Morgunblaðið - 26.07.1962, Side 11
yimml udagur 26. júlí 1962
MOBGVNBLAÐIÐ
11
-i
Sjötugur
Gísli J. B.
ÞEIR munu ekki margir núlif-
andi Reykvíkingar, sem jafn-
lengi hafa verið tengdir störfum
yið hið gamla Hafnarstræti og
Gísli Júlíus, sem þar hefur unn-
ið látlaust að heita má frá 1922.
Allir, sem við strætið hafa starf-
að um lengri tíma þekkja Júlla,
eins og vinir hans og kunningj-
ar gjarnan kalla hann. Hann er
vel þokkaður af öllum, sökum
góðleika síns og tryggðar. Ef
hægt er að segja um nokkurn,
að hann hafi aldrei gert á hlut
annars manns, þá er það Gísli
Júlíus. Hann hefur aldrei miðl-
að illu, heldur ævinlega verið
veitandi þess, sem gott er. Hann
hefur látið hverjum degi nægja
sína þjáningu og lítt um það
hirt, þótt hann alla ævi hafi
verið fátækur af fé. En hins
vegar hefur hann ævinlega ver-
ið rikur af því, sem hvorki ryð
né mölur fá grandað, þ. e. kær-
leika til manna og dýra; og öf-
undsverð eru þau böm, semhon
um hafa kynnzt, því hann er
allra manna beztur og hlýjastur
við börn, sem á vegi hans verða,
þótt aldrei hafi hann sjálfur
kvænzt né eignazt afkvæmi.
Annað einkenni þessa góða
manns er gjafmildi hans, sem
einkum nær til vina hans, barn-
anna. Þegar tekið er tillit til
tekna hans er hann stórgjöful-
asti maður, sem sá er þessar lín-
ur hripar hefur kynnzt um æv-
ina. Aldrei er hann glaðari en
þegar hann getur miðlað börn-
unum óvæntum smágjöfum, oft
algjörlega að tilefnislausu. Hann
er hinn glaði gjafari. Það er
skoðun þess, sem þetta hripar,
að við eigum í rauninni það eitt,
sem við höfum gefið. Sé það rétt
þá er Gísli Júlíus í sannleika
ríkur maður.
Gísli Júlíus Borgfjörð Gísla- ,
son er fæddur þ. 26. júlí 1892
að Bjargar-Steini í Stafholts-
tungum í Borgarfirði. Foreldrar
hans voru Gísli búfræðingur
Þorbjarnarson og kona hans Jó-
hanna Þorsteinsdóttir. Fluttist
/ dag:
Gíslason
hann með foreldrum sínum til
Reykjavíkur árið 1893, þar sem
hann hefur síðan alið aldur
sinn, að því undanskildu að hann
hefur stundað ýmis störf um
skemmri tíma út um land, svo
sem verið á síld, í vegavinnu
o. s. frv.
Eins og getið var i upphafi
hefur hann lengst af verið
tengdur Hafnarstræti við störf
sín. Fyrst vann hann hjá Helga
heitnum Eiríkssyni, sem seldi
hvítöl í Hafnarstræti 15 í mörg
ár. Vann hann hjá Helga í 17
ár og bjó jafnframt heima hjá
húsbónda sínum. Minnist hann
Helga heitins og Sesselju konu
hans sem beztu húsbænda, sem
hann hafi nokkru sinni haft.
Hefur sú fjölskylda haldið
tryggð við Gísla Júlíus fram á
þennan dag, þótt hann eftir lát
Helga hafi haft aðra húsbænd-
ur. Hann hefur síðan starfað við
ýmsar matsölur í Hafnarstræti
svo sem „Hvol“, „Brytann" og
nú síðast „Borðstofuna“, sem
Sveinn Símonarson rekur. Hef-
ur hann einnig reynzt Gísla
Júlíusi hinn bezti húsbóndi, að
ógleymdri konu hans, Valgerði.
Allir vinir Gísla Júlíusar færa
honum heillaóskir í dag af til-
efni sjötugsafmælisins og óska
þessum góða dreng langra líf-
daga. , , Æ. K.
Nýtízku hœð
um 150 íerm. 6 herb eldhús og bað auk sér þvotta-
herbergi, er til sölu á 1. hæð við Sólheima. Sér
inngangur og sér iutalögn. Óvenjulega falleg og
vönduð íbúð.
■Vlálflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÓNSSONAR
Austui'stræti 9 — S-mar 14400 — 20480
IVfann vantar
á Smurstöðina Sætúni 4.
Helzt vanan. — Sími 16227.
Vestmannaeyjar
Hef kaupendur að ýmsum gerðum íbúðar- og
einbýlishús um.
Til sölu
vélbátar 16 og 38 tonn.
BRAGI BJÖRNSSON, lögfræðiskrifstofa
sími 878, Vestmannaeyjum.
Nauúungarupboð
Annað og síðasta uppboð á húseigninni Bakka, Sel-
i
tjarnarneshreppi með tilheyrandi loð, þinglesin eign
Kjartans Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri
| n.iðvikud. 1. ágúst kl. 14.
Sysiumaðurinn í Gullb.ringu og Kjósarsýslu.
Bezt - Utsala - Bezt
KJÓLAR —JAKKAR — PILS —
BUXUR —BLÚSSUR — SLOPPAR
— SUNDBOLIR o. m. fl.
Stórkostlegur afsláttur
Klapparstíg 44
Skóval Austurstrœti
Stórglæsilegt úrval af enskum kvenskóm
frá CLARK’S, NOVIC og LOTUS.
Skóval
Austurstræti 18, Eymundssonaxkjallara.
Til sölu
traktor með ámoksturstækjum í góðu lagi. Einnig
St. Pauls sturtur á sex tonna bil og hálsing og öxull
í Mercedes Benz vörubíl ’55.
Upplýsingar í sima 10 B Vogum.
Dömur
I sumarfríið
Sportbuxur allar tegundir — Stuttbuxur — tílpur
og jakkar — Sumarpeysur — Blússur — Baðfatn-
aður — Undirfatnaður — Skyrtublússukjólar
kr. 549—
H J Á B Á R U
Austurstræti 14.
2 og 3 herb. íbúðir
í Vesturbœnum
2 og 3 herbergja íbúðir í fjölbýJishúsum við Kapla-
skjólsveg til sölu. íbúðirnar seljast tilbúnar undir
tréverk ásamt söllu sameiginlogu innanhúss múr-
húðuðu. Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Málflutnings- og Fasteignastofa.
SIGURÖUR REYNIR PÉXURSSON, hrl,
AGNAR GÚSXAFSSON, hdl.
BJÖRN PÉXURSSON, fasteignaviðskipti.
\ustúrstræti 14- Símar 17994 og 22870.
Utan skrifstofutíma 35455.
íbúðir til sölu
3ja og 4ta herb. hæðir í sambýlishúsi við Safamýri.
Seljast tilbúnar undir tréverk, sameign inni
múrhúðuð, húsið fullgert að utan.
Mikil sameign i kjallara. Agæt teikning. Hag-
stætt verð.
5 herb. hæðir í sambýlishúsi við Háleitisbraut. Selj-
ast með fullgerðri miðstöð, sameign inni múr-
húðuð, húsið fuilgert að utan, tvöfalt belgiskt
gler. Bilskúrsréttur. Sér hitamæling. Lán lur.
100 þús. til 10 ára.
2ja, 3ja og 4ra herb. hæðir í sambýlishúsi við Háa-
leitisbraut. Seljast tilbúnar undir tréverk, sam-
eign inni múrhúðuð, húsið fullgert að utan.
Sér miðstöðvariögn fyrir hverja íbúð. Mjög
góð teikning.
3ja herbergja rúmgóð hæð tilbúin undir tréverk við
Kleppsveg. Tvöfalt gler. Sameign inni múr-
húðuð. Hitaveita væntanleg.
3ja herbergja íbúð á góðum stað á Seltjarnarnesi.
Er í góðu standi. Bílskúrs_'éttur. Útborgun að-
eins kr. 125 þús.
Hefi einnig ýmsar aðrar stærðir og gerðir af íbúðum.. .
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl,
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðui-göiu 4 — Sirrú 14314 og 34231.