Morgunblaðið - 14.09.1962, Side 23

Morgunblaðið - 14.09.1962, Side 23
23 ff Föstuðagur 14. sept. 1962 MOFGUNBLAÐIÐ r . ________ ■ ■ -----------------------—.—.... Hamboöslisti lagður fram í Alsír Ben Khedda ekki á listanum Alsír, 13. september (NTB-AP) 1 • í dag var birtur í Alsír framboðslisti við fyrirhugað- t>r þingkosningar í landinu 20. september næstkomandi. Var listinn undirbúinn af stjórnarnefnd Ben Bella og yfirmönn- um svæðisherjanna. • Það vakti athygli, að nöfn Ben Khedda og fleiri r.Isírskra leiðtoga voru ekki á listanum, en á lista þeim, sem lagður var fram, þegar ráðgert var að halda kosningarnar 2. september, var Ben Khedda meðal frambjóðenda. Aftur á móti er Belkacem Krim, einn svarnasti andstæðingur Ben Bella, á listanum. • Þetta er eini listinn, sem borinn verður fram við kosningarnar. Hlöðubrunii Skagafirði Sauðárikrðki, 13. sept. — LAUST eftir fótaferðatímann í morgun varð heimtilisfólkið að Hafsteins- etöðum í Skagafirði þess vart að eldur hafði kviknað í stórri Iheyihlöðu, sem er skammt frá í- búðarhúsinu. Var nú gert aðvart í nærsveitir ag voru margir menn msettir innan stundar. Einn ig var hringt til slöikkviliðsins á-Sauðárkróki, sem var á bruna- Btaðnum eftir örskamma stund. En Hafsteinsstaðir liggja í ca. 8-9 km. fjarlægð frá Sauðár- króki. Kviknað hafði í öðrum enda hlöðunnar og eftir 3 tíma 6tarf var búið að ráða niður- lögum eldsins. Talið er að allt að 100 hestar af heyi hafi eyði- lagzt. Hlaða þessi, sem er tviskipt með þvermillivegg mun rúma allt að 1200 hesta o>g var svo til full af töðu. — jón. Framiboðslistinn var lagður fram í stjómarbyggingunni í Al- geirsborg. Frambjóðendur eru 196. Talið er fullvíst að hann verði kjörinn með miklum meiri hluta, þar sem engin skipulögð andstaða er gegn honum. Miklar breytingar hafa verið gerðar frá þeim framiboðslista, sem lagður var fram fyrir hinar fyrirhuguðu kosningar 2. sept. sl.. en af þeim varð ekki, sem kunnugt er, vegna deilna milli leiðtoganna í Alsír. ★ Meðal þeirra, sem strikaðir hafa verið út af listanum em hermálaráðherrann Abdel Hafid Boussouf Mohammed ben Yahia, ráðuneytisstjóri, Ben Teftifa og Belaid Abdessalen, en þeir voru SEAL Beach, Kaliforníu, 13. sept. (NTB) — Sprengjuflug- vél frá bandaríska sjóhernum hrapaði í gærkvöldi logandi til jarðar rétt við flotastöð- ina í Seal Beach. Níu manna áhöfn var í vélinni og létu allir lífið. — /jbrd/f/r Framh. af bls. 22 1. Igor Ter Ovanesian, Rússland 7,S2 m. 2. Dimitri Bondarenko, Rússland 7,67 m. 3. Jama Valkama, Finnl. 7,65 m. 4 Pentti Eskoia, Finnl. 7,62 m. 5. Ali Brakchi, Frakkland 7,57 m. 6. Rainer Stenius, Finnl. 7,51 m. Athyglisvert er, að i hópi 6 fyrstu í undankeppninni em þrír Finnar og tveir Rússar. Senni- lega eiga þeir eftir að koma mik- ið við sögu í úrslitakeppninni. Aðeins einn Þjóðverji komst í úrslt, Klaus Beer, sem stökk 7,45 m. 7,12 og síðastur i undan- keppninni af þeim, sem halda áfram. stökk 7,37. 400 m. í þeirri grein voru hlaupnir þrír milliriðlar, en und- anrásir fóru fram í gær. Tveir efstu í hverjum fara í úrslit. Efstir urðu í hverjum riðli: 1. riðill: 1. Robbie Brightwell, Engl. 46.4 sek. 2. Adrzej Bad- enski, Pólland 46,5 sek. 2. riffill: 1. Joachim Reske, Þýzkal. 46.1 sek. 2. Adrain Metc- alfe, Engl. 46.2 sek. 3. riffili: 1. Manfred Kinder, Þýzkal. 46.5 sek. 2. Barry Jacson, England 46.5 sek. Keppni í þessari grein virðist ætla að vera mjög hörð, því að í sumum tilfellum hefur tími á Iborð við 46.3 sek. ekki nægt til að komast í úrslit. T. d. hljóp Jerzy Kowalski, frá Póllandi á Þeim tíma, en var samt sleginn út. ois Chatelet, Frakkl. 1.51.3 mín. Tímar í undanrásum eru yfir- leitt ekki mjög góðir, eins og sést af ofanrituðu. 110 m grindahlaup: Eftirfar- andi fara í úrslit: (tími í dag fylgir) — Nikolai Beresutski, Rússl., 14.2 sek — Valentin Chistiakov Rússl., 14.2 sek — Giorgio Mazza, Ítalíu, 14.3 sek — Stanko Lörger, Júgóslavíu, 14.4 sek — Robert Birell, Engl., 14.4 sek — Klaus Schiess, Sviss 14.7 sek — Anatoli Michailov, Rússl., 14.0 sek — Georges Marssellos, Grikkl, 14.2 sek — Wilfred Gee- orms, Belgía, 14.5 sek — Michael Chardel, Frakkl. 14.0 sek — Lawrence Taitt, Engl. 14.0 sek — Giovanni Cornacchia, Ítalíu, 14.0 sek. Tími í þessari grein er yfirleitt mjög góður. 400 m hlaup Eftirfarandi fara í úrslit ( tími í dag fylgir): Salvatore Morale, Ítalíu, 50.0 sek — Jorg Neumann,- Þýzkal., 50.6 sek — Boris Kriounov, Rússl., 50.9 sek — Vassili Anissinov, Rússl. 51.0 sek — Jussi Rintam- aki, Finnl., 51.0 sek — Helmut Janz, Þýzkal., 51.1 sek. Árangur hefur aldrei verið svo góður í þessari erfiðu grein á EIM og verður úrslitahlaupið vafa- laust mjög tvísýnt og spennandi. 5000 m hlaup Fréttir bárust aðeins úr einum riðli í milliriðl- um, og þar urðu þessir þrír fyrstir: John Anderson, Engl., 14.15.0 — Michel Bernard, Frakkl 14.15.6 mín og Valentin Samoil- ov, Rússl., 14.15.8 mín. 800 m hlaup. Þar voru hlaupn- ar undanrásir og fara tveir fyrstu í hverjum riðli í milli- riðla. Þessir halda áfram: Nor- bert Haupert, Luxembourg, 1.53.0 mín. — Olavi Salonen, Finnland 1Æ3.5 mín. — Sydney Purkis, England 1.54.5 mín. — Paul Schmidt, Þýzkal. 1.55.7 mín. — Alerii Boulysjev, Rússl. 1.51.0 mín. — Volker Tulzer, Austur- ríki, 1.51.0 mín. — Josef Osozil, Tékkóslóv. 1.51.8 mín. — Manfred Matuchewski, Þýzkal. 1.51.8 mín. ■— Abraham Krivocheev, Rússl., 1.58.5 mín. — Anthony Harris, Engl. 1.58.6 mín. — Derek Macle- ane, írland, 1.50.8 m,n. og Franc- KvennagTeinar: Þar lauk keppni í 100 m hlaupi með sigri brezku stúlkunnar Dorothy Hyman, en Jutta Heina, sem af mörgum var talin sigur- stranglegust, varð önnur. 1. Dorothy Hyman, England 11.3 2. Jutta Heine, Þýzkaland, 11.4 3 Teresa Chiepa, Pólland, 11.4 4 Daphne Arden, England 11.5 5 Hannelore Rapeka, Þýzkal, 11.6 6 Elzbieta Szyroka, Pólland 11.8 Þá stendur yfir keppni í fimmtarþraut kvenna og lokið er undankeppni 1 hástökki kvenna. báðir meðlimir bráðabirgðar- stjórnar Frakka og Serkja, sem sat við völd frá því að Evian- samningurinn var gerður, þar til Alsir fékk sjálfstæði. Formaður þessarar stjórnar Fares, er aftur á móti enn á listanum. Talið er að hið nýja þing í Alsír muni styðja stefnu Ben Bella, en hann er i framboði fyrir Oran og nágrenni. — ,Þetta er ekki...' Framhald af bls. 3. þér hvað Renana þýðir?“ „Nei“. „Sú sem er full af lifs- þrótti og það er hún svo sann arlega hún Renana“. „Má ég hafa eftir yður það sem þér sögðuð um Jesú?‘ spurði frétta maður Mbl. „Helzt ekki“, „En það er nýnæmi á íslandi að heyra slíka skoðun“. „Jaeja það gerir þá ekkert til. Þetta er mín persónulega skoðun. Því verður ekki breytt. En þér verðið að taka rækilega fram að þetta er ekki skoðun stjórn arinnar." í þessum svifum kom banda risk kona aðvífandi. Þær tók ust í hendur. Frúin virti hana fyrir sér og sagði: „Þér eruð Gyðingur?" Bandaríska bon an kyssti hana á kynnina og hvíslaði eimhverju að henni. Þær urðu snarlega góðar vin konur. „Mér líkar svo vel við yður,“ sagði bandaríska kon an nokkru seinna. ,Af hverju?1 spurði frú Ben-Gurion. ,',Ég veit það ekki, eða hvemig ætti ég að vita það,“ svaraði kon- an vandræðalega. Frúnni lík- aði svarið vel.En nú þurfti hún að hafa hraðan á til að ná manni sínum, sem stóð við gestabókina og skrifaði nafn sitt í 'hana. Síðan benti hann á -nynd af Guðbrandi biskupi Þorlákssyni og spurði „Var þetta biskup?" „Já“. Þá var eins og áhuginn minnkaði og hann gekk fram að forstofu- hurðinni. En á leiðinni stað- næmdist hann við mynd af Bjarna skáldi Thorarensen, „Hver er þetta?“ sagði hann. „Ljóðskáld“. „íslenzkt ljóð- skáld?," spurði hann. „Já,“. Hann hafði augsýnilega áhuga á skáldinu og fór að tala um bækur og sagði að biblían hefði selzt í 100 þús. eintök um í ísrael. Þar af hefðu ver- ið 40 þús. áskrifendur að henni „í hve stóru upplagi seljast metsölubækur hér á landi?“, spurði hann. „4—5000 eintök um„ var honum svarað. Hann sagði ekkert. Og svo var haldið fram á gang og mikið talað. Frúin sagði bandarísku konunni frá því að sonur hennar væri ynd islegur maður. „Hann er yfir maður í lögreglunni“, sagði hún. „Og ekki ar konan hans síðri". En frammi í gangi tal aði Ben-Gurk>n við mennta- málaráðherra og sagði honum frá því, að dóttir þeirra hefði fullyrt við sig að þingið á Mön væri eldra en það íslenzka. „Ég mótmælti þessu", sagði Ben-Gurion. „En hún sat fast við sinn keip.“„Við höfum 'haft allsherjarþing á íslandi síðan 930“ sagði menntamóla ráðherra „Ég verð að segja 'henni að Alþingi Islendinga ég eldra en þingið á Mön,“ sagði Ben-Gurion. „Og ef það er nóg fyrir mig, þá verður það að vera nóg fyrir hana“. Fréttamaður Mbl. sneri sér enn að frúnni og spurði: „Hvemig líkar yður að vera frú Ben-Gurion?“ Hún hló ■hátt og sagði, „Hvað á ég að gera? Ég á ekki annars úr- kosta. Við giftumst 1917 og þá var hann ekki forsætisráð- herra. Ég er gift honum, hvort sem hann er ^or-œHsráðíherra eða ek-* Ólafur Jónsson söngvari og Rögnvaldiur Sigurjónsson píanóleik- ari, sem annast mun undirleik á hljómieikunuim. Ungur tenorsöngvari kveður sér hlióðs 1 NÆSTU viku heldur ungur íslenzkur tenorsöngvari héffan úr Reykjavik fyrstu sjállfstæffu hljómleika sina. Er þaff Ólafur Jónsson tenorsöngvari og verffa hljómleikarnir haldnir í Aust- urbæjarbíói næstkomandi þriffju dag og miðvikudag fyrir styrkt- arfélaga Tónlistarfélagsins. Er Ólafur ræddi við blaðamenn á heimili Ragnars Jónssonar for- stjóra í gær, kvað hann þá Sig- urð • Skagfield og Demetz hafa verið fyrstu söngkennara sína, en einnig hefði hann stundað nám í píanóleik og tónfræði hér heima hjá dr. Urbancic. Þá kvaðst hann og hafa stundað nám í Lei'kskóla Þjóðleikhússins og útskrifast þaðan. Síðan sagði Ólafur, að leið sín hefði legið til Salzburg, þar sem hann dvaldist í eibt ár og lagði stund á allar greinar söngs en eftir það hefði hann farið til Vínarborgar, þar sem hann stundaði nám í ljóðasöng og tón fræði við Musikakademiuna og jafnframf í einkaskóla hinnar frægu óperusöngkonu Lilly Kundegraber. Aðspurður kvaðst Ólafur fyrst hafa komið opinberlega fram á nemendahljómleikum Demetz, en einnig hefði hann leikið nokk ur hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu, m.a. í „Horft af brúnni". Þá —Ræða Ben-Gurion Framhald af bls. 13. heimalands síns. Það er árangur vilja og starfs Gyðinga í heild, sem hafa til að bera óhaggan- lega trú á orð spámanna Biblí- unnar. Brautryðjendur hafa gengið og ganga enn í farar- broddi, en fjöldi þeirra eykst og fólkið færir nauösynlega fórn til að ljúka svo miklu hlutverki. Ég er þess fullviss, að við munum finna þann anda braut- ryðjandans hjá harðgerðri þjóð lands yðar og við lítum með til- hlökkun til þess tíma, sem við munum enn dveljast hér. Herra forsætisráðherra, sendi- herrar, herrar og frúr, leyfið mér að lyfta glasi mínu og skála fyrir heilsu yðar, vel- gengni þjóðar yðar og sam- skiptum íslands og fsraels. hefði hann komið fram á fjölda nemendahljómleika í Austurríki. Ólafur kvaðst mundu fara aft- ur til Vínarborgar i lok þessa mánaðar og vera þar áfram við nám í vetur. Um hvað þá tæki við, sagði hann, að hann hefði síðastliðinn vetur fengið tilboð frá óperunni í Bern og gert fyr- irfram samning um eitt ár að námi loknu og vonaðist hann til, að það stæði allt heima. Um það, hvort eftirspurn eftir tenórsöngvurum væri mi'kil i Vínarborg, svaraði Ólafur ját- andi og sagði að svo væri alltaf, en einnig væri samkeppnin geysi hörð. Margir erlendir tenórsöngv arar væru búsettir í Vínarborg og sérstaklega hefðu flutzt þanig- að margir Þjóðverjar, Banda- ríkjamenm og Austur-Evrópu- búar upp á síðkastið. — Veizlugestir Framhald af. bls. 13. vígslubiskup, frú Valborg Snæ- varr, Gísli Jónsson form. utan- ríkismálanefndar, frú Ólöf Páls- dóttir, Sigurgeir Sigurjónsson aðalræðismaður, frú Álfheiður Guðmundsdóttir, Mr. Y. Eligur, frú Magnea Jónsdóttir, Sigurður Bjarnason ritstjóri, Mr. Rath, Knútur Hallsson, deildarstjóri, Hermann Jónasson fv. forsætis- ráðherra, biskupsfrú Magnea Þorkelsdóttir, Friðjón Skarphéð- insson alþingisforseti, frú Bryn- dís Ásgeirsdóttir, dr. Kristján Eld járn þjóðminjavörður, frú Guð- rún Þórðardóttir, Þorleifur Thorlacius forsetaritari, frú Kristín Guðmundsdóttir, Eggert Kristjánsson aðalræðismaður, frú Ragnheiður Vigfúsdóttir, Mr. Y. Ben-Porat, frú Margrét Ásgeirs- dóttir, Hafsteinn Bergþórsson framkvæmdastjóri, Þórarinn Þór- arinsson ritstjóri, ráðherrafrú Guðrún Vilmundardóttir, ráðu- neytisstjóri Shmuel Bendor, Madame Alexandrova, sendiherra Arie Aroch, Madame Penfild, sendiherra Bjarne W. Paulsson, Madame Cappelen, sendiherra E. Boothby, frú Sólveig Eyjólfsdótt- ir, sendiherra August von Hart- mansdorff, Madame Kowalska, sendiherra dr. Helgi P. Briem, frú Guðrún Thorlacius, háskóla- rektor Ármann Snævarr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.