Morgunblaðið - 22.07.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.07.1962, Blaðsíða 3
* l; Sunnudagur 22. júlí 1962 MORGVNBLAÐIÐ Biskupinn yfir Islandi framan við nýju kirkjuna í Skálholti. Skálholtskirkja vígð næsta sum- ar á helgasta grunni landsins BISKUP tslands, hr. Sigur- björn Einarsson bauð frétta- miinnum í Skáiholt sl. föstu- dag, á Þorláiksmessu í sumri, eins og áður hefur verið frá skýrt. Unnið hefur vetrið að nýju kirkjunni, að undan- fömu sett í hana loft úr falleg um viði sem Norðmenn hafa gefið, nýbúið að steypa gólfið í kórnum og fyrir dyr- um stendur að setjá á gólfið flísar. Sagði biskup, að von- ir steeðu til að hægt yrði náesta sumar að vígja þessa kirkju, sem stendur á helg- asta grunni þessa lands. í kirkjuna eru nú komnar 3,5 millj. kr., en mikið hefur verið gefið í hana frá Norður- löndum. Alls munu komnar í uppbygginguna í Skálholti ríf- lega 10 millj. og er þá talið ibúðarhús fyrir bónda og stórt hús á hlaðinu, sem bíður eftir sínu hlutverki. >ví er þó ekki lokjð að innan. Sagði biskup, að nú færi að líða að því að kirkjan verði fulilbúin og vígð. En hvað tek ur svo við? Töluvert hefur verið raett um hlutverk staðar ins, uppástungur verið marg- ar og ekki laust við að óþolin- mæði gætti í tali manna. Sjálf ur sagði bjskup, að sér fynd- ist ekki óeðlilegt að nokkurr- ar umhugsunar þyrfti hér við. Á þessari stundu væri ísl. þjóð kirkjan einhuga um einn hlut, að í Skálfaolti skuli verða kirkjulegt menntasetur. Um það hefði skapast eimhugur og undirbúningur bominn á rekspöl. Það fyrsta yrði lýð- hástkóli. Hann gat þess, a'ð lýð- háskólafólkið danska hefði verið okkur góðir stuðnings- menn í 100 ára frelsisbaráttu okkar, síðast en ekki sízt í 'handritamálinu, Lýðháskól- arnir á Norðurlöndium starfa á kristnum grundvelli. Ætti lýðháskólalhugmyndin í Skál- holti, sem var eitt af fyrstu aitriðunum á stefnuskrá Skál- holtsfélagsins, miklu fylgi að fagna á Norðurlöndum og mundi það leiða til þess að sbofnunin yrði samnorræn stofnun. Sá helgidómur, sem nú er að rísa, væri nor- rænn og til hans hetfðu borizt margar dýrindis gjafir frá Norðurlöndum. Mundi hann efla norræna samvinnu og það mundi lýðháskóli einnig gera. Þá vék biskup að misskiln- ingi sem komið hefði fram um tillögur hans sjálfs varð- andi biskupstól í Skállholti. í upphafi var á stefnuskrá Skálholtsfélagsins að vígslu- biskup Skállholtsdæmis skyldi sitja í Skálholti og £á þau verkefni, sem heppileg þættu. Þá ritaði biskup grein í Víð- förla, þar sem hann lagði þetta til, en bætti við að hann ætti þar ekki við að bisikup- inn yfir íslandj flyttist frá Reykjavík í Skálholt. Þessi hugmynd fékk ekki nægilegt fylgi, m.a. ekki á kirkjuþing- inu 1953, þar sem samlþykikt var að biskupar skyldu vsra tveir, annar á Afcureyri með aðstöðu til divalar á Hólum og hinn í Reykjavík með aðstöðu til dvalar í Skálholti. Þetta er það síðasta sem kirkjan hef- ur látið frá sér fara um mál- ið og kvaðst biskup verða að telja þetta endanlega skoðun hennar. Kvaðst hann hafa orð- ið var við, að sér sé persónu- lega legið á hálsi fyrir að biskupinn yfir íslandi skuli ekki vera kominn í Skálholt, en sæmilega athugulir menn hljóti samt að sjá að sú ákvörð un sé ek'ki á hans valdi. Sjálfur Mvaðst hann geta sagt að þeir staðir væru fáir sem hann vildi heldur eiga heima á en Skálholt. í fyrsta lagi væri hann sveitamaður, í öðru lagi hefði hann á upp- vaxtarárum sínum divalizt þar á næsta bæ hjá föður sínum, og þá bæri hann töluverðar taugar til þessa staðar. Og í samtali við blaðamenn kvað bisbup það sína sfcoðun, að annað hvort múndj verða, að vígslubiskup yrði fluttur í Skálholt eða biskup landsins. Biskup kvað sér óhætt að fullyrða, að kirkjunnar menn fyndu til ábyrgðar og fyndist sér bera að hafa forgöngu um málefni Skáliholts. En nauðsyn leg.t væri að kirkjan fengi úr því skorið hvort hún hefði heimild til að hafast þar eitt- hvað að og einnig að hún fengi stuðning til þess að koma í framkvæmd því sem með þarf. — Það er kirkjan sem hefur skapað þá helgi sem yfir staðnum býr, sagði biskiup. Þess vegna hlyti að vera eðlilegt að kirkja lands- ins fengi staðinn, ásamt hæfi- legum fjárstuðningi. Kvaðst biskup þeirrar trúar að ef kirbjunni yrði veitt þessi til- trú og þetta tækifæri, þé mundi verða í Skálholti það sem yrði þjóð okkar til lyft- ingar og blessunar. Séra Jónas Gislason: Prói Guðs ,„En svo bar viS, er mannfjöld- inn þrengdist að honum og hlýddi á Guðs orð. og hann stóð við Gen- esaretvatnið, að hann sá tvo bába, er stóðu við vatnið, en fiskimenm- irnir voru farnir frá þeim og voru að þvo net sjn. Fór hann þá útí annan bátinn, sem Símon átti, og bað hann að leggja litið eitt frá landi. Settist hann þá niður og kenndi mannfjöldanum úr bátnum. En er hann hafði lokið rseðu sinni, sagði hann við Símon: Legg þú út á djúpið, og leggið net yðar til fiskidráttar. Og Simon svaraði og sagði: Meistari. vér höfum setið í alla nótt og ekki orðið varir, en en eftir orði. þínu vil ég leggja netin. Og er þeir höfðu gjört það. lokuðu þeir inni mikla mergð fiska en net þeirra rifnuðu. Og þeir bentu félögum sínum í hinum bátnum, að þeir skyldiu koma og hjálpa sér, og þeir komu og drekk- hlóðu báða bátana, svo að við lá, að þeir sykkju. En er Símon Pét- ur sá þetta, féU hann að knjám Jesú og sagði: Far þú frá mér, herra, því að ég er syndugur mað- ur. Því að hann var gagntekinn af undrun og allir þeir, sem með hon um voru, út af fiskiafla þeim. sem þeir höfðu fengið, sömuleiðis og Jakob og Jóhannes Zebedeussynir, sem voru félagar Símonar. Og Jes- ús sagði við Símon: Vertu óhrædd- ur, héðan i frá skalt þú menn veiða. Og þeir drógu báta sina á land, yfirgáfu allt og fylgdu hon- um." Lúk. 5, 1-11. I. Stunduim, er ég hef lesið frá- sögn guðspjallsins í dag um köll un Símonar Péturs til trúar og starfs fyrir Jesúm Krist, hef ég spurt sjálfan mig: Hvað hefði gerzt, ef Símon hefði neitað að verða við beiðni Jesúm um að leggj a netin aftur til fisikidrátt- ar? Orð Jesú hljóta að hafa hljóm- að undarleiga í eyrum hans. Sím- on Pétur þefekti vel þetta vatn, án alls efa miklu betur en þeir menn aðrir, sem höfðu ekiki að- alatvinnu sína við það bundna og sóttu daglega björg sína í djúp þess. Hann þekkti beztu fiskimiðin. Hann vissi, hvenær helzit var fiskivon. Hann vissi eflaust ekki síður, hvenær von- lítið væri að leggja netin, Nú hafði Símon setið heila nótt og alls ekki orðið var. Er hann kemur að landi í dögun, hefur hann verið sannfærður um, að nú væri lítil von um afla að sinni og alls enginr. þann dag, enda ekki rétti ttminn til veiða. Svo mætir hann Jesú. Það er engin tilviljun, að Jes- ús velur bát Símonar sem ræðu- stól, er hann flytur mannfjöld- anum fagnaðarerindi guðsríkis- ins. Þegar hann hefur lokið préd- ikuninni, snýr hann sér til fiski mannsins og segir við hann Legg þú út á djúpið. Biskup landsins, herra Sigurbjörn Einarsson, i hinu forna Þorlákssæti við Skálholt. Hversu undarlega hafa þessi orð ekki hljómað í eyrum fisfci- mannsins? Hann hafði hlustað hugfanginn á prédikunina. Haim hafði reyndar áður mætt Jesú við Jórdan og hafði hrifizt af boðskap hans. Á því er enginn efi. En þessi orð Jesú koma hon- um áreiðanlega mjög á óvart. Hvað gat þessi ókunni farand- prédikari vitað um fiskivon á Geneservatni? Hlaut ekki Símon sjálfur að vita miklu betur? Eng inn efi er á því, að mannleg skynsemi hefði svarað þessari beiðni neitandi. Það er til einsk- is. Ég hef reynt og ekki orðið var. En Símon var snortinn af þessum manni ag þeim boðskap sem hann flutti. Hann fann kraft inn, sem hann talaði með. Og um leið og har. tilkynnir honum um hina árangurslausu veiði- för um nóttina, er hann reiðu- búinn að reyna aftur. Svo mik- ið var traust hans á Jesú Þá gerist undrið. Netin fyllast á svipstundu. Fiskimennirnir verða að biðja uni hjálp frá landi Og Símon sannfærist endanlega um, að hér stendur hann frammi fyrir persónu, sem er einstök. Hann sér máttinn, sem hann hef- ur yfir að ráða. Hann hefur séð kraftaverk gerast. Svo mi'kið er honum lióst. Svo vel þefckir hann vatnið sitt. Og um leið finnur hann sig óverðugan að vera I nálægð þessa manns. Ég spyr aftur: Hvað hefði gerzt, ef Símon hefði óhlýðnast boði Jesú? Einfaldelga þetta: Ekkert kraftaverk. Engin sönnun á valdi og mætti Guðs. Bkkert kall til starfe. Símon hefði fallið á próf- inu. Símon var vissulega að ganga undir próf þarna í bátnum. Jes- ús var að prófa traust hans. Hann var að prótfa, hvort hann væri hæfur til hins mikla og háleita hlutverks, sem honum var ætlað. Og Símon stóðst prófið. Prótf Jesú var ekfci fólgið í mati á þekkingu eða lærdómi. Það var fólgið í því að prófa traustið á ■sér, trú hjartans. Áð trúa á Guð er að treysta Guði skilyrðislaust, einnig þeg- ar skynsemi okkar kann að segja að hún skilji ekki til fulls. Að trúa er að treysta þv1, að vilji Guðs með líf okkar sé hinn bezti jafnvel þótt hann stefni stund- um í aðra átt en okkar eigin vilji. Að trúa á Guð er fólgið í því að fela Guði alla vegu sína og treysta því, að hann muni vel fyrir sjá. Símon stóðst þetta próf. Þese vegna gat Guð notað hann til að vinna stórvirki í starfinu fyrir guðsríkið. Þannig próf leggur Guð oft fyr ir okfcur mennina. Hann reynir hlýðni oikkar við sig, hann reyn- ir traust okkar á sér. Stundum kann að virðast erfitt að sjá til- gang Guðs í því, sem mætir okk- ur, en þó er það víst, að hann sleppir aldrei hendi sinni af nein um þeim, sem honum treystir og leitar sér hælis hjá honum. Hefur þú staðizt próf Guðs? Hefur þú þorað að fela þig al- gerlega honum á vald í fullu trausti til náðar hans? Ef þú þorir að fela þig Guði á vald, fær þú að reyna miskunn hans og kærleika. Þá fær þú að sjá kraftaverkið gerast í lifi þínu. Ef þú ert hræddur og þorir ekki að hlýða boðum hans, þá getur þú farið á mis við þá náð, sem hann ætlaði að veita þér í prófrauninni. Lærum af guðspjalli dagsins að treysta Guði. Lærum að fela okkur honum á vald. Þá munum við einnig fá að reyna náð hans 1 ríkum mæli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.