Morgunblaðið - 27.06.1962, Page 12

Morgunblaðið - 27.06.1962, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 27. júní 1962 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús_ Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. f lausasölu kr. 3.00 eintakið. AÐ ÞORA AÐ TALA Bandarískir landgönguliðar ganga á Iand í Bangkok, Thailandi sl. mið'vikudag. Komu þeir til Thailands að ósk stjórnarinnar þar vegna innrásarhættu frá Laos. — Hin nýja Laos-stjórn hefur nú krafizt þess að lið þetta verði á brott úr Thailandi. Tshomhe vill hlé á viBrœðunum við Adou'a k ður en sú harðvítuga | deila, sem íslendingar lentu í við Breta, náði há- marki sínu með valdbeit- ingu, var margsinnis á það bent, að gera ætti tilraun til að ræða málin, til dæmis innan vébanda Atlantshafs- bandalagsins, og voru þeir margir, sem gerðu sér von- ir um að á þann hátt gætu íslendingar sigrað. Þessari ábendingu var hafnað af þeim mönnum, sem þá fóru með völd, enda var megin- markmið kommúnista að koma í veg fyrir farsæla lausn deilunnar. Hún átti að þjóna því markmiði að veikja Atlantshafsbandalagið og helzt að rjúfa bönd okk- ar við vestrænar þjóðir. Segja má að bollalegging- ar um það, hvemig farið hefði, ef íslendingar hefðu reynt að ræða málin, hafi litla þýðingu úr því sem komið er. En að gefnu til- efni er rétt að víkja að því, sem síðar varð, þ.e.a.s. því hagstæða samkomulagi, sem Islendingar náðu við Breta. Blað Framsóknarflokksins spyr nú að því nær dag hvem, hvað Ólafur Thors hafi átt við í hinni merku ræðu sinni 17. júní, þegar hann vék að því að lægja þyrfti þjóðemishroka og efla gagnkvæman skilning þjóðanna á þörfum og ósk- um annarra. Raunar talaði forsætisráðherra svo skýrt, að allir gátu skilið orð hans, líka þegar hann vék að land helgismálinu, en gangur þess skal þó stuttlega rifj- aður upp. Með útfærslu landhelg- innar 1952, sem' gerð var á grundvelli laganna um vís- indalega verndun fiskimiða landgrunnsins frá 1948, var búið að ryðja brautina og átti málið eftir það að verða tiltölulega auðleyst. Vinstri stjórnin hélt hinsvegar væg- ast sagt illa á málum. Hún bauð Bretum boð, sem mun hagkvæmari vom fyrir þá en sú lausn, sem síðar fékkst. En þær samninga- umleitanir fóru út um þúf- ur. — Málið fór auðvitað í al- gjöran hnút, þegar íslenzk stjómarvöld neituðu að reyna að tala við gagnaðil- ann. Með þeirri ákvörðun var að sjálfsögðu girt fyrir að nokkurt samkomulag gæti náðst. Upp úr þessu skapaðist síðan, eins og fyr- irfram var vitað, hreint hernaðarástand. Þannig var umhorfs, þeg- ar vinstri stjómin hrökklað- ist frá og nýir menn tóku við. Þeim tókst að ná miklu betra samkomulagi en vinstri stjórnin hafði boðið og þeim tókst að koma á friði og sættum milli þess- ara tveggja vinveittu þjóða. En hvernig tókst þetta? Þar er komið að því meginatriði í ræðu Ólafs Thors, að jafnt beri að forð- ast stífni og hroka eins og talhlýðni og undirgefni. Þegar við stjómartaum- unum tóku menn, sem gátu talað og þorðu að tala al- þjóðlegt tungumál, var mál- ið auðleystara en áður hafði verið haldið. Samningaum- leitanir vom teknar upp án hroka, en líka án minni- máttarkenndar, og þær báru þann árangur að íslending- ar náðu hinum hagkvæmu samningum. Bezta staðfestingin á því að samkomulagið við Breta er haglcvgemara en þau sjónarmið, sem íslendingar börðust fyrir á Genfarráð- stefnunum, er sú, að naum- ast mundi nokkur sannur, íslendingur í dag vilja rifta samkomulaginu við Breta gegn þvi að lögbinda 12 míl- ur sem alþjóðareglu. — Þá værum við bundnir við þau fiskveiðitakmörk, en nú er- um við óbundnir, vegna þess að til vom menn, sem þorðu að mæta gagnaðilan- um á jafnréttisgrundvelli. AUKIN MENNTUN ví miður hafa Islendingar ekki gert sér nægilega grein fyrir nauðsyn þess að stórauka vísindastörf og al- menna menntun. Ánægju- legt er þó til þess að vita að úr vísindasjcði skuli nú hafa verið veittir ríflegir styrkir, sem nægja munu til margháttaðra vísindaiðk- ana, sem í náinni framtíð og fjarlægari eiga eftir að bera margvíslegan arð. En það er þó ekki ein- göngu hin fjárhágslegu sjón- armið, sem hafa ber í huga, því að það er rétt sem Ás- geir Pétursson, sýslumaður, benti á í þjóðhátíðarræðu í Borgarnesi, að menningin er ávöxtur og arður af mennta- og fræðslustarfi. Hann benti jafnframt á að íslendingar gætu haft hlið- sjón af þróun mála hjá tveimur miklum menningar- þjóðum, Dönum og Sviss- lendingum. íslendingar eiga ekki síð- ur tækifæri ’en þessar tvær þjóðir, sem eru frábærlega menntaðar og hafa á að skipa góðum iðnaðarmönn- um og tæknifróðum. Þessar þjóðir eru ekki auðugar að hráefnum fremur en íslend- ingar, en engu að síður eru þær í fremstu röð iðnaðar- þjóða. „HUGSJÖN" FYRIRTÆKISINS Fregnir þær, sem Morgun- blaðið hefur birt af hótunum um atvinnukúgun á Selfossi, hafa að vonum vakið mikla athygli. En Tíminn er samt ekkert banginn við að verja málið. Hann talar í gær um þá „hugsjón, sem fyrirtækið leitast við að koma í fram- kvæmd“ og hneykslast á því, að allir starfsmenn Kaupfélags Árnesinga séu ekki fúsir til að berjast fyr- ir „hugsjóninni“. En hver er sú „hugsjón", sem Kaupfélag Árnesinga á að „leitast við að koma í framkvæmd“? Naumast fer á milli mála hver hún er. Það er sú „hugsjón“ að ná ofurvaldi yfir sem flestum þáttum atvinnulífsins, gera sem allra flesta einstakl- inga fjárhagslega háða sam- tökum þeim, sem forkólfar Framsóknarflokksins stjórna sem pólitísku einkafyrir- tæki sínu. Þetta ofurvald á síðan að nota til að styrkja Fram- sóknarflokkinn og. þá leið- toga hans, sem einskis svíf- ast til að ná völdum. Þetta er sú mikla „hugsjón“, sem allir starfsmenn samvinnu- félaga eiga að berjast fyrir að dómi Framsóknarflokks- ins. Annars eru þeir sagðir „undarlega skapi farnir“ og „kynlegir kvistir“. LEOPOLDVILLE, 25. júní (AP — NTB) — Moise Tshhombe, rík isstjóri í Katanga, lýsti því yfir á mánudag, að sig fýsti að fresta um sinn fundarhöldum með Cyr ille Adoula, forsætisráðherra, svo að sér gæfist tækifæri til að skreppa í heimsókn til Elísabet- ville í Katanga. Þar vildi hann hugleiða málin í ró og næði. Tshombe sagði í yfirlýsingu sinni til blaðamanna, að hann hefði borið fram þá ósk við full trúa Sameinuðu þjóðanna í Kongó, Robert Gardiner, að hann kaemi þessu til leiðar. Nokkur árangur náðst. Viðræður þeirra Adoula og Tshombe hafa snúist um fram- tíð Kongó. Þegar hefur náðst samkomulag um nokkur atriði, en önnur hefur gengið mjög erf iðlega að leysa. Tshombe lýsti því yfir, að hann væri ánægður með viðræðurnar fram til þessa. Hann kvað Katanga-menn reiðu búna til að láta um sinn nokkurt fé af hendi'rakna til rílkisút- gjalda í Kongó. Tvísýn talninc; í Perú LIMA, 23 júní (AP). — Fernando Belaunde Terry var enn á laug- ardag atkvæðaflestur frambjóð- enda í forsetakjörinu, sem fram fór hér í Purú nýlega. Skipti hafa hins vegar orðið í öðru og þriðja sæti. í fyrsta skiptið, síðaxi talning hófst fyrir nær 2 vikum hefur Vivtor Raul Haya de la Torre náð öðru sæti. Manuel Odría, fyrrum forseti, hafði áður komið næstur Belaunde. Síðustu atkvæðatölur eru sem hér segir: Belaunde 447,857, Haya de la Torre 417,851 og Odria 414 456. — Rúmlega þriðjungur atkvæða hefur nú verið talinn. Alls voru frambjóðendur við forsetakjörið 7 talsins, en hinir fjórir hafa fengið mun færri at- kvæði. Þó munu þeir samanlagt hafa nægilegt atkvæðamagn, til þess að eiiginn hinn þriggja hljóti þriðjung atkvæða, en þá flytzt kosningin inn í þingið. Tilkynningar beðið. Þess hafði verið vænzt, að tiV. kynning um nýjan árangur við- ræðna þeirra Adoula og Tshom- bes yrði gefin út á þriðjudag. Þykir nú illa horfa um að svo verði, þó að öll von hafi enn ekki verið upp gefin. SÓPRANSÖNGKONAN María Callas mætti ekki í réttinum í Mílanó, þegar hjónaskilnaðarmól hennar og Gianbattista Meneg- hini var á dagskrá nýlega. Lög- fræðingur hennar bar annríki við og sagði að söngkonan væri að undirbúa sig undir þýðingar- miklar söngskemmtanir. María Callas og Meneghini hafa aðeins hitzt einu sinni eftir að þau slitu samvistum fyrir tveimur árum, og það var í þess um sama rétti í maí í vor. Meneghini, sem nú er 65 ára, fékk fimm blaðamenn til að bera vitni í réttinum um það, að hinn auglýsti vinskapur Callaa og milljónamœringsins Onassis hefði skert heiður hans. Hann krafðist einnig fjárhags- legs uppgjörs, þ.e.a.s. að honum yrði dæimdar eignir þeirra, sem nema að verðmæti um 500.000 pund. Hann kvað orsökina til skilnaðarins hafa verið róðríki eiginkonunnar. Ef dómurinn fellur honum f vil, stendur María uppi allmiklu snauðari en áður — en hingað til hefur hún haldið því fram, að hún væri ekki að sækjast eftir auðæfum Onassis, því hún ætti nóga peninga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.