Morgunblaðið - 23.06.1962, Page 15

Morgunblaðið - 23.06.1962, Page 15
i Laugardagur 23. júni 1962 MORGVNBLAÐIÐ 15 Fær Hótel Borg að aka í gegnum gang Almennra trygginga? AÐ UNDANFÖRNU hefur verið ílutt fyxir Hæstarétti mál varð- andi ágreining um afnot af undir gangi milli húsanna Pósthús- strætis 9, sem er hið nýja hús Almennra trygginga og nr. 11, sem er Hótel Borg. Forsaga málsins er sú að þegar Islandsbanki seldi Jóhannesi Jós- efssyni Pósthússtrseti 11, var af- sali sagt að kaupandi og síðar eigendur hinnar seldu eignar skyldu hafa frjálsan rétt til um- ferðar um ofangreindan 3,15 m. breiðan gang sunnan af lóðinni nr. 9 við Pósthússtrseti, meðfram öllum norðurtakmörkum þeirrar Keypti ís- skápinn með af- borgunum — og seldi síðan d fornsÖlu í GÆR bar svo við að maður nokkur kom inn í raftækja- verzlun KRON og festi þar laup á ísskáip, sem kostaði rúmar 9,000 krónur. Keypti maðurinn ísSkápinn með af- 'borgunum og greiddi 500 kr. t í hönd. Alkunna er að eign arréttarfyrirvari er á hlutum sem keyptir eru með afborg- unum og má kaupandi hvorki selja hlutinn né veðsetja fyrr en andvirðið er að fullu greitt. — Nokkru eftir kaup in kom maðurinn með sendi bíl, og var skápurinn settur í hann, en maðurinn ók á 'brott. Nokkru síðar kom bíl- stjóritin aftur í raftækjaverzi unina og kýrði frá því hann hefði ekið manni og skáp á fornsölu eina í bænum þar sem maðurinn hefði seit sikápinn, með miklum affö'l um vafalaust. — Rannsóknar lögreglan leitaði mannsins í gær, en hann er gamall kunn ingi lögreglunnar. Ráðunautur hjá Kvcnféla«asam- ! bandínu B. FORMANNAFUNDUR Kven- félagasambands íslands var hald inn í Reykjavík dagana 5. og 6. júní, og sóttu hann fulltrúar frá 16 héraðssamböndum af 18, ásamt stjórn sambandsins. Á fundinum voru einkum rædd félagsmál og starf sam- ibandsins, svo og möguleikar á (því, að fá ráðunauta til starfa bjá Kvenfélagasambandi íslands og héraðssamböndunum. Þá var rsett um sögu kvenfélaganna, sem búið er að safna allmiklum drögum að, og lá fyrir fundinum greinargerð um það efni, samin af milliþingsnefnd. Er þar eink- um bent á nauðsyn þess, að safna frumgögnum til sögunnar og varðveita þannig frá tortím- ingu heimildir, sem sýna þátt kvenna í ýmsum þjóðfélagmál- um. Kosnar voru nefndir til ým- issa aðkallandi verkefna fyrir sambandið. í fundarlok flutti frú Sigriður Thorlacíus erindi um för sína til Bandaríkjanna. lóðar, en umferðarréttur þessi skuli eigi vera til hindrunar, að eigandi nr. 9 byggi yfr gang Iþennan í minnst 3% m hæð. Og er Íslandsbanki seldi Á. Einars- son & Funk eignina var einnig getið um þessa kvöð. Eftir að Almennar tryggingar hf. eignuðust lóðina nr. 9, var byggt á henni 5 hæða hús og Iþví lokið á árinu 1960 .Var þá byggður gangur, sem er 3,13— 3,17 m. breiður og hæð gangsins 344 sm. En settar voru hurðir fyrir ganginn að framan og aftan sem minnka dyraopið. Áður hafði Hótel Borg farið þarna í gegn með bíla og stöðvað þá í ganginum meðan affermt var. Eln Almennar tryggingar halda því fram að slík bílaiunferð sé ekki leyfileg um ganginn og þó hún væri það, sé alls ekki leyfi- legt að stanza í ganginum, held- ur verði bílamir að aka í gegn. En sá hængur er á, að fyrir inn- an hefur Hótel Borg byggt skúra, sem eru fyrir. Axel Einarsson flytur málið fyrir Almennar tryggingar en Lúðvík Gizurarson fyrir Hótel Borg. Merkjadómur Reykjavíkur hafði áður komizt að þeirri niður stöðu að Hótel Borg ætti rétt til umferðar með ökutæki gegn- um ganginn. Dómur Hæstaréttar var ekki fallinn í gær. Féhk hæstu meðal einkunn í lands- prófsgreinum LANDSPRÓFSDEILDUM Gagn- fræðaskóla Austurbæjar var slit ið 14. þ.m. Innritaðir til prófs voru 87 nemendur. Af þeim luku 72 miðskólaprófi, en 45 hlutu framhaldseinkunn, 6 og þar yfir í landsprófsgreinum. Ágætiseink unn í landsprófsgreinum hlutu tveir nemendur, Hans Kr. Guð mundsson, 9,07 og Ásmundur Jakobsson, 9,62, sem er hæsta meðaleinkunn landsprófsgreina á landinu að þessu sinni. Fengu nemendur þessir verðlaunabækur frá skóla sínum fyrir ástundun og ágætan námsárangur. A-skaftfellskar konur í orlof i HÖFN í Hornafirði, 21. júní — I gær komu heim úr viku orlofi 24 austur-skaftfellskar konur. Höfðu þær dvalizt á Hallorms- stað sér til hvíldar og hressing ar. Gunnar Bifreiðaárekstur á Akureyri AKUREYRI, 21. júní — Skömmu eftir hádegi í dag kom bifreiðin A 1788 sunnan Eyrarlandsveg meðfram Barnaskóla Akureyrar. Bifreiðin mun hafa verið á miklum hraða, en á þessu horni mætti hún strætisvagni og við það mun bifreiðarstjóranum eitt- hvað hafa fatast stjórnin. Lenti hann á götuljósastaur með þeim afleiðingum að bifreiðin stór- skemmdist að framan. Brotnaði m. a. vinstra framhjól af og síð- an kastaðist bifreiðin upp að götukantinum, en bifreiðarstjór- ainn, sem var einn í bifreiðinni, sakaði ekki. — st.e.sig Iðnþingsmönnum sýntbjargsig SAUÐÁRKRÓKI, 21. júní. — Að loknum þingfundi á miðviku- dagskvöld lagði flóabáturinn Drangur frá Akureyri upp í Drangeyjarferð. Á annað hundr- að þingfulltrúar og gestir tóku þátt í ferðinni. Veður var ágætt og gekk ferðin að öllu leyti að óskum. Sigmaðurinn Jón Eiríks son frá Fagranesi, fór- niður í bjargið og sýndi fólkinu bjarg- sig, sem það hafði mjög gaman af. Komið var aftur til Sauðár- króks á tilsettum tíma kl. 4 eftir miðnætti. 400.000 í verkfall í Ruhr-héraðinu BOCHUM, 20 júní (NTB) — NÆR 400.000 verkamenn í kola námum á Ruhr-svæðinu munu (hefja verkfáll næsta miðviku- dag, til þess að fylgja eftir kröf- um sínum um 10% kauphækkun. Talsmaður samtaka námuverka- manna hefur látið svo um mælt, að þetta muni verða mesta verk fall, sem orðið hefur í Þýzika- landi eftir styrjöldina. Námu- verkamenn í Ruhr-héraðinu gerðu síðast kaupkröfuverkfall árið 1912. Svíþjóð STOKKHÓLMI, 21. júní (NTB) — Skrásetning bifreiða í Svíþjóð hefur að undanförnu verið meiri en nokkru sinni fyrr. Fyrstu 5 mánuði yfirstandandi árs hafa alls verið seldir 72.176 nýir bíl- ar og er það 1.035 fleira en á sama tímabili í fyrra, þegar öll fyrri met voru slegin. Laugarásbíó hefur undanfarnar vikur. sýnt stórmyndina „Porgy og Bess“ við mikla aðsókn. Þetta er litkvikmynd, sýnd í Todd A-O með sterofónískum hljóm. — Næst síðasti sýningardagur er í dag. Þingfundir hófust aftur kl. 10 í morgun, en upp úr hádegi var lagt af stað í ferðalag til Hóla og víðar í boði Kaupfélags Skag- firðinga. I kvöld sitja fulltrúar og gestir kvöldboð hjá Iðnaðar- mannafélagi Sauðárkróks. Iðnaðarmannafélag Sauðór- króks á 20 ára afmæli um þessar mundir. Og er þetta í fyrsta skipti sem Iðnþing íslendinga ex háð á Sauðárkróki. — Jón. Met bílasala í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.