Morgunblaðið - 07.10.1962, Síða 1

Morgunblaðið - 07.10.1962, Síða 1
Sunnud, 7. október 7962 •.•.jWAj.'ip'XS; ÁGÚST Jónsson á Hofi sagði mér, er ég spurði hann af hverju hvammur sá, er stóð þeirra Vatns- dælinga er geymt í áður það er réttað, héti Setu- konueyri, að í Hofslandi voru 3 tjarnir sem hétu sérkennilegum nöfnum: Ponta, Pína og Setukona. Ekki vissi hann af hverju þessi nöfn voru tilkomin. En ein þessara tjarna, Setu kona, er í fyrrgreindum hvammi, skammt norðan hæjarins á Hofi. í hvamminum er grasgott og við tjörnina er þægilegt að girða, því heita má að hún veiti aðliaid á tvo vegu og því er þetta lcjörinn staður til þess að varðveita villt fjallastóð yfir dimma haustnóttina. Við skulum nú eyða dagstund og næturstund norður í Vatnsdal, , fylgja stóðinu frá því það kemur á brúnirnar fyrir ofan Grímstungu, reka það niður dalinn, framhjá réttinni á Undirfelli og yfir Vatnsdalsá undan Setukonueyri. Síðan fylgjum við því aftur yfir í hrossaréttina á Undirfelli og þar lýkur sögu okkar. ★ Ég þóttist hafa himin hönd um tekið er Einar forstjóri Ásmundsson í Sindra, sá kunni áhugamaður um hesta- mennsku og hrossarækt, hringdi ti' mín og spurði hvort ég væri ekki tilleiðanlegur að koma norður í Vatnsdal. Mér þótti boöið gott og þar sem svo stóð á aö nota átti helgina Hrossin rekin vestur yfir Vatnsdalsá. Setukonueyri að miklu leyti til þessarar farar sló ég til með góðu sam- þykki ritstjóra Mbl. Við tygjuðum okkur í skyndi á augardagskvöldið og héldum 5 saman sem leið ligg ur upp í Fornahvamm. í för- inni voru, auk okkar Einars, Björn Thors blaðamaður, Þórð ur Einarsson, forstjóri stál- smiðju Sindra og Einar Sig- urðsson frá Norðtungu í Borg- arfirði. Þetta var samstilltur hópur, káiir og fjörugir ferða- félagar. Á leið okkar upp Borgarfjórðinn bar margt á góma sem ekki verður ritað um að þessu sinni. Auðvitað var af og til minnzt á hesta og hestamennsku en einnig járn og jarnsmíðar, verzlunar og viðskiptamál og ofurlítið á fagrar konur. Á 11. timanum fyrir hádegi Einar forstjór! Asmundsson í Sindra er hér kominn á hest- bak og ríður í fararbroddi yfir Vatnsdalsá. á sunnudag ókum við í gegn- um Vatnsdalshóla. Þrír ferða- félaganna höfðu aldrei komið í Vatnsdal óður. Ókum við því hægt fram dalinn. Við, sem höfðum farið þar um fyrr reyndum eftir föngum að fræða hine um kennileiti og merkustu staði. Við renndum heim að myndarbýlinu í Ási og tókum þar benzín á bílinn. Nokkru íyrir hádegi ókum við í hlað í Grímstungu. Þar hitt- um við Péturínu húsfreyju O'g eiginkonu fjallkóngsins, Lár- usar Bjórnssonar í Gríms- tungu. Spurðum við hana hvenær hún vænti þess að stóðið kæmi ofan af heiðinni og taldi hún okkur óhætt að fríðlista okkur svo sem okkur sýndist um Vatnsdal fram um eða yfir kl. 2. Við héldum því næst niður dalinn að austan niður að Hofi. Þangað fýsti Einar að koma sem fyrst, því þar átti hann jarpa hryssu fallega, sem hann raunar hafði ekki séð ennþá. Á hlaðinu á Hofi hittum við tvo ferða- langa, báða að sunnan og þekkja hestamenn þá vel. Það voru þeir Aðalsteinn bústjóri á Korpúifsstöðum og Höskuld ur dælustöðvarstjóri að Reykj- um í Mosfellssveit. Það var því mannmargt við hádegis- verðarbo’ðið að Hofi. En frú Vigdís Ágústsdóttir lét sér hvergi r.'iegða og bar fyrir okkur veiziumat eins og gest- ir þeir, ssm komið komið hafa að Hofi, eiga jafnan að venj- ast. Á bæjum þeim er ég hef þegar neint hittum við aðeins húsfreyjurnar heima og nokk- uð af yngri kynslóðinni, börn og vinnufólk, því hvarvetna voru bændurnir á fjalli. Um kl. 3 síðd. sáun* við hreyf- ingu á brúnunum fyrir ofan Grímstungu. — Þarna er skarinn að koma, gall við í bílnum og glaðnaði nú heldur yfir mönn- um. Brátt sáum við þó að hér 'hafði okkur missýnzt. Þarna voru þrír gangnamenn á ferð og ráku féð á undan sér. Við vorum ekki hingað komnir til þess að vera í fjárrétt og kom því heldur vonbrigðahljóð í strokkinn. Við hugguðum okkur þó við að horfa á hrossa hópa koma ofan Austur-dal- inn, en það mun vera hinn raunverulegi Vatnsdalsbotn, sem er austan Forsæludals. Þar voru menn að smala stóði Lárus bóndi og gangnastjóri Björnsson í Grímstungu og Jóhannes Nordal bankastjóri standa fyrir stóðinu. Jóhannes liorfir á eftir trippi, sem sloppið hefir á milli þeirra. í heimlöndum, sem reka átti saman við hrossahópinn er hann kæmi niður á eyrarnar fyrir neðan Grímstungu. Nú þurftum við ekki lengi að bíða. SKömmu eftir að féð hafði verið réttað í Gríms- tungurétt sáum við hrossahóp bera við himin. Og nú var ekki um neina missýn að ræða. Hér kom megin-hluti stóðs þeirra Vatnsdælinga brunandi niður hlíðarnar. Gangnamenn riðu fram með því og á und- an, teymdu trússhesta sína og voru guimreifir. Við spurðum þá fyrstu hversu margt þetta myndi vora Þeim kom saman um að hópurinn væri með minna móti. Einn sagði 12—14 hundruð, annar 15—17 hundr- uð, svo við dróigum af því þá ályktun að heppilegasit myndi að fama hinn gulima meðalveg og telja að hrossahópua-inn miyndii vena siem svaraði 114 þúsiund. Nú voru myndavélarnar þrifn- ar fram og ljósmyndað svo sem unnt var. Kalsa veður var, norðaustan sveljandi, en úr- komulaust og skýjað dumb- ungsveður. Við tókum nú kampakátir gangnamenn tali. hittum Björn Bergmann kenn- ara á Blönduósi sem hafði ver- ið gangnamaður fyrir Guðjón bónda á Marðasnúpi. Þá hitt- um við Eggert Lárusson í Grímstungu, Hallgrím Guð- jónsson i Hvammi og svo nátt- úrlega gangnaforingjann sjálf- an Lárus Björnsson í Gríms- tungu. En Lárus stóð ekki lengi við. Hann reið fljótt af stað og sagðist vera farinn heim til Péturínu sinnar en sagði okkur að koma á eftir og fá okkur kaffisopa. Ein- hvers staðar myndi hann eiga rommdreitil að bæta það með. Eftir að við höfðum þegið góð ar veitingar í Grímstungu, báðum við Einar Ásmundsson um hesta sem okkur voru fús- lega léðir. Við hugðumst síðan fylgja stóðinu niður að Undir- fellsrétt. ★ Það var myndarlegur hóp- ur, sem rekinn var niður Vatns dalinn að vestan þennan síðari hluta sunnudags. Er á leið reksturinn tók að rigna og sletti með krapahríð. En allir voru kálir og glaðir í hópi rekstrarmanna. Niður við Saurbæ hittum við Jóhannes Norðdal oankastjóra, þar sem Frh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.