Morgunblaðið - 14.06.1962, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 14. júní 1962
HAIMDFÆRAKRÓKAR
með gúminíbeitum í sjö litum.
og ennfremur hinar landsþekktu
JÁRNSÖKKUR frá O. Nilssen & Sön,
Bergen, fást hjá flestum veiðarfæraheild-
sölum og verzlunum víðsvegar um landið.
Leitið upplýsinga hjá okkur.
. JOHNSON & KAABER hA
Aðaiumboð a isianai
Vinnuskúr
Vandaður vinnuskúr til sölu
Kassagerð Heykjavíkur hf.
Kleppsvegi 33 — Símí 38383
Allt á sama stað
Sveifarásslípun
Mótorviðgerðir
Slípum allar tegundir sveifarása og öxla allt að 2
metra langa. Höfum á undanfarandi árum SLÍPAÐ
ÞÚSUNDIR sveifarása með fyllsta árangri. Einungis
notuð beztu tæki til mótorviðgerða, svo sem, cylender-
borvél, sveifarásslípivélar, málmsprautun, stangar-
rennsluvél. ísteypvéi og fjölda annarra úrvals tækja til
þess að viðgerðin verði sem fullkomnust. Það er því
yður í hag að verzla þar sem allar viðgerðir fara fram
á einum og sama stað.
NÁKVÆM TÆKI — VANIR MENN
FYRSTA FLOKKS VARAHLUTIR
— BETRI VIÐGERÐIR —
Egill Vilhjálmsson hf
Laugavegi 118 — Sími 22240.
ftakaþétt&r dósir tiýggja
nýtingu hvers saltkorns
LJÓSMYNDASTOFAN
LOFTUR hf.
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma I síma 1-47-72.
Hópferðobílar
Sérieyfis- og hópferðir
Kirkjuteigi 23. Reykjavík.
Símar: 32716 - 34307.
ULRICH FALKNER
amtmannsstig :
Tvær námsmeyjar í skólaeldhúsL
í MIÐBÆ J ARSKÓLANUM,
elzta barnaskóla borgarinn-
ar, er nú haldin sýning í til-
efni þess, að hundrað ár eru
liðin frá því að lögskipuð
barnafræðsla hófst í Reykja-
vík. Á neðri hæð skólans
ganga sýningargestir fyrst
inn í stofu, þar sem getur að
líta yfirlit um fræðslumál frá
miðri 18. öld til 1862. Þar er
sagt frá Thorkilliisjóði og
gömlu skólunum, Hausastaða
skóla og Einkaskóla Reyk-
víkinga. Gamlar bækur og
ýmsir munir eru einnig í
stofunni og þar gefst sýn-
ingargestum tækifæri til að
skrifa með fjaðrapenna og
kálfsblóði eins og tíðkaðist í
gamla daga. Á einum vegg
stofunnar hangir tunnustafur
og í hann er rist stafrófið,
bæði skrifstafir og prent-
stafir. Þennan tunnustaf not-
aði Guðmundur Hjaltason til
kennslu á 19. öld. Gunnar
M. Magnúss skýrði frétta-
manni blaðsins frá því, að
þessi tunnustafur hefði verið
gefinn í tilefni af sýningunni
nokkrum klukkustundum áð-
ur en hún var opnuð.
í næstu stofu er líkan af
Bieringsbúð, þar sem skól-
inn hófst 1862 og eftirlíking
af skólastofu í því húsi. í
henni eru líkön af skóla-
stjóra og nemendum í fullri
stærð og ýmsir gamlir mun-
ir frá fyrstu árum skólans,
en þeir eru í eigu Minjasafns
Reykjavíkur. Þá er gengið
inn í stofu, þar sem skýrt
er frá flutningi skólans í ný-
byggt steinhús 1883 og vígslu
Miðbæjarskólans 1898. Þar
eru einnig sýnd m. a. ílát,
sem notuð voru við matar-
gjafir í Spönsku veikinni
1918 og sjúkrarúm til að
minna á að þá var Miðbæjar
skólinn notaður sem sjúkra-
hús. Þá er sagt frá heilsu-
gæzlu og heilsuvernd í skól-
um og sparifjársöfnun barna.
Næsta stofa er mjög ólík
venjulegri skólastofu, því að
þar eru blómabeð með lif-
andi blómum á gólfinu. Sýn-
ishorn af starfi Vinnuskóla
og skólagarða Reykjavíkur.
Ef gengið er milli blóma-
beðanna og inn um dyr, sem
þar eru á vegg, er komið inn
í skólaeldhús. Þar eru tvær
stúlkur úr hússtjórnardeild
gagnfræðaskólans við Lind-
argötu að baka kex, sem
nefnt er skólakex. Bjóða þær
gestum að bragða á því og
ávaxtamauki, sem haft er
með og þær hafa einnig búið
til.
Þegar gestir hafa bragðað
á þessu ljúffenga kexi ganga
þeir inn í stofu þar sem skýrt
er frá nýjum fræðslulögum
1936, 50 ára afmæli Miðbæj-
arskólans, skólakerfinu, skóla
stjórum barnaskóla Reykja-
víkur, síðan Miðbæjarskól-
ans, í 100 ár, sálfræðiþjón-
ustu og fleiru. í þessum stof-
um, sem taldar hafa verið
upp, eru einnig ýmsir mun-
ir unnir af nemendum Mið-
bæjarskólans.
Kynning á öðrum barna-
og gagnfræðaskólum borgar-
innar hefst í næstu stofu.
Þar eru sýndir munir frá
tveimur næstelztu skólunum,
Austurbæjarskólanum (1930)
og Laugarnesskólanum (1935).
öllum bekkjarskrám Austur
bæjarskólans frá byrjun er
raðað upp í pýramída og
mega sýningargestir spreyta
sig á því að áætla hve mörg
nöfn eru skráð í þær og hlýt
ur sá, sem kemst næst hinu
sanna verðlaun.
í deild Laugarnesskólans
eru sýnd verkefni, sem börn
og unglingar í skólanum unnu
að á einum degi. Nefnist sá
þáttur: — Einn skóladagur í
barnaskóla Reykjavíkur, 27.
apríl 1962.
f leikfimisal skólans held-
ur kynning á barna- og ungl
ingaskólunum áfram. Var
hverjum skóla falið að sýna
eitthvað einkennandi fyrir
starfið þar og er sýningin í
heild mjög fjölbreytt. í deild
Melaskólans eru t. d. sýndar
seglskútur, sem eru vinsæl-
ustu handavinnuverkefni
drengja í 12 ára bekk skól-
ans.
Kvennaskólinn sýnir gamla
muni, sem voru í fyrstu
kennslustofu skólans og er
deildin eftirlíking af henni.
í deild Gagnfræðaskólans við
Lindargötu er líkan af sjó-
manni, sjókort o. fl. og sagt
frá því að í skólanum sé
kennd siglingafræði. Lands-
prófsdeildin við Vonarstræti
sýnir prófúrlausnir nemenda.
Vogaskólinn, sem er eini skól-
inn í borginni, sem byggður
er með það fyrir augum að
þar séu deildir fyrir böm frá
7—16 ára, sýnir deildaskipt-
ingu skólans og teikningar af
húsum hans, og svo mætti
lengi telja.
Á efri hæð Miðbæjarskól-
ans er kennslutækjasýning og
kennir þar margra grasa. Þar
eru sýndar bækur og tæki,
sem notuð em við kennslu í
bóklegum fögum, tæki, sem
notuð eru við smábarna-
kennslu, teikningu, leikfimi,
handavinnu o. fl.
Kennslutæki í eðlisfræði
virtust njóta mestra vinsælda
meðal barna og unglinga, sem
sýninguna heimsóttu.
í tveimur stofum er sýning,
sem Ríkisútgáfa námsbóka sá
um í tilefni 25 ára afmælis
síns. í annarri stofunni eru
kennslubækur, sem ríkisútgáf
an hefur gefið út, en í henni
eru ýmis kennslutæki og er-
lendar bækur, sem notaðar
eru við kennslu.