Morgunblaðið - 27.06.1962, Side 22

Morgunblaðið - 27.06.1962, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 27. júní 1962 í KVÖLD kl. 8.30 verður fyrsti leikur danska úrvals- liðsins, sem hingað er kom- ið í boði KR, á Laugardals- vellinum. Danirnir mæta þá Fram — liðinu, sem nú hef- ur forystu í 1. deild. * GÓÐ DÖNSK LBÐ Það ríkir mikill spenn- ingur varðandi þessa dönsku heimsókn. Danir eiga góða knattspyrnumenn, sem unn- ið hafa stóra sigra. Úrvals- lið Sjálands — eins og þetta — hafa unnið hér stóra sigra, en umfram allt sýnt góða knattspyrnu. Þeir búa yfir knattspyrnu, sem leikin ■Ma k\U Jón stokk 2.01 m. k INNANFÉLAGSMÓTI ÍR í gær stökk Jón Ólafsson 2.01 m í hástökki. Jón stökk þá hæð í „öllum galla“ þ. e. a. s, í skjóifötum sem íþróttamenn nota. Hann reyndi þrívegis við 2.04 (metið er 2.03) en tókst ekki. Jón byrjaði á 1.90 m og fór 'í 2. tilraun, fór 1.95 í 1. og 2.01 í fyrstu, allt í „fullum skrúða" sem fyrr segir. Má sjá að han er í góðri þjálfun. í dag fer Jón utan til Moskvu þar sem hann keppir á miklu alþjóðlegu móti. Síð- an heldur hann til Noregs og mun alls fá 4—6 kappmót í ferðinni. Verður gaman að fylgjast með árangri hans. er af hraða, nákvæmni og skjótri hugsun. Það hefur ætíð verið gaman að horfa á dönsk úrvalslið hér, og þetta Xið ætti ekki að gefa hinum fyrri eftir, ekki sízt ef haft er í huga að Sjálandi bættist nú mikill liðsstyrkur þar sem Akademisk Bold- klub er, en félagið flutti frá Kaupmannahöfn til útborgar og telst nú til Sjálands. Eru margir leikmanna AB með í förinni nú. ★ UM MIKIÐ A» KEPPA Ofan á allt þetta bætist að íslenzkir knattspyrnumenn hefja nú lokaundirbúning að lands- leik við Norðmenn. Leikirnir við Dani eru því einskonar lokapróf fyrir þá — og loka- próf á það hvernig landsliðið eigi að skipa, en sæti í lands- liði £r mesti heiður, sem ís- lenzkum íþróttamanni getur hlotnast. Það verða því án efa margir á vellinum í kvöld. Þar ætti að sjást góð knattspyrna. Þar er til mikils að keppa. Síðara mark Fram. Guðm. ósk. (8) skorar. Aðeins Bjarni Fel. sést af vörn KR. Ljósm. Sv.Þormóðsson. Enn jafntefli KR og Fram En Fram hefur forystu Þeim ætlar að veitast erfitt að gera upp sínar sakir, gömlu keppinautunum Fram og K.R. í blíðskaparveðri mættust liðin á Laugardalsvellinum í fyrra- kvöld. Var þetta seinni leikur þeirra í fyrstu deild. íslandsmóts ins, og svo fór, að einu sinni enn máttu þau skipta með sér stigum en það er fjórða skiptið í röð Má það all óvenjulegt teljast í knattspymu þar sem á ýmsu veltur og styrkleikahlutföll breytast til og frá. Staðan í fyrstu deild gerði það að verkum, að mikill spenning ur var fyrir þessum leik, en samt var ekki mjög margt áhorf enda í þessu fagra veðri. Svo 1 Geir marvörður Fram brosti aldrei sækir Geir knött í netið er KR loksins jafnaði, — en . Það verða bakyerðir að gera. virðist vera sem ferðir í Laugar dal séu of strjálar og menn fara þangað því mun síður en vestur á Melavöll, sem liggur betur við allri umferð. Það er hagur allra íþróttafélaganna, að sem flestir áhorfendur leggi leið sína á völl inn, og því ætti að leggja áherzlu á, að gera mönnum það sem auð veldast. Þetta mega forráða- mennirnir hafa í huga. Við skulum þá snúa okkur að leiknum. Fyrstu mínútumar fóru að mestu 1 „upp(hitun“, en fljótlega kom í ljós, að leikur Fram var öllu ákveðnari og hei! steyptari. Þeir sköpuðu sér upp lögð færi og bæði Baldur og Ásgeir áttu hættuleg skot af færi, en framhjá. Samt var það K.R., sem var fyrra til að skora en með góðri aðstoð miðvarðar. Fram. Halldór Lúðvíksson fékk knöttinn á vítateigslínu fyrir miðju marki og hugðist spyrna fram völlinn, en hitti- ekki knött inn. Hjá honum stóð Gunnar Felixson, vel staðsettur og var hann ekki seinn á sér að nota opið færi. renna knettinum á unda-n sér inn í teiginn og skor- aðj örugglega, óverjandi fyrir Geir markvörð. Þetta var að vísu nokkuð hart fyrir Fram, en þeir létu mótlæt ið ekki á sig fá, heldur hófu sókn að nýju, sem færði þeim fljótlega góðan ávöxt. Það var hinn efnilegi Ásgeir Sigurðsson sem jafnaði fyrir Fram og á HVERNIG Á AD SKIPA IANDSLH)? SJALDAN eða aldrei hefur baráttan í 1. deild knattspyrn- unnar verið jafn tvísýn og nú! Fimm félög af sex, sem þar keppa, koma enn tii greina sem sigurvegarar, þó mótið sé hálfnað. Sjaldan eða aldrei hefur verið eins erfitt að skera úr á milli manna, sem mæta ættu sem fulltrúar lands ins í landsleik. Fyrsti landsleikur ársins nálgast óðfluga þrátt fyrir alla þessa erfiðleika og hinn 8. júlí verður íslenzkt landslið að verja heiður lands síns gegn Norðmönnum sem hing- að koma. Þann dag verður ís- lenzkt landslið að vera valið og ailir vona að valið heppn- ist vel og það verði sterkasta heild isl. knattspyrnumanna sem þá hleypur inn á völlinn. Til að kann hug knatt- spyrnuunnenda i þessum efn- um, þá vill íþróttasíða Mbl. nú sem oft áður efna til skoðana- könnunar um það hvernig velja eigi landsliðið. Oft hefur almenningur ólíkar skoðanir í þessum efnum — einkum ólíkar skoðunum landsliðs- nefndar. En svo að á engan sé hallað verður landsliðs- nefndin „dómari“ í skoðana- könnun Mbl. Sá sem stillir upp Iandsliði sinu eins og landsliðsnefndin gerir það fær í verðlaun tvo miða á lands- leikinn, stúkusæti auðvitað. Spurningin er þá. „Hvernig á að skipa landsliðið?“ Frestur til að skila „kjör- seðlum“ er til þriðjudagsins 3. júlí! Hér fylgir svo „kjörseðill". alksða„i: Það skal tekið fram að heimild er fengin fyrir því að Þórólfur Beck leiki þennan landsleik fyrir ísland. — Ber- ist margar réttar ráðningar verður dregið um það hver vinning hlýtur. Utanáskrift ráðninga er —■ , Morgunblaðið — íþróttir". Landsliðið skal þannig skipað: v. útherji miðherji h. útherji v.' innherji h. innherji v. framv. miðvörður h. framv. v. bakv. h bakv. markvörður Nafn sendanda: Heimilisfang: hann einn heiðurinn af markinu Fékk toann knöttinn við miðlínu lék hratt inn að marki K. R., torissti tvo varnarmenn af sér með fallegum bolvindum og skoraði glæsilegt mark með skoti rétt innan vítateigs. Þetta var eitt af þeim óvenjulega Skemmtilegu mörkum, sem við toöfum svo sjaldan séð, síðan Rík harður var upp á sitt bezta. Að- eins tveim mínútum síðar tekur Fram forystuna og var þar að verki Guðmundur Óskarsson, sem skoraði með föstu skoti af stuttu færi, eftir góða fyrirgjöf frá Ásgeiri. Við þetta mark náði Fram undirtökunum í leiknum og var mun jákvæðara út hálf- leikinn. Þeir voru nærri því að skora þriðja markið á 36. mín., er Guðmundur skaut laust að opnu markinu upp úr þvögu,«-en á síðustu stundu komst Hreiðar fyrir knöttinn og gat stöðvað toann, svo til á línu. Þannig var staðan í hálfleik 2—1, hefði vel getað verið 3—1 fyrir Fram og nú var farið að fara um aðstand endur K.R. En þeir áttu eftir að lifna við. Síðari hálfleikurinn var alger andstæða toins fyrri. Nú var hrað inn mun minni, og nú hafði K.R. öll völd á vellinum. Mark af þeirra hálfu lá í loftinu og vörn Fram var ekki sem öruggust þeg ar á herti. Jafnteflið kom þó ekki fyrr en um miðjan hálfleik inn og var þar aftur kominn Gunnar Felixson, sem skoraði af stuttu færi úr hálfgerðri þvögu, með fjóra varnarmenn Fram i kringum sig. Rétt áður átti Fram sitt eina hættulega færi í þess- um hálfleik, en það var, er Hall grímur Scheving spyrnti að marki frá markteig. Mark blasU við, en Hreiðar var þarna kom- in.n enn einu sinni og bjargaði í horn á síðustu stundu. Eins og áður segir var sdðaii toálfleikurinn mun rólegar leik- inn og fór meira fram á vallar- miðju en sá fyrri, sem einkennd ist af tíðum og hröðum upp- hlaupum. Sóknarmenn Fraxn Framh. á bls. 23 Jugóslavar hafa forystu yfir Norð menn. NORÐMENN og Júgóslavar heyja nú landskeppni í frjálsum íþróttum. Eftir fyrri daginn hafa Júgóslavar 55 stig gegn 49 stig- um Norðmanna. Af úrslitum má nefna: Þrístökk Stanisic Júgósl, •15.31. 2. Jocic Júgósl. 15.14. Há- stökk: Kavcic Júgósl. 1.98. 2, Vang Nor. 1.95. 800 m hl. Sol- berg Nor. 1.53.1 2. Hammarsland 1.53.4. Kringlukast Radosevic Júgósl. 52.85. 2. Haugen Nor, 52.77. 3000 m hindrun Ellefsæter Nor. 8.43.8 (Bislettmet). Hafner Júgósl. 8.56.4. 5000 m hl. Teien Nor. 14.15 4. Gervan Júgósl. 14.16.0.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.