Morgunblaðið - 27.06.1962, Page 15

Morgunblaðið - 27.06.1962, Page 15
Miðvikudagur 27. júní 1962 MORGVNBLAÐIÐ 15 Frelsisbarátta Kúrda — uppreisn þeirra í írak hefur staðið í ái XJPPBEISN Kúrda í írak hef- kommúnistum, ur nú staðið í rúmt ár, þrátt fyrir tiiraunir stjórnar lands- ins til þess að binda endi á hana. Foringi uppreisnar- manna er Mulla Mustafa Barz- ani, leiðtogi þjóðernishreyfing ar Kúrda. en hann og fylgis- menn hans hafa hneigzt til vinstristefnu í stjórnmálum. Orsök uppreisnarinnar er skerðing á rétti Kúrda, en á hann hefur mjög verið gengið undanfarin ár, þrátt fyrir þau loforð sem þeim voru gefin um aukið sjálfstæði, eftir bylt inguna í írak 1958. Um langt árabil hefur gætt mkiillar óánægju meðal Kúrda, eða allt frá því um 1920, er samningur sá var gerður, er nefndur er Sevres- samningurinn, og átti að tryggja þeim sjálfstjórn. Það samkomulag var þó aldrei haldið, og í stað þess að vera nú sameinaðir, er að finna þjóðarbrot Kúrda í fjórum löndum, Tyrklandi, Persíu, írak og Sýrlandi. Því hefur verið haldið fram að uppreisn Kúrda sé studd af og sé aðeins möguleg vegna stuðnings þeirra. Þeir, sem bezt þekkja til, segja það hins vegar mjög orðum aukið. Það, sem fyrst og fremst heldur Kúrdum sam an, í baráttu sinni, er tryggð einstakra þjóðflokka við höfð- ingja sína, — og tengsl þeirra allra. Öll barátta þeirra, þrátt fyrir að hún fari raunverulega fram á mörgum stöðum, miðar að því að skapa eitt ríki, Kurdistan, þar sem allir þjóð- flokkarnir, sem telja um 5 milljónir, gætu sameinazt. Þótt svo kunni að fara, að Mulla Mustafa takizt að vinna sjálfstæði til handa þeim Kúrdum, um 1 milljón tals- ins, sem búa 1 írak, þá myndi það á engan hátt draga úr lönguninni til að skapa eitt ríki. Mesta hindrunin á þeim vegi er hins vegar fátækt Kúrdanna sem eru algerlega háðir nágrönnum sínum um lífsafkomu. í írak og Sýrlandi starfar flokkur Kúrda, Demokrata- flokkurinn sem byggir stefnu sína á því að höfða til þjóð- erniskenndar. Að öðru leyti er stefna flokksins mjög í anda Marxisma. Þótt flokkur- inn starfi aðeins opinberlega í þessum tveimur löndum, þá er lítill váfi talinn leika á því, að hann starfi leynilega bæði í Tyrklandi og fran, þótt ekki liggi neitt fyrir um styrkleika hans þar. Þótt styrkleiki Kúrdanna liggi fyrst og fremst í tryggð þjóðflokkanna við foringja sína, þá fer sívaxandi sá hóp- ur, sem hlotið liefur menntun, og byggir völd sín, sem eru allmikil, fyrst og fremst á henni, en ekki á samheldni þeirri, sem lengst af hefur bundið Kúrda sterkustum böndum. Mustafa Barzani er þó for- ingi, sem byggir völd sín bæði á stuðningi menntaðra og ómenntaðra, ekki sízt hinna síðasttöldu. Segja má, að hann hafi hlotið skírn sína sem stjórnmálamaðUr, er. stofnað var Mahabad-lýðveldið 1946. Hvatamenn að stofnun þess voru Rússar, sem þá höfðu her setu í N-fran. Tilgangurinn var að staðfesta sjálfstjórn þá, sem persneskir Kúrdar höfðu fengið viðurkennda í Teheran. 1941 féll íranska stjórnin vegna íhlutunar Rússa og Breta. Snemma árs 1945 var Demokrataflokkurinn stofnað- ur, þ. e. nokkru áður en lýð- veldið komst á fót, sem laut stjórn flokksins. Um svipað leyti hafði Barz- ani flúið frá írak, eftir mis- heppnaða' byltingartilraun. Hermenn hans urðu styrkur stjórnarinnar. Það má til marks hafa um stuðning Rússa, hve lífdagar lýðveldisins urðu fáir. Rússar höfðu lofað stjórninni hernað- araðstoð. en er til kastanna kom, var sá stuðningur aðeins íólginn í einkennisbúningum á æðstu menn innan hersins. Það sem afdrifaríkara varð fyrir Mahaband-lýðveldið, var samkomulag það, sem systur- ríki. þess í Azerbazjan, er byggði völd sín á hermdar- verkum og ofsóknum, gerði við ráðamenn í Teheran. Þar með var Mahabad-lýðveldið komið í minnihlutaaðstöðu í Azerbazjan. Eftir að lýðveldið leið undir lok veittu Rússar Barzani hæli. Hann og fylgismenn hans dvöldust í Rússlandi næstu 12 árin unz Kassem, hershöfðingi, bauð þeim að flytja til frak eftir uppreisnina þar. Þótt Barzani dveldist svo lengi í Rússlandi, sem raun bar vitrá, þá naut hann aldrei trausts kommúnista. Sovét- Kúrdarnir, sem eru aðeins um 60.000,, eru í algerum minni- hluta í dag. Því hefur verið haldið fram, að vopn þau, sem Kúrdarnir nota nú í uppreisn sinni í írak, hafi verið send þeim frá Tékkóslóvakíu og Rússlandi. Þótt þau séu þaðan, uppruna- lega, þá er ekki svo. Vopnin eru herfang. Kommúnistaupp- þot þau, sem efnt hefur verið til í Baghdad, eru ekki gerð í þeim tilgangi að styðja Kúrda í frelsisbaráttu þeirra, heldur til að gera aðstöðu Kassems erfiðari. Ekkert hef- ur komið fram, sem bendir til þess, áð Rússar hafi aukið að- stoð sína við Barzani. Á sama hátt og Bandaríkin og Bret- land, þá reyna Rússar að ving ast við Arabaríkin. Þjóðernis- tilfinning þeirra mælir mót sjálfstæði Kúrdanna. Kommúnistar líta því sjálf- stæðislöngun Kúrda á sinn sér staka hátt, sem m. a. hefur komið fram í því að hið kommúniska alþjóðasamband stúdenta, IUS, hefur fimm sinnum,. síðan 1958, neitað Stú dentasamtökum Kúrda í Ev- rópu um upptöku. Hins vegar hefur ISC CoSec, Alþjóðasam- band stúdenta, boðið Stú- Framh. á bls. 16. BÆ JARST JÓRN ARKO SNINGAR: Bæjar- og sveitarstjórnarkosning ar fóru fram 27. maí í 42 kaupstöð- um og kauptúnum. í kaupstöðun- um fékk ^ Sjálfstæðisflokkurinn samtals 27.390 atkv. og 52 borgar- og bæjarfulltrúa, Framsóknarflokk urinn 9480 atkv. og 23 fulltrúa, Al- þýðubandalagið 9255 atkv. og 20 fulltrúa, Alþýðuflokkurinn 7619 atkv. og 18 fulltrúa, en óháðir list ar og flokkasamsteypur 4426 atkv. og 15 fulltrúa. í Reykjavík hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 9 fulltrúa kjörna, Alþýðubandalagið 3, Framsóknarflokkurinn 2 og Al- þýðuflokkurinn 1 (29). TÖTGERÐ: Lifrarsamlag Vestmannaeyja hefur tekið á móti yfir 2 þús. lestum af lifur á vertíðinni (1). Löndun stöðvuð úr síldveiðibátun- um þar sem svo mikið heufr borizt að landi að ekki er hægt að taka við meiru (1). Eyjabátar fara á veiðar með línu ©g síldveiðar (4). Mikil síld berst til Akraness (8). Hafinn flutningur á síld til Noregs (9). Á lokadaginn hafði orðið góður með alafli á Suðurnesjum og í Vestmanna eyjum (11) Togarinn Hallveig Fróðadóttír kem ur til Reykjavíkur með 1800—1900 tunn tir af síld (12). 18. Þús. tunnur af síld frystar síðan tíldveiðar hófust við S-Vesturland á Sl. hausti (13). Verðlagsráð sjávarútvegsins ákveð ur rækjuverð (15). Vélbáturinn Þorbjöm í Grindavík aflahæsti bátur vertíðarinnar með »46,5 lestir (16). Fiskaflinn 65,3 þús lestir fyrstu 2 inánuði þessa árs (17). Á þriðja hundrað- aðkomumenn á vertíð í Ólafsvík (18). Heildarafli Flateyjarbáta 1829 lest- Ir (19). Helgi Helgason á Patreksfirði afla- tiæsti bátur á Vestfjörðum, með 875,8 lestir (19). Heildarsíldveiðiaflinn við Suð-Vest urland á vertíðinni 1,3 millj. uppmæld ar tunnur, Mest magn hefur borizt til Jteykjavíkur (22). Hvalvertíðin hafin (22). 13.465 lestir bárust til Sandgerðis á Vetrarvertíðinni (25). Svanur RE 88 var aflahæstur Reykja víkurbáta á vetrarvertíðinni, aflaði 730 lestir (27). Rækjuleit hafin fyrir Vestur- og Worðurlamdi (27). Norsku flutningaskipin hætt síldar fiutningum. Fluttu alls 2344 lestir (29). Pegar vélskipið Guðmundur l>órðar son hætti síldveiðum hafði báturinn aflað yfir 50 þús. tunnur á vetrar vertíðinni (30). Varðskipið Ægir hefur hafið rann- sóknir á síldargöngum að Norður- landi (30). Aflahæsti báturinn á Bíldudal, Andri, var með 666 lestir á vertíðinni (31). Ægir verður var síldar út af Látra bjargi (31). VEÐUR OG FÆRÐ ísröndin heldur nær íslandi en venjulega (4). Kólnar í veðri og snjóar í Eyja- firði (5). Enn ófært um Siglufjarðarskarð, þar sem skarðið hefur enn ekki verið rutt (9). Veturinn varð beitarsæll í Borgar- fyriði eystra (10). Umferðatakmarkanir víða á vegum vegna aurbleytu (10). FRAMKVÆMDIR: Togaranum ísborg breytt í flutninga skip (1). Aluminiumvinnsla hagstæðasta leið in til stórvirkjunar á þessum áratug að dómi verkfræðingaráðstefnunnar (1). Póst- og símamálastjómin tekur upp telex-þjónustu milli íslands og út- lamda (1). Heildaráætlun gerð um fullnaðarfrá gang allra gatna í Reykjavík á næstu 10 árum (3). Hafnarbúðir, nýtt verkamannaskýli tekið í notkun í Reykjavík (3). Nýtt gistihús 1 Bolungarvík (4). Flugfélag íslands flytur skrifstofur sínar í Bændahöllina (4). Gísli Halldórsson, verkfræðingur, finnur upp nýjan síldarsjóðara (5). Framkvæmdir hafnar við sundhöll í Kópavogi (9). Síldarverksmiðjan á Seyðisfirði end urbyggð (9). Ný sundlaug vígð á Siglufirði (10). Bygging nýju slökkvistöðvarinnar boðin út í sumar (11). Frá 1960 hefur verið stöðug undir búningsvinna við skipulag 165 þús. manná byggðar á Reykjavíkursvæð- inu (12). Almenna byggingarfélagið að hefja hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn (12) Nýr veitingastaður, Hallarmúli, tek ur til starfa í Reykjavík (13). Nýr bátur, Gullfaxi NK 6, kemur til Neskaupstaðar (13). Hafin er vinna við raflögn á 5 býli í Kjósarhreppi (15L Höfðavatn opnað út í sjó til þess að bæta silunginn þar (15). Á næstu tveimur árum verður fram kvæmd stórfelld stækkun vatnsveit \mnar í Reykjavík (16). Hafin er bygging tollgeymslu í Reykjavík (15). Sótt um lóð fyrir Veðurstofu íslands (17). Bátalón ,f Hafnarfirði smíðar tvo tilfarsbáta (19). Ríkisútvarpið kemur upp endur- varpsstöð á Raufarhöfn (20). Sjö skólahús í smíðum í Reykjavík (22). I>riðja ófanga hitaveituáætlunar Reykjavíkur lýkur fyrir áramót (23). Ný kjörbúð tekur til starfa í Nes- kaupstað (23). Nýtt félagsheimili vígt í Neskaup- stað (24). Ný og sérkennileg kirkja reist í Ól- afsvík (25). BÓKMENNTIR OG LISTIR: Kjarvals-málverk selt á 22 þús. kr. (1). „Undir veggjum veðra'* nefnist ný ljóðabók eftir Baldur Ragnarsson (1). „Lifandi manna land“ nefnist ný ljóðabók eftir Pórstein Jónsson frá Hamri (1). Leikfélagið Stakkur sýnir Bör Börs son 1 Keflavík (4). Sjálfsævisaga dr. Hannesar I>orsteins sonar, þjóðskjalavarðar, komin út (5). Myndlistarfélagið heldur vorsýningu í Listamannaskálanum (5). Jón Jónsson heldur málverkasýningu (5). Merkar heimildir um aftöku Bjarna á Sjöunduá nýfundnar í þjóðskjala- safninu í Reykjavík (5)» Sjónleikurinn „Júpiter hlær“ sýnd ur á Bíldudal (9). Veggteppi eftir Júlíönnu Sveinsdótt ur sett upp í Hæstarétti Dana (12). Sýning á myndum Collingwoods hald in í Reykjavík (12). 106 mönnum úthlutað listamanna- launum (13). Komin er út myndskreytt útgáfa af Passíusálmunum (13). Flateyringar sýna sjónleikinn „Pét ur kemur heim“ eftir Leslie Sands (13)\ Sinfóníuhljómsveitin heldur hljóm leika undir stjórn Olav Kiellands (16). Lúðrasveit drengja á Akureyri leik ur 1 Reykjavík og víðar (16). „Myndir úr Strandasýslu“ heitir ný útkomin myndabók, sem Tryggvi Sam úelsson hefur gefið út (17). Hafin er útgáfa á nýju tímariti er nefnist Leikritið (17). Norski stúdentakórinn í söngför hér (19). Karlakórinn Geysir á Akureyri í söngför um Suðurland (22). Tveir rússneskir listamenn í heim- sókn á vegum Tónlistarfélagsins (29). Hljómsveitarverk eftir Jón Nordal frumflutt á hljómleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar (30). Helgi Tómasson, listdansari, dansar á heimssýningunni í Seattle (30). Nýtt listasafn verður reist í Kópa- vogi eða Reykjavík (31). Leikfélag Reykjavíkur hefur sýning ar á „Kviksandi'* úti á landi (31). MENN OG MÁLEFNI: Bandarískur prófessor, Arvid T. Lonseth, flytur fyrirlestur við Há- skóla íslands um sagnfræði (1). Ámi Pétursson, kennari, settur skólastjóri að Hólum (3). Ingi R. Jóhannsson hraðskákmeistari Reykjavíkur (4). Japanskur, jarðskjálfafræðingur heimsækir ísland (9). Nýr brezkur sendiherra í Reykja- vik E. D. Boothby (9). Rauði Kross íslands heiðrar I>orstein Sch. Thorsteinsson, fyrrv. formann sinn (10). David Brimbart, einn af framkvæmd arstjórum Alþjóðasambands æskulýðs iélaga heimsækir ísland (10). Dr. Sigurður I>órarinsson skipaður formaður Raunvísindadeildar Vísinda sjóðs og dr. Jóhannes Nordal Hugvís indadeildar (11). Jóhann Axelsson ver doktorsritgerð 1 Lundi (12). Guðrún Bjarnadóttir úr Ytri-Njarð- vík kjörin „Ungfrú ísland 1962“ (15). Haraldur Jónasson bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna á Akranesi (16). Bragi Hannesson, hdl. bæjarstjóra efni Sjálfstæðismanna 1 Kópavogi (19). Grískir fiskkaupmenn í heimsókn (19). „Skálholtssveinninn" veittur Stein- dóri Hjörleifssyni (22). Sigurbjörn Þorbjömsson skipaður fyrsti rikisskattstjórinn (23). Dr. Kjeld Philip, efnahagsmálaráð- herra Danmerkur, flytur fyrirlestur í Reykjavík um markaðsbandalag Evrópu (23). * Prófessor Einar Ólafur Sveinsson kjörinn heiðursdoktor við Uppsalahá- skóla (30). Bandaríkin veita prófessor Niels Dungal 50 þús. dollara styrk til rann- sókna á magakrabba á íslandi (31). SLYSFARIR OG SKAÐAR: Árni Ásmundsson, bóndi að Skála- nesi við Seyðisfjörð, stórslasast, er dráttarvél vetlur (1). Maður blindast vegna neyzlu tré spírituss (1). Varðskipið Óðinn fer með björgun arþyrlu til Grænlands til þess að ná þar í fársjúkan mann (3). Eldur veldur skemmdum í skógrækt argirðingu við Hafravatn (4). Brezki togarinn Ross Kenilworth frá Grimsby sekkur út af Malarrifi. Mann björg (5). Vélskipið Guðbjörg Jónsdóttir frá \ Reykjavlk sekkur undan Stapa (5). Þrír ungir menn úr Njarðvík, bræð urnir Einar og Sævar Þórarinssynir og Eggert Karvelsson, farast með trillu bát (5). Bærinn að Garði 1 Þistilsfirði brenn ur (6). Leki kom að mb. Orra frá Patreks firði. Báturinn dreginn til hafnar (10). Varðskipið Þór bjargar áhöfn noröka síldarflutningaskipsins Elgo, og dreg ur skipið síðan til hafnar (11., 12). Síldartökuskipið Vimi leitar hafnar á Seyðisfirði (12). Vistheimilið að Kvíabryggju brenn ur (13). Tveir menn handteknir fyrir ávís anafölsun (13). Ör skotið í auga fimm ára drengs svo hann missin sennilega sjón á því (15). Tveir drengir urðu undir legsteini í gamla kirkjugarðinum í Reykjavík og slösuðust illa (16). Tvítugur piltur, Erlingur Birgir Ól- afsson, fórst í flugslysi í lítilli flugvél (17). Lambalát kemur upp á bæ í Hreppum (17). Náin samgangur við sauðfé drap tvær kýr (19). 8 ára drengur brennist illa á Akra- nesi (20). Þrennt slasast í. hörðum bifreiða- árekstri í Reykjavík (23). Veggur hrundi á dreng og slasað- ist hann mikið (23). Mikill sinubruni í Málmey (23). Ungur piltur féll í skriðu í skóla- ferðalagi og slasaðist á höfði (23). Flutningabíll brennur á Kambabrún (24). Skriða fellur úr Laugardalsfjall og veldur stórtjóni í skógræktargirðingu og á túnum (29). FÉLAGSMÁL: Samkomulag náðist ekki um hátíða höld verkalýðsins í Reykjavík 1. maí. Voru því tveir útifundir haldnir þann dag (1., 3). Gjaldskrá fyrir verMræðistörf breytt (1). Skátadagur haldinn í Reykjavík (1). Ingólfur Kristjánsson endurkjörinn formaður Félags íslenzkra rithöfunda (1). Kristján G. Gíslason endurkjörinn formaður Félags íslenzkra st<>rkaup- manna (1). Helgi Jónsson, Selfossi, kosinn for maður Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Árnessýslu (1). Félag vestfirzkra skreiðarframleið enda stofnað (1). Páll S. Pálsson kjörinn formaður Húseigendasambands íslands (1). Atli Ágústsson endurkjörinn for-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.