Morgunblaðið - 23.06.1962, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 23.06.1962, Qupperneq 12
12 MORGUTSBLAÐIÐ Laugardagur 23. júní 1962 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Mattbías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 3.00 eintakið. LENGST TIL HÆGRI - EÐA YZT TIL VINSTRI 17ramsóknarflokkurinn er * eitt einkennilegasta fyr- irbrigðið í íslenzkum stjórn- málum og þótt lengra væri leitað. Hann er ýmist lengst til hægri eða yzt til vinstri. Eitt árið þykist hann vera einhliða bændaflokkur og reynir að telja sveitafólki trú um að hann einn gæti hagsmuna þess gegn vondu fólki í kaupstöðunum, og við sjávarsíðuna yfirleitt. — Annað árið kveðst hann vera hinn „eini sanni vinstri flokkur,“ sem fólki kaupstað anna beri fyrst og fremst að efla og styrkja. Um áraskeið hafa málgögn Framsóknarflokksins og leið togar hans deilt harðlega á Sjálfstæðisflokkinn fyrir þa^, sem þeir kalla fjand- skap við sveitirnar og hhð- hollustu við sjávarsíðuna. — Sjálfstæðismenn hafi, segir Tíminn, lagt kapp á að draga allt fjármagn til Reykjavík- ur til þess að byggja fyrir íbúðahús, skóla, sjúkrahús, götur o.s.frv. í síðustu borgarstjómar- kosningum var það hins veg ar eitt aðaládeiluefni Fram- sóknarmanna á Sjálfstæðis- flokkinn að hann hefði feng- ið alltof lítið fjármagn til framkvæmda í Reykjavík. Þess vegna væru götur hér alltof lélegar, skólar og sjúkrahús of fá, skortur á í- búðahúsnæði og flest af van efnum gert! Þannig rekst ævinlega eitt á annars horn í málflutningi Framsóknarmanna. Niðurstaðan verður því sú, að sá kjósandi sem kýs Framsóknarflokkinn, veit eig inlega aldrei hvers konar flokk hann er að kjósa. Hann veit ekki hvort hann er bændaflokkur eða kaupstaða flokkur, hægri flokkur eða vinstri flokkur. En eitt ættu allir íslenzkir kjósendur að vita, það að stefna Framsóknarflokksins er alger hentistefna. Hann segir eitt í dag og annað á morgun, allt eftir því hvern ig kaupin gerast á eyrinni, allt eftir því við hvaða fólk hann er að tala. Framsólslnarflokkurinn er þess alráðinn að svíkja alla, allt eftir því hvað honum hentar á hverjum tíma. — Hann hefur rofið samstjórn með Sjálfstæðisflokknum til þess að mynda vinstri stjórn. Síðan hefur hann rofið vinstri stjórnina til þess að reyna á ný samstarf við S j álfstæðisflokkinn. Þetta eru ær og kýr Fram sóknarmanna. Þess vegna getur í raun og veru enginn treyst þeim. Allir hafa þessa sömu sögu að segja af sam- starfi við þá. Til lengdar hlýtur þetta að leiða til þverrandi trausts á þessum flokki, sem um fjögurra áratuga skeið hefur verið annar stærsti stjóm- málaflokkur þjóðarinnar. TYROS V. 'T'yros V, gervihnettinum, * sem Bandarí k j amenn hafa nýlega skotið á loft og komið á braut umhverfis jörðu, er ætlað það mikil- væga hlutverk að undirbúa nákvæmar veðurspár til langs tíma á grundvelli vitn eskju, sem aflað mun verða með margbrotnum vísinda- tækjum, sem hann er búinn. Tyros V er m. a. búinn sjón varpssenditækjum og mun geta sent myndir til jarðar af margs konar fyrirbrigð- um, sem veita munu ómet- anlegar upplýsingar í þágu veðurvísindanna. í þessu sambandi má benda á það, að Tyros II, sem skotið var á loft 23. nóvember 1960, hefur sent meira en 37 þús. sjónvarpsmyndir af skýja- myndunum, hitabeltisstorm- um og geislaverkunum úti í ge’mnum. Tyros V er ekki aðeins ætlað að leita orsaka mik- il'la storma og óveðra, held- ur einnig að finna leiðir til þess að hafa áhrif á veðrið. Vísindamenn gera sér vonir um að Ijósmyndavélar hans muni afla stórmerkra upplýs inga um storma, þokur, ís- myndanir og stormsveipi. — Telja þeir að veðurathugan- ir Tyrosar geti orðið til mik ils gagns fyrir alla heims- hluta. Fyllsta ástæða er til þess að fagna þvi, að geimvísind in beinast meira og meira að hagnýtum verkefnum í þágu friðar og framþróunar í heiminum. NÝJAR KOSN- INGAR í KANADA j|/|argt bendir til þess, að l’* nýjar kosningar verði að fara fram til þjcðþings Kan- ada áður en langt um líður. Úrslit kosninganna um dag- inn urðu þau, að enginn einn HINN frægi kappakstursmað- ur Stirling Moss, varð fyrir óhappi fyrij- rúmum mánuði, að bifreið hans bilaði, hann missti stjórn á henni og ók útaf kappakstursbrautinni. — Moss slasaðist mikið og bif- reiðin eyðilagðist. Síðan hef- ur Moss legið í sjúkrahúsi, en nú er hann orðinn svo hress, að hann ekur um, ekki í kapp akstursbifreið, eins og hann er vanur, heldur hjólastól, því að hann er ekki alveg búinn að nú sér eftir fótbrot, sem hann hlaut í slysinu. Þegar Moss útskrifast af sjúkrahúsinu ætlar hann til Bahamaeyja sér til hressing- ar, en þar dvelst kona hahs nú. Moss segist ætla að taka þátt í kappakstri á ný, ef (hann nái sama hraða og áður, eftir að hafa æft í hálfa klukkustund. Annars segist hann ætla að hætta að keppa, því að hann kæri sig ekki um að láta aðra fara fram úr sér. Breytingor á stjórn S-Kórei SEOUL, 16. júní. (AP) — For- sætisráðherra S-Kóreu, Song Yo-Chan, sagffi af sér embætti flokkur fékk hreinan meiri- hluta. íhaldsflokkur Diefen- bakers forsætisráðherra tap- aði verulega fylgi en er þó áfram langstærsti flokkur þingsins. Hann fékk nú 118 þingsæti en Frjálslyndi flokk urinn undir forystu Lester Pearsons fékk 96. Hinn svo- kallaði ,sósíalkredit-flokkur‘, sem er hægri flokkur, fékk hins vegar um 30 þingsæti og Nýi demókrataflokkurinn 19. Líklegt er talið að stjórn Diefenbakers muni fara með völd enn um skeið, en að efnt muni til nýrra kosn- inga, ef til vill í lok þessa árs, eða í byrjun næsta árs. Kanadamenn eiga um þess ar mundir við ýmsa erfið- leika að etja í efnahagsmál- um sínum. Atvinnuleysi hef ur verið allverulegt og kanadiski dollarinn fallandi. Afgreiðsla fjárlaga mun og verulegum vandkvæðum bundin. Þegar á allt þetta er litið er auðsætt að veik minni- hlutastjóm muni ekki henta Kanadamönnum. Þess vegna mun sennilega verða kosið að nýju. í þeim kosningum mun annað tveggja gerast, að Íhaldsflokkurinn haldi á- fram að tapa og Frjálslyndir fái hreinan meirihluta eða Diefenbaker styrki aðstöðu sína á ný, þannig að hann geti myndað hreina meiri- hlutastjórn. á laugardag og skömmu síffar var tilkynnt af hálfu herfor- ingjaríkisstjórnar landsins, aff fallizt hefffi veriff á lausnar- beiðni hans. í yfirlýsingu herforingjanna var einnig skýrt frá því, að fjármálaráðherrann, Chun By- Ráðgjafa- þéng Evrópu- ráðsins RÁÐGJAFAÞING Evrópuréðs- ins kom saman til funda í Stras bourg 15.—18. maí. Var þetta fyrsti hluti 14. þingsins. Á fyrsta fundinum fór fram ikjör forseta ráðgj afaþingsins. Danski stjórnmálamaðurinn Per Federspiel var endurkosinn for- seti. Hlaut hann 75 atkvæði, en Austurríkismaðurinn Toncic 40 atkvæði. Ráðgjafaþingið fjallaði að þessu sinni um mörg mál, en einkum um ýmis atriði varð- andi þróunina á sviði samstarfs Evrópuríkja síðustu mánuði. Var mælt með bví að samninga- viðræðum um tengsi ýmissa ríkja við Efnahagstoandalagið væri Ihraðað, en jafnframt hafðir í huga hagsmunir annarra Evrópu ríkja. Þá var rætt um nýtingu of- framleiðslu á matvælum, um að stoð á sviði félagsmála við van- þróuð lönd, um vernd erlends einkafjármagns og um samvinnu Evrópuríikja við geimkönnun og stj arnfræðiraunsóknir. Ráðgjafarþmgið fól félags- málanefnd sinni að gera skýrslu um þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið og unnið er að í ýms um Evrópuríkjum á sambandi tó- baksreykinjgar og lungnakrabba. ung-Kyu, hefði látið af störf- um. Áður höfðu allir 14 ráðherr- ar ríkisstjórnarinnar lýst yfir af sögn sinni, en í áðurnefndri til- kynningu, sem síðar var gefin út, voru aðeins nefndir þeir Song og Chun. — Var tekið fram, að þeir létu af störfum samkvæmt eigin óskum. Fregnir hafa verið á kreikl um, að hvass ágreiningur væri með þeim ráðherrunum um stefnuna í efnahagsmálum, sem er eitt erfiðasta viðfangsefni stjórnarinnar. Key West, Florida, 18 júní — AP. Ljóst er nú, að fyrir nokkr um dögum var gerð upp- reisnartilraun í bænum Car- denas á norðurhluta Kúbu, um 70 mílur fyrir norðan Havana. Borgin á sér sér- staka sögu, því að þar var fyrst dreginn að hún fáni Kúbu, í frelsisbaráttunni gegn Spánverjum. — Fregn- ir herma, að íbúarnir hafi mótmælt matarskorti. Stjórn Castro svaraði með því að senda skriðdreka og heroveit ir á vettvang. Djakarta, 18. júní — AP. Subandrio, utanríkisráð- herra Indónesíu, átti í dag tveggja stunda fund með Sukarno forseta. Ræddu þeir möguleikana á því að senda indónesiskar hersveitir til vesturhluta eyjarinnar, til þess að hrekja Hollendinga úr nýlendu sinni þar, Holl- enzku Nýju-Guineu. — Eft- ir vopnakaup Indónesíu- manna. í Rússlandi þykir margt benda til þess, að ráða menn í Sovét séu því hlynnt- ir, að Indónesar láti nú til skarar skríða. Sérstaka at* hygli hefur það vakið, að Indónesar eru í hópi þeirra útvaldra, sem fengið hafa eldflaugavopn hjá Rússum,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.