Morgunblaðið - 01.07.1962, Qupperneq 12
12
MORCUNBLAÐIh
Sunnudagur 1. júlí 1962
Fdlk
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
f lausasölu kr. 3.00 eintakið.
GOÐUR HAGUR
LOFTLEIÐA
ITvarvetna í lýðræðislönd-
um er sú staðreynd við-
urkennd, að góður hagur
atvinnufyrirtækja og hæfi-
Jeg eignasöfnun þeirra sé
grundvöllur framfara og al-
mennrar velmegunar. Hér á
landi hefur skilningur á
þessu því miður verið of
lítill, og er það ein af ástæð-
imum fyrir því, að íslend-
ingar hafa dregizt aftur úr
í hinni öru efnahagsþróun
nágrannalandanna.
Með hliðsjón af þessu
gleðjast allir réttsýnir menn
yfir því, þegar þeir heyra
um velgengni einhvers fyr-
irtækis. Og nú, eins og oft
áður berast fréttir af þvi, að
rekstur Loftleiða hafa geng-
ið vei sl. ár. Félagið gat af-
skrifað 21 milljón króna af
eignum sínum, en skilaði
samt rúmum 7 milljónum í
hagnað. Þegar hliðsjón er
höfð af hinni miklu veltu
Loftleiða og því mikilvæga
hlutverki, sem félagið gegn-
ir, er þetta auðvitað sízt of
mikill hagnaður, en þó
stefnir í rétta átt.
Nýlega var skýrt frá því,
að Eimskipafélagið hefði
síðasta árið verið rekið með
miklum halla. Byggðist hann
fyrst og fremst á algerlega
óraunhæfum verðlagsákyæð-
um. Verður það að teljast
furðulegt, ef stjórnarvöld á-
líta að þau gærti bezt hags
þjóðarheildarinnar með ráð-
stöfunum, sem girða fyrir
það að fyrirtæki á borð við
Eimskip geti endumýjað
skipastól sinn, fylgzt með
nýjungum og safnað sjóðum.
Slíkar ákvarðanir eru þvert
á móti í beinni andstöðu við
hagsmuni þjóðarinnar.
Skilningur fer nú hér á
landi vaxandi á því að nauð-
synlegt sé að atvinnufyrir-
tæki geti safnað nægilegu
fjármagni til endurbóta og
aukninga á rekstri sínum.
Þess vegna ætti að mega
gera ráð fyrir því að fleiri
félög en Loftleiðir geti sýnt
sómasamlega afkomu á
næstu árum og þannig bætt
þjóðarhag.
RÁÐSTÖFUN
ARÐS
Aaðalfundi Loftleiða var
ákveðið að greiða hlut-
höfum 15% arð af hlutafé
sínu. Er þar um heilbrigða
ákvörðun að ræða, því að
það hefur mjög háð rekstri
hlutafélaga hér á landi hve
arðgreiðslur hafa verið tak-
markaðar og oft á tíðum
engar.
Að sjálfsögðu eiga þeir
menn rétt á hæfilegum vöxt
um af fé sínu, sem leggja
það í atvinnurekstur. Þegar
vel gengur eiga þeir að fá
mun hærri arð en svarar
bankavöxtum, því að ætíð
er nokkur áhætta samfara
atvinnurekstri.
Aðalfundur Loftleiða á-
kvað ennfremur að verja
nokkrum hluta arðsins til
launauppbóta handa starfs-
fólki. Það er skynsamleg ráð
stöfun og í samræmi við þá
stefnu, sem margtúlkuð hef-
ur verið hér í blaðinu, að
einskis eigi að láta ófreistað
til að koma á góðu samstarfi
milli vinnuveitenda og laun
þega og tryggja beri laun-
þegum réttmæta hlutdeild í
framleiðsluaukningu og arði,
ekki með úreltum verk-
fallahótunum heldur með
héilbrigðu samstarfi.
FRÉTT AFALSANIR
Thns og Morgunblaðið
skýrði frá í gær varð
kommúnistamálgagninu ís-
lenzka það á að “birta frétt
frá rússnesku fréttastofunni
Tass degi of snemma. Var í
fréttinni skýrt frá því, að
stúdentar í - Mexíkóborg
hefðu látið í ljós andúð á
Kennedy Bandaríkjaforseta
við komu hans til borgarinn
ar, en gallinn var sá að
Kenriedy var ekki kominn
til Mexíkóborgar þegar
blaðið birti fregnina eftir
rússneskum heimildum.
. Má nú segja, að farið sé
að harðna kapphlaupið um
fréttafölsun milli kommún-
istablaðsins og Tímans, og
má ekki á milli sjá, hvor
hefur betur, þótt Moskvu-
málgagnið hafi þau forrétt-
indi að fá fréttirnar samdar
í Kreml, en Þórarinn Þórar-
insson þurfi að semja þær
sjálfur.
Engu að síður líður vart
sá dagur að Tíminn birti
ekki einhverskonar falsanir
og í gær gaf t.d. að líta
þetta:
„Undanfarið hefur Morg-
unblaðið ráðizt hatramm-
lega á Erlend Einarsson
fyrir að hafa ekki óskað
eftir hækkun álagningar í
verðlagsnefnd“.
Þarna, eins og svo oft áð-
ur, er farið með vísvitandi
ósannindi, en hinsvegar gat
★
Svertingjasöngkonan Eartha
Kitt kom fram í brezka sjónvarp-
inu fyrir nokkrum dögum, ásamt
Richard Todd. Hún hefur ekki
sézt í sjónvarpi í Bretlandi í sex
ár og Todd ekki í tvö.
Eartha Kitt var í eina tíð gift
vellauðugum yfirstéttar Englend-
indi, sem var 20 árum eldri en
hún. Þau giftust í New York, og
það hvarflaði ekki annað að brúð
gumanum en fjölskylda hans
tæki henni opnum öripum. En
reyndin varð önnur. Um síðir
voru manninum settir úrslita-
kostir: hann varð að velja á milli
eiginkonunnar og stöðu sinnar.
Hann valdi hið síðarnefnda.
Frá þeirri stund hefur Eartha
Kitt eingöngu helgað sig söng og
leik, þar til hún giftist fyrir
tveimur árum hvítum manni og
hafa þau tekið að sér kjörbarn.
Sjónvarpsatriði Eartha Kitt og
Richard Todd þótti takast mjög
vel og sagði Todd eftir þáttinn:
„Hún er geysilega góð söng- og
leikkona. Ég er alveg stórhrifinn
og er búinn að tryggja mér hana
í kvikmynd".
★
Skilnaðarkrafa Brigitte Bar-
dot fékk svo mikið á Jacques
Charrier, að geðlæknar urðu að
svæfa hann í þrjár vikur til að
losa hann við taugaspenninginn.
— Það kom því öllum á óvart,
þegar hann sást í einni af „neð-
anjarðarbúlum“ Montmartres í
afar innilegum dansi við ljós-
hærða stúlku Hann sagði frétta-
mönnum, a<$ yndisleiki þessarar
stúlku væri ekki falinn í líkam-
legum buglínum hennar, heldur
sálinni.
Charrier hefur ekki viljað
segja nafn stúlkunnar og hin
nýja vinkona hans er talin frá-
hverf öllu umtali. Fréttir herma
að hún sé flugfreyja, alin upp
Tíminn þess að samvinnu-
menn hefðu litla trú á
verðlagseftirliti og raunar
hafa mörg kaupfélög krafizt
afnáms þess.
Þótt menn hafi stundum
gaman af fréttafölsunum, þá
er þó nauðsynlegt að vekja
á þeim athygli, því að þær
miða að því að villa fólk,
gagnstætt því sem er meg-
intakmark allra heiðarlegra
blaða að leitast við að skýra
sem réttast frá staðreynd-
um. —
í Suður-Afríku, af þýzku for-| Meðfylgjandi mynd var tekin,
eldri. Ennfremur er sagt að Bri- þegár frú Jacqueline Kennedy
gitte hyggist nota þessa dular- býður frú Mamie Eisenhower vel
fullu ókunnu stúlku sem skiln- komna til Hvíta hússins, en er-
aðarástæðu. ' I indi frú Eisenhower var að sitja
í fréttunum
Brigitte er nú sögð i þingum
við náunga að nafni Sammy
Frey.
★
Erkibiskupinn af Kantaraborg
sagði blaðamönnum fyrir
skömmu eftirfarandi sögu, sem
gerðist á hans yngri árum.
Hann var að skemmta á kirkju
bazar og lét nokkrar gamansög-
ur fjúka. Þá tók hann eftir blaða
manni, sem skrifaði allt sem hann
sagði niður.
— Eigið þér að segja frá ræðu
minni í blaði yðar, vinur minn?
— Já, það á ég að gera.
— Gerið mér þá þann greiða
og segið ekki frá efni gaman-
sagna minna. í hreinskilni sagt
þá þarf ég að nota þær við önnur
tækifæri. »
Blaðamaðurinn lofaði þessu —
en daginn eftir- las presturinn
eftirfarandi í dagblaði:
„Ennfremur sagði séra Ramsey
nokkrar gamansögur, sem við því
miður getum ekki haft eftir hér
í blaðinu“.
nefndarfund, sem haldinn var í
forsetahúsinu. Núverandi forseta-
frú og fyrirrennari hennar eiga
báðar sæti í nefnd, sem beitir sér
fyrir stofnun alþjóðlegrar menn-
ingarmiðstöðvar.
★
í tímaritinu .National Geograp
hic“ rákumst við á mynd af
manni, sem fáir -vita deili á.
Heitir hann Émile Atai, er bú-
settur á eynni Tahiti og sonur
hins fræga, franska málara
Gaugin. Móðir hans var Tahiti-
búi og fæddist drengurinn árið
1906, þremur árum áður en faðir
hans dó. Á myndinni sést hann
flétta fiskabúr, en ferðamenn sem
koma til eyjarinnar kaupa mikið
af slíkum búrum.
Frú de Gaulle safnar fágæt-
um munum — og borgar vel fyrir
þá, ef því er að skipta.
Nýlega borgaði hún á velgerð-
arsamkomu 60 þúsund krónur
fyrir hálsinn á kampavínsflösku
þeirri, sem notuð var við sjósetn-
ingu franska furðuskipsina
„France“,