Morgunblaðið - 13.09.1962, Side 15

Morgunblaðið - 13.09.1962, Side 15
Fi*imtudagur 13. sept. 1962 MORGVNBLAÐIÐ 15 Frá Barnaskólum Reykjavíkur Börn á aldrinum 10—12 ára eiga að hefja skóla- göngu um n.k. mánaðamót. N.k. föstudag, þann 14. þ.m., þurfa börnin að koma til skráningar í skólana sem hér segir: Börn fædd 1952 komi 14. sept. kl. 1 e.h. Börn fædd 1951 komi 14. sept. kl. 2 e.h. Börn fædd 1950 komi 14. sept. kl. 3 e.h. Foreldrar athugið: Mjög áríðandi er, að gerð sé grein fyrir öllum börnum á ofangreindum aldrei í skólanum þennan , dag, þar sem raðað verður í bekkjardeildir þá þegar. Geti börnin ekki komið sjálf, þurfa foreldrar þeirra en aðrir að gera grein fyrir þeim f skólun- um á ofangreindum tímum. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Almennar tryggingar í Gullbringu- og Kjósarsýslu Bótagreiðslur almanna trygginganna í Gullbringu- og Kjósarsýslu fara fram sem hér segir; í Grindavíkurhreppi þriðjud. 18. sept. kl. ÍO—12. í Garðahreppi þriðjud. 18. sept. kl. 2—4. í Miðneshreppi fimmtud. 20. sept. kl. 2—4. í Njarðvíkurhreppi þriðjud. 18. sept. kl. 2—5 og fimmtud. 20. sept. kl. 2—5. í Seltjarnameshreppi föstud. 14. sept. kl. 1—5. Þinggjöld ársins 1962 óskast greidd um leið. í öðrum hreppum fara greiðslur fram eins og venjulega. * Sýslumaður Gullbringu- og Kjósarsýslu. Stúdentaráð Háskóla íslands óskar eftir að ráða framkvœmdas tjóra sem jafnframt yrði forstöðumaður bóksölu stúdenta. Vinnutími a.m.k. 4 stundir á dag. Laun eftir sam- komulagi. — Eiginhandarumsókn ásamt upplýsing- um um menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir hádegi á laugardag merkt: „Stúdent — 7704“. Korniiig og IVIoller píanó Ný sending væntanleg af þessum heimsfrægu píanóum. — Sýnishorn á staðnum. UMBOÐ Á ÍSLANDI FYRIR HORNUNG & M0LI.ER KONGELIG HOF PIANOFABRIK: KARL K. KARLSSON Austurstræti 9, sími 20350. gesta eru íslendingar. Varla líð- ur sa: sá dagur að útlendan gest beri ekki að garði. — Hvemig gengur með fólks hald á svona hótel? — í sumar hefur verið með erfiðasta móti að fá starfsfólk. Svo mikil vinna er alls staðar og síldin tók drjúgan mannskap Við fengum þó það sem við þurft um, og nú er 20 manna starfs- lið. Annars er það eitt mesta vandamálið í hótelrekstri á Is- landi, hve mjög vantar þjálfað hótelfólk. Erfiðast er, að maður verður alltaf að byrja á því að þjálfa starfsfólk um leið og það ræðst til starfa, en þegar það er svo búið að fá æfingu og þjálfuh þá er það farið í önnur störf. í»að lítið sem til er af vönum hótel- Frh. á bls. 19 Itiótatimbur Tilboð óskast í 4850 fet 1 x 6“ og 850 fet 2 x 4“. Timbrið hefir aðeins einu sinni verið notað í vinnu- palla. Upplýsingar hjá Sigurþóri Jónssyni. eða Gunnari Gunnarssyni, Ljósheimum 11, eftir kl. ■ 18,30 á kvöldin. Hóteliff í Borgarnesl tekur 50 manns i gistingu. Þar er einnig stor veitingasalur og setustofa. Ljósm.: Mats Wibe Lund Hdtelrekstur aö vetrarlagi fyrst og fremst þjónusta Rætt við Harald Pétursson, hótelstjóra 1 Borgarnesi ÞEIR ferðamenn, sem eiga ein- Ihver erindi út á land utan hins stutta viðurkennda sumarleyfis- tíma, verða þess fljótlega óþægi lega varir hve lítið er um gisti- staði. Þetta kon.st einn af blaða- mðnum Mbl. að raun um S ferða lagi um Borgarfjörð og Snæfells nes um síðustu helgi. Sumar- gistihúsunum hafði verið lokað og á löngu svæði var aðeins eitt hótel — Hótel Borgarnes. Sjálf- sagt fer svo fyrir fleirum sem leið eiga þarna um að vetrarlagi vori og hausti, að Hótel Borgar- nes ^jargar. Hótelstjórinn .Haraldur Péturs son, virðist alltaf vera nærtækur þegar gesti ber að garði eða þurfa á einhverju að halda .Hann -r kominn á fætur kl. 7,30 og byrj aður að skipuleggja störfin með jþví fólki, sem þá kemur á vakt og síðan sést hann við ao stjórna vinnu í eldhúsi eða að taka á móti gestum til kl. 23.30 þegar lokað er veitingasal. Eftir það halda áfram að tínast inn síð- búnir gestir sem hringja á bjöll una í íbúð Haraldar, svo iðu- lega fer hann niður 5—6 sinum á nóttu, til að hleypa hótelgest- um inn og taka á móti nýjum. Það reyndist því ekki erfitt að hitta hann að máli. — Já, það er mikil umferð um Borgarnes og sívaxandi umferð, sagði hann. Og Hótel Borgarnes, sem tekur 50 manns í gistingu, er í senn of lítið og of stórt. Lít ið yfir sumarmánuðina, þegar iðulega verður að úthýsa gestum, einkum um helgar, en of stórt yfir vetrarmánuðina. Dauði tím inn veturinn krefst þá viss starfs fólkshalds og verður að halda vel á til að geta veitt hótelþjónust 'þann tíma, og láta sumartímann, frá maíbyrjun til septemberloka, bera reksturinn uppi. Eg mundi yfirleitt segja, að það væri mikl um erfiðleikum bundið að reka 'heils árs hótel á íslandi þar sem umferðin er svo ójöfn eftir árs- tímum. Þeir sem reka sumar- hótelin geta fleytt rjómann ofan af, ei. fyrir Okkur, sem veitum þá þjónustu að hafa opið yfir langan vetur, er þetta erfitt. — Hvers konar gestir korna hér 'helzt? Dveljast menn gjarn- an að um tíma hér í Borgarnesi? — Nei, upphéruðin í Borgar- firðinum eru frekar dvalarstað- ur fyrir ferðamenn en Borgar- r.es. En fólk kemur hér mikið við, leggur t.d. að kvöldi til upp frá Reykjavík og gistir fyrstu nóttina hér, og eins búa laxveiði menn gjarnan hér og aka á morgn ana upp að ánum. Sömu mennirn ir koma ár eftir ár. Ferðahóp- ar koma oft að kvöldi, borða hér og gista, og halda áfram næsta morgun. >að veldur okkur stund um erfiðleikum, ef einn hópur tekur upp hótelið í eina nótt, því á meðan verðum við kannski að úthýsa fastagestum, sem vilja dvelja nokkra daga. Nú, fólk kemur í ýmsum erindum. Núna eru hér t.d. hjón með krakka, sem eru í berjamó á daginn, norskur Ijósmyndari er að taka myndir, sem á að setja á póstkort., eftir- litsmaður með bygingunni á prest setrinu á Borg er hér o.fl. Áætlun arbílarnir á Snæfellsnesi stanza hér og farþegar fá sér að borða, í sláturtíðinni er starfsfólk í slát urhúsinu hér í fæði og bændur koma og fá sér að borða. Eins koma unglingarnir i Borgamesi oft hér á kvöldin og fá sér gos- drykk eða kaffi og félögin hafa sínar árshátíðir. — Margir útlendingar? — Yfirgnæfandi meirihluti Ilaraldur Pétursson, hótelstjóri, Katrín Hraunfjörð, kona hans og drengirnir þeirra tveir. Hótelstjórinn ber á borð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.