Morgunblaðið - 26.07.1962, Side 8

Morgunblaðið - 26.07.1962, Side 8
8 M o » r. n w f» r 4 x> f fþ Fimmtudagur 26. júlí 1962 Umferð hleypt ó Acsturveg í huirst Fyrsti katrli Kefiavíkur- steyptur í sumar vegar Rætt við vegamálastjóra um helztu framkvæmdir í sumar BLAÐIÐ hafði í gær tal af Sig- urði Jóhannssyni, vegamála- stjóra og innti hann frétta af framkvæmdum við vegagerð og brúasmíðar á yfirstandandi sumri. Lét vegamálastjóri þess getið í upphafi máls sín, að til vegagerða væri á þessu ári veitt- ar alls kr. 28.8 millj. en til brúar- smíða væri varið kr. 26.2 millj. þar af kr. 13.5 millj. úr brúa- sjóði. — Talsverðar framlkvæmdir eru nú í Borgarfirði og nágrenni og muh nú verða smíðuð brú á Draglá á Draghálsvegi. Er hún 16 m á lengd. Smíði nýrrar brúar á Gljúfurá lokið í haust. —• Allmikið er unnið víða um Borgarfjarðar- og Mýrasýslur og aná geta þess, að nú er kominn skaplegur vegur allt fram að Karlmannstungu, en af fram- kvæmdum lengra uppi í Borgar- firði má telja endurbyggingu brúarinnar yfir Gljúfurá athyglis verðasta. Er hún byggð fyrir fé brúarsjóðs og áætlaður kostnað- ur við hana er um 4 millj. kr. Brú þessi er mikið mannavirki, eins og fram hefur komið í blöð- um og er áætlað, að umferð um hana geti hafizt í haust. Brúin, sem er 63 m á lengd og í þremur höfum, hefur 7 m breiða ak- braut. Vegurinn liggur beint á brúna og losna ferðalangar þann- ig við hinn illræmda krók, sem liggur niður að gömlu brúnni. Á neðanverðum Mýrum er unnið að Þveriioltavegi og mun lagningu hans verða lokið í haust, 4 sleppt úr stofu- fangelsi Madrid, 23. júlí — AP. ÞAÐ var tilkynnt í dag, að fjórum OAS-foringjum, sem setið hafa í stofufangelsi, hafi nú verið sleppt úr haldi, og þeim leyft að fara úr landi, eða dvelja hvar sem er á Spáni. Meðal þeirra eru Pierre Lagaillard sem dæmdur hafði verið til 10 ára betrunarhúss- vinnu af frönskum dómstól, og J. Ortiz, sem dæmdur hafði verið til dauða. en auk þess er unnið að Saura- vegi. Lagningu vegar fyrir Ólafsvík- urenni hefst í sumar. — Á sunnanverðu Snæfells- nesi er unnið að Útnesvegi hjá Hólaihólum og í sumar verður byrjað á veginum fyrir Ólafs- víkurenni. Venjulega er mjög illfært fyrir Ennið, því vegurinn liggur í fjörunni, rétt ofan við sjávarmál og gengur sjór yfir hann á flóði. Hinn nýi vegur mun verða ssíðasti áfang- inn í vegagerð umhverfis Snæ- fellsnes og styttir mjög leiðina frá Sandi til Ólafsvíkur. Verður nú hafizt handa við að leggja veg upp að Enninu, en síðan verður að sprengja hann inn í bergið á löngum kafla og mun hann liggja í u.þ.b. 15—20 m. hæð yfir sjó. Vegagerð þessi mun verða mi'kið mannvinki og kostnaðarsamt •— Við veginn milli Ólafsvíkur og Grafarness, Búlandshöfðaveg, sem opnaður var fyrir umferð í fyrra, er einn.g unnið nú í sum- ar. í Dölunum er aðallega um að ræða minni háttar framkvæmd- ir, þar er nú hafi bygging nýs mjólkurbús og því keppast menn við að komast í vegasamiband og er m.a. unnið við Klofnings- og Skarðsstrandarveg og var brú gerð á Haukadalsá, og er hún um 40 m á lengd. — í Gilsfirði kemst í umferð 3 km. nýr vegur á Holtahlíð, en vegurinn hefur þar legið eftir fjörunni og hafa menn orðið að sæta sjávarföllum til að komast eftir honum. Stöðugar framkvæmdir .» Vest- fjörðum. Á Vestfjarðarleiðinni, er nú unnið við Vatnsfjörð og gerð hefur verið bni á Mjóufjarðará á Þingmannaheiði. í Önundar- firði hafa verið byggðar tvær smábrýr inni í fjarðarbotninum og tekinn í notkun vegarkafli, sem styttir leiðina til Ísafjarðar um 3 km. Við sunnanvert Djúp er aðeins unnið að ögurvegi og standa vonir til, að akfært verði út í ögur í haust og verður m..a. byggð brú á Laugardalsá í ögur- hreppi. Á Ströndum er unnið við veginn frá Gjögri inn í Reykja- fjörð og einnig á svonefndum Selstrandarvegi norðan við Stein grímsfjörð og á Strandavegi sunnan Guðlaugsvíkur. Á Strandavegi verður endurbyggð gömul trébrú á Þambá. Ný brú á Blöndu — tveggja akbrauta. — I Húnavatnssýslum standa miklar framkvæmdir fyrir dyr- um og má þar helzt nefna, að í sumar er unnið við að srníða nýja brú yfir Blöndu hjá Blöndu ósi. Gamla brúin, sem nú er orð- in alltof mjó og veikbyggð, er önnur af tveim brúm á landinu, sem byggðar voru fyrir aldamót og standa enn, en Blöndubrú var byggð árið 1897. Nýja brúin verð ur 69 m á lengd í þrernur höfum og munu iiggja tvær akbrautir eftir henni, en 1 m gangbrautir munu liggja hvorum megin vegna mikillar umferðar gang- andi fólks um brúna, en eins og kunnugt er, liggur hún í miðju þorpinu. Verður önnur akbraut- in tekin í notkun í haust, en síðan verður að rífa gömlu brúna, svo að unnt verði að hefja -vinnu við hina akbrautina og hefjast þar framkvæmdir í haust. Næsta sumar verður þannig akfært eftir tveim brautum um brúna. Nýja brúiin er að því leyti merkileg, að hún verður fyrsta brúin á landinu, sem byggð er úr for- spenntri steypu, en sú aðferð hef ur allmikið verið notuð við brúa- smíðar erlendis með góðum ár- angri. Strákavegi miðar vel. — f f Skagafirðinum verður byggð 40 m. brú á Hofsá í Vestur dal og auk þess brýr á Vala- dalsá og Sæmundarhlíðará. í ut- anverðum firðinum verður full- gerður vegur frá Hofsósi til Haga nesvíkur og á þeirri leið var byggð brú á Stafá. Töluvert er unnið í Siglufjarðarvegi ytri, svonefndum Strákavegi, áleiðis að Strákum, þar sem jarðgöng- in munu koma, en þau verða um 900 m á lengd. — í Suður Þingeyjarsýslu er töluvert unnið að Fnjóskadals- vegi og er ráðgert að endur- byggja brúna á Fnjóská hjá Lauf ási. í S-Þingeyjarsýslu er annars aðallega unnið í Þingeyjarsýslu- braut, sunnan Húsavíkur og um hverfis Tjörnes. í N-Þingeyjar- sýslu standa yfir framlkvæmdir urohverfis Kópasker og milli Raufarhafnar og Þistilsfjarðar. Þar var opnaður ruðningsvegur í hitteðfyrra og verður þar brú- aðar ár, Kollavíkurá og Víði- nessá. Vegur opnast með Austfjörðum. — Á Austurlandsvegi verður tekinn í notkun 4 km. vegar kafli á Mývatnsöræfum og vænt- anlega verður lokið við kaflann frá Víðidal að Skarðsá, vestan Möðrudals. — Á Fljótsdalshéraði hafa verið byggðar tvær brýr í Jökulsárhlíð í Fögruhlíðará. Von ir standa til, að í sumar verði ak fært frá Stöðvarfirði yfir í Breið dal og þá opnast leið með fjör- unum allt frá Reyðarfirði til Breiðdalsvíkur og verður byggð 20 m brú á Stöðvará. — Á Austur landisvegi, sunnan Lagarfljóts hefur töluvert verið unnið í Skriðdal, Breiðdalsheiði og einnig á Austurlandsvegi á Beru fj arðarströnd og Hamarsfirði. Á Berufjarðarströnd verða byggð- ar tvær smábrýr, en sá kafli er nú hinn versti á leiðinni til Hornafjarðar. — f Austur-Skaftafellssýslu verður byggð brú á Reyðará Lóni og unnið er að Suðurlands- vegi um Mýrar, vestan Horna- fjarðarfljóts. — Eins og kunnugt er, var um sl. helgi opnuð til um- ferðar 138 m. löng brú á Fjallsá á Breiðamerkursandi í Vestur-Skaftafellssýslu verð- ur nokkuð unnið í Eldhrauni, Búland'svegi og ýtt hefur verið upp 8 km. vegi á Mýrdals sandi, milli Hafurseyjar og Múlakvíslar. Er sá vegur aðal- lega ætlaður fyrir vetrarumferð. Unnið er að endurbyggingu þrú- ar á Klifanda í Mýrdal. Er það 103 m löng brú, byggð úr strengja steypubitum. Einnig verða end- byggðar brýr á Skógá undir Eyjafjöllum, en hún er 36 m löng, á Affalli og önnur smábrú þar skammt frá. — f Rangárvallasýslu er unnið að ýmsum vegum, Rangárvalla- vegi efri, endurbyggingu Suður- landsvegar í Holtum o.fl. — í Árnessýslu hefur verið unnið í Laugardalsvegi í sam- bandi við brýr á Skillandsá og Brúará, en þær voru teknar í notkun si. haust og opnuðu leið frá Laugarvatni til Geysis og unnið verður í Gullfossvegi og Grafningsvegi og er byrjað að ryðja jeppaveg yfir Lyngdals- heiði. Líkur á að Þrengslavegur verði opnaður í haust. — Framkvæmdir standa nú yfir við Austurveg um Þrengsli. Sem stendur eru unnið austan við Vindheima, upp fjallið. Von- ir standa til þess, ef nægilegt fjármagn fæst, að urtnt verði að hleypa umferð á Austurveg í haust og losna þannig við snjó- makstur á Hellisheiði. Byrjað að steypa Keflavíkurveg i haust. — Nú er unnið á tveimur stöð um í Keflavíkurveginum, sunn- an við Hafnarfjörð og á Voga- stapa. Ráðgert er, að fyrsti 5 km kafli vegarins verði steyptur haust og mun það verða rétt sunnan við Hafnarfjörð. .. Viðhald erfitt sakir kostn- aðar vegna klakaskemmda á sl. vetri. — Vegna kvartana, sem sífellt heyrast um slælegt viðhald veg- anna, lét vegamálastjóri þess get ið, að enda þót sl. vetur hafi hafi ekki verið mjög snjóþung- ur, varð hann vegargerðinni helm ingi dýrari en veturinn þar á und an, vegna skemmda af völdum holklaka. Þær hafa eklki verið svo miklar í heilan áratug og varð að verja 5 millj. kr. hærri upp hæð í vor til að bæta skemrodir eftír veturinn en vorið áður. i, og gerir það svo aftur að Þetta bitnar svo á sumarviðhald- verkum, að ekki er unnt að búa vegina nægilega vel undir vetur- inn og styrkja þá, svo búast má við, að klakaskemmdir verði mjög miklar næsta vetur, ef hart verður í ári. — Kostnaður vegna vetrarskemrodanna hafa einnig í för með sér, að ekki er unnt að verja nægilegu fé til nauðsynlegra aðgerða, s. s. að breikka mjó ræsi og lagfæra ýmsa hættulega staði. — Nú í sumar hefur verið unn ið að því að láta upp ný merki á aðalvegunum frá Akureyri til Austurlands og einnig hafa merki verið sett upp á fjölförnum leið- um í Árnessýslu. ★ Reynt að græða upp flögin við vegira — Á undanförnum árum hef- ur verið reynt að fækka smá- fjárveitingum til nýbyggingar vega og hafa fjárveitingarnar stærri, þannig að hagnýta megi betur stórar vinnuvélar. Þörf- in á nýjum vegum er víða mjög aðkallandi og nauðsynlegur fullnaðarfrágangur við vegi, s.s. að græða upp flög eftir jarð- ýtur, verður venjulega að bíða þar til árið eftir, að unnt er að sé í flögin, en þá hefur fjár- veiting til vegarins stundum verið færð til annars vegar og þessar aðgerðir þvá orðið að sitja á hakanum. Þar sem sam- felldar fjárveitingar eru til vega ár eftir ár, er reynt að græða upp flögin, en á því eru þó ýmsir erfiðleikar, einkum af völdum sauðfjár, sem slítur upp gróðurnálina, því vegna kostn- aðar er ekki unnt að girða þessa nýrækt. Efitir því sem unnt verð ur að taka fyrir stærri og sam- felldari vegi í einu lagi og vinna markvisst frá ári til árs, verður mögulegt að ganga þann ig frá vegunum, að þeir valdi ekki hreinum landspjöllum. ÍEinn sólskirsdaginn fyrir helgina, þegar rykið þyrlað- ist upp af bjóðvegunum og smaug inn um hverja rifu á bílunum og fyllti vitin, urðu vegfarendur á veginuml austur fyrir Fjall, fjarska fegnir að sjá þennan bíl í brekkunni við LækjarbotnaJ Mennirnir voru að strá á vegl ínn rykbindiefni, og á kafl-i anum sem bað var komið á, lyftist ekki nokkurt rykkom.1 Verkfæri Rýmingarsala Rýmingars la Vegna breytinga á verzluninni, munum við næstu daga selja aUsitonar handverkfæri með góðum afstætti. Verzlun B. H. BJARNASONAR H.F. Aðalstræti 7, Reykjavík — Sími 13022.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.