Morgunblaðið - 18.07.1962, Blaðsíða 12
12
M OR C JÍIN B L AÐ lÐ
Miðvikudagur 18. júlí 1962
í tilefni af afmæli mínu 13. þ.m. vil ég af alhug þakka vin-
um mínum og vandamónnum alla auðsýnda vináttu og
gjafir. Sömuleiðis vil ég af hjarta þakka frú Herdísi Ás-
geirsdóttur forstöðukonu okkar orlofskvenna að Laugar-
vatni fyrir alla umhyggju hennar og gæði og öllum ykkur
kæru orlofskonur þakka ég fyrir skeytið og allan hlýhug
ykkar til mín. Guð blessi ykkur allar.
Ingibjörg Gamalielsdóttir.
150 — 300 fermelra
iðnaðar- eða geymsluhúsnæði óskast á leigu, má vera
á tveim hæðum. Tílboð merkt: „7551“ sendist Mbl. sem
fyrst.
fc-yVfcgO-ltel
Móðir og stjúpmóðir okkar
MARGRÉT SIGLRÞÓRSDÓTTIR, Garðsstöðum Ves+m eyjum |
andaðist í Landsspítalanum 16. júlí.
Fyrir hönd ættingja og vina.
Synir og stjúpbörn.
Maðurinn minn og faðii okkar
EINAR EINARSSON, Rauðarárstíg 30
andaðist aðfararnótt þess 17 júlí.
Elisabet Sigurðardóttir og börn.
Faðir minn
KRISTJÓN ÁGÚST ÞORVARDSSON frá Leikskálum
lézt í sjúkrahúsi Keflavikur 13. þ.in.
Hákon 'Heimir Kristjónsson.
Eiginmaður minn
ÁRNI JÓNSSON frá Lágafelli, Skipasundi 34
andaðist á Landsspítalanum mánudagjnn 16. júli
Fyrir hönd vandamanna.
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Jarðarför systur minnar
EVU HJÁLMARSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 19. júlí.
Karl Hjálmarsson.
Útför konu minnar
PÁLÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Stóragerði 18
fer fram föstudaginn 20. júlí og hefst með minningarathöfn
í Fossvogskirkju kl. 10:30. Jarðsett verður að Stóra-Núpi
sama dag kl. 3. — Blom afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hennar láti líknarstarfsemi njóta þess.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna
Magnús Bcrgsson.
Útför eiginmanns míns og sonar,
SIGURÐAR ÓLAISSONAR, strætisvagnastjóra
sem andaðist 11. þ.m. fer fram frá Dómkirkjunni föstudag-
inn 20. júlí kl. 10:30 árdegis. — Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigrún Joliannesdóttir, Vigdís Þórðardóttir.
Móðir og tengdamóðir okkar
INGIBJÖRG GUNNARSDÓTTIR, Skóiavörðustíg 27,
sem andaðist 10. þ.m. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 19. þ.m. kl. 13,30 e.h.
Ragnhildur Einarsdóttir, Hjalti Einarsson,
Þóra Borg, Bjarni Jónsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð vð andlát og jarðar-
för
HERMANNS ÓLAFSSONAR
fyrir hönd systkina.
Vilberg Hermannsson.
§|fg ':M.mm **J**,,”-~*~''*'
]gum gagnflau
sem getur hitt flugu
— sagði Krúsjeff við fréttameim -
Moskva, 16. júlí (NTB) —
I viðtali, sem fjórtán bandarískir
blaðamenn áttu við Krúsjeff for-
sætisráðherra Sovétrikjanna og í
dag var heimilað að birta, segir
forsætisráðherrann, að Sovétríkin
eigi nú gagnflaugar sem séu svo
nákvæmar, að þær geti hitt flugu
í geimnum. Krúsjeff sagði einnig
í 'viðtali þessu, að Sovétríkin
hefðu í hyggju að gera friðar-
samning við A-Þýzkaland, en
bætti við, að ekki væri ákveðiö
hvenær það yrði.
Krúsjeff sagði, að hann hefði
lesið skýrslur frá Bandaríska
varnarmálaráðuneytinu, sem í
segði, að Bandaríkin gætu greint
kjarnorkutilraunir neðanjarðar
Dregið í
happdrættisláni
DKEGIÐ hefur verið í B-flokki
Happdrættisláns ríkissjóðs,
75,000 kr.: 146.042.
40.000 kr.: 88.508.
15,000 kr.: 80.264.
10,000 kr.: 76766 92271 137398.
Birt án ábyrgðar)
frá jarðskjálftum. Sagði Krúsjeff,
að þessi skýrsla hefði orðið hon-
um til ánægju, því að ef hann
skildi hana rétt gæfi hún nýjar
vonir um að bann við kjarnorku-
tilraunum muni nást.
í viðtalinu sagði Krúsjeff, að
tilraunir Bandaríkjamanna með
kjarnorkuvopn að undanförnu
gerðu það að verkum, að Sovét-
ríkin eyddust til að hefja tilraun
ir að nýju, nema því aðeins að
samkomulag náizt um eyðilegg
ingu allra kjarnorkuvopna og al-
gjöra afvopnun.
Ljotur
verknaður
ÞAÐ VORU daprir drengir,
sem komu í heimsókn á rit-
stjórnarskrifstofur Morgun-
blaðsins á laugardagsmorgun
inn siðasta. Þeir höfðu verið
á gangi suður með Tjörn
skammt frá Hljómsikálanum
þegar þeir fundu lítinn andar
unga liggjandi á jörðunni dá
inn. Það hafði verið bundið
snæri um há.lsinn á honum.
Hvort einhver hefur ætlað
sér að teyma hann, eins og á
sér stað með hesta og stund
um hunda, er ekki gott að
segja. Hitt getur því miður
líka verið, að einhver sé nógu
illa innrættur til að hafa af
ásettu ráði, bundið snæri um
háls litla nngans, til þess eins
að deyða hann.
En hvort sem heldur er, i
[ættu öll börn að festa sér það !
) vel í minni — og hugsa um að i
|— að slíkt má aldrei gera. Og
[það má aldrei gera dýrum
| neitt mein.
Á myndinni sézt unginn
litli hangandi í snörunni, með
höfuðið liggjandi máttvana I
niður. — Sá, sem á honum
heldur heitir Ingimundur
Einarsson, 9 ára, en hægra.
megin eru þeir Karl og Axel
Björnssynir, 8 og 10 ára gaml
ir. Það voru þeir vinirnir,'
sem fundu ungann litla og
ætluðu svo að jarða hann'
seinna á laugardaginn.
Rússar haína tillögu
Vesturveldanna um Berlín
Drengur íyrir l*íl
LAUST fyrir klukkan 13 í fyrra
dag varð það slys á mótum Saot-
ihúsvegar og Suðurgötu að sjö ára
drengur, sem þar var á reiðlhjóli,
varð fyrir bíl og skall í götuna.
Slapp drengurinn með minni
háttar meiðsli.
Moskvu, London, 16. júlí
— NTB-AP —
Á LAUGARDAGINN sendi sov-
étstjórnin Bandaríkjunum, Bret-
landi og Frakklandi orðsend-
ingu, sem svar við orðsendingu,
sem þessi þrjú ríki sendu henni
25. júní sl. í orðsendingu Vest-
urveldanna þriggja var lagt til,
að fulltrúar fjórveldanna kæmu
saman til viðræðna um ástand-
ið í Berlín. 1 orðsendingu sinni
hafnar sovétstjómin þessari til-
lögu.
★
Tass-fréttastofan skýrði í
dag frá innihaldi orðsendingar
Sovétríkjanna og segir m.a. í
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
sem okkur var sýndur við andlát óg jarðarför
LAUFETJAR JONSDÓTTUR, Nýjabæ, Garði
Guðríður Sigurðardóttir
Viðar Hjaltason,
Dagbjört og Ingibjörg Jónsdætur.
Síldveiði Norðmanna við
ísland mun meiri en sl. ár
BERGEN, 16. júlí. (NTB) — Þær
i fregnir bárust í dag frá síldar-
! efiirlitaskipinu „Draug“, á Ls-
I landsmiðum, að brugðið hefði til
j bata með veiði. Skeyti frá
; skipinu er sent kl. 8.56 og hljóðar
I Þannig:
Samkomur
Kristniboðssambandið
Fórnarsamkoma í kvöld kl. 8.30
í kristniboðEihúsiinu Betaníu, Lauf
ásvegi 13. — Cand. theol. Gunnar
Sigurjónsson.
Allir velkomnir.
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerindisins
Hörgshlíð 12, Rvík kl. 8 e. h.
„í nótt var góð síldveiði um 70
sjómílur út af Langanesi, jöfn
veiði, um 1000—3000 hekfólítrar
að meðaltali. Flutningask'ip
vaintar".
í fréttatilkynningu frá skrif-
stofum sildaru uv egsmanna segir
ennfreinur, að vegna stoorts á síld
arflutningasikipum líti út fyrir,
að margir síldarbátar verði að
sigla með aflann til Noregs.
Tilkynning barst um að alls
væru nú 24 síldarbátar og 4 flutn
ingasikip búin til heimferðar með
um 90.300 hektólítra. Þannig er
heildaxafli norsku bátanna í ár
kominn upp í 630.000 hekfólítra,
en var í lok ágústmánaðax í fyrra
950.000 hektólítrar.
henni, að sovétstjórnin telji ó-
hugsaridi að hægt verði að
koma á eðlilegu ástandi í
Berlín, ef ekki verði gerður
friðarsamningur við Þýzkaland
innan tíðar. Vopnaviðskipti þau
sem til hafi komið á mótum
A- og V-Berlínar séu aðeins að
kenna ævintýramönnum og
þeim, sem styðji slíka menn.
Sovétstjórnin segist harma
það, að fulltrúar stjórna Vest-
urveldanna í Berlín hafi ekki
gert neitt til að stöðva ögranir
af hálfu lögreglunnar í Vestur-
Berlín og fasískra afla þar á
borgarmörkunum. Þvert á móti
ýttu bandarísk yfdrvöld í borg-
inni og bandaríska stjórnin
opinberlega undir þessar að-
gerðir og hið sama gerðn
stjórn V-Berlínar og v-þýzka
stjórnin.
Sovétstjórnin lýsir 1 orð-
sendingunni undrun sinni yfir
því, að stjórnir Vesturveldanna
þriggja skuli vilja reyna að
minnka spennuna í Berlín með
fjórveldafundi í borginni og
lætur í ljós það álit sitt, að
með tillögunni vilji stjórnirnar
aðeins hlutast til um innanríkis
mál A-Þýzkalands. Þar af leið-
andi lýti sovétstjórnin þannig
á þetta mál, að það sé hvorki
hægt að ræða það á þein»
grundvelli, sem Vesturveldin
leggja til, né neinum öðrum
grundvelli.
Talsmaður utanríkisráðuneytia
Bandaríkjanna lýsti vonbrigð-
um yfir hinni neikvæðu af-
stöðu sovétstjórnarinnar. Hann
vildi ekkert segja um hvað
yrði næsta skref Bandaríkjanna
i Berlínarmálinu.