Morgunblaðið - 22.08.1962, Síða 2

Morgunblaðið - 22.08.1962, Síða 2
MOnCUNBLAÐlÐ Miðvikudagur 22. ágúst 1962 Mjög fjölsótt héraðs- mót í Borgarfirði SÖ>ASTLIÐINN sunnudag héldu Sjálfstæðismenn í Borgarfjarðar- sýslu og Akranesi hið árlega hér- aðsmót sitt í Ölver undir Hafnar- fjalli. Sótti mótið mikill mann- fjöldi, um 800 manns, og fór það fram með mestu prýði. Samkomuna setti með ávarpi Jón Árnason, alþingismaður, og stjórnaði henni síðan. Dagskráin hófst með því, að Kristinn Hallsson, óperusöngvari, söng einsöng; undirleik annaðist Skúli Halldórsson, píanóleikari. Að loknum söng Kristins flutti Sigurður Ágústsson, alþingismað ur ræðu. Þessu næst flutti formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Bene diktsson, dómsmálaráðh., ræðu. Að ræðu ráðherrans lokinni söng Þórunn Ólafsdóttir, söngkona, einsöng. Fluttur var gamanleikurinn „Mótlætið göfgar“ eftir Leonard White og fóru með hlutverk leik- ararnir Valur Gíslason og Helga Valtýsdóttir. Síðan sungu þau Kristinn Hallsson og Þórunn Ól- afsdóttir tvísöng við undirleik Skúla Halldórssonar. Var ræðumönnum og listafólk- inu mjög vel fagnað. Dansleikir voru í ölver bæði á laugardagskvöld og sunnudags- kvöld, voru mjög fjölsóttir og fóru vel fram. Stokk séi undnn ukkerinu f fyrradag lá við að slys yrði um borð í dýpkunaskip- inu Leó, ex það var að varpa akkerum uppi undir landstein- um í Hvalfirði. Br akkerið var látið falla, stefndi það á mann, og hafði hann ekki önn ur ráð en að stinga sér í sjó- inn til að verða ekki fyrir því, en akkerið vegur um 200 kg. Maðurinn, sem heitir Ein- ar Halldórsson, hinn þekkti knattspyrnumaður úr Val synti að bát við skipshliðina, og varð ekki meint af volkinu. Fundur í fulltrúaráði Sjálfstæðisfél. á ísafirði Föstudaginn 4. þ.m. var hald- inn funduir í fulltrúaráði Sjálf- stæðisfélaganna á ísafirði. Var fundurinn haldinn í samkomu- húsinu Uppsölum og hófst kl. 9 e.h. Formaður fulltrúaráðsins, Matthías Bjarnason, bæjarfull- trúi setti fundinn og skýrði til- efni hans. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, flutti ræðu um skipulag og starfsemi Sjálfstæð- isflokksins með tilliti til þeirra skipulagsbreytinga, sem nú er verið að gera á flokknum. Síðan fór fram kjör á fulltrú- uf í kjördæmisráð Sjálfslæðis- flokksins í Vestfjarðakjördæmi. Þá urðu nokkrar umræður um Hætta v/ð Erm- arsund ÞEIR félagar Eyjólfur Jóns- son og Axel Kvaran sem ráð- gert höfðu tilraun til að synda yfir Ermarsund, hafa skotið því áformi á frest fram í ágúst næsta sumar. Ástæðan er sú að báðir hafa orðið fyrir veik- indum, en þar sem margir. hafa lagt fé fram til að þeim mætti tilraunin gerleg, vilja þeir vera í bezta formi og' góðri æfingu. Eyjólfur fékk taugaveiki- bróður og var illa úti í þeirri veiki. Axel fékk slæma sina- skeiðabólgu eftir sundið í Eyja firði og varð að læknisráði að taka sér frí. Á sunnudag lagði hann til sunds frá Neeti við Elliðaár og synti inn í höfn, 8 km leið á 3% tíma. En hann fann að 3 vikna stopp frá æf ingu hafði haft sín áhrif og hefur því einnig frestað til- raun sinni við Ermarsund eins og Eyjólfur. Jafnframt veikindum skorti þá fé’aga eitthvert fé, en til- raunin kostar ekki undir 90— 100 búsund krónur. héraðsmót og tóku til máls Einar Ingvarsson, bankastjóri, Matthí- as Bjarnason og Þorvaidur Garð- ar Kristjánsson. FH Islands- meistari í GÆRKVÖLDI fór fram í Kópa vogi aukaúrslitaleikur í fslands- móti kvenna í handknattleik ut- aiihúss. Ármann og FH voru jöfn í mótslók á dögunum og mætt" ust nú öðru siniti. Leikurinn var ákaflega jafn og að venjulegum leiktíma loknuim var jafntefli. í framlengingu tryggði FH sér sigurinn með 5 mörkum gegn 4. FH-stúlkurnar eru því íslandsmeista rar aftur 1962. Einn fremsti karlakór Norðurlanda: „Muntra Musikanter" heimsækja ísiand Munu dvelja hér i 6 daga á vegum ,Jróstbræóra' Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ næsta er væntanlegur hingað til lands finnski karlakórinn „Muntra Musikanter" frá Helsingfors — einn af allra beztu kórum Norðurlanda og sá stærsti, sem hingað hefur lagt leið sína. Kórinn mun dveljast hér í tæpa viku, syngja á einum tónleikum í Reykjavík, en einnig taka þátt í hátíðarhöldunum á Akureyri í tilefni af aldaraf- mæli kaupstaðarins. Það er karlakórinn „Fóstbræð- ur“ í Reykjavík, sem hefur veg og vanda af héimsókn finnska kórsins hingað. „Fóstbræður“ voru, sem kunnugt er, í Finn- landi á síðasta ári — og knýttust þá traust vináttubönd milli kór- anna tveggja. Á fundi með frétta UM hádegi I gær var lægðin, sem undanfarna daga hefur verið suður í hafi, komin norð ur undir ísland og nær þaðan austur undir Noreg. Veður er mjög stillt hér á landi en dumbungislegt. Óvíða rignir svo teljandi sé, en talsverð þokubræla er við austur- ströndina og úti fyrir Norður landi. Hlýjast var í Rvík og á Síðumúla, 13 st., en kaldast á Hornbjargsvita, aðeins 7 st. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-land og miðin: Hæg- viðri, skýjað, rigning með köflum. Faxaflói, Breiðafjörður og miðin: Austan og NA gola, þurrt að mestu en skýjað. Vestfirðir og miðin: NA kaldi, skýjað, þokusúld norð- an til. Norðurland til Austfjarða og miðin: NA gola eða kaldi, skýjað, víða þoka eða súld á miðum og annnesjum. SA-land og miðin: Hæg- viðri, skúrir. Horfur á fimmtudag: Austan og NA kaldi, þurrt veður á Suður- og Vestur- landi, en skúrir austan lands. .44 mönnum í gær sögðu þeir Ágúst Bjarnason og aðrir forvígismenn „Fóstbræðra“ frá því helzta í sambandi við fyrirhugaða heim- sókn hinna finnsku söngbræðra. Mikill áhugi á fslandsför Áhugi á Islandsförinni hefur verið mikill meðal Finnanna, sem gleggst kemur fram í því, að þeir munu verða næstum tvö- falt fjölmennari en í fyrra var búizt við, þ. e. 74 talsins. Sjö í hópnum cru gamlir kórfélagar, en hinir allir núverandi söngmenn hans, auk svo stjórnandans, Erik Bergmans, Bergman, sem er nú fimmtugur að aldri, er meðal frægustu núlifandi tónskálda Finna. Allir meðlimir „Muntra Musikanter" eru fyrrverandi há- skólaborgarar. Hefur kórinn starf að í rúma átta áratugi og enginn kór á Norðurlöndum gert eins víð reist. Söngskrá kórsins er að mati fróðra söngmanna frábær, alhliða og ítarleg í senn; m. a. er þar að finna verk eftir Stravinski, sem karlakór mun aldrei áður hafa flutt verk eftir hér á landi. Karlakórinn „Muntra Musi- kanter“ hefur unnið mex-kilegt brautryðjandastarf í norrænum karlakórssöng. Hinir „kátu söngvasveinar“ virðast líta á hlut verk sitt sem flytjendur tónlist- ar með stórum meiri alvöru en algengast er um karlakórsmenn, sem oft hættir til að gera úr söngnum ánægjulega en áreyslu- litla dægradvöl og láta þar við sitja. Þetta viðhorf „Muntra Musikanter" hefur orðið til að tryggja þeim sérstakan virðing- arsess meðal söngbræðra sinna. Kórinn heíur frá öndverðu leitazt við að kanna nýjar slóðir, aðhæfa verkefnaval kröfum breyttra tíma og víkka eftir föng um hið íremur þrönga tjáningar- svið karlakórssöngsins. í þessu skyni hefur kórinn haft náið sam starf við ágæt tónskáld heima og erlendis, margoft veitt verðlaun fyrir ný kórverk og þannig beint og óbeint stuðlað að því, að til hafa orðið ýms merk tónverk, þar á meðal mörg fegurstu og frægustu kórlög Sibeliusar, Palm grens, Járncfelts o. fl. Á kórinn í safni sínu mörg frumrit tón- verka efiir þessa og aðra fremstu brautryðjendur tónlistarinnar í I NÝLEGA var Pósthúsið í \ Reykjavík málað hátt og lágt | að utan. Myndina tók Ijós-1 myndari Mbl. af pósthúsinu nýmáluðu í gær. Ljósm.: Markús. Finnlandi. „En Muntra Musikanter“ hafa ekki látið við það sitja að viða að sér slíkum handritum. Þeir munu hali frumflutt fleiri ný kórverk en flestir aðrir sam- bærilegir kórar og hafa ekki lát» ið það aftra sér, þótt sum þeirra virtust í fyrstu torsungin og jafnvel lítt viðráðanleg. Svo vel hafa þeir fylgzt með tímanum, að þeir hafa um árabil haft á söngskrá sinni einnig verk, sem samin eru í hinum svonefnda „tólf tóna stíl“. „ Einlr tónleikar i Reykjavik Eins og fyrr segir mun kór- inn dveljast hér í sex daga og heldur því héðan hinn 2. septem- ber. „Muntra Musikanter" halda aðeins eina tónleika í Reykja- vík og fara þeir fram í Háskóla- bíói þriðjudagskvöldið 28. ágúst, Eru þeir fyrst og fremst ætlaðir styrktarfélögum „Fóstbræðra“ —< en urrí sölu þeirra tiltölulega fáu miða, sem eftir verða, er áform- að að auglýsa í fimmtudagsblöð- um. Að venju mun verða kapp- kostað að sýna gestunum þá markverða staði, sem tími og tækifæri gefast til að heimsækja, meðan hin skamma dvöl þeirra stendur; þ. á. m. munu þeir fara til Bessastaða. Eru „Fóstbræður** staðráðnir í að gera þeim Islands- förina sem eftirminnilegasta. ÞORSMÖRK FÉLAG ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu efnir til hópferða > Þórsmörk um næstu helgi (25. og 26. ágúst). Farið verður frá Hveragerðl og Eyrabakka kl. 1.30 ©g Sel- fossi kl. 2. e.h. á laugardag. Um kvöldið verður varðeldur og kvöldvaka í Húsadal. Þáttaka tilkynnist fyrir n.k. föstudagskvöld til Georgs Michel sen, Hveragerði, Verzlun Guð- laugs Pálssonar, Eyrabakka og Rafgeisla h.f. og Verzlun S. Ó. Ólafsson, Selfossi. Þórsmerkurferðir eru jafnan mjög vinsælar og er ekki að eia að mikil þátttaka verður í þess- ari ferð ungra Sjálfstæðisnr.anna í Árnessýslu, og hafa nú þegar margir tilkynnt þátttöku sína. Vegna bílaskorts eru allir þeir sem fara ætla sérstaklega hvatt ir til að tilkynna það sem allra fyrst. Öllum er heimil þáttaka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.