Morgunblaðið - 23.06.1962, Síða 22

Morgunblaðið - 23.06.1962, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 23. júní 1962 B aðfatafízkan og sundkeppni I DAG kl. 3 er sundmótið í Vesturbæj arlauginni, þar sem m. a. verður efnt til tízkusýn- ingar á sundbolum og ýmis öirnur skemmtiatriði fara fram. En aðallþáttur mótsins er ceppni fólksins sem líklegt er .ð keppi á Evrópumeistara- .nótinu. Má vel ætla að ísl- metin — og meira að segja Norðurlandnmetin séu í hættu því sundfólkið æfir mjög vel. Mót þetta er haldið í fjár- öflunarskyni fjrrir ferðina. Vonandi koma sem flestir, ef ekki til að sjá sundið þá til að sjá nýjustu tízku í sund- fötum eða náttfata og blöðru- boðsund. ■#> Svíþjóð vann Noreg 2-0 OSLO, 21. júní. — Síþjóð vann Noreg eins og búizt var við í fyrsta leik Evrópubikarkeppninn ar í knattspymu, með 2:0. Norð- menn höfðu almennt búizt við méiri markamun. Norska liðið stóð sig þó ekki betur en vænta mátti. Það var sænska liðið sem olli vonbrigðum. Þetta var sama liðið og sigraði Tékka, er kom- ust í úrslit heimsmeistarakeppn- innar, með 3:1 í vor. Bæði mörk- in komu í fyrri hálfleik. 100 lönd í alþjóöa- körfuboltasambandi Alþjóðakörfuknattleikssam- handið (Federation Internation- ale de Basketball Amateur) eða FIBA, eins og það er kall- að í daglegu tali, var stofnað í Genf í Svisslandi, 18. júní 1932. Stofendur voru körfuknattleiks- sambönd eftirtalinna þjóða: Argentínu, Grikklands, ítalíu, Nýtt heimsmet 4.94 á stöng HINN frábæri finnski stang- arstökkvari Pennti Nikula setti nýtt heimsmet í stangar- stökki á móti í Kauhava í Finnlanidi. Hann stökk 4,94 m. Bandarikjamaðurinn Dave Tork hefur stokkið 4,93 m en það hefur enn ekiki hlotið við- urkennángu, m. a. vegna þess að deilt er um hvort leyfa á að nota trefjaglerstangir. Þetta er í annað sinn sem Nikula stekkur hærra en Tork. Fyrir nokkrum dögum stökk hanm 4,94 m en þá fór stöngin undir rána en slíkt striðir á móti reglum, þó að maðurinn sjálfur fari yfir rana. Lettlands, Portúgals, Kúmeníu, Svisslands og Tékkóslóvakíu. Hinn 18. júní síðastliðinn varð FIBA því þrítug. A þessu þrjátíu ára tímabili hefur FIBA vaxið fiskur um hrygg, og er nú orðið eitthvert stærsta sérsamband, sem til er í heim- inum í dag. Hinn 15. maí sl. náði með- limatala FIBA 100, en þann dag var körfuknattleikssam- bandi Vestur-Indía-sambands- ríkisins veitt inntaka í FIBA. Með þessu er körfuknattleiks- sambandið orðið eitt hið stærsta af alþjóðasamböndunum. Heiðursforseti FIBA er Léon Bouffard í Genf, en forseti aðalstjórnar FIBA er Antonio dos Heis Carneiro frá Rio de Janeiro. Aðalritari FIBA er R. William Jones, brezkur maður, sem gegnir störfum æskulýðs- málafulltrúa UNESCO, með að- setri í Múnchen. « ár Alþjóðamót Nýlega er lokið fyrstu meistarakeppni í körfuknatt- leik milli Afríkjuríkja, en körfu knattleikur á miklum vinsæld- um að fagna meðal íbúa þeirr- ar heimsálfu. Úrslit urðu þessi: 1. Arabíska sambandslýðveld- ið, 2. Súdan, 3. Marokkó, 4. Guinea og 5. Eþíópía. Fyrstu Evrópumeistarakeppni unglingalandsliða er fór fram í Bologna á ítalíu í apríl sl., lauk með sigri Tékka, en ann- ars varð röðin þessi: 1. Tékkó- slóvakía, 2. ítalía, 3. Spánn, 4. á Hrafna-Fldka öldurnar létt RÓÐUR er íþrótt sem íslend- ingar hafa gefið allt of lít- inn gaum. — íþróttin sjálf býður upp á hreyfingu, sem veitir alhliða líkamsþjálfun og fátt er skemmtilegra á sólbjörtu sumarkvöldi en róður á lygnum sjó í tæru lofti og fögru umhverfi. Lítill hópur manna stund- ar þó róður hér á landi all- an ársins hring. Tvær róðr- ardeildir eða félög starfa hér, róðrardeild Ármanns og Róðrarfélag Reykjavíkur. — Mbl. brá sér í heimsókn á æfingu hjá Róðrarfélaginu í fyrrakvöld og bregður hér upp svipmynd þaðan. Aðalbækistöð Róðrarfélags ins er í Nauthólsvík. Þar leigir félagið hálft hús Ár- menninga og geymir þar báta sína. Þrjár æfingar hef- ur félagið í viku hverri, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 8—10. Róðrarfélagið á 3 báta vel gerða. Tveir þeirra eru fyr- ir byrjendur og heita Ing- ólfur og Hrafna-Flóki, en hinn þriðji er aðeins fyrir þaulæfða menn, því svo mjór og rennilegur er hann að æfingu þarf til að sitja í honum og róa án þess að hvolfa. Sá heitir Hjörleifur. Ekki eru nöfnin valin af lak- ara taginu. í vetur æfðu hjá Róðrar- félaginu 10—20 piltar og menn, en í sumar hafa þeir ekki verið nema um 10 tals- ins. Það er þvi rúm fyrir miklu fleiri og geta menn á öllum aldri fundið í þessari íþrótt skemmtun, ánægju og yndi. Æft verður fyrir þátt- töku í þremur mótum í sumar, mót Róðrarfélagsins, Reykjavíkurmót og íslands- mót. Það eru án efa margir sem gaman hafa af því að taka í ár, það hefur löngum verið eðli íSlendingsins. Og nú er tækifærið í Skerja- firði. Myndirnar, sem hér fylgja, tók Sveinn Þormóðsson og sýna þær er piltarnir í Róðrarfélaginu eru að setja Hrafna-Flóka á flot og hin er þeir taka í árarnar á sléttum sæ. Frakkland, 5. Pólland og 6. Tyrkland. ■fr Ráðstefna I Múnchen Hinn 4.—6. júlí nk. verður VII. ráðstefna Evrópu- og Mið- jarðarhafsdeildar FIBA haldin í Múnchen. 1 ráði er að full- trúi KKÍ mæti þar. 22.—29. sept. fer fram Ev- rópumeistarakeppni kvenna í Mulhouse í Frakklandi og 2.— 4. nóv. er Polar Cup-keppnin í Stokkhólmi, en fsland hefur tilkynnt þátttöku í þeirri keppni. Heimsmeistarakeppni karla verður háð 1 Manilla á Filips- eyjum 1.—15. des. nk. Sumarið 1963 verður Evrópu- meistarakeppni VarJa háð i Pól- landi. v ó Hólmnvík og Hofsósi ÁRNI EYÞÓR JÓNSSON mun framvegis ann- ast afgreiðslu Morgunblaðsins á Hólmavík. Ber kaupendum blaðsins þar að snúa sér til hans, svo og þeim í kauptúninu er óska að gerast áskrifendur að Morgunblaðinu. — Árni Eyþór mun jafnframt dreifingu blaðsins annast inn- heimtu þess. \ Niels Hermannsson annast afgreiðslu Morg- unblaðsins á Hofsósi, til fastra kaupenda blaðs- v ins þar. Hann mim einnig, jafnframt dreifingu s blaðsins þar í kauptúninu, annast innheimtu þess. — Þeim Hofsósbúum, sem óska að gerast áskrifendur að Morgunblaðinu, ber að snúa sér til hans. —

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.