Morgunblaðið - 26.07.1962, Page 22
22
ntORCTnvnrrAÐiÐ
Fimmludagur 26. júíí 1962
Akranes túk
forystuna í gær
Vann á Akureyri 3:1
AKURNESINGAR hafa tekið hreina forystu í íslandsmóti
1. deildar. — í gærkvöldi unnu Skagamenn Akureyringa
á Akureyri með 3 mörkum gegn 1 og þessi sigur færir þá
upp í efsta sæti í deildinni með stigi meira en 4 næstu
lið, og eiga fjögur efstu liðin (Akranes, Fram, Valur og
KR) öll þrjá leiki eftir.
Leikurinn á Akureyri þótti góð
ur en sigurinn 3—1 heldur stór
til að gefa rétta mynd af- leikn-
um. Engum blandaðist hugur um
að Skagamenn verðskulduðu sig-
ur fyrir leikinn, en Akureyringar
voru óheppnir, skoruðu m. a.
sjálfsmark.
Mikill fjöld’ áhorfenda var að
leiknum í gær þó hann færi fram
á óheppilegasta tíma eða kl. 7
síðdegis. Veður var framúrskar-
andi gott, logn og hlýja.
Akurnesingar náðu forystu
þegar á fyrstu mínútu leiksins.
Voru Akureyringar ekki alveg
búnir að átta sig á tilverunni,
þegar knötturinn lá í neti þeirra.
Brunuðu Skagamenn upp völlinn
og varð úr þvaga við mark Akur-
eyrar, og úr þeirri þvögu tókst
Jóhannesi Þórðarsyni útherja að
skora. Fékk Einar ekki að gert
í markinu, þó markið þætti held-
ur ódýrt.
En Akureyringar tóku smám
saman leikinr í sínár hendur og
áttu frumkvæði í leiknum allan
fyrri hálfleikinn. Tókst þeim á
köflum að byggja upp langvar-
andi sóknarlotur á mark Skaga-
manna, og þegar um hálftími var
af leik, jafnaði Skúli Ágústsson
fyrif Akureyri. Var mark hans
fallegt eftii góða sókn og langa.
Staðan í hálfleik var 1—1.
Strax í upphafi síðari hálfleiks
ná Akurnesingar aftur foryst-
unni. Var Ingvar þar að verki
og skoraði með skalla eftir lag-
legt upphlaup.
Eftir þetta mark náðu Akurnes-
ingar algerum undirtökum í leikn
um og náðu oft laglegum leik.
Leikur þeirra þótt laglegur væri
á köflum, gaf þó ekki mörk, en
Akureyringar skorðu eitt sjálfs-
mark. Ætlnði bakvörður að senda
Einari markverði knöttinn, en
sendi yfír hann og rakleitt í mark.
Heimildarmaður Mbl. kvað leik
inn að sínum dómi hafa verið
góðan. Fyrri hálfleikur var hrað-
ari og oft skemmtileg tilþrif. í
síðari hálfleik var snerpan ekki
eins mikil og þá megnuðu Akur-
eyringar ekki að veita næga mót-
spyrnu. Eins marks munur hefðu
Tugþraut
Á laugardag og sunnudag |
fer fram tugþraut Meistara /
mótsíns í frjálsurn íþróttum
Hefst keppnin kl. 3 á laugar
dag og fer fram á Laugardals
vellinum. Síðari kcppnisdag-
inn, á sunnudag hefst keppn-
in kl 2. Keppendur eru skráð
ir tveir Valbjörn Þorláksson'
IR og Kjartan Guðjónsson KR |
Samtímis þrautinni fer fram '
keppni í 10 km. hlaupi, en ,
keppendur eru Kristleifur'
Guðbjörnsson og Agnar Levy
og í 4x800 m boðhlaupi er ein
sveit skráð, sveit KR.
verið réttust úrslit þessa leiks,
sagði heimildarmaðurinn.
50 ára frjálsíþróttastarf
og 40 ára gömul af rek á skrá
Jóhann Bernhard rifjar upp blóma-
skeiðin og beztu afrek islenzkra
frjálsijyróttamanna
ARIÐ 1962 er að ýmsu leyti sögu
legt fyrir ísl. frjálsíþróttaunn-
endur. A þessu ári eru t. d. lið-
in 15 ár frá stofnun Frjálsíþrótta
ráðs Rvíkur (FÍRR) og 35 ár
frá fyrsta meistaramóti Islands í
frjálsum íþróttum. Síðast, en
ekki sízt, er nú liðin um það
bil hálf öld síðan hér var fyrst
farið að keppa í frjálsum íþrótt-
um samkvæmt alþjóðaleikregl-
um, en það var einmitt á stofn-
ári 1S1 (1912) sem fyrsti íslenzki
frjálsíþróttamaðurinn (Jón Hall
dórsson) tók þátt í Olympíuleik-
um. —
Á þessu 50 ára tímabili hafa
ísl. frjálsíþróttir lifað mörg
blómaskeið, bæði hvað árangur
og þátttökufjölda snertir, eink-
um 1920—1930, 1943—1951 og
1956—60, en jafnframt lent í hálf
gerðum öldudal þess á milli eins
og gengur. En jafnvel þótt á-
horfendur að frjálsíþróttamót-
um hér í Rvík hafi farið fækk-
andi síðustu árin, þá verður
þeirri staðreynd ekki haggað, að
í frjálsum íþróttum hafa íslend-
ingar náð beztum árangri á al-
þjóðamælikvarða.
Blómaskeið
Hér er því miður ekki rúm
til að nefna nöfn allra þeirra
afreksmanna, sem hafa varpað
ljóma á nafn íslands á hverjum
tíma, enda var það ekki fyrr en
á 3. tug aldarinnar, sem eitthvað
fór að kveða að ísl. frjálsíþrótta
mönnum á erlendum vettvangi.
Má þar nefna sem dæmi þá Jón
Kaldal, Garðar S. Gíslason,
Helga Eiríksson og Geir Gígju,
sem voru allir nokkurs konar
brautryðjendur í sínum íþrótta-
greinum. Þá er og skylt að geta
tveggja af Olympíukeppendum
fslands 1936, þeirra Sveins Ingv-
arssonar og Sigurðar Sigurðsson
ar, en sá síðarnefndi vann sér
það til ágætis, að verða fyrsti
íslendingurinn, sem komst í að-
alkeppnina í frjálsum íþróttum
á þeim vettvangi — eða í þrí-
stökki. Var það nokkurs konar
fyrirboði þess, sem skeði 20 ár-
um síðar í sömu íþróttagrein.
Annars mun óhætt að fullyrða,
að þátttaka og árangur ísl. frjáls
íþróttamannanna á EM 1946 hafi
verið áhrifamesta skrefið í þá átt
að kynna getu þeirra fyrir öðr-
um þjóðum. Þá vann íslending-
urinn Gunnar Huseby fyrstur
Evrópumeistaratitil með þeim
afleiðingum, að umheimurinn
fór skyndilega að fá aukinn á-
huga fyrir íslandi og ísl. íþrótta-
menningu.
Næstu 5 ár var sigurförinni
haldið áfram, enda bættust þá
í hópinn afreksmennirnir Torfi
Bryngeirsson (sem varð EM-
meistari 1950 ásamt Huseby),
Finnbjöm, Clausenbræður, Skúli
Guðmundsson, Óskar Jónsson,
Guðm. Lárusson, Hörður Har-
aldsson og Ásmundur Bjarnason
svo aðeins nokkrir þeir helztu
séu nefndir. Náði sú sigurför
hámarki 1951, er við sigruðum
bæði Norðmenn og Dani í lands-
keppni, en það var einstætt af-
rek í sinni röð, sem okkur hefur
ekki tekizt að vinna aftur sl.
10 ár.
Eftir þetta blómaskeið færð-
ist nokkur deyfð yfir ísl. frjáls-
íþróttamenn, enda tóku margar
af helztu stjörnunum sér hvíld
frá keppni og mynduðust þá
skörð, sem erfitt reyndist að
fylla jafnóðum. Árið 1956 kom
þó aftur talsverður fjörkippur í
frjálsar íþróttir, enda höfðu þá
nýir afreksmenn komið til sög-
unnar, svo sem Hilmar, Svavar
og síðast en ekki sízt Vilhjálm-
ur Einarsson. Setti sá síðast-
nefndi allt á annan endann með
því að vinna silfurverðlaun í
þrístökki á Olympíuleikunum
1956 og setja nýtt Olympíumet
(16,26), sem stóð þó aðeins í
nokkrar klukkustundir.
Á Síðustu árin
En jafnvel þótt nýir afreks-
menn færu nú óðum að bætast
í hópinn, þ. á m. Valbjörn, Krist-
leifur, Jón Pétursson og Jón Þ.
ólafsson — og Vilhjálmi tækist
Myndin er úr leik FH
og Víkings í fyrrakvöld
Bergþór er kominn í
skotstöðu og skorar. —
Ljósm.: Sv. Þormóðsson.
loks að jafna hið staðfesta heims
met í þrístökki árið 1960 (16,70
m), þá er nú svo komið hér
heima fyrir, að áhugi fyrir
frjálsum íþróttum kemst varla í
hálfkvisti við það, sem hann var
fyrir 10—15 árum.
Að vísu hefur verið talsverð«
ur áhugi meðal sveina, drengja,
unglinga og kvenna a.m.k. síðan
1957, er FRÍ kom í framkvæm4
ýmsum jákvæðum skipulags-
breytingum. En betur má ef
duga skal og því þurfa allir að*
ilar, leiðtogar, þjálfarar og kepp
endur að taka höndum saman,
enda er til mikils" að vinna að
freista þess að forða æskulýðn-
um frá sjoppum, sorpritum og
annari óhollri tómstundaiðju.
í tilefni áðurnefndra tíma-
móta, er ekki úr vegi að íhuga
hvar við stöndum í dag, miðað
við afreksmenn undanfarinna 50
ára. Er þá kannski heppilegast
að láta tölurnar tala, enda sýna
þær bezt hvar er um framfar-
ir, kyrrstöðu eða afturför að
Framh. á bls 23
BEZTU isl. frjálsiþróttaafrekin fri
upphafi.
KARLAR 100 m lilaup: ártals
10.3 Hilanar tH>rbjörnsson, Á 57
10,5 Finnbjöm Þorvaldsson, ÍR 49
10.5 Haukur Clausen, ÍR 51
10.5 Ásm. Bjarnason, KR 52
10,7 Höröur Haraldsson, Á 50
10,7 Guðmundur Lárusson, Á 50
10,7 Örn Clausen, ÍR 51
10.7 Guöm. Vilhj álmsson, ÍR 54
10.8 Pétur Sigurösson, KR 52
10,8 Sigm. Júlíusson, KR 56
10,8 Höskuldur Karlsson, ÍBK 57
10,8 Valbjöm Þorláksson, ÍR 58
200 m. hlaup:
21.3 Haukur Clausen, ÍR 50
21.3 Hilmar t>orbjörnsson, Á 56
21.5 Hörður Haraldsson, Á 50
21.6 Ásm. pjarnason, KR # 54
21.7 Finnbjöm Þorvaldsson, tR 49
21.8 Guömundur Lárusson. Á 49
22,0 Höskuldur Karlsson, ÍBK 56
22,1 Valbjörn Þorláksson, ÍR 58
22.3 Pétur SigurÖsson, KR 5®
22,3 Guðm. Vilhjálmsson, ÍR »
ÍR-mótið í
1. ágúst
Frjálsíþróttamót ÍR sem frestað
var um síðustu mánaðamót
vegna veðurs, verður háð 1. ágúst
næstkomandi. Keppt verður í eft
irtöldum greinum: 80m grinda-
'hlaupi sveina, lOOm hlaupi
drengja, 200m hlaupi, 1500m
'hlaupi, 4xl00m bðhlaupi, 60m
hlaupi telpna 16 ára og yngri,
kúluvarpi, spjótkasti, sleggju-
kasti, langstökki, þrístökki og há
stökki.
Þátttaka tilkynnist Jóni Þ. Ól-
afssyni, síma 15456 i síðasta lagi
30. júlí.
KR haföi 9 marka forskot í hléi
sn vann með 3 mörkum
í FYRRAKVÖLD fóru fram
tveir leikir i meistarafiokki karla
á íslandsuiótinu í útihandknatt-
leik karla. SH vann Ármann með
19 gegn 11 og KR vann Víking
með 17 gegn 14.
SH hafði öll tök í leiknum gegn
Ármanni, en hinn leikurinn var
sviftingameiri. KR náði algerum
tökum á leiknum í byrjun og
stóðu leikar 13—4 fyrir KR í hálf-
leik. En þá komust Víkingar í
gang og leik lauk með 17—14.
Víkingar unnu því síðari hálfleik
með 10 gegn 3.
f kvöld verður mótinu fram
haldið og leika þá í meistara-
flokki Víkingur og Ármann —.
áreiðanlega jafn og tvísýnn leik-
ur, og ÍR gegn KR.
Þá fara einnig fram úrslit I
riðlakeppni í 3. flokki. í A-riðli
leika til úrslita Ármann og FH
og í B-riðli Valur og KR.