Morgunblaðið - 03.06.1962, Side 23

Morgunblaðið - 03.06.1962, Side 23
' Sunnudagur 3. júní 196z. MORGVNBLAÐIÐ 23 — ASalfundur Eimskips r Framíh. af bls. 1. New York til Evrópu og rúm 11 þúsund tonn frá Dublin á ír- landi til New York. Flutnings- gjald fyrir þessar vörur nam um 31.5 milljónum króna. Farþegaflu tningur Á árinu 1961 ferðuðust með skipum Eimskipafélagsins milli landa 6970 farþegar. Þar af ferð- uðust með Gullfóssi einum 6559 farþegar. Há hér geta þess, að Gullfoss, sem nú er orðinn 12 ára gamall hefir samtals flutt um 74 þúsund farþega milli landa. Síðastliðin 5 ár hefir farþega- flutningur milli landa verið þessi: Árið 1957 4.906, 1958 6,230, 1959 7.061, 1960 7.023, 1961 6.970. Eigendaskipti hlutabréfa Frá aðalfundi 1961 til þessa dags hafa verið skráð eigenda- skipti að hlutabréfum samtals að nafnverði kr. 30.075. Afkoma félagsins Samkvæmt rekstursreikningi námu brúttótekjur skipanna á árinu 1961 220.5 milljónum kr., en brúttógjöld skipanna 213,9 milljónum, þannig að brúttóhagn aður skipanna var á árinu 1961 6,6 milljónir króna. Hinsvegar sýnir rekstursreikn- ingurinn tap, sem nemur 44 millj. króna, en þá hafa skip félagsins og aðrar eignir verið afskráðar um 30,7 milljónir króna. Þá hef- ir á árinu 1961 verið fært á rekst ursreikning gengistap tæplega 13,3 milljónir króna. Liggja fjór- ar höfuðástæður til þessarar lé- legu útkomu. í Stjórnendur og framkvæmdar- stjóri Eimskipafélagsins hafa æ ofaní æ vakið athygli verðlags- yfirvalda á þessu veigamikla at- riði, en því miður hefir enn ekki fengist lausn. | Með ársskýrslu félagsstjórnar er að finna rækilegan rökstuðn- íng fyrir því, að breyta verði flutningsgjaldatöxtum félagsins. Og er málið nú til athugunar hjá opinberum aðilum. ( í öðru lagi hefur reksturs- kostnaður aukizt. Brúttóútgjöld skipanna voru á árinu 1961 213,9 milljónir króna og nemur heild- arhækkun sambærilegra útgjalda 16,2% frá árinu 1960. í þriðja lagi hefir Eimskipafé- lagið orðið fyrir mjög tilfinnan- legu gengistapi. Samkvæmt rekst ursreikningum fyrir árið 1961 nam gengistapið samtals tæplega 13,3 milljónum. ! í fjórða lagi er svo að geta þeirrar staðreyndar, að miklu kostnaðarsamara er ða byggja og reka frystiskip en önnur skip. Vegna útflutningsframieiðslunn- ar hefur þótt eðlilegt og nauð- synlegt að búa skip Eimskipafé- lagsins til frystiflutninga og eru nú 6 af 10 skipanna þannig bú- in. Eins og er nýtizt frystifloti íslendinga hins vegar hvergi nærri til fulls og hefir þetta að sjálfsögðu haft mjög veruleg áhrif í sambandi við rekstur Eim skipafélagsins. — Það var einmitt í ljósi þessara staðreynda, að stjórn Eimskipafélagsins tók þá ákvörðun hinn 31. janúar 1961 að freista þess að komast inn í flutning frystrar vöru frá Ameríku til Evrópu og síðan frá Evrópu til Ameríku. Félaginu hafa mætt ýmsir erfiðleikar í þessum áformum, en vonir standa til, áð flutningarnir gefi góða raun. Efnahagur félagsins í árslok 1960 nam skuldlaus eign félagsins 37,7 milljónum kr., en samkvæmt efnahagsreikningi nú nam skuld félagsins í árslok 1961 umfram eignir 6,5 milljón- um króna. Þessi efnahagsreikningur get- ur þó ekki rétta mynd af eignum félagsins, t. d. eru öll skip fé- lagsins, 10 að tölu, bókfærð á 96 milljónir króna, en sú fjár- hæð er ekki meira en 10—12 milljónum hærri en kostnaðar- verð Brúarfoss eins er í dag. Skip félagsins öll, undantekn- ingarlaust, eru traust og vönduð. Elsta skipið er nú Tröllafoss, sem smíðaður var á árinu 1945, en það skip keypti félagið á árinu 1945. — f skipunum liggja þann- ig verðmæti, sem eru langt fram yfir bókfært eignarverð. Þá á Eimskipafélagið mjög verðmiklar fasteignir. Má þar sérstaklega nefna skrifstofu- byggingu félagsins, hinar miklu eignir við Skúlagötu, sem keypt- ar voru á sínum tíma af Kveld- úlfi h.f., svo og hið mikla athafna svæði við Borgartún ásamt stór- um og vönduðum vöruskálum. Allar fasteignir félagsins eru bókfærðar samtals á 6,8 millj. króna, en verðmæti þeirra nem- ur að sjálfsögðu mörgum sinn- um þeirri fjárhæð, enda eru eign irnar færðar á efnahagsreikningn um á fasteignamati. Loks á Eimskipafélagið verð- mikil og afkastamikil tæki og vinnuvélar, bifreiðar o. fl., sem notuð eru við fermingu og af- fermingu skipa, en allt þetta er aðeins bókfært á 6 milljónir kr. Eftirlauna- og lífeyrissjóður Skuldlaus eign eftirlaunasjóðs nam um sl áramót liðlega 6,8 milljónum króna. Framlag félags ins á árinu 1961 nam liðlega 1850 þúsund krónum og vaxtatekjur urðu tæpar 600 þúsund krónur. — Greidd eftirlaun úr sjóðnum námu á árinu 1961 tæplega 2,2 milljónum króna. Skuldlaus eign lífeyrissjóðs nam um sl. áramót liðlega 9.5 millj. kr. og hefir hann aukizt á árinu um liðlega 3,7 millj. — Tillög sjóðsfélaga námu 630 þús. en framlag Eimskipafélagsins um 1070 þúsundum. Engar greiðslur lífeyris voru inntar af hendi á árinu 1961. Hins vegar var sjóðsfélögum veitt lán úr lífeyrissjóði á árinu, liðlega 2,1 millj. kr. Heildarupphæð lána tæpl. 6,3 millj. kr. Skattamál Á árinu 1961 námu beinir skatt ar Eimskipafélagsins, þ. e. eignar skattur, útsvar og kirkjugarðs- gjald liðlega 2,2 milljónum kr. Þessi fjárhæð var 2,4 millj. á ár- inu 1960. — í sambandi við skattamál er vert að geta þess, að samkvæmt lögum nr. 44/1957 um skatta á stóreignir var Eim- skipafélaginu upphaflega gert að greiða svokallaðan stóreigna- skatt samtals kr. 3,8 milljónir kr. Eftir að hæstaréttardómur hafði gengið um gildi laga nr. 44/1957 í heild og í einstökum atriðum, og eftir að skattstjórnarvöld höfðu endurskoðað upphæð stór- eignaskattsins fór þetta skatt- gjald Eimskipafélagsins úr 3,8 milljónum niður fyrir eina millj. króna. Ágreiningur er hins vegar enn um það, hve hátt beri að meta hlutabréf í félaginu. Er geng- inn í undiirétti dómur til stað- festingar á því, að bréfin skuli tífölduð — í stað þess að þau voru í upphafi skattlagningar- innar metin á eða 103 földu nafn verði og síðar fertugföldu. Þess- um dómi hefir verið skotið til Hæstaréttar, og er þess vænst, að Hæstaréttardómur liggi fyrir öðru hvoru megin við næstu áramót. — Fari svo, að héraðs- dómurinn verði staðfestur, ætti stóreignaskattur Eimskipafélags- ins tæpiega að fara langt yfir 300 þús. kr. Nýtt athafnasvæði í sambandi við afgreiðslu skipanna, upp- og útskipun, svo og afgreiðslu þess mikla varn- ings, sem fluttur er með skipum félagsins inn í landið, hefir félag- ið leitað til borgarstjórnar og hafnarstjórnar Reykjavíkur og farið frain á að fá stórt athafna- svæði í Örfirsey til umráða. Hef- ir verið farið fram á það, að þar yrði byggð bryggja, sem tvö eða fleiri skip gætu jafnan legið við og jafnframt vöruskálar til að veita vörum viðtöku. Tollstjórnar völdin hafa fylgst með þessu máli, og hafa mikinn áhuga fyr- ir því að úr greiðist. Á þessu stigi er of snemmt að spá nokkru um endanleg úr- slit þessa máls, en fullyrða má, að það r.jóti fulls skilnings. TiIIaga um útgáfu jöfnunar- hlutabréfa Félagsstjórnin leggur fram á aðalfundinum sérstaka tillögu um útgáfu jöfnunarhlutabréfa, svo og um endurskoðun á sam- þykktum Eimskipafélagsins. Fellst í henni að hlutafé félags- ins verði tífaldað, þannig að hlut hafar félagsins fái í hendur eitt þúsund króna hlutabréf fyrir hvert hundi að króna bréf, og það að sjálfsögðu án þess að greiða nokkuð fyrir þá aukningu. Verði tillagan samþykkt, er ætlunin að vinna að þessu í sumar. Lögum samkvæmt þarf að hafa samráð við fjármálaráðherra, áður en jöfnunarhlutabréf eru gefin út. Síðan yrði boðið til aukafundar fyrir n.k. áramót til þess að af- greiða málið endanlega. Arður veiði ekki greiddur Þar sem tilfinnanlegt tap hef- ir orðið á rekstri félagsins á ár- inu 1961 og með skírskotun til þess áforms að gefa út fríhluta- bréf, eða jöfnunarhlutabréf, eins og þau eru nú nefnd leggur fé- lagsstjórnin til, að aðalfundur- inn samþykki, að ekki verði greiddur neinn ársarður til hlut- hafa.. Undir lok hinnar ítarlegu ræðu sinnar komst stjórnarformaður, Einar B. Guðmundsson, m. a. svo að orði: „Eimskipafélaginu er að sjálf- sögðu brýn nauðsyn á að hafa iþær tekjur, er nægja til þess að félagið geti jafnan aukið skipa- stól sinn, og þannig rækt það hlutverk, sem félaginu hefir ver ið fengið í hendur í efnahagslífi íslendinga, og þótt árið 1961 hafi verið erfitt ár, er engin á- stæða til að óttast um framtíð- ina. Félagið hefir jafnan haft fjöl marga afbragðsmenn í þjónustu sinni, bæði á sjó og landi, og fé- lagið á stóran hóp traustra við- skiptamanna, sem jafnan hafa stuðlað að því að gera hag fé- lagsins sem allra beztan. Eg flyt öllum hinum mörgu viðskiptamönnum Eimskipafé- lagsins þakkir fyrir ágæt sam- skipti, svo og stjómvöldum rík- is og borgar fyrir þann velvilja, er þau hafa sýnt Eimskipafélag- inu fyrr og siðar. Þá flyt ég starfs mönnum félagsins á sjó og landi þakkir fyrir störf þau, sem þeir hafa leyst af hendi fyrir félagið og samstarfsmönnum mínum í stjórninni þakkir fyrir mjög á- nægjulegt og gott samstarf.“ Framkvæmdastjóraskipti o. fl. Að síðustu var svo greint frá því, að Richard Thors hefði nú óskað að láta af 32 ára setu í stjórn félagsins og gæfi því ekki kost á sér til endurkjörs. Voru honum færðar þakkir fyrir mörg og mikilsverð störf í þágu fé- lagsins. Sömuleiðis gat stjórnar- formaður biottfarar Guðmundar Vilhjálmssonar frá félaginu fyr- ir aldurs sakir eftir að hafa gengt hinu „umsvifamikla og erilsama ábyrgðarstarfi'* framkvæmda- stjóra í rétt 32 ár. Að öllum öðrum mönnum ólöstuðum kvaðst hann hyggja, að enginn íslendingur hefði átt meiri þátt í velgengi félagsins en Guðmund- ur Vilhjálmsson. Loks hefði hætt störfum skrifstofustjóri félagsins Ingólfur Ásmundsson, sem einn- ig hefði reynzt „afburða starfs- maður, sainvizkusamur og ná- kvæmur.“ Við áðurnefndum störfum taka þeir Óttar Möller, sem starfað hefur í þágu félagsins í 23 ár, gengt þar ábyrgðarmiklum störf um og er þaulkunnugur málefn- umfélagsins. Lét Einar B. Guð- mundsson í ljós þá von, að gifta — Me/’n Kampf Framh. af bls. 10. ar vesalings beinagrindur, það er alveg hryggilegt að vita til þess að þetta hafi skeð í raun og veru,“ sagði Gerður. Stúlkurnar k.váðust þó ekki sjá eftir því að hafa séð mynd ina. „Það er fróðlegt að vita hvað einræðisstjórn og höfð- ingjadýrkun getur leitt af sér,“ bætti Gerður við. Við spurðum nú stúlkurnar, hvað þær hefðu vitað mikið um Hitler, áður en þær sáu þessa mynd. Þær svöruðu því til að þær hefðu heyrt talað um hann og vitað hver hann var. Þær hefðu lesið um hann í blöðum og tímaritum, en væru ekki ennþá komn- ar að seinni heimsstyrjöldinni í mannkynssögunni og þar af leiðandi ekkert lært um hann og nazismann í skólanum. Það var greinilegt að með- ferðin á Gyðingunum hafði haft mest áhrif á stúlkurnar og fordæmdu þær hana hörð- um orðum. Þórunn og Gerður voru með ótal spurningar á takteinum, sem þær ætluðu að leggja fyr ir föður sinn, þegar heim kæmi. Þær sögðust að lokum vona, að slíkt og þvíumlíkt ætti adrei aftur eftir að ger- ast. Sem betur fer væri langt síðan þessir atburðir hefðu gerzt.... En þá rann upp fyrir þeim dálítill sannleikur, sem þær höfðu ekki gert sér áður grein fyrir: Þessar mynd ir voru ekki eins gamlar og þær héldu. „Guð minn góð- ur,“ sagði Gerður við systur sína. „Þetta hefur átt sér stað rétt áður en við fæddumst." Það var ótrúleg uppgötvun. mætti .jafnan fylgja þessum dugniikla starfsmanni í hinu þýð ingarmikla starfi, sem hann hefir n,ú tekizt á hendur.“ Við starfi skrifstofustjóra tekur innan skamms Valtýr Hákonarson, sem séð hefur um skrifstofu félags- ins í Kaupmannahöfn sl. 8 ár en alls starfað hjá því í rúmlega 17 ár, við góðan orðstír. Á fundinum var samlþykkt til- laga stjórnarinnar, sem að fram- an var getið, um að undirbúa útgáfu jöfnunarhlutaibréfa. Einn- ig var samþykkt að fela stjórn- inni að láta fara fram endurskoð un á samiþykktum félagsins. — Minning Framh. af bts. 8 átti. Hún kom alltaf til dyr- anna eins og hún var klædd, því ekkert var henni fjær skapi en hræsni og yfirdreps- skapur. Gestrisin var hún og góð heim að sækja, svo að af bar, enda eignaðist hún marga vini og aðdáendur, sem héldu tryggð við hana til hinztu stundar. Hún kunni þvi illa, ef svo leið dagur, að ekki bæri gest að garði. Það var hennar líf og yndi að veita gestum sínum og ræða við þá. En um- fram allt þetta, var hún fyrst og fremst trú sínu hlutverki, sem eiginkona, móðir og amma. Auk Jóns, tengdaföður henn- ar, og Kristínar, móður Önnu, sem dvöldust hjá þeim hjónum til æviloka, voru oft á heimili þeirra vandalaus gamalmenni. Þar þótti þeim gott að hafa skjól. Þar fundu þau útréttar, mildar og líknandi hendur. Ég minnist Önnu þegar hún var í blóma lífsins. Þá sá ég hana aðeins endrum og eins á mannamótum. Mér þótti alltaf mikið til hennar koma, fannst hún bera af öðrum konum. Seinna urðu með okkur nánari kynni og þau kynni voru á þann veg, að þar bar aldrei á skugga. Fyrir rúmum þrem áratugum kenndi Anna sjúkdóms, sem eigi fékkst full bót á, þrátt fyr- ir ítrekaðar lækningatilraunir. Ágerðist sjúkdómur þessi eftir því sem á ævina leið. Allan þennan tíma, gekk hún eigi heil til skógar. Og nú er hún horfin yfir móðuna miklu, en vinir og sam- ferðamenn standa eftir á strönd inni, senda henni hlýjar hugs- anir og þakka samfylgdina. Sjálfur geymi ég minningu um hana, sem mér er bæði hug- stæð og dýrmæt: Sú minning hefur ei hrukku né blett. Svo heilög og laus við sök og prett. Lengst af eftir að heilsa önnu lamaðist, dvöldust þau gömlu hjónin í skjóli Guðrúnar, dóttur þeirra og manns hennar. Um það mætti margt segja, en mig brestur orð til að lýsa aðdáun minni á allri þeirri umhyggju og nærgætni, sem þau nutu þar hjá dóttur sinni og tengdasyni til hinztu stundar. En frá þeim, sem okkur dauðlegum mönnum er máttugri og meiri, munu þau vissulega uppskera ríkuleg laun. Ég kveð þig svo, Anna, hinztu kveðju, með virðingu og þökk fyrir órofa tryggð og vin- áttu í ruman aldar þriðjung. Far þú í friði. Hafðu þökk fyr- ir líf og starf. Gleði þín var að gleðja aðra og miðla af þeim verðmætum, sem þú hafðir yfir að ráða. Nú svífur þú inn á sólarlönd, þar signir þig alvöld Drottins hönd og bendir á nýjar brautir. Til meiri starfa á langri leið, þá liðið er jarðneskt æviskeið. Að baki er böl og þrautir. ó. Þ Svar við Gátu dagsins: Ber. Rauðamöl Höfum á bðostólum rauðamöl úr Rauðhólum I. flokks uppfyllingarefni. Vörubílastoðin Þróttur — Sími 11471—11474. Herbergi óskast Klúbburinn við Lækjarteig óskar að taka á leigu herbergi í einn mánuð með húsgögnum. — Þarf helzt að vera í Laugarneshverfi. — Upplýsingar í síma 35355.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.