Morgunblaðið - 14.06.1962, Side 5
Fimmtudagur 14. júní 196T
MORCUHBLAÐ1Ð
5
ÞAÐ gat að líta fleira en
kappreiðar á Skeiðvelli Fáks
á annan dag hvítasunnu.
Þessi mynd sýnir, að þar fór
fram ofurlítið sýnishorn af
dóttir hafði þjálfað nokkur
börn til þess að leika ýmis-
konar listir á baki hests, sem
hún hafði tamið „með löngum
taum,.“ Hesturinn skokkaði
hlupu á bak til skiptis, stóðu
þar á höndum og fótum og
léku jafnvel „húla-hopp.“
Lengst til hægri á myndinni
stendur stjórnandinn, en
drengurinn leikur listir sínar
sirkusleik. Rosmarie Þorleifs hrihg eftir hring og börnin á baki hestisins.*
Fyrirgefst, þótt flekki líf.
Framin alla daga.
ÞaS var Helga, Harðar víf,
hermir gömul saga.
— Dufgus.
Svar á bls. 23.
Læknar fjarveiandi
f Esra Pétursson vm óákveðinn tíma
(lialldór Arinbjarnar).
Guðjón Klemenzson, Njarðvíkum
tíl 2. júlí. (Arinbjörn Ólafsson, Kefla-
vík).
Halldór Arinbjarnarson fjarverandi
til 14. júní (Árni Björnsson).
Jónas Sveinsson til júlíloka. —
(Kristján I>orvarðsson í júní og Ófeig
ur Ófeigsson í júlí).
Kristján Jóhannesson um óákveðinn
tíma (Ólafur TSinarsson og Halldór
Jóhannsson).
Ófeigur J. Ófeigsson til júníloka
(Jónas Sveinsson í maí og Kristján
Þorvarðsson í júní).
Ragnhildur Ingibergsdóttir til 15.
júní (Brynjólfur Dagsson).
Sveinn Pétursson um óákveðinn
tíma. (Kristján Sveinsson).
Tryggvi Þorsteinsson frá 15. júní
i tvo mánuði (Ólafur Jónsson Hverfis
götu 106).
Tómas A. Jónasson frá 9. maí I 6
vikur (Björn Þ. Þórðarson).
Þórður Möller frá 12. júní I 4—6
vikur (Gunnar Guðmundsson).
tíLÖÐ OG TÍMARIT
Frjáls verzlun, jan.—apríl. er kom-
in út. Efni þessa heftis er: Ríkisrekst
ur og einkasölur — frá umræðum á
Varðarfundi, Ólafur Haukur Árnason:
Akranes, Haukur Helgason: Almenn-
ingshlutafélög, Athafnaménn og frjálst
framtak: Haraldur Böðvarsson, Oscar
Clausen: Frá grosseraverzluninni I
Reykjavík. Margar myndir eru í heft-
inu.
Söfsiin
Listasafn íslands er opið daglega
frá kl. 1,30 til 4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið daglega
frá kl. 1,30 til 4 e.h.
Asgrimssafn, Bergstaðastrætl 74 er
opið priðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Listasafn Einars Jónssonar er frá 1.
júní opið daglega frá kl. 1:30—3:30 e.h.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur, sími:
1-23-08 — Aðalsafnið, Þingholtsstræti
29A. — Útlánsdeild: 2—10 alla virka
daga, nema laugardaga 1—4. Lokað á
sunnudögum. — Lesstofa: 10—10 alla
virka daga, nema laugardaga 10—4.
Lokað á sunnudögum. — Útibúið
Hólmgarði 34: Opið 5—7 alla virka
daga, nema laugardaga. — Útibúið
Hofsvallagötu 16: Opið 5,30—7,30 alla
virka daga, nema laugardag.
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
daga og fimmtudaga í báðum skólun-
um.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
Lúni 2, opið dag ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Tæknibókasafn IMSÍ. Opið alla
vipka daga frá 13—19 nema laugar-
étega.
Ameríska bókasafnið, Laugavegi 13
er opið alla virka daga nema laugar-
daga frá kl. 9—12 f.h. og 13—18 e.h.
m ■m\
: ii
m
Eítir að hafa hlustað á
kúbanska og spænska
hljórrllist hjá Don Barreto-trí
óinu i Lídó skruppum við bak
við tjöldin og röbbuðum við
þau þrjú ofurlitla stund.
Við snerum okkur þegar að
píanóleikaranum og spurðum
hann að nafni. Olakur virtist
hann svo líkur Sir Anthony
Eden að ekki gæti verið að
hann væri Kúbubúi.
— Jú, jú. Eg er frá Kúbu,
heiti Rogelio Barba. En það
er rétt. Allstaðar er haft orð
á því að ég sé svo líkur Eden
En við erum áreiðanlega ekk
ert skyldir.
Don Barreto, stjórnandinn,
leikur á gítar, er eldfjörugur
og skemmtilega ljótur. En
samt er hann giftur bráð-
fallegri konu, sem heitir Olga-
Alba og hún fyllir einmitt upp
i tríóið, með hreinræktuðum
sænskum söng og dansi. —
Meira að segja lét hún kastan
etturnar smella.
— Við komum hingað beint
frá París og förum þangað
beina leið aftur. Næsta verk-
efnið er að leika inn á plötur.
— Við höfum verið saman
þessi þrjú sl. séx ár og höf-
um ekki komið til Kúbu síð-
an 1955. Við gerum ekki ráð
fyrir að koma þangað á næst
unni.
Einhver skýtur inn í: — En
Castro verður fallinn áður en
árið er liðið!
■— Við skulum vona það,
segja þau öll í senn.
— Eg fór til Evrópu fyrir
15 árum og var með þeim
fyrstu sem þar léku „Latin-
Ameríku“ músík. Hafði lengi
stóra hljómsveit. Bræður mín
ir eru líka hljómlistarmenn,
öli fjölskyldan. Marino Barr
eto er þekktur á Ítalíu, segir
Don Barreto.
— Hvað gerið þið með frí-
stundirnar?
— Skoðurn okkur um. Okk-
ur myndi langa til að koma
á hestbak. Það má bara eklki
fara fyrir mér eins og síðast
þegar ég fór á hestbak. Þá
gat ég ekki setið í vi'ku á
eftir.
Don Barreto skellihlær.
Við fræðum þau á því að
hér á íslandi séu hestarnir svo
þýðir að það sé engin hætta.
Um leið og við kvöddum þau
vonuðum við, að tríóinu mætti
auðnast að komast hér á hest
bak.
Það skaut því einhver að
okkur, að íslendingar væru
ekki orðnir neinir smákarlar.
Þeir hefðu fyrsta flokks
skemmtikrafta frá París til
að gamna sér á sveitaböllun-
um. Tríóið brá sér austur að
Hvoli og söng þar á dögunum.
Síldarkokkur Vil ráða mig sem síldar- kokk í sumar á gott síldarskip. Er vanur mat- reiðslu. Tilb. leggist inn á afgr. Mfol. fyrir 19. júní, merkt: ,,Vanur — 7303“. Miðaldra karlmann vantar gott herbergi, helzt í gamla Vesturbænum eða sem næst Miðbænum. Tilb. merkt: „Gamli bærinn — 7189“, sendist fyrir nk. laugardag.
í Keflavík eða Njarðvík óskast til kaups húseign. Einnig ífoúð 2—3 herbergja Tilb. merkt. „Nútíma þæg- indi — 7187“, sendist afgr. Mbl. í Rvík fyrir vikulok. Bíll óskast 4ra—5 manna, helzt Volks- wagen. Aðrar tegundir koma einnig til greina. — Uppl. í síma 20390 kl. 9—6 næstu daga.
Crepehosur, hvítar og mislitar. Drengja vesti. Húllsaumastofan Svalbarði 3, Hafnarfirði. Sími 51075. Tveir vanir sjómenn óska eftir skipsrúmi á góð- uffl síldarbát í sumar. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 20. júní, merkt „Síldveiði — 7301“.
Trillubátur 3% tonn til sölu. Bátur og vél í mjög góðu ásigkomu- lagi. Hagkvæmt verð og skilmálar. Uppl. í síma 50989 næstu daga. Keflavík — Nágrenni Flaggstangir 20 og 24 feta með húnum og undirstöð- um.Trésmiðja Einars Þor- steinssoniar, Hringbraut 31. Sími 1631.
Stúlka eða kona óskast til innanhússstarfa. Má hafa með sér börn, tvo drengi 11—14 ára, vanir sveitavinnu. Uppl. í síma 22391 kl. 17—20 í dag. Tveir drengir 8 og 11 ára óska eftir góðu sveitaheimili, helzt í Skagafirði. þurfa ekki að vera á sama stað.— Sími 19407.
Kona, sem hefur veitt verzlun for stöðu í rúm 10 ár, óskar eftir léttu starfi. Talar góða dönsku, sæmilega ensku og þýzku. Margt kemur til greina. Tilb. merkt: „Stund vís — 7181“, sendist Mbl. Tapazt hefir hundur svartur ag brúnn. Gengur undir nafninu King. Þeir, sem kynnu að vita um hundinn, vinsaml. hringi í síma 50332.
Vil ráða nokkra nema í vélvirkjun eða járnsmíði, á aldirinum 18—25 ára. Vélsmiðjan Járn Súðavogi 26. — Símj 35555. Til Ieigu er 4ra herb. íbúð með bil- skúr á Hrísateig lil. Leigist til 1. okt. Til sýnis föstu- dag eftir kl. 5.
Athugið Fj ölskyldu vantar 3—4 herb. íbúð nú þegar. Fyrir framgreiðsla kemur til greina. Uppl. í síma 37932. Lagtækir menn óskast til uppsetningar á girðingarneti. Vélsmiðjan Járn Súðavogi 26. Sími 35555.
IMorsk tréiii - verksmiðja sem framleiðir kamba, hárspennur o. s. frv., leitar eftir innflytjanda sem vildi taka að sér einkaumboð á fslandi. — Uppl. gefur: Dagfin Tollefsen Reklamabyrá als. Chr. Krohgsgt 32, Oslo, Norge.
AtthagaféSag . Sandara fer samkvæmt fundarsamþykkt, Jónsmessuhátíðaferð á Snæfellsnes. Lagt verður á stað föstudaginn 22. þ.m. kl. 3 e.m. Tjaldað í Hólahólum, laugardag. Skoðuð Dritvík, Tröllakirkja og fleira í nágrenninu. Farið í ýmsa leiki. Keyrt til Sands, dansleikur um kvöldið. Sunnudagur: Skoðaðir Hellnar, Sönghellir, Stapi o. fl. Tilkynnið sem fyrst þátttöku í síma 24881, 32897, 33107. Stjórnin
Tilkynnsng til sauðfjáreigenda á Suðurnesjum Bannað er að láta sauðkindur ganga lausar innan bæjarlands Keflavíkur. — Þeir sauðfjáreigendur, sem óhlýðnast þessu banni, verða látnir sæta sektum auk þess, sem þeir verða að greiða allan kostnað við handsömun kindanna og bætur fyrir þau spjöll er þær kunna að hafa valdið. Leysi menn eigi út sauð- kindur þær er kyrsettar hafa verið, verða þær seldar fyrir áföllnum kostnaði eða þeim slátrað. Bæjarfógetinn í Keflavík