Morgunblaðið - 01.07.1962, Side 5

Morgunblaðið - 01.07.1962, Side 5
 Sunnudagur 1. júlí 1962 MORGVHBLAÐÍÐ Undanfarna daga hefur ver ið haldinn hér í borg fundur útvarpsstjóra á Norðurlönd- um. Meðal þeirra, sem fund inn sóttu er danski útvarps- stjórinn Hans S0lvh0j frá Kaupmiannahöfn. Fréttamaður blaðsins hitti S01vh0j í fyrra dag, þar sem hann var á leið upp í Menntaskóla. Fengum við að slást í förina og spurð um erindi hans þangað. Sagðist S0lvh0j ætla að skoða töflu þá, sem hangir í anddyri skólans til minningar um lækninn og Nóbelsverð- launahafann Niels Finsen. — Konan mín, Rut, sagði hann er sonardóttir Finsens. Fin- sen stundaði nám í skólanum í 6 ár, meðan faðir hans var amtmaður í Færeyjum og langaði mig til þess að sjá skólann. — Einnig hef ég orði var við, að ætt- in, sem er að nokkru leyti ís lenzk, finnur tengsl sín við landið og ber virðingu fyrir því, og ég skil það vel, eink um eftir að hafa komið hing- að. — Ekki munið þér Finsen? — Nei, hann var dáinn, þeg ar ég fæddist, en ekkja hans lifir ennþá, 93 ára að aldri. Þegar ég kem til Danm.erkur, ætla ég að fara til hennar og segja henni frá heimsóikn minni hingað. — Hvernig líkar yður ann- ars að dvelja hér? — Ágætlega. — Það er skemmtilegt að heimsækja land, sem er eins ólíkt Dan- mörku og ísland. Hér er líka allt stærra og umfangsmeira, en ég hafði áður gert mér í hugarlund. Þá hefur bók- menntaáhugi minn náð hingað og ásamt íslendingasögunum hef ég lesið talsvert eftir Lax ness og Gunnar Gunnarsson, en bækur þeirra eru mjög vin sælar og útbreiddar í Dan- mörku. Talið berst síðan að út- Læknar fiarveiandi Andrés Ásmundsson í júlímánuði. ((Kristinn Björnsson) Árni Björnsson 29. 6. í 6—8 vikur. (Einar Helgason sama stað kl. 10—11). Eggert Steinþórsson 29. 6., í 2 vikur. (Þúrarinn Guðnason). Esra Jt'étursson um óákveðinn tima (Halldór Arinbjarnar). Eyþór Gunnarsson 18 júní til 2. júlí. (Victor Gestsson). Guðjón Klemenzson, Njarðvíkum til 2. júlí. (Arinbjörn Ólafsson, Kefla- vík). Hannes Finnbogason 15. júní til 1. Júlí (Guðjón Guðnason). Jón Hannesson til lj. júlí. (Stefán Bogason). Jóhannes Björnsson 29. 6. í 3 vikur. (Grímur Magnússon eina viku, Gísli Ólafsson 2 vikur). Jónas Sveinsson til júlíloka. — (Kristján I>orvarðsson í júní og Ófeig ur Ófeigsson í júlí). Kristín E. Jónsdóttir 1/7 til 1/8. (Ólafur Jónsson). Dr. Rajendra Prasad, fyrr- verandi Indlandsforseti hefur ákveðið að eyða síðustu ævi- árum sínum í klaustri einu S0lvh0i, varpi og sjónvarpi og spyrjum við, hvort sjónvarpið sé ekki orðið mjög algengt í Dan- mörku. — Jú, segir S01vh0j. Nú er svo komið, að sjónvarp er á næstum öðru hverju heimili í landinu og sjónvarpstækin um 800 þúsund. — Ríkir almenn ánægja með dagskrána? — Við verðum fyrir mikilli gagnrýni, sem við erum oft ánægðir með, því að jafnvel útvarp og sjónvarp geta geng útvarpsstjóri ( ið of langt í hlutleysi sínu og varkárni. — Hvað viljið þér segja um íslenzkt sjónvarp? — Hingað kemur óhjé- kvæmilega sjónvarp fyrr en seinna. Þróunin stöðvast ekki frá því, sem komið er. Sjón- varpið yrði til mikilla þæg- inda í þessu strjálbýla landi og ekki sízt mundi það auð- velda ykkur flutning leikrita og ritverka, sem þið eigið svo mikið af, sagði S0lvh0j, út- varpsstjóri, að lokum. Kristján Jóhannesson um óákveðinn tíma (Ólafur liinarsson og Halldór Jóhannsson). Magnús Ólafsson til 3. júlí. (Daníel Guðnason Klapp. 25 sími 11228). Ólafur Einarsson i Hafnarfirði 30/6 til 8/7. (Halldór Jónsson). Ólafur Geirsson til 25. júli. Ólafur Helgason 18. júní til 23. júli. (Kari S. Jónasson). Pétur Traustason 17. júni í 4 vikur. (Bergsveinn Óiafsson tii 1. júlí. Skúli Thoroddsen). Stefán Björnsson 1. júlí tii 1. sept. (Víkingur Arnórsson) Snorri Hall- ggrímsson i júlímánuSi. Sveinn Pétursson um óákveðinn tíma. (Kristýán Sveinsson). Tryggvi Þorsteinsson frá 15. júni í tvo mánuði (Ólafur Jónsson Hverfis götu 106). Valtýr Albertsson 2/7 til 10/7. (Jón Hjaltalín Gunnlaugsson). Þórður Mölier frá 12. júní í 4—6 vikur (Gunnar Guðmundsson). MENN 06 = MAŒFNI= nálægt Patna í Indlandi. — Hann ætlar þó ekki aðeins að dveljast þar við trúarlegar íhuganir, heldur ætlar hann að ljúka þar við sjálfsævi- sögu sína, sem hann hefur unnið að undarfarið og einn ig ætlar hann að skrifa bók um indversk stjórnskipunar- lög. Klausturhaldið í Patna er fólgið í því, að munkarnir byggja sér sjálfi'r á eigin kostn að litla kofa nálægt klaustr unum. Þar fást munkarn- ir helzt við yoga, heimsspeki og trúariðkanir, en sumir þeirra leggja einnig skerf til kristinna mannúðanmála og þjóðfélagsmála og reka sjúkra hús, barnaheimili og skóla. H.f. Jöklar: Drangjökull er í Rotter dam. Langjökull er i Kotka fer þaðan til Hamborgar og Reykjavikur. Vatna jökull er á leið til Reykjavíkur. Eimskipaféiag Reykjavíkur h.f.: Katla er á Þingeyri. Askja er í Rvík. Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rvík. Arnarfell er í Haugesund, fer þaðan á morgun áleiðis til Austfjarða. Jökul fell er væntanlegt til NY á morgun frá Keflavík. Dísarfell fór í gær frá Eskifirði til Ventspils. Litlafell er í olíuflutningum í Faxáflóa. Helgafell er í Rouen. Hamrafell er væntanlegt til íslands 8. júlí frá Aruba. + Gengið + 29. júní 1962 Kaup Sala 1 Sterlingspund ... .... 120,62 120,92 1 Bandankjadollar 42,95 43,06 1 Kanadadollar .... 39,76 39,87 100 Norskar kr .... 601,73 603,27 100 Danskar krónur .... 623,27 624,87 100 Sænskar kr ... 835,05 837,20 1 0 Finnsk nörk 13,37 13,40 100 Franskir fr. .. .... 876,40 878,64 100 Belgiski- fr 86,28 86,50 100 Svissneskir fr. ... .... 994,67 997,22 100 V-þýzk mörk ... .... 1076,90 1079,66 100 Tékkn. rnur ... .... 596,40 598,00 100 Gyllini .... 1195,13 1198,19 1000 Lirur 69.20 69,38 100 Austurr. sch ... 166,46 166,88 100 Pesetar 71,80 í sumardýrð á himni háum, með hatt og skó úr sólargljá, hver dagur nú á buxum bláum og blárri treyju gengur hjá. „En hvernig nótt sig hefir tygjað?“ ég hygg þú munir spyrja fljótt. Ég get ei leyst úr þessu, því að um þennan tíma er engin nótt. (Steingrímur Thorsteinsson: Sumarheiðríkja). Bílar til sölu Tilboð óskast í International íVz tonns og Volvo station árgang 1960. Upplýsingar í F.TÖURINNI, Laugavegi 168. Verðlcskkun Agfa-myndavélar hafa stórlækkað í verði. Fjöldi teg- unda fáanlegur. Verð. frá kr. 346.— án tösku. POUVA START myndavélin góða kostar aðeins kr. 180.— án tösku. Munið: Agfa myndavélar og Agfa-filmur fást hjá okkur. FRAMKÓLLUM og KOPIERUM stórar og fallegar myndir. — Fljót afgreiðsla. — Vönduð vinna. T Ý L I H F. Austurstræti 20. 100 — 200 ferm. Verzlunarhúsnæði í Miðbænum óskast. Tilboð merkt: „Miðbær — 7101“ sendist afgreiðslu Morgunblaðs- ins fyrir 6. júlí. Nýr og ókeyrður Landrover lengri gerð, með diesel vél, er til sölu. Tilboð sem tilgreini verð og greiðsluskilmála, skilist á afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld merkt: „Nýr Landrover — 7129“. Búfasala Storesbútar IMælonbútar Perlonbútar Bómullarefni Gardínubúðin Laugavegi 28. SKRIFSTOFUSTARF Vélritunarstúlkur Vél viljum ráða nokkrar vanar vélritunar- stúlkur strax. Samvinnuskólamenntun, verzlunarskóla eða önnur hliðstæð mennt- un æskileg. Omsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi SÍS í Sambandshúsinu, sem gefur ennfremur nánari upplýsingar. STARFSMANNAHALD

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.