Morgunblaðið - 03.06.1962, Síða 22

Morgunblaðið - 03.06.1962, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 3.. júnl 1962 22 — Wasp Framh. aÆ bls. 3. . ' að lemgi verður munað. Á : sjö dögum löskuðu flugvélar i Wasp • tvö flugvélaskip 1 Japana, vörpuðu þremur sprengjum á stórt beitiskip, ( sökktu stóru flutningaskipi og sennilega japönskum kafbáti. Auk þess voru 20 flugvélar skotnar niður fyrir Japönum. Mun hér um að ræða ein- hverja stórbrotnustu viku sem um ræðir í sögu hernaðar með flugvélaskipum. Sumarið 1945 var Wasp í þriðja flotanum undir stjóm Halsey’s aðmíráls. Fóru flug vélar skipsins í margar árása- ferðir til Japan og vörpuðu þar sprengjum sínum, En skyndilega var styrjöldinni i lokið en þrátt fyrir það hafði | áhöfn Waps nóg að gera. Skip íð lenti í hvirfiibyl þar sem vindhraðinn komst upp í 78 hnúta. Ólög stórskemmdu kinnung skipsins en þrátt i fyrir tjónið flugu vélar skips- ‘ ins margar ferðir með lyf, mat væli og annað handa banda- rískum stríðsföngum í Japan. 1947 var Wasp tekið úr notkun og tilheyrði þá vara- flota Atlantshafsins um skeið, > eða þar til í september 1951. Var skipið þá tekið til gagn- gerðar skoðunar og breytinga til þess að mæ ta kröfum þrýsti lotftsflugvéla. Eftir þessar bfeytingar var það tekið í notkun í flota Bandarikjanna á AtlantshafL 1953. var Wasp sent til Aust urlanda fjær, og sigldi nú aftux á Kyrrahafi með flota Bandaríkjanna þar. Setti skip ið þar með met með því að koma 12 þrýstiloftsflugvélum á loft á þremur mínútum Og níu sekúndum. 1955 var skip- inu enn breytt, í það skip, sem það er nú. í janúar 1957 var heimahöfn skipsins breytt úr San Diego í Califomiu í Boston, Massachusetts. Breyt- ingarnar á skipinu voru framkvæmdar á vesturströnd Bandaríkjanna. Elftir þær bomst Skipið stærðar sinnar vegna ekki í gegnum Pana- maskurðinn og varð að sigla suður fyrir S-Ameríku til þess að komast á ný á Atlantshaf ið. Wasp er eina flugvéla- skipið, sem heimahöfn á í Boston. Það er 40 þúsund lestir að stærð, 899 fet á lengd og á hæð við 23 hæða hús. Skipið er í raun og veru fljótandi borg með 2400 manna áhöfn. í því er flókið símakerfi með 300 línum og 500 talsímum. Flugþiljumar eru í tæplega 16 metra hæð yfir sjó, og það þanf hvorki meira né minna en um 2,200 lítra af málningu á eina yfir- ferð á flugþiljurnar. Skipið notar 99 þúsund gallon af eld sneyti á dag við flugæfingar. Til þess að fæða áhöfnina eru notuð um sjö tonn af mat- vælum á dag. 3420 pund af nýju kjöti eru borðuð þar dag- lega og 1200 lítrar af mjólk eru drukknir. í skipinu eru 2,500 mílur af leiðslum og pípum, sem flytja ferskt loft um það allt, stýri þess er 429 ferfet og hvort akkeri um sig vegur 15 smá- lestir svo eitthvað sé nefnt til að gefa til kynna stærð þess. Og á morgun, mánu- dag, geta Reyfcvilkingar með eigin augum séð báknið á ytri höfninni. Wasp er flaggskip Paul D. Buie, aðmíráfls, en skipstjóri þess er Captain William F. Brewer. — Flugfélagið Frh. af bls. 8. og starfskrafta. Flugfélag fslands tók Skymasterflugvél á leigu í Bandaríkjunum til staðsetningar í Syðra-Straumfirði, en „Sólfaxi" var útbúinn með sérstakri ratsjá og leitartækjum fyrir ískönnun- arflugið. Að frátöldum Græn- landsflugum þessarra flugvéla eru flugferðir félagsins til Græn- lands frá upphafi orðnar tals- vert á annað þúsund. Sumarið 1961 eignaðist Flugfélag íslands fyrstu Cloudmpster-flugvél sína, flugvélina „Skýfaxa". Hún er að mestu notuð til leiguflugferða, en einnig til áætlunarflugferða milli landa, þegar ástæður þykja til. Á 25 ára þróunarsögu Flug- félags fslands hafa margir sigr- ar verið unnir. En þeir sigrar hafa ekki unnist fyrirhafnar- eða sársaukalaust. í þrem flugslys- um, sem hentu flugvélar félags- ins fórst margt mætra manna og kvenna. Flugfélagið gat á bezt- an hátt minnst þeirra er féllu, með því að efla flugið og allt öryggi og tækni í því sambandi. Starfsemi Flugfélags fslands hefir aukist ár frá ári. Jafnhliða auknum verkefnum hefir skipu- Iag félagsins verið breytt og nú starfar það í átta deildum. Hilmar Sigurðsson stjórnar deild innanlandsflugsins. Millilanda- fluginu stjórnar Birgir Þórhalls- son. Véladeild stjórnar Brandur Tómasson og skoðunardeild flug véla Jón N. Pálsson. Bókhalds- deild félagsins veitti Sigurbjörn Þorbjörnsson forstöðu í mörg ár, en hann hefir nú látið af því starfi og við tekið Þorvaldur Tryggvason. Flugrekstursdeild stjórnar Jóhann Gíslason. Aðal- gjaldkeri félagsins er Páll Þor- steinsson og skrifstofustjóri Sig- urður Matthíasson. Stjórn Flug- félags íslands skipa: Guðmundyr Vilhjálmsson, formaður en hann hefir gengt þeim störfum í 17 ár samfleytt Aðrir í stjórn eru: Bergur G. Gíslason, Björn Ólafs- son, Richard Thors og Jakob Frímannsson. Aukin starfsemi Flugfélags fs- lands hefir meðal annars orsak- að mikil þrengsli á afgreiðslum og skrifstofum félagsins í Reykja vík, og þær hafa þar til í vor verið á þrem stöðum í bænum. í fyrsta sinn í mörg ár, hafa nú skrifstofurnar verið sameinaðar í einu húsnæði, í húsi Bændasam takanna. Söluskrifstofa félagsins í Lækjargötu 4 verður bráðlega flutt í nýtt húsnæði í Lækjar- götu 2. Hinn 3. júní 1962 verð- ur Flugfélag íslands 25 ára. Þótt slíkt þyki ekki stórt afmæli ein- staklings, cr hér um merkan á- fanga að ræða. Félagið sem stofn að var fyrir 25 árum norður á Akureyri hefir á starfsferli sín- um rofið aldagamla einangrun margra byggðarlaga. Það hefir stytt vegalengdirnar og fært landsmenn nær hverjum öðrum. Það hefir átt sinn stóra þátt í því að gera land okkar byggi- legra en ella. Á hinn bóginn hef- ir Flugfélag íslands tengt fs- land nágrannalöndunum. Það býður ferðamönnum þægilegustu og fljótustu ferðirnar heiman og heim. VREDESTEIN HOLLENSKIR HJÓLBARÐAR. NÝJAR BIRGÐIR KOMA MED HVERRI SKIPSFERÐ FRÁ EV- RÓPU. ÞESS VEGNA ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI, ÞRÁTT FYR- IR MIKLA EFTIRSPURN EF W GETIfl 520 x 13/4 kr. 582,20 520 x 14/4 — 654,75 640 x 15/6 — 999,20 560 x 13/4 — 651,00 560 x 14/4 — 712,70 670 x 15/6 — 1.039,00 590 x 13/4 — 707,10 590 x 14/4 — 765,60 670 x 15/6 hvít — 1.230,80 590 x 13/4 hvít — 848,50 750 x 14/6 — 1.045,50 710 x 15/6 — 1.152,60 640 x 13/4 — 819,90 750 x 14/6 hvít — 1.235,45 710 x 15/6 hvít — 1.363,90 640 x 13/6 — 935,60 800 x 14/6 hvít — 1.376,00 820 x 15/6 — 1.573,75 640 x 13/6 hvít — 1.133,10 560 x 15/4 — 744,60 525 x 16/4 — 720,50 670 x 13/4 — 842,75 560 x 15/4 hvít — *883,20 600 x 16/6 — 1.030,00 670 x 13/6 — 963,90 590 x 15/4 — 802,20 600 x 16/6 gróf — 1.076,50 670 x 13/6 hvít — 1.141,60 590 x 15/4 hvít — 949,40 600 x 16/6 Special — 1.092,40 650 x 16/6 — 1.170,40 900 x 16/10 gróf — 3.595,60 750 x20/10 Special — 3.267,15 825 x 20/12 Special — 3.791,85 900 x 20/14 Special — 4.824,25 1000 x 20/14 Special — 5.746,85 1100 x 20/16 Special — 7.278,65 Geymið auglýsinguna og gerið samanburð á verð- um. H Einkaumboð: M.IF. Brautarholti 20 — Sími 15159 Söluumboð Reykjavík imboðið KR. KRISTJÁlNrSSON H.F. Suðurlandsbraut 2 — Sími 35300 Stór sending VREDESTEIN hjól- barða væntanleg næstu daga til Akur eyrar. BILASMM H.F. Geislagötu 5 Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.