist
nú hafa áttað sig á því, að
menn af þeirra kyni hafa
fyrirgert því öryggi, sem
þeir ef til vill gátu áður
vænzt undir komandi stjóm
Araba.
En um leið og Frakkar
yfirgefa Alsír, er vert að
minnast þess hvert erindi
þeir áttu til þessa lands, sem
þeir hafa stjórnað hátt á
aðra öld. Alsír var öldum
saman eitt illræmdasta sjó-
ræningjabæli í heimi, alla
tíð fram á síðustu öld. Það-
an komu sem kunnugt er
skipin sem frömdu svokallað
Tyrkjarán á íslandi á 17.
öld. — Landstjórnarmenn í
Alsír rökuðu saman auðæf-
um á vel skipulögðum sjó-
ránum, aðallega í Miðjarðar-
hafi, og sölu á fólki til þræl-
dóms, bæði herteknu fólki
úr Evrópu og svertingjum.
Má furðulegt heita hversu
lengi Evrópuþjóðir létu þeim
haldast uppi allan þann
þjófabálk.
Loks tóku Bandaríkin sig
til og gjöreyddu ræningja-
flota Alsír á árunum 1815—
16. En flotinn var endur-
byggður, og ekki leið á
löngu þangað til skipum var
að nýju ekki vært á Mið-
jarðarhafi fyrir ræningja-
skipum frá Alsír. Þá ákváðu
Frakkar að ganga milli bols
og höfuðs á þessum barbara-
hætti, hertóku Alsír 1830, og
stjómuðu þar upp frá því.
Franskt framtak, tækni,
fjármagn og menning ger-
breytti landinu. Áður voru
sjórán og mansal aðalat-
vinnuvegir við ströndina, en
inni í landi bjuggu hirðingj-
ar í tjöldum, og ráku frum-
stæðan landbúnað og kvik-
fjárrækt. Frakkar breyttu
stórum óræktarsvæðum í
frjó akurlönd, lögðu vegi og
jámbrautir, reistu borgir á
ströndinni, komu upp margs-
konar iðnaði, juku fram-
leiðslu og verzlun landsins
með hverjum áratug.
Það eru niðjar þessara
manna, sem hafa átt erfitt
með að sætta sig við, að
eiga að missa vernd franska
ríkisins og komast undir
stjóm Araba — sem eins og
kunnugt er — em um það
bil tíu sinnum fjölmennari
en menn af evrópskum
stofni. En öllum hefði verið
betra að þetta fólk hefði fyrr
skilið, að nýlenduhald í
Afríku, í hvaða formi sem
er, er nú dauðadæmt, og að-
eins um tvennt að velja fyr-
ir þarlenda Evrópumenn —
annað hvort að hverfa á
brott, eða beygja sig undir
stjóm Afríkumanna.
25. SJÓMANNA-
DAGURINN
rputtugasti og fimmti Sjó-
mannadagurinn er í dag
hátíðlegur haldinn. í aldar-
fjórðung hafa íslenzkir sjó-
menn minnzt stéttar sinnar
og starfa fyrsta sunnudaginn
í júní.
Sjómannadagurinn varð
þegar í upphafi almennur
hátiðisdagur í kaupstöðum
og kauptúnum um land allt.
Fólkið í byggðarlögum sjáv-
arsíðunnar tók þátt í honum
í ríkum mæli. í hverjum ein-
asta kaupstað og sjávarþorpi
á hinni löngu og vogskornu
strandlengju íslands eru það
sjómennirnir og störf þeirra,
sem eru hyrningarsteinn at-
vinnu og afkomu.
Fiskiskipin, hraðfrystihús-
in, fiskimjöls- og síldarverk-
smiðjurnar eru þau fram-
leiðslutæki, sem framleiða
yfirgnæfandi stærstan hluta
af útflutningsverðmætum
þjóðarinnar. Þessvegna er
allt líf hennar og afkoma háð
því, hvernig þessi rekstur
gengur.
En við eigum fjölmargt
enn ógert á þessu sviði. ís-
lendingar eiga í framtíðinni
að geta orðið siglingaþjóð,
>
Soraya, fyrrverandi keisara-
inja í Iran, hefur reikað stefnu-
laust um í heiminum, síðan keis-
arinn skildi við hana — og það
hefur litið svo út sem bæði hún
og fjölskylda hennar væru í ó-
☆
náð. hjá persnesku hirðinni. En
nú er að verða breyting á þessu.
Faðir ‘ hennar, sem í fyrra var
kallaður heim úr sendiherrastöð-
unni í Bonn, er nú aftur kominn
í góða stöðu í utanríkisþjónust-
unni heima — og Soraya hefur
fengið aftur diplomatapassann
sinn, sem var á svo ósmekklegan
hátt allt í einu tekinn af henni
skömmu eftir skilnaðinn.
Kannski hefur keisarinn orðið
var við það á ferðum sínum um
heiminn, oð meðferðin á Sorayu
hefur ekki aukið vinsældir hans.
Þessi stúlka er ekki í fréttum,
heldur í auglýsingum stórblað-
anna. Þið kannist vafalaust við
svipinn á henni. Það er íslenzka
mundsdóttir, sem er orðin eftir*
sótt fyrirsæta og býr í París.
Þessi mynd var t. d. heilsíðu*
mynd í auglýsingu fyrir Esso
★
fegurðardiottningin María Guð-
olíu í franska blaðinu Paris
Match.
í fréttunum
inn. — Það hefur vafalaust ver>
ið gagnrýnandi, svaraði Stra«
vinsky.
★
Á þingi í London kom hinn
heimskunni „migrainesérfræðing
ur“ eða sérfræðingur í höfuð-
veiki, Nevil Laxton, með nýja
hafi þjáðst af svokölluðu
„migraine", því það leiði til alls
konar sýna sjá mjög tauga-
spenntu fólki. Og aumingja Jó-
hanna getur ekki varið sitt mál.
★
Tónskáldið fræga, Igor Stra«
vinsky, var á gangi í skóginum
við San Francisco með vini sín-
um, fagran vormorgun, þegar
fuglarnir sungu. Vinirnir
skemmtu sér við að geta upp á
hvaða fugl gæfi frá sér hvert
hljóð, en allt í einu hvein kráku-
garg gegnum fuglasönginn. —-
Hvað var þetta? spurði vinur-
★
Vera, kona Adolfs Eiohmanns,
heldur því stöðugt fram að mað-
ur hennar sé saklaus. Hún fékk
nýlega að tala við hann gegnum
gler. Hún segir: — Jafnvel í
Daohau var það ekki maðurinn
minn sem drap menn, hann
hlýddi bara skipunum. Hin
trygga eiginkona lætur engar
sannanir breyta skoðun sinni.
skýringu á sýnum heilagrar Jó-
hönnu. Hann segir að þær hafi
blátt áfram stafað af því að hún
sem hefur drjúgar tekjur af
að flytja fólk og varning um
heimshöfin fyrir aðrar þjóð-
ir.
Sjómannadagurinn hefur
haft margvíslega heillavæn-
leg áhrif. Dvalarheimili aldr
aðra sjómanna er eitt stærsta
málið, sem hann hefur hrund
ið í framkvæmd, Morgun-
blaðið óskar öllum íslenzk-
um sjómönnum og aðstand-
endum þeirra til hamingju
með hátíðisdag þeirra.
FLUGFÉLAG
ÍSLANDS
FÚugfélag íslands minnist
*■ um þessar mundir 25
ára starfs síns. Það hefur
unnið mikið og merkilegt
brautryðjendastarf í þágu
íslenzkra samgöngumála.
Fyrsta flugfélagið, sem
stofnað var hér á landi hét
Flugfélag íslands og var
stofnað árið 1919. Þá þegar
var áhugi vaknaður hér á
flugi og flugsamgöngum. En
þessi tilraun fór þó út um
þúfur vegna féleysis og ann-
arra erfiðleika. Það Flugfé-
lag íslands, sem nú á aldar-
fjórðungsafmæli er þriðja
flugfélagið með því nafni.
Það var stofnað 3. júní 1937.
Þrátt fyrir margvíslega
byrjunarörðugleika efldist
þetta félag og gegndi stöð-
ugt þýðingarmeira hlutverki
í samgöngumálum lands-
manna. í dag annast það
flugsamgöngur við alla lands
hluta til ómetanlegs hag-
ræðis fyrir fólkið. Utanlands
flug félagsins er einnig rek-
ið með miklum myndarbrag
með fullkomnum og glæsi-
legum flugvélum.
Forystumenn Flugfélags
íslands hafa jafnan verið
dugandi menn. — Þeir verð-
skulda miklar þakkir þjóðar
sinnar.
Mbl. árnar Flugfélagi ís-
lands allra heilla á þessum
tímamótum í sögu þess.