Morgunblaðið - 22.08.1962, Page 11

Morgunblaðið - 22.08.1962, Page 11
Miðvikudagur 22. ágúst 1962 MORGVNBLAÐIÐ 11 1. Margir hafa vonað og viljað ®ð Sameinuðu þjóðirnar fengju smámsamam aukið verksvið og vald, þannig að með þeim þokað ist mannkynið fram á við í átt til allsherjar-réttarríkis. En því miður bregður til beggja vona í (þeim efnum á síðari árum — eins og allar líkur eru til að komi greinilegar í ljós en áður á ails- Iherj arþinginu. sem hefst eftir tæpan mánuð. Útgjöld Sameinuðu þjóðanna, hafa vaxið frá því sem upphaf- lega var ráð fyrir gjört, og sér staklega við aðgerðir þeirra til verndar innanlandsfriði í Kongó, sem nú kostar 140 milljónir doll- ara á ári, og er sízt útlit fyrir að sá kostnaður fari minnkandi, né yfirleitt nein von um að landið verði bráðlega fnðað. Til þess að Kristján Albertsson: Framtíð Sameinuðu þjóðanna standa straum af þessum kostn- aði hafa Sameinuðu þjóðixnar orðið að taka 200 milljón dollara lán, og reyna að jafna bví niður á allar þjóðir sem að þeim súinda Varð jafnvel lítið land eins og ísland að leggja fram sinn skerf til þeirrar lántöku, 1 viðbót við íramlög til friðargæzlu í Kongó. JWá nærri geta að ýmsar þjóðir, sem þurfa á öllu sínu að halda heima fyrir, séu lítið hrifnar af eð þurfa ár eftir ár að standa straum af miklum 'herafla og fjárfrekum hjálparaðgerðum í einu af Afríku-löndum, og horfa fram á að svipaðra aðgerða verði þörf í fleiri ríkjum — því nú á að íeggja alla áherzlu á að flýta sem tnest stofnun nýrra sjálfstæðra rikja á svarta meginlandinu, en (hinsvegar ekkert leyndarmál að sumar þær þjóðir sem öðlast eiga 6jálfstæði, eru mjög ilia undir allan þann vanda búnar sem því fylgir. Rússar og önnur kommúnlsta- riki neituðu sem kunnugt er að leggja fram fé til aðgerðanna í Kongó, enfremur Belgía og Frakk land. Þá vaknaði sú spurning hvort ríki Sameinuðu þjóðanna gætu einfaldlega neitað þáttöku í Ikostnaði við þær framkvæmdir, sem ekki væri veitt fé til á fjárlögum stofnunarinnar. Var því ágreiningsefni skotið undir Alþjóðadómstólinn ; Haag. Hann felldi í sumar þann úr- skurð, með 9 atkvæðum gegn 5 ®ð öllum meðlimarikjum bæri að greiða sinn hlut af kostnaði við *llar aðgerðir Sameinuðu þjóð- anna, og í sama hlutfalli og hvert þeirra geldur sinn skerf tíl út- gjalda á reglubundnum fjárlög- um. Úrskurður dómslólsms hef- ur þó aðeins gildi sem ráðgef- andi samiþykkt. Kemur nú til Jcasta allsherjarþingsins í haust að hafna honum eða staðfesta hann. Gert að ráð fyrir að hann verði staðfestur. En sú staðfesting myndi hafa hinar mestu afleiði.ngar. Spurn- ingin yrði þá sú, hvort einfald- ur meirihluti á bingi Sameinuðu þjóðanna gæti hvenær sem er lagt þær fjárhagsbyrðar á öll ríki stofnunarinnar, sem honum þætti þarflegt eða nauðsynlegt? Á síðari árum hefur þeirri hug mynd verið hreyft að skattleggja skyldi árlega öll rneðlimaríkin, um vissan hundraðshluta af þjóð ertekjum þeirra, og því fé varið til þess að flýta íyrir íramförum ( svokölluðum vanþróuðum lönd um, og skyldi öll sú fjáröflun fnamkvæmast af Sameinuðu þjóðunum og í þeirra nafni. Hvemig stæðu ríkin að vigi með að hafa hemil á slíkri skatt lagningu, ef búið væri að aðhyll ast þá meginreglu af Sameinuðu þjóðunum, að hverju ríki sé skylt að beygja sig fyrir samþykktum allsherjaiþingsins um fjárfram- lög til alls, sem því kynni að detta í hug að vilja framkvæma? Hætt er við að. mörgum ríkjum einkum hinum stærri, mundi þykja slík þróun fyrir það víð- sjárverðari, að nálega virðist ó- hugsandi að hægt verði að hverfa frá þeirri skipan, sem nú er, að hvert ríki hafi eitt atkva?ði. Þann ig hafa minnstu þjóðirnar — ís- land, Luxemhurg, Albanía, Af- ríkurríkin Togoland, Mauritanía, Somaliland — jafnt atkvæði og Bandaríkin, Indland og hin evrópsku stórveldi (Sovét-Rúss- land hefur þó 3 atkvæði, vegna þess að Úkraina og Hvíta- Rúss- land eru sjálfstæð meðlimaríki). Nú er þing Sameinuðu þjóð- anna aðeins ráðgefandi þing, en yfirgnæfandi meirihluti þjóð- anna hafa hingað til talið sig siðferðislega skyldar til þess að leggja fram það fé, sem krafist hefur verið til þess að standa straum af framkvæmdum. Hvem ig færi ef þessi siðferðilega skylda yrði í framtíðinni gerð að laglegri kvöð? Svo virðist sem vera ætti sann gjarnt samræmi, annarsvegar milli valds og áhrifa sérhvers hóps af meðlimaríkjum á sam- þykktir allsherjarþingsins, og hinsvegar vilja þeirra og getu til að taka á sig ábyrgð af fram kvæmd þeirra. En viss hluti með limaríkja seni eru fulltrúar fyrir mikinn minmhluta mannkynsins geta hvenær sem er borið ofurliði fulltrúa mikils meirihluta mann kynsins. Fulltrúar 180 þús. Is- lendinga og 325 þús. Luxemborg ara hafa jafnt atkvæði og full- trúar 180 milljóna Bandarikja- manma og 400 milljóna Indverja. Fulltrúax 200 miHjóna í ríkjum Mið- og Suður-Ameríku hafa 20 atkvæði. í Afríku búa nú rúmar 20 milljónir og hafa nú þegar 29 atkvæði á allsherjarþinginu, en munu hafa um 40 atkvæði þegar allar nýlendux hafa öðlast sjálf- stæði. 70 smáríki, sem til samans greiða 6% af framlögum til Sam einuðu þjóðanna, geta myndað þann tveggja-<þriðju hluta meiri- hluta, sem til þarf að samþykkja meiriháttar aðgerðir. Af þessu er ljóst, að mörgum muni hrjósa hugur við að auka vald Samein uðu þjóðanna meðan núverandi jafn atkvæðisréttur allra ríkja helzt, S. En hvaða líkur eru bá á því, að þessu verði breytt i eðlilegra horf — og að þar með aukist líkur á, að þær þjóðir, sem mest mega sin, fal-list á að auka ald og verksvið Sam. Þjóðanna? í stofnskránni er gert ráð fyrir endurskoðun, og nú þegar ei rætt um nauðsyn á að breyta ákvæð- unum um atkvæðisrétt meðlima ríkja. En lausnin verður vaía- laust mjög vandfundin. Menn hugsa sér að ákveðið yrði að ríkin hefðu mismunandi mörg atkvæði eins og til dæmis nú á sér stað í ýmsum alþjóða- stofnunum, svo sem Aliþjóðabank anum og Alþjoða-gjaldeyrisstofn uninni, þar se'm atkvæðaréttur fer eftir framlagi fjármagns af hálfu hinna einstöku ríkja. Á þingi Efnahagsbandalags Evrópu hafa stóru rikin, Vestur-Þýzka- lond, Frakkland, Ítalía, hvert 36 atkvæði, Holland og Belgía hvort 14 og Luxemiburg 6 at- kvæði. Gjöldum til Sameinuðu þjóð- anna er jafnað niður á ríkin með tilliti til efnahags þeirra, þjóðar tekna og íbúafjölda. Ekki væri hægt að miða atkvæðisrétt á alliherjarþinginu við framlag þjóðanna. því þá myndu fáein bezt stæðu löndin ráða öllu, og til dæmis Bandaríkin fara með nálega einn þriðja hluta atkvæða Bkki væri heldur hægt að miða eingöngu við mannfjölda ríkj- anna, því iþá myndu viss f jölmenn lönd fá vald, sem ekki stæði í neinu eðlilegu hlutfalli við getu og vilja til að taka á sig ábyrgð á framkvæmd erfiðra og kostn- aðarsamra samþykkta. Heyrst hef ur sú tillaga, að hinum stærstu i ríkjuim, Bandaríkj'unum, Sovét- Rússlandi, Xndlandi, verði útlhlut að 30 atkvæðum hverju, en minnstu ríkjum 1 atkvæði. En líkur á að einhver slík lausn nái samþyklki virðist harðla litlar. Vafalaust mun fjöldi minnihátt- ar ríkja verja núverandi skipu- lag harðri henc'i. Valdagleði margra fulltrúa frá ríkjum með nýfengið sjálfstæði er ekki lítil, og ekki sennilegt að auðveit verði að sannfæra þá um nauðsyn á að skerða áhrif þeirra. Og engu verður breytt nema með tals- vert almennu samiþykki ekki aðeins tveggja þriðju hluta ails herjaiþingsins, heldur og allra fimm stórvelda í óryggisráðinu. Hvert þeirra getur beitt neitun- arvaldi sínu til að stöðva sér- hverja breytingu á stofnskránni. í grein sem einn af reyndustu fulltrúum I>ana á allsherjarþing inu skrifaði í vor, man ég að hann kveið því, að ef ekki tækizt að breyta ákvæðum stofnskrárinn- ar um atkvæðisréttinn, myndi það koma hart niður á Samein- uðu þjóðunum, veikja virðingu þeirra og mátt. Hann mun hafa komizt svo að orði, að þá yrði hætt við að vestrænu veldin tækju framvegis minna og minna mark á samþykktum allsherjar þingsins, teldu þær, fremur en áð ur hefur verið, aðeins hafa gildi sem meðmæli eða tilmæli, sem engan geti skuldhundið, allr® síz>t bá sem greitt hefðu atkvæði gegn þeim. Og þar með myndi' Sameinuðu þjóðunum byrja að hraka. Allar líkur á að svo reynist ekki, að komizt verði hjá óheilla þróun, meðan leitað verður með samningum úrlausnar um nauð- synlega endurskoðun á starfs- skránni, hljóta fyrst og fremst að vera bundnar við þær vonir, að hin mörgu litlu, nýju ríki neyti atkvæðisréttar síns með velsæmi og hyggindum. Og í því efni er ekki astæða til að örvænta að óreyndu, því að mörg þeirra líta svo á, að þau eigi ekki hvað sízt Sameinuðu þjóðunum frelsi sitx að bakka og vita að engum ætti að vera um það annara en einmitt smáþjóð um heimsins, að stofnunin eflist að virðingu og völdum, og geti orðið það sem henni er ætlað að verða smámloman: upphaf alls herjarvalds til verndar réttar og friðar. A LAUGARDAGINN var lokið við að reisa stoðir og þakbita í nýrri byggingu skipasmíðastöðvarinnar Stál- víkur hf. við Arnarvog. Tók verkið aðeins 16 klst., en það var unnið af 6 mönnum og kranabil. Steinsúlurnar á myndinni, sem var tekin áöur en verk- inu lauk, voru gerðar af Steinstólpum hf. og voru þær fluttar í heilu lagi að Arnarvogi og reistar þar. Fyrirliugað er að stöðin” verði gerð' úr tveimur mishá- um sambyggingum og sézt gólfflötur lægri byggingar- innar á milli súlnaraðanna. Stoðir í útvegg hærra hússins verða sennilega ekki reistar á þessu sumri, en þær munu verða 13,3 metrar á hæð eins og súlnaröðin vinstra megin á myndinni. Munu þetta vera hæstu steinsúlur, sem gerðar hafa verið hér á landi. Jón Sveinsson, tæknifræð- ingur, sem er forstjóri Stál- víkur hf., sagði blaðinu að þessi fyrsta bygging yrði fullgerð innan fárra vikna og verður hún 13.500 fermetrar. Gert er ráð fyrir að hefja smíð'i 250 tonna stálskipa í hinni nýju skipasmíðastöð um næstu áramót. Kjartan Sveinsson, tæknifræðingur, teiknaði húsið, en bygginga- meistari er Einar Hallmunds- son. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.