Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 17
Sunnudagur 7. okt. 1962 MORGl’NBLAÐIÐ 17 Alþýðusambands- kosningarnar TJM ÞESSAH mundir standa nú yfir kosningar til Aiþýðusam- bandsþings, og er baráttan all- hörð milli lýðræðissinna og kommúnista. Áríðandi eir nú, að lýðræðissinnar geri sitt ítrasta til þess að sigra í þessum kosn- ingum. Alþýðustéttirnar verða nú að gera sér ljóst að ekki er lengur stætt að styðja niðurrifs- stefnu kommúnista, því með áframhaldandi stuðningi við þessa óvini verkalýðsins, eru menn að kjósa yfir sig versnandi lífskjör eins og sýnt mun og sannað með eftirfárandi stað- reyndum. Á undanförnum árum, hafa kommúnistar unnið mark- visst að því, að rýra lífskjör alls almennihgs í landinu. Að þessari landráðastefnu hafa þeir unnið vel og dyggilega, um leið og þeir hafa predikað fyrir al- menningi allt önnur viðhorf til þessara mála. Hin pólitísku verk föll sem kommúnistar hafa öðru hvoru stofnað til, hafa síður en svo orðið til hagsbóta fyrir hinar vinnandi stéttir, þvert á móti hafa þessi verkföll leitt til auk- innar dýrtíðar og versnandi af- komu íslendinga yfirleitt, og ennþá erum við að súpa seiðið af landráðastefnu vinstri stjórn- arinnar sálugu. sem sigldi þjóðar skútunni svo eftirminnilega í strand að íslendingar munu seint gleyma. Þar sátu kommúnistar við stýrið og mörkuðu stjórnar- stefnuna, því það er vatn á myllu kommúnista að vinna að glund- roða og upplausn innan þjóðfé- lagsins, þá eru meiri möguleikar fyrir fyrirhugaðri valdatöku þeirra, því að valdaráni stefna þeir. íslendingar verða að vera vel á verði gagnvart kommúnistum, að gefa þeim aldrei tækifæri til þess að sölsa undir sig völdin. Kommúnistar vita vel að á með- an að íslendingar eru í NATO, eru vonlausar árásir þeirra á ís- lenzskt lýðræði, það er því ekki furða þó að kommúnistar ferðist um landið þvert og endilangt í þeim eina tilgangi að ófrægja NATO, og um leið að telja þjóðl inni trú um að íslendingar eigi að lýsa yfir ævarandi hlutleysi sínu, segja skilið við NATO til þess að auðvelda heimskommún- ismanum hersetu hér á íslandi, og til þess áð fjötra frelsi og lýðræði þjóðarinnar í helgreip- um rússneskra einræðisseggja. Hér duga því engin vettlingatök eða hálfvelgja le-ngur. íslending- ar verða sóma síns og öryggis vegna að standa einbeittir með NATO, og ef á þarf að halda, vegna versnandi útlits í allþjóða- málum, vegna aukinnar stríðs- hættu sem af kommúnistaríkjun- um stafar, að veita NATO meiri landsfríðindi ef þurfa þykir, vegna öryggis hinna lýðræðis- sinnuðu þjóða sem að NATO Standa. íslenzkur verkalýður ætti nú að vera farinn að þekkja komm- únista og vinnubrögð þeirra, Verkamönnum ber því skylda til að hætta öllum stuðningi við kommúnista, og standa eindregið með lýðræðissinnum í þessum kosningum og á^Alþýðusambands þingi. Verkalýðurinn verður að vera ábyrgur gerða sinna og gera það eitt sem rétt er. Mönn- um ætti að vera í fersku minni hvernig kommúnistar með ein- ræði og fantaskap halda þriðja Stærsta launþegafélagi landsins utan Alþýðusamtakanna, einung- is vegna þess að þeir vita að Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur mun aldrei aðhyllast komm- únisma. Verzlunarfólkið hér í Reykjavík á sannanlegan rétt'á því, að vera fullgildir meðlimir í Alþýðusambandi ísland, og kommúnistar geta aldrei til lengdar enda þótt samvizkulausir séu, haldið svo stórum hópi vinn andi fólks utan samtakanna. Þá vil ég beina þeirri aðvörun til Framsóknarmanna, að hætta nú þegar allri samvinnu við kommúnista, og forðast allan stuðning þeim til handa nú í þessum kosningum og á Alþýðu- sambandsiþingi. Bændum lands- ins sem Framsóknarflokknum fylgja að málum, er engin greiði gerður með slíkum vinnubrögð- um. Nær væri fyrir bæjarradikal ana innan Framsóknarflokksins að leita samstarfs við stjórnar- flokkana. íslenzkur verkalýður, vinnið ötullega gegn kommúnisma og árásum þeirra á lífskjör ykkar, styðjið stjórnarflokkana og til- lífskjör ykkar, þá mun ykkur vel raunir þeirra til þess að bæta Árni Ketilbjarnar. Tollvörugeymslan undir þak SL. þriðjud. stóð til að lokið yrði við að reisa fyrsta áfanga geymsluhússins, sem Tollvöru geymslan hf. er að láta reisa inni í Laugarnesi. Samningar um smíði húss- ins voru undirritaðir við Bygg ingariðjuna s.f. 18. júlí síðast- liðinn og þan 21., eða fyrir réttum 10 vikum, hófust fram kvæmdir, bæði á byggingar- staðnum og í verksmiðjunni á Ártúnshöfða. Starfsemi Byggingariðjunn- ar hófst fyrir tveim árum, og var fyrsta verk hennar að reisa hús Kassaverksmiðjunn- ar. Næst var svo reist mjöl- geymsla fyrir Klett, en sú geymsla er einmitt jafnstór fyrsta áfanga tollvörugeymsl- unnar. Bárður Daníelsson, sem hef- ur teiknað og skipulagt geymslusvæði Tollvörugeymsl unnar, sagði, að fyrsti áfang- inn veitti 2400 fermetra geymslusvæði inni og 7000 fermetra geymslusvæði úti. — Síðar væri hægt að auka svæði þetta í tveim áföngum um 5800 fermetra innanhúss og 3000 fermetra utanhúss. — Ennfremur verður þarna að- staða fyrir tollverði og skrif- stofusvæði. Geymsluhúsið verður síðan hólfað sundur og hólfin leigð fyrirtækjum. Ætlunin er að Tollvöru- geymslan taki til starfa á þessu ári, og standa jafnvel vonir til að það geti orðið þegar í nóvembermánuði. Það hefur tekið fjórtán daga að reisa húsið, eftir að vinnu við grunninn lauk. Yfirsmiður við bygginguna var Kristinn Sveinsson HER á myndinni sést síðasti þakbitinn í hús Tollvöru- geymslunnar inni í Laugar- nesi. Bitinn er úr strengja- steypu og smíðaður í Bygg- ingariðjunni. Myndin var tek in síðasta þriðjudag, þegar lokið var við að reisa húsið. Bitinn er 24 metrar á lengd, og öílstjórinn tjáði okkur að hann væri rúm 12 tonn. í þessum fyrsta áfanga m.unu vera 18 slíkir bitar. Skálinn, sem reistur hefur verið. Bárður Daníelsson arkitekt við uppdráttinn. IMáms- og ferðastyrkir handa þeim, sem starfa að æskulýðs- og barnaverndarmálum í Bandaríkjunum eru starfandi samtök, sem nefnast The Cleve- land International Program for Youth Leaders and Social Work- ers, og hafa þau aðalaðsetur srtt í borginni Cleveland í Ohioríki. Starfa þau að æskulýðs- og barnaverndarmálum og þó eink- um að því að styrkja þá, sem starfa að slíkum málum í öðrum löndum, til náms og þjálfunar í Bandaríkjunum. Hafa samtök þessi haft nána samvinnu við bandaríska utanríkisráðuneytið og önnur yfirvöld um starfsemi sína. Samtök þau, sem hér um ræðir, voru stofnuð árið 1956 og var starfsemi þeirra upphaflega bundin við borgina Cleveland, en síðan hafa samtökin fært út kvíarnar og reka nú starfsemi sína í fimm stórbongum Banda- ríkjanna, þar á meðal Cleveland, Chicago og Houston. Á þessu tímabili hafa samtals 503 ein- staklingar, sem starfa að æsku- lýðs- og barnaverndarmálum, frá 35 þjóðlöndum í Evrópu, Ásíu, Afríku og Suður-Ameriku, heim sótt Bandaríkin á vegum samtak anna og dvalið þar við nám og starfsþjálfun um 5—6 mánaða skeið. Meðal þeirra eru 4 íslend- ingar, sem nú eru nýkomnir heim frá dvöl sinni vestan hafs. Eru það fyrstu íslenzku styrkþegarn- ir, sem dvalið hafa í Bandaríkj- unum á vegum Cleveland Inter- national Program, þau Guðrún Jónsdóttir, starfsmaður hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkur, séra Stefán Eggertsson, sóknar- prestur á Þingeyri, Jóna Hansen, kennari og formaður Kvenskáta- félagsins og Hermann Ragnar Stefánsson, danskennari. ClP-samtökin hyggjast nú bjóða fram 5 styrki til íslendinga fyrir starfsárið 1963, og er hér með auglýst eftir umsóknum um þá. Væntanlegir umsækjendur geta fengið umsóknareyðublöð hjá Menntamálaráðuneytinu, — Stjórnarráðinu, eða hjá Upplýs- ingaþjónustu Bandaríkjanna, Hagatorgi 1 Reykjavík. Umsókn- ir skulu hafa borizt þessum stofn unum eigi síðar en 31.' október n. k. Styrkir þessir verða veittir þeim, sem starfa að hvers konar æskulýðsmálum, leiðsögn og leið beiningum fyrir unglinga oig að barnaverndarmálum, hvort held- ur sem þeir stunda þessi störf sem aðalstarf, eða sem áhugamál. Þeir sem eru sérmenntaðir á þessu sviði verða látnir ganga fyrir um styrkveitingu. Umsækj- endur skulu vera íslenzkir ríkis- borgarar, og eigi mega þeir vera yngri en 21 árs gamlir og ekki eldri en 40 ára. Að öðru jöfnu verða umsækjendur á aldrinum 25 til 35 ára látnir sitja fyrir um styrkveitingu. Það er algert skilyrði fyrir styrkveitingu að umsækjandi hafi gott vald á enskri tungu, geti notið fyrir- lestra, sem haldnir eru á ensku, og geti starfað með enskumæl- andi börnum og unglingum án þess að málið valdi þar nokkr- um örðugleikum. Nánari upplýsingar um styrki þessa verða veittar hjá Mennta- málaráðuneytinu og Upplýsinga- þjónustu Bandarikjanna. ÍSTANLÉY] ® Rafmagns- og handverkfæri ávallt fyrirliggjandi. Heildsala — Smásala Einkaumboðsmenn: Ludvig Storr & Co.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.