Morgunblaðið - 22.08.1962, Page 19
Miðvikudagur 22. ágúst 1962
MORGUNBLAÐIÐ
19
Þjóövarnorrit-
stjórar til
Tímans
DAG-BLAÐIÐ Tíminn hefur nú
xáðið til sín ritstjóra Frjálsrar
þjóðar, Magnús Bjarnfreðsson.
Verður Magnús blaðamaður við
Tímann og byrjar starfið í næsta
mánuði. Fyrirrennari Magnúsar
hjá Frjálsri þjóð var Jón Helga-
son, sem síðar réðist ritstjóri við
Tímann og starfar þar enn.
— Sjúkravagnar
Framhald af bls. 1.
eð nokkur hreyfði hönd eða fót
bonum til aðstoðar.
í tilkynningunni er einnig tek
In sú afstaða til óeirðanna í
Vestur-Berlín, að þser séu til þess
eins fallnar að gefa Austur-I>jóð-
verjum og Rússum vopn í hend-
ur. Segir í yfirlýsingunni, að
eetuliðsstjóramir og borgarstjórn
ir skilji mæta vel, að íbúar borg-
erinnar séu reiðir og sárir, en
Iþeir megi ekki láta tilfinningar
eínar hlaupa með sig í gönur,
Iþannig að grafizt undan einingu
setuliðsins, borgaryfirvaldanna
og íbúanna, því að þar með væri
uppfyllt von Sovét- og Ulbricht
stjórnanna.
• Vilja ekkl
vernd lögreglu
Óeirðir urðu miklar í Vestur-
Berlín seint í gærkvöldi og slös-
uðust nær þrjátíu manns, þar af
Ihelmingur lögreglumenn. Beita
varð táragasi til þess að dreifa
mannfjöldanum. í dag var stein-
um kastað að rússneskri járn-
brautarlest, sem fór um Vestur-
Berlín; voru allar rúður í ■ lest-
inni brotnar.
Talsmaður bandaríska setuliðs
ins skýrði frá því í dag, að
eovézki herforinginn, Tarasov,
hefði reynt að ná fundi banda-
ríska setuliðsstjórans í því skyni
eð mótmæla því, er grjóti var
kastað í strætisvagn er flutti
sovézka hermenn að rússneska
minnismerkinu í Vestur Berlín.
Watson, setuliðsstjóri, neitaði að
taka á móti Tarasov, en lét skila
til hans, að hann fengi sömu
viðtökur og sendiboði Vesturveld
enna er bar Siganov, setuliðs-
Btjóra Rússa fundarboð þeirra.
I.oks var frá því skýrt í
kvöld, að rússneska setuliðs-
stjómin hefði mælst til þess,
að bandarikir hernienn hættu
að sjá rússneskum strætisvögn
um fyrir lögreglufylgd, eins
©g þeir gerðu á mánudag, er
vagninn var grýttur. Því hafa
setuliðsstjórar Vesturveldanna
svarað, að þeir ákveði sjálfir,
hvað þeir telji réttast að gera
og geri á yfirráðasvæði þeirra
i Berlin.
’ í kvöld sendu Rússar bryn-
varða bifreið til minnismerkis-
ins í stað strætisvagns.
prófessor Mstialsv Keldyst sagði
Um kvöldmatarleytið hafði
þegar verið komið fyrir banda-
rískum sjúkravagni, en rætt er
um að biðja alþjóðlega Rauða-
krossinn að taka við þessari
þjónustu.
• Hvít bók
í Bonn var skýrt frá þvl i
dag, að Konrad Adenauer, Kanzl
ari hyggist skrifa stjórnum fjór-
veldanna út af abburðunum í
Berlín undanfarið og ennfremur
muni hann láta gera Hvíta bók
um þróunina í Berlín frá því
múrinn var reistur fyrir ári.
Happdræfti
Framíhald af bls. 6.
109.360 110.611 110.855 111.062 11.206
111.346 111.353 112.266 112.394 112.490
112.714 112.812 112.928 114.289 115.127
116.378 11B.170120.OS3 120.244 120.272
120.851 122.029 122.184 123.356 123.494
123.646 123.706 124.491 125.114 126.238
127.077 127.319 127.474 127.709 127.930
129.469 129.497 129.616 129.683 130.598
130.697 130.768 130.777 130.923 131.066
1312042 131.722 133.416 133.567 134.056
134.293 134.318 134.742 134.682 134.846
136.573 136.193 136.246 136.730 136.883
137.256 137.899 138.146 138.494 139.506
J39.531 140.17« 140.287 141.151 143.845
144.243 145.100 145.471 145.769 146.780
148.026 148.745 149.446 149.879 149.880
(•Birt átu ábyrgöod).
— Geimfararnir
Framhald af bls. 1.
inn i gufuhvolf jarðarinnar eftir
geimferðina. En hann kvaðst
hafa losnað við þessa tilfiningu
þegar er bremsueldflaugarnar
tóku við sér. Leiðin niður sagði
hann hafa verið líkust þvi að
aka í kerru eftir ósléttum vegi.
Hann hefði verið afar feginn að
finna fasta jörð undir fótum og
hefði mesta löngun haft til þess
að kyssa jörðina.
Nikolajev sagði ennfremur að
geimförin hefðu verið mjög
nærri hvort öðru, en fjarlægðin
hefði þó aldrei verið minni en
fimm kílómetrar, enda hefði ekki
verið ætlunin að þeir mættust
alveg. Báðir geimfararnir komu
niður í fallhlífum — með 200 km
millibili og geimförin sjálf kvmu
til jarðar skammt frá.
Geimfararnir sögðu geimför
þeirra hafa verið sömu gerð og
geimför þeirra Gagarins og Titovs
en þau vógu um það bil fimm
lestir.
Fréttamenn taka til þess að
Popovitsj hafi verið mun örugg
ari í framkomu á blaðamanna-
fundinum en Nikolajev, hann sé
að þvi er virðist vanari að koma
fram opinberlega og haldmn
meina sjálfstrausti. Svör hans
þóttu snör og oft kjamgóð, og
hlaut hann af og til klapp við-
staddra fyrir hnyttin tilsvör.
★ Reyktur fiskur — kalt vatn.
Nikolajev sagði það hafa ver-
ið ánægjulegt augnablik, er hann
heyrði rödd Popovitsj utan úr
geimnum, það væri einkenniieg
tilfinning og torveld að útsikýra
fyrir öðrum, að vita sig sigla um
himingeiminn í fylgd góðs vin-
ar. Báðir kváðust hafa haft góða
matarlyst. Fopovitsj naut þess
mest að snæða „reyktan fisk úr
Kaspíahafinu“ en Nikolajev þótti
bezt „góða kalda Moskvu-vat.nið“.
Popovitsj lýsti Ijósunum á
jörðu niðri og stormum. Ljós-
neistana, sem þeir Glenn og Titov
hafa skýrt frá taldi hann stafa
frá eldflaugaihreyflunum. Hann
sagði geimfar Nikoijovs hafa ver
ið eins og lítið tungl að sjá. Er
Popovitsj var spurður, hvort
hann hefði tekið nokkurt lyf við
loftveiki, svaraði hann hví til
að hann neytti aldrei lyfja,
hvorki á lofti né láði.
Forseti vísindaakademíunnar,
prófessor Mstislan Keldysi sagði
að rússneskir vísindamenn hefðu
vitað um áhrifin af háloftaspreng
ingum Bandaríkjamanna og sagði
að ekki yrði unnt að senda menn
i langar geimferðir um hríð,
reyndar væri nú ekki hægt með
góðu móti að senda menn hætra
á Ioft en þeir Nikoljev og Popo
vitsj fóru, án þess að þeirra biði
hætta af nýja geislabeltinu.
Ekki fengust neinar upplýs-
ingar um næsta geitnfara Rússa,
Blaðamenn spurðu, hvort þeim
yrði leyft að fylgjast með næsta
geimskoti, en því svaraði prófess
orinn, að meðan Vesturveldin
notuðu eldflaugar í hemaðar-
skyni væri það ekki hægt, því
að eldflaugamar, sem flyttu geim
förin mönnuðu væru sams konar
og þær, sem ætlaðar væru il
hernaðar ,
Yrði á hlnn bðginn undirritað
ur afvopnunarsamningur fyrir
þann tíma væri það auðsótt mál.
Loks báðu blaðamenn Popo-
vistj að syngja fyrir þá eitthvað
úr geimfarasöngnum nýja, sem
þeir Nikolajev Iiöfðu átt að
syngja á kvöldin áður en þeir
fóru að sofa, en því neitaði
Popovitsj.
— I>að værl svo sem sjálfsagt
sagði hatrn, ef etnliver væri hér
til að leika undir — Uppi í himin
geimnum léku stjörnurnar und-
ir fyrir okkur.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglysa
i Morgunblaðiiiu, en öðrum
blöðum.
Á myndinni sézt HS Denis-
on 90 tonna sævængjaskip í
reynsluferð nú fyrir skömmu'
nálægt Long Island í Banda-
ríkjunum. Skipið, sem er
byggt úr alúminium, á að geta
náð allt að 80 hnúta hraða, en
um leið og hraðinn er orðinn
26 hnútar, lyfta vængirnir
skipinu upp á yfirborð sjáv-
arins, en við það minnkar mót-
staða gegn hreyfingu skipsinsi
og hraði þess eykst verulega.
Ætlunin er, að skipið verði
tilbúið á næsta ári. Mun það
taka 60 farþega
— Iþróttir
Framh. af bls. 18.
Á sundmótinu í gær setti
franska sveitin Evrópumet í riðla
keppni 4x200 m skriðsunds á
8.25.8.
I 200 m bringusundi kvenna
sigraði Lonsbrough Englandi
(Olympíumeistarinn) á 2.50.2.
Bimholt Hollandi varð 2. á 2.51.2
og Kaeter A -Þýzkal. nr. 3 á
2.52.2. Heimsmetið 2.48.0 á aust-
ur-þýzk stúlka Karin Beyer en
hún varð 6. í þessari keppni á
2.54.9. Keppnin fór fram í helli-
rigningu og kulda.
í undatnásum í sundknattleik
vann Rússland í dag Pólland með
10:0. Rússar hafa þá unnið sinn
riðil og fara í úrslit.
í 4x100 m fjórsundi vann
A-Þýzkaland á 4:09.0 (Nýtt
Evrópumet). 2. Rússland 4:10.3.
3. Holland 4:10.9. 4. Frakkland
4:12.5 5. Ungverjaland 4:12.7.
- U Thant
Framhald af bls. 1.
ríkjasambands í Kongó með aðild
Katanga, en óskaði að það yrði
með svipuðum hætti og gerist á
Ítalíu eða í Sovétríkjunum.
Tshombe minntist ekki einu orði
á áætlun U Thants, en ræddi bit-
urlega um „óvini Katanga“ er
enn reyni að efna til vopnaðra
aðgerða eða efnahagslegra refsi-
aðgerða gegn fylkisstjórninni.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í New York, að aðilar
Öryggisráðsins hafi í stórum drátt
um samþykkt áætlun U Thants.
Fulltrúar Bandaríkjanna, Bret-
lands og Belgíu áttu sérstakan
fund um málið í dag. Einhver
ágreiningur er talinn um það,
hvenær áætlunin skuli birt opin-
berlega í einstökum atriðum, en
U Thant mun því mjög andvígur,
að fréttamönnum takizt að snapa
uppi einstaks þætti hennar smátt
og smátt.
Ekki þykir ljóst, hver afstaða
Bandaríkjamanna hefur yerið
fyrirfram til slíkrar áætlunar, en
talsmenn brezku stjórnarinnar
hafa tekið skýrt fram, að hún
eigi engan þátt í samningi henn-
ar. Ljóst er þó, að Bandaríkja-
stjórn er fylgjandi því, að Kat-
angastjórn sé sýnd meiri harka
til þess að binda endi á skilnaðar
stefnuna ef þörf krefur, en Bret-
ar og Belgar sem hvorirtveggja
eiga mikilla hagsmuna að gæta
í Katanga eru því andvígir.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum 1 Leopoldville, að
Cyrille Adoula hafi þegar lýst sig
samþykkan éætlun U Thants,
enda þykir víst, að fulltrúi S.þ.
þar, Robert Gardiner, hafi verið
búinn að skýra honum frá megin
efni henuar íyrirfram.
— Utan úr heimi
Framíh af bls. 10
efnahagsmálaráðiherra Hollandls,
í Oslo í síðustu viku, þar sem
hann ræddi við Norðimenn um
væntanleiga aðild þeirra. Hann
sagði, að efnahagsbandalagið
væri nú sem óðast að treysta
tengsl sin við flest lönd heims og
fullyrti, að lönd í Afríku, Asíu
og Evrópu myndi ganga í banda-
lagið.
Þau atriði, sem sammingar náð
ust um í Brússel, eru m.a. þessi:
Bjóða á nær öllum brezkum
yfirráðasvæðum í Afríku og Kara
biska hafinu aukaaðild (16
frönskumælandi Afríkuríki hafa
þegar gert slíkan samning).
• Hentuga verzlunarsamn-
inga á að gera við Indland, Pak-
istan og Ceylon, þannig, að þessi
ríki geti haldið áfram útflutn-
ingi sínum til Evrópu. M.a. á að
fella niður tolla á te, sem flutt
verður til bandalagsríkjanna, en
hann var áður 18% (Indverjar
hafa nær helming tekna sinna
erlendis af teútflutningi).
• Reynt skal að finna heppi-
lega lausn á vandamálum Sain-
veldisins, þannig að þau geti
flutt út vörur til bandalagsríkj-
anna. 1963 á að reyna að fá kom-
ið á sérstöku alþjóðlegu verzl-
unarsamkomulagi, sem styrkja
á aðstöðu þeirra landa, sem nær
eingöngu framleiða hnáefni.
E.t.v. er trú margra ráða-
manna í Evrópu bezt lýst með
orðum eins þekkts embættis-
manns í Bonn, eins og Time skýr
ir frá: „í þriðja þætti (leikrits-
ins, þ.e. umræður EBE) mun allt
fara vel. Hetjan mun taka í hönd
ásbmeyjarinnar og þau gartga
inn í sólsetrið með bros á vör.
íbuðir til sölu
Lítil 2ja herb. íbúð við Njáls-
götu.
4ra herb. íbúð við Miklubraut.
5 herb. íbúð við Holtsgötu.
Lítið einbýlishús við Sogaveg.
Nýtt einbýlishús í Kópavogi.
I smíðum
Glæsileg 6 herb. efri hæð með
bílskúr í Safamýri.
3ja herb. íbúðir við Háaleitis-
braut.
4ra herb. íbúðir í Safamýri.
Þið, sem ætlið að selja í haust,
talið við okkur, sem allra
fyrst. — Höfum kaupendur
að íbúðum af öllum gerðum
og stærðum.
Sveinn Finnsson hdl
Málfiutningur. Fasteignasala.
Laugavegi 30.
Sími 23700.
Heimasími sölumanns: 10634.
Herdís veikist hast
arlega í leikför
í FYRRADAG, er Rekkjuflokk-
urinn svonefndi, var staddur á
Þórshöfn, veiktist Herdís Þor-
valdsdóttir, leikkona, hastarlega
af nýrnasteinum. Lék hún þó
um kvöldið, en í gær sótti
Tryggvi Helgason hana í sjúkra-
flugvél sinni og flutti til Reykja-
víkur, þar sem hún var lögð í
sjúkrahús.
Leikflokkurinn var I leikför
úti á landi. Skömmu eftir að
hann lagði af stað, eða hinn 10.
þ. m., valt bíllin með leikfólk-
ið, í Grundarfirðinum. Engan
sakaði, leikararnir léku um
kvöldið, fengu annan bíl og
héldu förinni áfram. Höfðu þeir
haft sýningar á Rekkjunni á
Norðurlandi, en áttu eftir Aust-
firði, e. Herdís veiktist. Varð að
aflýsa sýningu á Vopnafirði 1
gær.
Leikstjórinn, Klemens Jóns-
son, og mótleikari Herdísar,
Gunnar Eyjólfsson, komu einnig
í bæinn.
— Flugslys
Framh. af bls. 1
ferð til þess að það tækist, og
þaut áfrarn gegnum steinsteyptan
varnargarð og út í Guanabara
flóann. Jjreyflar rifnuðu af vél-
inni, áður en hún stöðvaðist.
Farþegar þyrptust út á vélar-
vængina og héldu sér, þar til
hraðbátar lögreglunnar komu á
vettvang, en meðan beðið var,
barst flakið frá landi.
Meðal þeirra sem fórust var
tveggja mánaða barn, barnabarn
dr. Ose de Castro, sem verið hef-
ur aðalfulltrúi Brazilíu á afvopn-
unarráðstefnunni í Genf. Haft er
eftir einum björgunarmanna að
kona ein hafi synt langa leið
að landi me£ barn í fanginu.
Henni tókst ekki að komast alla
leið, yfirbugaðist af þreytu og
lézt, en barninu var bjargað.
Flugvélin átti að fara til
London frá Paris.
íbúðir til sölu
4ra herb. íbúðarhæð' í Hlíðun-
um.
4ra herb. íbúðarhæð við
Kleppsveg.
3ja herb. íbúð'arhæð við Há-
tún.
3ja herb. jarðhæð við Skip-
holt.
3ja herb. jarðhæð við Hjalla-
veg.
2ja herb. íbúðir víðsvegar um
bæinn.
Eimbýlishús í smíðum í Kó'pa-
vogi.
Höfum kaupendur að íbúðum
af ýmsum stærðum.
Gestur Eysteinsson
Fasteignasala
og lögfræðiskrifstofa,
Skólavörðustíg 3A.
Sími 2 29 11.