Morgunblaðið - 26.07.1962, Síða 17

Morgunblaðið - 26.07.1962, Síða 17
Fimmtudagur 26. júlí 1962 MORGVNBLAÐIÐ 17 — Hugleiðingar Framh. af bls. 12i inn viðurkennir að það megi þakka Bómarsamningnum með- al annars, að nú sé bundinn endir á hinar þrálátu styrjald- ir milli Þýzkalands og Frakk- lands, stríðshsettan í heiminum sé því allt annars eðlie og hættu- legri. En þótt prófessorinn sjái þetta, þá virðist hann ekki sjá það, að einmitt af þessum ástæð um er það þýðingarmikið fyrir .Vestur-Evrópuþjóðirnar að styrkja þetta bandalag og þessa samvinnu. Og Evrópa er ekki aðeins Þýzkaland og Frakkland. Þátttaka annarra Evrópuþjóða í Efnahagsbandalaginu og þeirri einingarstarfsemi, sem þar á sér stað á stjórnmálasviðinu, hún er auðvitað sprottin af því að þess- ar þjóðir gera sér það ljóst, að þær hljóta, eins og nú er kom- ið málum í heiminum ,að sæta svipuðum örlögum og aðrir ríkjahópar og efnahagsbandalög, t. d. Sovétríkin og Bandaríki Norður-Ameríku. Þau eru stað- reyndir og eftir þeim staðreynd- um neyðast þjóðir Evrópu til að haga sér. Æðri verðmæti Mér líkaði það mjög vel, að prófessorinn minntist á æðri verðmæti, það er að segja verðmæti, sem eru æðri en hin efnislegu verðmæti. Hann segir, að fólkið, sem hafi mestan á- huga á Rómarsamningunum sé fólk, sem hafi lífsskoðun sem sé skyld efnishyggju. Hin æðri verðmæti, sem hann svo nefnir, segir hann muni verða fyrir hnekki í skipulagi, sem eigi að ráða í Efnahagsbandalaginu. Samanburður, sem hann gerði, mundi sýna, sagði hann, hvað hann teldi persónulega æðri verðmæti. „Takmarkið með öllum fram- förum er annað og æðra en að bæta lífskjörin. Það er menn- ing, andi og siðgæði. Það er sú - lífslist að hjálpa öðrum. Þessi mikla speki er arfur sem við höfum hlotið frá fornum hugsuðum og spekingum á Aust urlöndum. Hann hefir borizt okkur aftan úr öldum í ýmsum myndum, en alltaf er áherzlan lögð á sjálfsíhugun, rósemi, gæzku og skyldurækni, en ekki á jarðneskar þarfir. Ef verk verður að vinna má ekki gera það til að hagnast á því eða ná valdi yfir öðrum, heldur af gæzku og skyldu- rækni. Mahatma Gandhi hefur dregið þessar göfugu eigindir í hina frægu setningu: Ósegjan- lega mikil andstaða gegn hinu illa og um leið óségjanlegur kær ieikur til þess sem gerir illt. En meira virði en jafnvel hið göfugasta verk er að ganga í sjálfan sig, komast til skilnings og öðlast sálarfrið. Með því einu að æfa svo andann, verða menn frjálsir frá veraldlegri blekk- ingu heimsins, fýsnum og þján- ingum". Já, svo mörg voru þau orð um samanburðinn á lífsskoður aust- urs og vesturs. Ég leyfi mér að gera tvær athugasemdir. Hið fyrra er hin leiðinlega fáfræði, sem kemur fram í tilvitnuninni í Gandhi. Enginn maður getur farið svo oft í kirkju, að hann heyri ekki prestinn segja úr ræðustólnum þessi orð: Við eig- um að hata syndina, en elska syndarann. Hann gerir þetta af þeirri einföldu ástæðu, að þetta er ein af þeim setningum og eitt af þeim atriðum, sem kirkjan leggur hvað mesta áherzluna á, enda sótt í biblíuna, sem er miklu eldri en Gandhi, sem lifði fram á miðja þessa öld. Nýja testa- mentið er gegnsýrt af þessum boðskap. Jesú sýndi það skýrt í yerki, að hann hugsaði svona. Það er einhver vandræðalegur fáfræðisvipur yfir flestu því sem prófessorinn segir þegar hann er kominn út fyrir ramma og landamæri ökonometríunnar. Ætti annar maður í hlut en Ragn- ar Frisch, mundi mér finnast til- burðirnir brosiegir. Hitt atriðið er það, að hann segir að það sé meira virði en jafnvel hið göfugasta verk að ganga í sjálfan sig. Lífsskoðun prófessorsins er þess vegna ekki kristin, heldur austræn, enda minnist hann hvergi á kristin- dóm í boðskap sínum. Bæði í ræðu hans og riti ríkir í rauninni sjálfið eitt- Sjáum við nokkur veruleg merki um mismun þessara lífs- skoðana? Já, vissulega. f hinum vestræna heimi hefir mikil áherzla verið lögð á það að mennta alþýðu manna, þrátt fyrir það skipulag, sem prófessor- inn kallar hið óupplýsta peninga- veldi. Á íslandi var byrjað á alþýðumenntuninni og almennri skólaskyldu. í sveitum voru byggðir unglingaskólar, þrátt fyrir mikil vanefni, og jafnvel notuð til þess erlend lán, áður en hafizt var raunverulega handa um framfarir landbúnaðarins. En hvernig er svo ástandið í löndum hinnar austrænu lífs- speki? Indland hefir nú verið sjálfstætt talsvert á annan ára- tug. Þar eru byggð stálver og stór fyrirtæki. En ennþá er engin al- menn skólaskylda í landi Gandhis. Þetta kalla ég að byrja á öfugum enda Hér eru að mínu áliti menn, sem skilja ekki að maðurinn sjálfur er undirstaða og 'uppistaða atvinnulífsins, að at- vinnulífið er kerfi mannlegra samskipta. Bremsan Eitt af því sem prófessorinn finnur að Rómarsamningnum er að hann feli í sér sjálfvirka bremsu á efnahagsstarfsemina. Hann tók dæmi um bíl, sem er útbúinn sjálfvirkri bremsu, þannig að hann fer á ferð, en eftir nokkra stund tekur brems- an að gera vart við sig og bíllinn stöðvast með rykk, fer síðan á stað aftur og eftir nokkra stund stöðvast hann á ný o.s.frv. Þetta er mynd af efnahagskerfinu eins og Rómarsamningurinn gerir ráð fyrir því, sagði prófessorinn. í þessu dæmi prófssorsins koma mjög skýrt fram eftirtekt- arverðar hliðar á skoðunum hans. Ég ætla að taka annað dæmi til samanburðar, ekki í bíl, heldur lifandi veru. mann. Eftir svo sem 16 tíma vöku tekur bremsan í taumana. Maðurinn leggst fyrir og liggur meðvitundarlaus kring- um átta klst. Síðan rís hann á fætur á ný Eftir aðrar 16 stund- ir tekur bremsan enn í. Þannig er lífið. Það er eins og við segj- um stundum: líf, það er hreyfing, það er brcyting, en stundum er það doði eða jafnvel svefn. Þetta er lífsins æðasláttur. Efnahagslífið eru samskipti mannanna fyrst og fremst. Af þessu leiðir að efnahagslífið er lífrænt fyrirbrigði. Einn svipur þess er líkastur æðaslætti lifandi veru. Vélin er hins vegar dauður hlutur. Hún er ólífræn. Starfsemi hennar er háð öflum hins ólíf- ræna eðlisheims. í þessu litla dæmi kemur því fram mikill munur á viðhorfi okkar til efna- hagslífsins. Annar lítur á efna- hagslífið sem vél, hinn sem líf- rænt fyrirbrigði. Hér kemur greinilega fram, að prófessorinn er einn af hinum svo nefndu social engineers, þjóðfél- ags- eða mannfélagsverkfræðing- um. Það eru mennirnir, sem trúa á skipulagið á höftin, á boðin, á bönnin. Þeir móta manninn, teygja hann og þvinga. Þeir beygja hann undir þá nauðsyn sem tækniþróunin hverju sinni skapar, með valdi, ef ekki öðru vísi. Þetta viðhorf kemur fram í stjórnmálunum sem einræði og kúgun. Piófessorinn hefir samt uppgötvað að í Austurlöndum er til vizka uin æðri verðmæti. Menn eins og prófesorinn tala oft um heildarskipulagningu at- vinnulífsins í léttum tón, áætlun- arbúskap og eiga þá við allt ann- að en að styrkja ramma hins : frjálsa atvinnulífs og hinar opin- beru stofnanir þess. Af því sem ég sagði um skoðanir mínar á eðli atvinnulífsins, þá hljóta menn að sjá, að ég skoða skipu- lagningu atvinnulífsins sem skipu lagningu á mönnum. Með skipu- lagi og höftum erum við að þjarma að manninum bæði líkam lega og andlega. Með skipulagn- ingu og höftum gétum við, segja áhangendur áætlunarbúskaparins og sósíalismans, aukið efnalega velferð mannsins, þótt við gerum hann ófrjálsari. En hváð verður þá um hinri veglega sess hinna andlegu verðinæta þegar frelsið er farið? Mín persónulega skoðun, svo ég noti orðtak prófessorsins, er sú, að við hið frjálsa atvinnu- líf, með þeim takmörkunum sem við teljum samrýmanlegar hinum vestrænu frelsishugsjónum, gefi okkur í senn ekki aðeins meiri efnalega velmegun, heldur einnig, sem höfuðafurð, meira mannlegt frelsi en nokkurt annað þjóð- skipulag, sem við höfum þekkt. Það er skipulag sem með dreif- ingu hagvaldsins bindur að nokkru hendur manna eins og prófessorsins til þess að gera til- raunir á mönnunum, manni, sem að því er bezl verður séð, hefir mestan áhuga á sjáfinu. Nýlendukúgun Eitt af því sem hann sagði að birtist í Efnahagsbandalaginu væri fölsk alþjóðarækni. Þó sagði hann frá því að bandalagsríkin ætli að láta hin nýstofnuðu ríki Aríku, sem þeim eru tengd, fá 160 milljónir dollara á ári til efnahagslegra framfara í fimm ár. Þetta finnst honum lítið. Rétt er ,að upphæðin mætti vera meiri og mun vera hærri, en miðað við það sem menn hugsuðu sér fyrir svona 20 árum verð ég að segja það að þetta er stórkostlegt. Ný- lega las ég einhversstaðar að að stoð Frakka einna við hin van- þróuðu lönd næmi einum millj arð dollara á ári, svo hér er eitt hvað málum blandað. Því má gjarnan bæta við, að það er hið mikla land, þar sem peningasjónarmiðinu og sam- keppnishugsuninni er hreykt yf- ir allt annað, eins og prófessor- inn orðaði það, sem á upptökin að þessari miklu alþjóðlegu sam fajálp. í -ræðunni sagði prófessorinn meðal annars: Bandálagslöndin vilja halda áfram að arðræna gömlu nýlendurnar. Þetta arð- rán, eins og við heyrðum af vör um prófessorsins sjálfs, byrjar á því að veita þeim stórkostlega efnahagshjálp. Annars hljómaði margt það sem prófessorinn sagði um Ameríku mjög einkennilega af vörum hag fræðings. í sambandi við Ameríku minnt ist prófessorinn á löggjöf, sem þar er í landi, gegn auðhringum og á líka að vera í Evrópu, sam- kvæmt Rómarsamningnum. Hann segir, að ameríska sam- steypan General Electric hafi ver ið dæmd 29 sirtnum fyrir að brjóta lög um auðhringa, en hún blómgist eftir sem áður. ■ Mér dettur í hug í þessu sam bandi, að þegar verkalýðurinn byrjaði fyrst að skipuleggja sam tök sín í Bretlandi, þá voru verka lýðsforingjarnir teknir og dæmd ir samkvæmt lögum um sam- særi gegn ríkinu. Yfirvöldin þóttust sjá í þessum samtökum samsæri og létu lögin um sam- særi ná til þeirra. Nú, hins vegar þykjumst við vita betur í þeim málum. En væri ekki hugsanlegt að lög, sem væru þannig, að fyrir tæki, sem dæmt er 29 sinnum samkvæmt þeim, lifir eftir sem áður góðu lifi, væri eitthvað ekki við hæfi? Með því á ég við að ef til vill er lögunum eitthvað ábótavant, frekar en fyrirtækinu. Væri ekki hugsanlegt, að það væri eitthvað athugavert við lög, sem eitt af fremstu atvinnufyrirtækjunum í Bandaríkjunum ætti tíðum í höggi við, en stæði þó alltaf jafn rétt eftir? Eru „glæpirnir" kannski' ekki svartari en glæpir verkamanna, sem voru að leita að einhverju mótvægi gegn valdi atvinnurekendanna? Hefur lög- gjafinn, sem setti lögin í raun og veru skilið þau fyrirbrigði, sem hann var að setja lög um? Eg held mér sé óhætt að full- yrða, að það eru ekki svo fáir bandarískir hagfræðingar sem Einbýlishús er til sölu við Miklubraut. Húsið er nýstandsett. Máiflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR Austurstræti 9 — Símar 14400 — 20480 Afgreíðslustarf Stúlka óskast Egilskjör Laugavegi 116. Byggingalóð óskast Lóð óskast undir fjölbýlishús (eitt stigahús). Einnig kæmi til greina lóð undir minna hús Tilboð, merkt: „Reykjavík — 7564“, sendist afgr. blaðsins fyrir mánudagskvöld. líta þessi mál allt öðrum augum heldur en prófessor Frisdh. Stór fyrirtækin eru vaxin upp úr tækniþróuninni og sú staðreynd bendir til þess að með þurfi nýj an skilning en ekki gamla hleypi dóma. Það er einkennilegt, að lífs- kjör almennings skuli vera hvað bezt, þar sem auðhringarnir eru hvað voldugastir, .og að það ér einmitt þar sem hin stórfellda efnahagslega samhjálp milli þjóða, sem er í uppsiglingu átti sín upptök. Það er einkennilegt að frelsi manna er hvað mest þar sem hið svokallaða óupp- lýsta penningaveldi er hvað mest í algleymingi, að því er prófessor inn segir. Mér sýnist af orðum prófessorsins, að hann sé ákaf- lega glámskyggn á sína eigin sam tíð og efnahagsfyrirbrigði sam- tíðar sinnar. Þetta kemur mjög greinilega fram þegar hann er að reyna að réttlæta sleggjudóma sína um Efnahagsbandalagið. Útlendu djöflarnir Það mætti skrifa sérstaka grein um það sem ég mundi vilja kalla demonológíu prófessorsins. Það mætti skrifa sérstaka grein um hið illa og hlutvek hins illa í fyrirlestri hans, þar með talið útlendu djöflana. En ég nota þessi orð, útlendu djöflarnir, vegna þess, að þau hafa fengið sérstaka merkingu. Þetta eru orð in, sem Kínverjar notuðu um hvítu mennina, þegar þeir komu fyrst til Kína. Það situr eins og hryllingur i prófessornum, að erlendar þjóð- ir skuli njóta auðlinda annarra þjóða, sérstaklega smáþjóðanna. Nú byggjast öll alþjóðleg við- skipti á því, að þjóðirnar veita hvor annarri aðgang að auðlind u’m sínum. Við tökum íslenzka þorska og sendum þá til útlanda handa útlendingum til að éta. Einn af forfeðrum okkar orti á sinni tíð: Sé ég eftir sauðunum, sem að koma af fjöllunum og étnir eru í útlöndum. Hann hugsaði eitthv.að líkt og prófessorinn. fslenzkt kjöt var étið erlendis, hugsið ykkur! En skynsamir menn sjá það, að þetta hefur sína kosti. Við fáum í staðinn af auðlindum annarra þjóða. Við flytjum inn erlent járn og stál, erlend kol og er- lenda ávexti og margt annað fleira. Við . fáum útlendinga til að vinna fyrir okkur og smíða handa okkur vélar, sem við telj um hag í að nota. Prófessorinn kallaði meira að segja náttúruauðlindirnar „natur herligheter," þ. e. a. s. náttúru- dásemdirnar, til þess að gefa hug takinu nógu pólitískan áróðurs- blæ. Hann virðist líta svo á, að ,það sé um að ræða að stela feg urðinni úr löndum okkar. Er það furða þótt hann telji það lífslist að hjálpa öðrum? Er það furða þótt hann prediki menningu, anda og siðgæði? En hann segir líka, að maðurinn eigi að ganga í sjálfan sig. Það er víst bar sem hundurinn liggur grafinn. Hann segir „eftir Gandhi", að við eigum að veita hinu illa and- stöðu og um leið sýna ósegjan- legar kærleika þeim sem gerir illt. Þetta virðist þó ekki eiga að gilda jafnt um alla menn, enda væri það kristin hugsjón, ekki austræn. Stuttur bíltúr. Prófessorinn hefur verið kynnt ur þjóðinni sem vísindamaður. Hins vegar hefur engin áherzla ! verið lögð á það, að skýra þjóð- ! inni frá því að erindi hans var algjörlega óvísindalegt Sjálfur , undirstrikaði prófessorinn á nokkrum stöðum í erindinu hið óvísindalega eðli þess. Þar sem hann fjallaði um óvisindalega hluti sagði hann nokkium sinn- um að það sem hann segði væri byggt á persónulegu mati sínu En því miður gerði hann þetta ekki allstaðar þar sem það átti við. Eg ætla að bregða mér i öku- ferð með prófessornum og aka hinum skrykkjótta bil sem hann sagði okkur frá. Við erum rétt komnir af stag begar prófessor- inn tekur til máls og segir: hest ana, sem verða á vegi okkar ætla ég að kalla geitur og geiturn ar hesta. Eg hefi ekkert við þetta að athuga. Þetta er algjör lega vísindalegt. Svipað þessu gera menn oft i visindastörfum eða kennslu, og þjónar það þá einhverjum tilgangi þótt ekki sé það alltaf ljóst í fyrstu. Ljóm- andi er þetta falleg geit, segir prófessorinn. Já segi ég Og horfi rólegur á skjóttan hest stökkva yfir skurð, því ' að hinir inn- byggðu sjálfvirku hemlar eru farnir að segja til sín. Prófessor inn heldur áfram. Þetta nafn geit, er stutt og laggott heiti á þessari skepnu sem þið íslend- ingar kallið þarfasta þjóninn, og er nú notað í visindamáli. Eg lít snöggt á prófessorinn, þótt bíllinn hafi tekið annan kipp. Það er glampi í augum hans. En hversvegna er prófessorinn ' að segja mér rangt til? Vill hann koma inn hjá mér einhverjum ’hugmyndatengslum, sem ég myndi ekki átta mig á eftir öðr um leiðum? Veit hann að orðið geit hefir tvennskonar merkingu á íslenzku og er það það sem j hann á við? Hvað vakir fyrir honum? Þegar við stígum út úr . bílnum er prófessorinn enn með glampa í augunum og sigurbros , á vör. Eg hristi bara höfuðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.