Morgunblaðið - 13.09.1962, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.09.1962, Blaðsíða 22
22 MC RGVNBL AÐlh Fimmtudagur 13. sept. 1962 Vilhjálmur náði 4. bezfa stökki undanrása 15,76m IVáði því í þriðju tifrauai á mjög vondri braut Aðeins 9 menn náðu tilskiEdu lágmarki VILHJÁLMUR Einarsson náði fjórða bezta árangri í undan- keppni í þrístökki á Evrópumeistaramótinu í Belgrad í gær- kvöldi. Hann stökk 15.76 metra í sinni þriðju tilraun. Lág- markið til að komast í úrslitakeppni var 15.50, en þeirri stökklengd náðu ekki nema 9 menn. Var því farið niður á við til að fylla 12 manna úrslit og 12. maður í úrslit var Norðmaðurinn Odd Bergh með 15.40 metra. Fréttamaður Morgunblaðs- ins í Belgrad símaði í gær, að Vilhjálmur hefði í fyrstu ekki sýnt sitt bezta. í fyrsta stökki stökk hann „aðeins“ 15.34 m. Þetta virtist fá nokk- uð á hann, því að í annarri tilraun virtist hann mjög taugaóstyrkur og stökk hans misheppnaðist algjörlega. En hann sýndi síðar sitt mikla og góða keppnisskap. — 1 þriðju tilraun undirbjó hann sig vel og stökkið virtist hon- um létt og auðvelt. Það mæld ist 15.76 m — langt yfir lág- markið til úrslitanna og reyndist vera fjórða lengsta stökk í undankeppninni. Fréttamaður Mbl. sagði að keppnin í þrístökki væri af- skaplega hörð, þar sem í Ev- rópu væru allir beztu stökkv- arar heimsins. Sérstaka at- hygli vakti stökk Pólverjans Jaskolskis, sem var óvenju- lega fjaðurmagnaður, stekk- ur án ails erfiðis og nær mjög góðum árangri. Brautin þótti mjög laus og slæm. Odd Bergh ségir í við- tali við NTB-fréttastofuna, að engan hefði órað fyrir því að stökkbraut á Evrópumóti yrði svo laus og vond. „Hún var beinlínis slæm á köfi- um“, segir hann. „Heima í Noregi hefði ég sett norskt met með jafn vel heppnuð- um stökkum og hér“, bætti hann við. ir Söguleg keppni í>að var ekki táralaus undan- keppnin. Flestum gekk verr en þeir eiga að venjast heima fyrir, eins og kemur í Ijós af því að fara verður niður lágmarkið, 15,50, til að fá 12 menn í úrslit. ALÞJÓÐA frjálsíþróttasam- ' Landið hóf fundi sína í Bel , grad í gær. Á fundi sínum gær samþykkti sambandið að heimila notkun trefjagler 1 stanga í stangarstökki. Sam- þykktin var gerð hálftlma áð ■ ur en mótið hófst oa, geta kepp endur á mótinu bví notað sín ar trefjaglerstangir ef þeir ' vilja. Það var stjórn sambands ins sem gerði áðurgreinda sam þykkt. Fullskipað þing alþjóða ■ sambandsins sem haldið hef-, 1 ur í næstu viku, verður að < staðfesta þessa samiþykkt. Einna sárust hljóta vonlbrigð Bússans Vitold Kreer að vera. ÞETTA er veður fyrir okk- ur, sögðu ísl. frjálsíþrótta- mennirnir er fréttamaður Mbl. í Belgrad kom að máli við þá í gær. Það var 30 stiga hiti um miðjan daginn, allheitt um hádegisbil, en varð síðan dálítið svalt. Það sögðu ísl. strákarnir. „Þetta er dásamlegt“. Þeir létu mjög vel yfir öllu viðurværi, ágætis mat- ur er á boðstólum og hús- næði einnig. Vilhjálmur keppir í úrslit um á morgun og þá er einnig dagur Valbjarnar. Hann byrjar tugþrautar- keppnina og fer einnig e.t.v. í stangarstökkskeppnina. Kristleifur mun einnig hlaupa á morgun. Þeim líð- ur öllum vel og allir eru bjartsýnir á góðan árangur, segjast vera í bezta formi. Hann varð 13. í röðinni með 15.40 m — sömu lengd og Norðmaður inn Bergih komst á í úrslitin. Kreer hefur um árabil verið einn bezti þrístökkvari heimsins og oftast í röð þriggja efstu. A síðasta Evrópumóti í Stokkhólmi var hann talinn einna sigurstrang legastur. En þá komst hann held ur ekki í úrslit, gerði tvö fyrstu stökkin í undankeppninni ógild og var svo varfærinn í þeirri þriðju og síðustu að ekki nægði 8. Kari Rahkamo Finnl. 15,53 9. L. Gurgushinov Búlgar. 15,50 10. Emzo Cavalli Ítalíu 15.48 11. Hans Ruckhorn Þýzkal. 15,44 12. Odd Bergh Noregi 15,44 Kreer — grét enn stökklengdin til úrslita. Þá felldi hann höfug tár. Vafalaust mun hann hafa tárfellt einnig nú. Úrslit undankeppninar urðu þessi 1. Josef Sohmidt Póll. 15,98 2. Jan Jasfkolski Póll. 15,86 3. Manfred Hinze Þýzkal 15,79 4. Vilhjálmur Einarsson 15,76 5. Olge Fedossew Rússl. 15,68 6. Radoslav Jocic Júgóslav 15,58 7. V. Goreiev Rússl. 15.54 Gabor bjartsýnn ÞJÁLFARI ísl. frjálsíþrótta- mannanna sem úti eru. Sim- oni Gabor, spáði því í gær við fréttamann Mbl. í Belgrad, Jað Vilhjálmur myndi stökkva yfir 16 m í aðalkeppnirani Hann væri í mjög góðri æf-j ingu nú. Sagði Gabor að hann teldi sennilegt að Vilhjálmur yrði einn af 6 fyrstu í greininni jafnvel hefði hamn möguleika á verðlaunum. Gamper — tvisvar 10.3 í gær Aðeins 3 þfóðir iá menn í árslit í 100 m UNDANRASIR 100 m hlaupsins á EM í gær voru að vana sögu- Iegar. I þessari grein, þar sem. engu má skeika, geta þeir sem mestar vonir eru bundnar við, verið slegnir úr keppni, óvænt og miskunnarlaust. Svo fór og nú. Englendingurinn Radford var „sleginn út“ i undanúrslita- ferð hlaupsins er hann hljóp á 10.5. Hann var af sumum talinn „viss“ á verðlaunapallinn. Sömu sögu er að segja með Berutti, ítalíu, sem hljóp á sama tíma — og fleiri. Langmesta athygli vakti Þjóð- Rússar unsiu tvö fyrstu gullín" og Bretar eitt // RUSSAR og Englendingar unnu 3 fyrstu gullverðlaunin á Evrópu- mótinu í gær. Rússar fengu tvö og Bretar eitt. Rússinn Bolotni- koff vann sem vænzt var 10 km hlaupið létt og auðveldlera og hafði alger yfirburði. Tamara Press vann kúluvarp kvenna og jafnaði eigið heimsmet 18.55 m. Englendingurinn Kenneth Matt- hews vann í 20 km göngu karla. Tito setíi mótið að viðstödd- um um 50 þúsundum manna. Það var logn, mjög heitt og fagurt veður. Meðal gesta í heiðurs- stúku var Titov annar geimfari Rússa. Flögg þátttökuþjóðanna 28 voru umhverfis völlinn en þátttakendur gengu fylktu liði inn á völlinn, Austurríki í farar- broddi og síðan stafrófsröð þjóða. Á þessum sólheita sumardegi urðu mörg vonbrigðin í gær ekki sízt þó hjá Norðmönnum. Þeir áttu 5 menn í keppni og aðeins einn komst : úrslit, Odd Berg í þrístökki. Það var dapurleiki í röðum Norðmanna eftir daginn. Bolotnikoff vann fyrsta gull mótsins í 10 km hlaupi. Hann hafði forystu frá upphafi íil loka að undanskildum smárykk sem Þjóðverjinn Janke tók fram fyrir hann. Þeir tveir hlupu saman sér og varð allt að 50 m bil að næsta hópi hlaupara. Bolotnikoff tók svo gífurlegan endasprett þar sem hann vann 7 sek. af Janke á síðustu 400 m. Úrslit urðu þessi: EM-meistari Bolotnikoff Rússl. 28.54.0. 2. Janke Þýzkal. 29.01.6. 3. Fowler Engl. 29.02.0. 4. Hyman Engl. 29.02.0. 5. Bogey Frakkl. Framh. á bls 23 verjinn Peter Gemper. Hann hljóp báða sprettina á 10.3 sek., undanrásir og undanúrslit. Slíkt gerði enginn nema hann, enda ekki heiglum lient. 10.3 náðn einnig í undanrásum Þjóðverj- inn Hebauf og Frakkinn Dela- cour, en þeir náðu „aðeins“ 10.4 í undanúrslitum. Þjóðverjarnir unnu hvor sinn undanúrslitariðil sem voru þannig: 1. riðill: Heabauf 10.4, 2. Pi. quemal, Frakkl., 10.4, 3. Berutti, ítalíu, 10.5, 4. Radford, Engl., 10.5, Bachwarow, Búlg., 10.5, 6, Politiko 23.4 (meiddist). 2. riðill: Gamper, Þýzkal., 10.3, 2. Foik, Póll., 10.4, 3. Lagorge, Frakkl., 10.5, 4. Zielinski, Póll., 10.6, 5. Ouviakov, Rússl., 10.6, 6, Meokin, Engl., 10.7. 3. riðill: Juskowiak, Póll., 10.4, 2. Delacour, Frakkl., 10.4, Schumann, Frakkl., 10.4, 4. Oz» olin, Rússl., 10.5, 5. Jones, Engl., 10.5, 6. Mandlik, Tékkóslóv., 10.6. 1 úrslit komast því tveir Þjóðverjar, Gamper og Hebauf, tveir Frakkar, Qplacour og Pi- quemal, og tveir Pólverjar, Foik og Juskowiak. Helgi Dan atvinnumaður? SVO kann að fara að Helgi Daníelsson landsliðsmarkvörð- ur íslands um langt skeið, hverfi úr röðum áhugamanna og gerizt atvinnumaður í Skot landi. Helgi sagði í gær að hann væri þess fýsandi að enda sinn feril sem atvinnu- maður, ef vel semdist fyrir sig og fjölskyldu sína, en mál- ið væri sér að öðru leyti ekki kappsmál. Skozka félagið Motheiwell, eitt bezta 1. deildarlið Skot- lands, er í markmannshraki. Framkvæmdastjóri þess Ro- bert Anoell skrifaði kunningja sínum hér,.sr. Robert Jack á Vatnsnesi og spurði hvort hann vildi færa málið í tal við Helga Daníelsson. Mikið orð hafði farið af Helga í leik íra og Islendinga í Dublin og eftir peim orðrómi vildi Ancell reyna Helga. Býður hann honum til 2—4 vikna dvalar í Skotlandi „til reynslu og viðtals“ og eftir það muni þeir ræða samninga ef báðum lítist svo. Robert Jack fer utan í næstu viku og flytur þá Ancell þau boð að Helgi sé reiðubúinn til reynsluferðarinnar. Helgi sagði í gærkvöldi, að hann gerði sér engar gyllivon- ir í þessu sambandi. Hins veg ar þætti sér gaman að reyna t. d. í 2 ár með góðu atvinnu- mannaliði, ef góðar aðstæður fengjust fyrir fjölskyldumann. . Það væri skemmtilegur endir eftir 15 ára puð í knattspyrnu. Málið væri sér annars ekki kappsmál, gróðavonir sagðist Helgi ekki bera í brjósti sér- staklega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.