Morgunblaðið - 01.07.1962, Page 15

Morgunblaðið - 01.07.1962, Page 15
Sunnudagur 1. júlí 1962 MORGUISBLAÐIÐ II ***** — Litla-Hraun Framhald af bls. 10. ur, liggur bara og er þá enda- laust að velta fyrir sér . . . Eg [held að ekki sé haegt að hafa það betra eftir aðstæðum. — Verst er þegar dómar dragast. Nú bíður hér einn með yfir- vofandi la'ngan fangelsisdóm, sem Hæstiréttur fellir ekki fyrr en í haust. Það reynir geysilega á taugarnar. >á er maður alltaf að vona að tím- inn kunni að verða styttur. En eftir að ákvörðun er tek- in, sjá menn með heilbrigða skynsemi, að þó þetta hafi komið fyrir mann í ölæði, verður að reyna að horfa fram á veg. Þeir sem hafa fengið lengri dómana, líta þannig á það. Aftur á móti hættir þeim sem hafa styttri fangelsisdóma til að vera sífellt að bera sam an við aðra og finnst þá sitt hlutakipti óréttlátt. Líkar ekki erfiðisvinna eða skipanir Er fylgdarmaður minn var á Litla-Hrauni hafði hann byrjað að kenna nokkrum föngum ensku og síðan hann kom þaðan hefur hann fengið senda stíla til leiðréttingar. Á leiðinni hafði ég komizt að því að einn leiðrétti stíllinn átti að fara til 22 ára gamals pilts, sem reynzt hefur gæzlu mönnum flestum erfiðari. Sl. 5 ár er hann búinn að afplána alls yfir 50 mánaða fangelsis dóm og á nú eftir um 14 mán- uði. Er ég leit inn í klefann til hans, sá ég að hann ér einn þeirra fanga, sem í frístund- um sínum búa til falleg nisti úr tekviði með haganlega í- brenndu mynstri og stöfum. Eg rak líka augun í ritvél, en hann fullyrti að hann gerði ekkert með hana, og væri alls ekki að læra neitt eða búa sig undir nokkurt starf er hann kæmi út. Hann hefur tekið að sér þvottana á Litla-Hrauni, þvær á hverjum mánudegi sængurföt úr helmingnum af klefunum ag annað sem til feli ur. — Eg kýs það helzt, segir hann, því þá er ég einn. Mér er illa við sífelldar fyrirskip anir. Hann segir mér að gér líði illa í fangelsinu. Þó reyni hann að humma þetta allt fram af sér. Erfiðust sé bar áttan við sjálfan sig. Ekki virð ist ha nn vita almennilega hvers vegna það er svona erf itt að hafa hemil á sjálfum sér — og þó. — Maður byrgir svo mikið inni og svo ef ein hver geðshræring kemur þá er hætt við að maður geri ein hverja vitleysu. Og taug- arnar eru þá ekki í sem beztu laigi. Nú finnst honum hann hafa verið beittur órétti. Fóst urmóðir hans dó og hann bað um að fá að fara við jarðar- förina, en fékk ekki vegna fyrri hegðunar í fangelsinu. Eg hef reynzt þeim of erfiður, segir hann. Það gleymizt svo sem ekki það sem hann hefur gert. Og hann gleymir þá ekki heldur. Núna hefur hann þó það meiri sjálfstjórn en áður að hann hefur hemil á sér. — Ef þér líður svona illa hlýturðu að vera með allan hugan við það hvenær þú sleppur út. En þegar þú loks- ins færð frelsið, þá er eins og þú hugsir um það eitt að kom ast hingað aftur: — Já, það er rétt. Hér hugsa ég sífellt um það hvenær ég sleppi út. En svo fer maður bara út í skemmtanir og vit- leysu ag gefur sér engan tíma til að hugsa, þegar það er feng ið. Og þá gerist eitthvað. Eg veit svo sem að ef ég hætti, þá verður það ekki öðru vísi en með því að skipta um fé- lagsskap ... En hann gefur lítið út á það hvort hann yfir leitt hugsi sér að gera það. — Hvernig gengur sambúð in við fangaverðina? — Það hefur orðið breyting á föngunum, svarar hann. Það • er eins og öll lætin hafi hætt þegar ég hætti, bætir hann við og brosir drýgindalega. En sambandið mætti vera betra milli fanga og fangavarða. Það segir ekkert þó við brosum hver framan í annan. Eg leita eftir höggstað á þeim, þ.e.a.s. ef mér finnst þeir hafa gert mér eitthvað, hvort sem það er rétt eða ekki. Hinsvegar hafá þeir breytzt til batnaðar, eins og ég sagði áðan. Eink um er það betra síðan þessi nýi tók við hælinu. Nú hefur fangi meiri tækifæri til að leita réttar síns. Það er alltaf hægt að fá að tala við hahn og hann gefur sér tíma til að hlusta á mann utan fasta við talstímans á fimmtudögum. Og það bezta við hann er að hann gefur ákveðin svör, ann að hvort er þetta hægt eða það er ekki hægt. Fangaverð- irnir eru svo sem ekkert afleit ir . . . en fangarnir gefa held ur ekki tilefni til annars. Að lokum segir hann- mér, að hann,voni að hann verði ekki látinn sitja út allan tím ann eða fram á næsta sumar. Hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur, er hann kemiur út? Ekki vill hann viður- 1 kenna að hann hafi neitt hugs að um það. En hann ætlar ekki aftur á togara. Honum lík ar ekki erfiðisvinna, e.t.v. atafar það af því að hann er búinn að liggja svo lengi í leti þarna, segir hann. Von- andi stendur þetta allt til bóta, en hvaða bóta, það veit hann ekki. Magnús Gíslason fré Stokks eyri hleypir abkur út. Hann er einn af þremur fangavörð um, sem eru við gæzlu þenn an sunnudag. Kl. 9 eru vakta skipti. Þá fara þessir þrír á- samt þeim þremur sem taka við og læsa hvern fanga inni í sínum klefa. öðru hverju er svo hringt á þá fram til mið- nættis og einhver fangavarð- anna fer og hleypir fanga fram á salerni. Fangaverðirn ir segja aðspurðir að það hvarfli aldrei að þeim að þeir séu ekki eins öruggir • og heima hjá sér við störfin þarna. Eftir miðnætti fellur allt í ró, þar til menn eru vaktir kl. 8 og klefarnir opn- aðir aftur. Fangaverðirnir eru 9 alls. Forstöðumaðurinn á Litla- Hrauni, Guðmundur Jóhanns son, sem tók við á sl. hausti, var áður lögregluþjónn í Reykjavík. Hann var í nokk urra daga sumarfríi um þessa helgi. Auk þess starfa við búið 3 verkstjórar og 1 fjósameistari. Er við ókum aftur til Reykjavíkur, barst talið enn að fangavist og lífinu innan lokaðra dyra. Samfylgdarmað ur minn lét þá þau orð falla, að jafnvel þó líkamleg aðbúð í fangelsum sé óaðfinnanleg, þá geti enginn gert sér í hugar lund hvað það er að vera sviptur frelsi sínu og lokaður inni. Hann segist ekki munú gera tilraun til að útskýra það fyrir neinum, sem ekki hafi reynt það sjálfur. — E. Pá. Úti- og innihandrið ur jarm. VÉLSMIÐJAN Sirkill Hringbraut 121. Símar 24912 og 34449. Skrúðgarðaúðun með Diazinon Óþarfi að loka garðinum. — Drepur ekki fugla.- Ameriskar kvenmoccasiur Gróðrarstöðin við Miklatorg. Sími 22-8-22 og 19775. ferda slysa tryggingar ALMENNAR SKÓSALAN Laugavegi 1 SKURÐGRÖFUR með ámoksturstækjum til leigu. Minni og stærri verk. Tímavinna eða akkorð. Innan- bæjar tða utan. Uppl. í sima 17227 og 34073 eftir kl. 19. Pósthússtræti 9. Síml 1-77-00. ouició & oóir Óvenjuleg verðlækkun á blóm um. Rósir frá kr. 3,50 Nellikkubúnkt kr. 25. Blómstrandi Hawai-rósir. Gróðrastöðin við Miklatorg. Símar 22822 og 19775. Hreinsunarkrem — Citrónudagkrem — Ferskjudag- krem — Speeial-næringarkrem — Anti Pore-næringar- krem — Jprtakrem — Andlitsvatn — Handáburður__________ Make 6 litír. GangsféHahellur - Garðhellur EHÉE NÝTT; Höfum nú fyrirliggjandi hinar vinsælu hellur ca. 20x40x9 cm. með rauð- leitri, slípaðri, „terrazzó-líkri“ áferð á aðeins kr. 12.00 stk. Einnig með grófri, rauð leitri áferð á kr. 9.50 stk. og úr steypu með sléttri, grárri áferð á kr. 9.50 stk. — Tökum við pöntunum á 50x50x7 cm. hellum með rauðleitri, slípaðri, „terrazzó- líkri*' óferð á kr 30.00' stk. og með venjulegri áferð á kr. 25.00 stk. Bjóðum hagstæða greiðsluskilmála — sendum heim. Sýnishorn hjá Byggingaþjónustunni, Laugavegi 18A. Jón Loftsson hf. HRINGBRAUT 121 — SÍM 10600.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.