Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 12
MORCVNBL4Ð1Ð Sunnudagur 7. okt. 1962 fwpwMajj •.... Ég vaknaíSi kl. 2 um nóttina, leit út og sá að gott veður var komið. Svartamyrkur var, en logn og hlýtt. Ég mætti Vig dísi húsfreyju þar sem hún var að korna utan af Setukonu eyri. Hafð; eitthvað af hross- um sloppið út úr girðingunni og var nokkur eltingarleikur við þau en öllum var náð og komið inn í girðinguna aftur og hún lagfærð. Ég fór nú út, tók hnairk og beizli og lagði á Nasa frá Grímstungu, sem ég hafði fengið lánaðan daginn áður. Héit ég síðan út í Hvamminn til þeirra sem þar vöktu. t>ar voru fyrir Ágúst og Gísli, auk Aðalsteins á inu. Réttarmenn komu nú (hvaðanæiva að. Að skammri stundu liðinni fóru þeir að ríða innan um stóðið og týna út þau hross, sem þeir þekktu skilja þau frá hópn- um og ýmist reka þau vestur yfir Vatnsdalsá eða aðrar leið- ir út úr hamminum, eftir því ihvert hrossin áttu að fara. Við, sem ekkert hross þekkt- um og engin skil áttum að gera, röðuðum okkur með- fram ánni til þess að varna því að hrossin slyppu úr að- haldinu. f'arna var skemmti- legt að ve’. 3, það var líf í tusk unum og oft all harður elt- ingarleikur við hross, sem Stóðið rennur ofan af Grímstunguheiði. — / villtu s/óð/ Hérna bregður Eggert Lárusson í Grímstungu sér á bak einni ótemjunni. Hjálpsöm hönd gripur í stertinn á hryssunni. — Korpúlfsstöðum, sem kominri var til Uðs við hrossagæzlu- menn. Skömmu eftir að ég kom höllu.ðu þeir sér Gísli og Ágúst en við Aðalsteinn geng- um af og til meðfram girðing- unni og gættum þess að öll væru hrossin á sínum stað. Kl. 5 um morguninn vorum við Aðalsteinn leystir af verð- inum néldum heim og lögð- um okkur þá stundarkorn. Kl. hálf atta vorum við vaktir því við vildum ekki missa af neinu, en kl. 8 áttu skilamenn að vera komnir á Setukonu- eyri til þess að hirða hross sín. ★ Er við komum út á eyrina, eða í hvamminn, var búið að hleypa stoðinu út úr girðing- unni. Góður hagi er þarna og úðuðu hrossin í sig kjarngras ýmist átt.u að skiljast frá stóð inu eða gc-rðu tilraun til þess að sleppa þaðan ótilkvödd. Eitt sinn reið ég nokkuð fyrir hyggjulít.ið útí ána og lá þá við að a!!t færi á kaf. Þetta fór nú samt vel, komst ég vestur yíir og gat hjálpað til að ná þaim hrossum sem við vorum að elta. Aðrir voru ekki eins heppn- ir. Ungur piltur frá Hnjúki lenti á hrokasundi á hesti sín- um og mátti vinda af sér nær hverja sojör þegar hann kom upp úr. Lárus fjallkóngur í Grímstungu lenti einnig á kaf í vatn on gamli maðurinn vatt sér r-i.arlega af baki og komst 4 þuirt með það sama. Var gatnsn að sjá þennari fjallagarp á áttræðisaldri leysa jafn snarlega og skemmtilega vandræði sin. Þarna mátti sjá Við gleymdum að spyrja hvað þessi gulflckkótti hundur héti, en við náðum af honum mynd þegar hann var að synda yfir Vatnsdalsá. Framhald af bls. 1. hann var á þeysireið eftir stóð inu. Það voru fleiri en blaða- menn og bestamenn sem gam- an höfðu af að koma í 'hrossa rétt í Vatnsdal. Jóhannes var strákur í sveit á Eyjólfsstöð- um í Vatnsdal og hefur það sér til stundargamans á haust- in að bvegða sér norður og vera ýmist í fjárréttum eða stóðréttum. Og loks var hrossa hópurinn kominn að Undir- felli og var síðan drifinn suð- austur yfir ána og settur í girð ingu á Setukonueyri hjá Hófi. Hafi ekkur fundizt gest- kvæmt að Hofi um hádegis- bilið var það ekki síður um kvöldið. Eicki var nóg að stöð- ugur straumur manna væri til kaffidrykkju og mataráts, held ur gistu aibr skilamenn úr nær sveitum og vestan af Vatns- nesi að Hofi þessa nótt. Vatns- nesingar eiga upprekstur fyrir stóð á Grímstunguheiði og taka hross sín í Undirfellsrétt. Húsbændumir á Hofi höfðu því nóg að gera. Gísli bóndi Pálsson hefur þá kvöð að gæta stóðsins um nóttina fyrir rétt- ardaginn. Hann og Ágúst tengdafaðir hans vöktu yfir stóðinu UTr nóttina og fengu með sér hjálparmenn eftir því sem til íéll. Vigdís hjálpaði jafnvel li’ við hrossagæzluna- og hafði hún því nóg að gera þar sem húri tók á móti öllum þessum f)ölda gesta þar fyrir utan. Hér kljást þeir Ólafur Pálsson múrarameistari t. v. og Þórður Einarsson í Sindra við trippi, sem hefir orðið svo fyrirferðarmikió að þeir hafa orðið að leggja það. Blómarósir á réttarvegg. Það koma fleiri en skilamenn í Undirfellsrétt og láta sér þá nægja að standa á veggnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.