Morgunblaðið - 26.07.1962, Blaðsíða 10
10
MORGl 1SBLAÐ1Ð
Fimmludagur 26. júlí 1962
Tilraunir með
Telstar hafa
heppnazt vel
Vísindamenn mjög dnægðir m.*ð
arangunnn
Frá því að sjónvarps-
hnettinum Telstar var skot
ið á braut umhverfis jörðu
11. júlí sl. hafa verið gerð-
ar margar tilraunir með
hann bæði hvað viðkemur
sjónvarpssendingum og
símasambandi og hafa þær
allar heppnazt vel. Vísinda
menn þeir, sem byggðu
hnöttinn og skutu honum
á braut eru mjög ánægðir
með árangurinn af tilraun
unum og telja hann betri,
en þeir þorðu að vona.
★ ★ ★
Sl. mánudagskvöld voru i
fyrsta skipti sendar sérstak-
lega undirbúnar dagskrár um
hnöttinn yfir Atlantshaf frá
Bandarikjunum til Evrópu og
Evrópu til Bandaríkjanna.
Sjónvarpsnotendur i Evrópu
fylgdust með hluta fundar
Kennedys Bandaríkjaforseta
með fréttamönnum, sáu John
Glenn geimfara og atriði úr
Macbeth, sem sjónvarpað var
frá Shakspeara leikhúsinu í
Ontario í Kanada. Bandarísk
ir sjónvarpsnotendur sáu
myndir frá ýmsum stöðum í
Evrópu t.d. London, Róm,
Norður-Svíþjóð og nokkrum
iðnaðarhéruðum.
★ ★ ★
Með sjónvarpshnöttum á
borð við Telstar eru mörkuð
þáttaskil í fjarskiptasam-
bandi þjóða og heímsálfa á
milli. Hefur tilkoinu Telstar
verið líkt við tilkomu ritsíma
og talsíma. Talið er að slíkir
sjónvarpshnettir eigi eftir að
gegna mjög mikilvægu hlut-
verki bæði hvað sjónvarp og
talsíma snertir. Og þeir séu
lausn vandamáls sem innan
tíðar hefði steðjað að varðandi
símasamband, því að gert er
ráð fyrir að eftir tæp 20 ár
anni símalínur þær, sem nú
liggja milli landa og heims-
álfa ekki nema tuttugasta
hluta þess eímasambands,
sem þá verður þörf fyrir .
★ ★ ★
Eins og skýrt hefur verið
frá eru það tal- og ritsímafé-
lagið American Telephone
Tvær af fyrstu myndunum, sem sendar voru yfir Atlantshaf
frá Evrópu. A efri myndinni sjást brezkir vísindamenn í
Goonhilly og á þeirri neðri frönsk söngkona.
Lyndon Johnson, varaforseti Bandaríkjanna, t
skoða líkan af Telstar. —
og yfirmaður AT & T. E. J. Mc Neely
and Telegraph Company
(AT&T), sem standa að til-
rauninni með Telstar. Á sl.
ári gerðu þessir aðilar með
sér samning um að gera til-
raun til að skjóta sjónvarps-
hnetti á braut umhverfis
jörðu. Sérfræðingar AT&T
höfðu hugleitt smíði slíks
hnattar frá 1954, er. 1958 hóf-
ust þeir handa um byggingu
hans.
Telstar var skotið á loft frá
Canaveralhöfða í Fiorida 11.
júlí sl. og innan stundar til-
kynnti NASA, að hann væri
kominn á braut umhverfis
jörðu. Brautin var ekki aiveg
sú sama og ráðgert hafði ver-
ið, en brátt kom í Ijós, að það
kom ekki að sök. Fyrsta
myndin, sem sjónvarpað var
rnn hnóttinn sást aðeins í
Bandarikjunum og var hún
af bandaríska fánanum.
Fyrsta símtalið um hnöttinn
fór einnig fram innan Banda
ríkjanna og ræddust þeir við
Frederick R. Kapj>el, formað
ur AT&T og Lyndon Johnson
varaforseti Bandaríkjanna.
Var Kappel staddur í Andov-
er í Maine þar sem hin sér-
staka móttöku- og sendistöð
fyrir Telstar er, en Johnson í
Washington.
Telstar hafði farið fimrn
hringi umhverfis jörðu, þeg-
ar fyrsta tilraunin var gerð
til að sjónvarpa yfir Atlants
haf, en þá var afstaða hnattar
ins til stöðvarinnar í And >v
er og móttöku- og sendistöðva
í Bretlandi og Frakklandi hag
stæð.
Fyrsta myndin frá Banda-
ríkjunum sást eins greinilega
til stöðvarinnar á vestur-
strönd Frakklands eins 'og
•henni hefði verið sjónvarpað
frá stöð í rúmlega 30 km fjar
lægð. Fyrstu myndirnar sem
tekið var á móti í Breilandi
voru óskýrar, en þær næstui
voru greinilegar. Að þessumi
vel heppnuðu tilraunum lokn-
um voru gerðar tilraunir með
símtöl yfir Atlantshafið, sem
einnig gengu að óskum.
Næstu daga eftix að Teistar
var skotið á loft voru sendar
myndir til Bandaríkianna frái
sendi- og móttökustöðvunum
í Goonhilly í SV-England og
Pleumer Boudou á vestur-
strönd Frakklands. Sáu banda
rískir sjónvarpsnotendur
franska samgöngumálaráð-.
herrann og ýmsa franska
skemmtikrafta og brezkr vís
indamenn í Goonhilly á sjón
varpstjöldum sínum.
★ ★ ★
í Bandaríkjunum eru nú
nokkrir aðilar að hugleiða
byggingu gervihnatta á borð
við Telstar og eitt fyrirtæki
Huges Aircraft & CO vir.nur
að tilraunum með svonefnda
„samstillingar hnetti“.
Til þess að alheimssjónvarp
komist á um hnetti af söma
Aðrar þjóðir en Bandarík-
in hugleiða einnig smíði sjón
varpshnatta og má t.d. nefna
Þjóðverja ítali og Japani, en
þá síðastnefndu dreymir um
að hægt verði að 3jónvarpa
Olympíuleikunum, sem haldn
Hluti sendi- og mottokustoovarinnar í Andover.
gerð og Telstar þurfa allt að
50 slíkir að vera á braut um-
hverfis jörðina. Mesta fjar-
lægð hnattanna frá jörðu er
innan við 6000 km. en til þess
að hægt sé að sjónvarpa um
slíka hnetti þurfa þeir að sjást
frá tveimur móttöku- og sendi
stöðvum í einu. Áætlað er að
samstillingarlhnettiir eins og
sá, sem nú er í smíðum verði
sendir á braut í 35,600 km
fjarlægð frá jörðu. Eiga þeir
að fylgja jörðinni sem fasta-
stjörnur og myndu þrír slíkir
nægja til að koma á alheims-
sjóvarpi.
ir verða í Tokio 1964 um gervi
hnetti þannig að allur heimur
inn geti fylgzt með þeim.
Áður en alheimssjónvarp
kemst á, hvort sem það verð-
ur um hnetti á borð við Tel-
star eða samstillingarhnetti,
þá eru mörg vanöamál, í því
sambandi, sem eftir á að leysa
t.d. hvað snertir eignarétt, um
sjón með hnöttunum og önn-
ur atriði í sambandi við þá.
Ráðgert er að haldin verði
ráðstefna í Genf að ári, þar
sem fjallað verður um þessi
mál.
HIÍMRDALS-
8KÖLI
Hressingarhelmil
júli — ágúst
Njótið hvíldar og hressingar í sumarleyfinu.
Finnsk baðstofa, nudd, kolbogaljós, böð.
Fyrsta fiokks þjónusta.
Hringið í síma 02 og biðjið um Hlíðardalsskóla.
Daglegar ferðir frá B. S. í.