Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 2
2 MORCriSBLAÐIÐ Surmudagur 7. okt. 1962 Störmerkur þáttur í æskulýðsstarfi Eftir sr. Pétur Sigurgeirsson '?oc"*qí Sumarbúðir Fyrstu kynni mín af sumar- búðum voru þau, að um mitt sumar 1957 dvaldist ég í búðum lútersku kirkjunnar í New Jers- ey-ríki í Bandaríkjunum. — Þær heita Beisler-búðir og hafa að jafnaði um 100 unglinga á nám- skeiðum yfir sumarmánuðina. — Nafn sitt fengu þær þannig, að maður einn af nafni Beisler hafði gefið 25 þúsund dali til þeirra, er þær voru í byggingu, og hlutu þær nafn hans. Fagurt umhverfi Búðir þessar eru á yndisleg- um stað. Skógurinn prýðir um- hverfið. Þar er stöðuvatn, sem gott er að synda í. Aðalskálinn er stór bygging. Þar er matast og þar gistir mest af starfsliði búðanna. Unglingarnir sofa í sérskálum 10—12 í hverjum skála. Sveitarforingi er þar fyr- irliði úr hópi hinna eldri. Dag- urinn er skipulagður frá kl. 7 á morgnana til kl. 9,30 á kvöldin. Það skiptast á bænastundir, biblíulestur, kennsla, söngur, í- þróttir, leikir, föndur, sund og kvöldvökur. Hver dagur líður þar eins og ljúfur draumur. Bænastaðurinn Einkum minnist ég helgi- stundanna. Á hverju kvöldi söfnuðust þátttakendur saman við aðalskálann og skipuðu sér í eina röð. Gengið var inn í skóginn eftir mjóum stíg, sem þangað lá, og enginn mátti mæla orð. Eftir stutta göngu birtist opið svæði. Þar reis hrjúfur tré- kross og í kring um hann lágu trjábolir. Þeir voru kirkjubekk- irnir í þessari „opnu kirkju“. — Þarna var stutt guðsþjónusta, og að henni lokinni var gengið jafn hljóðlega til baka. Þegar Beisler kom Einn daginn kom Beisler kaupmaður til búðanna 1 fyrsta skipti. Hann var hár og tíguleg- ur maður. 1 matsalnum ávarp- aði hann æskufólkið og sagði frá, hvers vegna hann hefði stutt sumarbúðirnar. Hann var djúpt snortinn af því, sem hann sá og heyrði. „Þegar ég var drengur", sagði hann, „átti ég þess kost að dvelj- ast í sumarbúðum, og þar leið mér svo vel, að ég strengdi þess heit, að styðja þá hreyfingu, ef ég yrði einhvers megnugur síð- ar á ævinni". Með gleðitár í aug- unum óskaði hann unglingun- um til hamingju með hinar nýju búðir. I Vatnaskógi Dvöl mín þennan hálfa mánuð í Beisler-búðunum sannfærði mig um gildi þeirra. Eins og öllum landslýð er kunnugt, var það séra Friðrik Friðriksson, hinn ástsæli æskulýðsleiðtogi, sem fyrstur manna hóf slíkt sumarstarf í KFUM, og er Vatnaskógur kunnasti staðurinn fyrir þá starfsemi. Víðast hvar hefur kirkjan erlendis sumar- búðir og hafa æskulýðsfélög kirknanna í hinum ýmsu kirkju- deildum þar góða samkomustaði til móta og námskeiða. Sækjast unglingar eftir að fá yist í búð- unum og eru lagðar inn um- sóknir til sumarbúðastjóranna löngu áður en tími námskeið- anna heist. Séra Pétur Sigurgeirssou. Að Löngumýri Fyrir nokkrum árum hófst sumarbúðastarf hér á landi, sem beinlínis var á vegum þjóð- kirkjunnar. Það var á Löngu- mýri í Skagafirði, en skólann þar lánaði frk. Ingibjörg Jó- hannsdóttir forstöðukona til þeirrar starfsemi og 1954 voru fyrstu sumarnámskeiðin. Sum- arbúðastjóri var séra Ólafur Skúlason æskulýðsfulltrúi. — Einnig hafa mót verið haldin þar á staðnum í sambandi við sumarbúðirnar. Starf þetta gaf strax góðan árangur. Nú hefur Löngumýri verið gefin kirkj- unni með það fyrir augum, að þar verði áfram skóli fyrir stúlkur. Eflaust verða þar sum- arnámskeið fyrir börn og ungl inga. Það vakti gleði,' þegar biskup íslands, dr. Sigurbjörn Einarsson, tilkynnti það á síð ustu prestastefnu að frk. Ingi- björg hefði gefið kirkjunni þennan stað, og færði hann gef- andanum þakkir kirkjunnar fyrir gjöfina og fögur hugsjóna- störf. Við Vestmannsvatn Æskulýðssamband kirkjunnar i Hólastifti, sem stofnað var 1959 hefur beitt sér fyrir því, að byggðar yrðu sumarbúðir fyrir kirkjuna. Má segja, að samband- ið hafi verið stofnað að nokkru leyti til þess að sameina krafta til þeirra framkvæmda. Vegna mikils velvilja ábúenda í Fagra- nesbæjum í Aðaldal hefur kirkj an fengið svæði við Vestmanns- vatn í Grenjaðarstaðasókn til þess að byggja þar sumarbúðir. Byrjað var á verkinu hinn 28. maí í vor. Undir ötulli forustu formanns byggingarnefndar, sr. Sigurðar Guðmundssonar á Grenjaðarstað, séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar á Hálsi í Fnjóskadal og Gylfa Jónssonar, sem skipa byggingarnefndina, miðar verkinu vel áfram. Jón Geir Ágústsson, byggingafull- trúi, teiknaði húsið og hefur af árvekni vakað yfir smíði þess. ar á slíka þjónustu. Bygging eins og sumarbúðir við Vest- mannsvatn kosta mikið fé. Ýms- ir aðilar hafa þegar sýnt í verki, að starfið mætir velvild og skilningi. Þeir, sem í bernsku áttu þess kost að mótast af kristilegum áhrifum og eignuðust guðstrú, er varð lífakkeri þeirra í öldu- róti og stormum, eru í þakkar- skuld við kirkjuna er fóstraði þá, feður þeirra og mæður um aldaraðir. Beisler kaupmaður, sem ég minntist á, vann fagurt verk er hann studdi sumarbúða hreyfinguna. Mættu margir gera slíkt hið sama í voru landi. . trt í óbyggðina Þegar vér lesum guðspjöllin, er víða hægt að sjá, að Kristur lagði leið sína út í óbyggðina. Hann fór þangað til þess að vera einn á bæn. Hann gekk þangað með lærisveinum sínum, er hann var að kenna þeim. Og hann fór þangað, er mannfjöld- inn fylgdi honum til að hlusta á hann og læra af honum. Margir staðir og friðsælir fjarri byggðum eru ákjósanlegir samkomustaðir, þegar um það er að ræða að gefa æskunni orð og anda Jesú Krists, svo að á- hrif af boðskap hans verði djúp og varanleg. f kyrrð og næði Hafi það verið mikilvægt að draga sig í hlé frá hávaða og glaumi dagsins við andleg störf á fyrri tímum, er það ekki síður nauðsyn í nútíma þjóðfélagi. — Nú er hraðinn orðinn svo mikill á öllum hlutum, að erfitt er að láta nokkurn nema staðar. f nú- tíma þjóðfélagi er næði ekki til nema af skornum skammti. Hin svokallaða menning á til marga góða hluti, en hún á marga „fylgifiska“, sem hafa ill áhrif og spilla æskunni, sem á ekki dómgreind til þess að greina á milli hvað er menning og hvað ómenning. Óhollur félagsskapur Vissulega nær kirkjan til æskunnar ef hún reynir þar sem hún er staðsett í bæ og sveit. Hún gerir það með ýmsu móti, sunnudagaskólum og guðs- þjónustum, æskulýðsfundum og e.t.v. með tómstundastörfum. En samt sem áður eru unglingarnir hlutfallslega svo skamman tíma in’nan veggjá kirkjunnar. Eftir hverja stund þar taka við hinar mörgu stundir á götunni, í mið- ur hollum félagsskap, í sjoppum og kvikmyndahúsum. Og leggja oft margir aðilar saman áróðurs- mátt sinn, sem stefnir að því að þurrka út þau áhrif trúar og siðgæðis, sem kirkjan vildi inn- ræta. Sár staðreynd Það er sár staðreynd að þurfa að viðurkenna, að í kristnu þjóð- félagi um nær þúsund ár skuli margt vera haft fyrir börnun- um og búið í hendur þeirra, sem er þeim syndsamlegt og leiðir þau út á glapstigu. Þau eru ginnt með mörgu móti út á hálar brautir. Og hér er ekki um vora þjóð eina að sakast. Líf vort er svo samofið þeim straum- um og stefnum, sem í heiminum ráða. Milli þess, sem er að ger- ast frá degi tiJ dags úti í hinum stóra heimi, eru þræðir og þeir liggja svo að segja inn á hvert íslenzkt heimili, og með þeim berast áhrifin þangað, hvort sem þau eru góð eða ill. Liðsinni borgaranna En framkvæmdir ’verða ekki án fórna. Kirkjulegt starf býgg- ist á því, að kristnir menn finni hvöt hjá sér1 til þess að fórna af tíma sínum, kröftum og fjár- munum. Kærleikur Krists kall- Vinyl — Gólfflísar fyrirliggjandi í ýmsum litum. Stærðir: 20 x 20 cm. og 30 x 30 cm. HOLMSUND VINYL-GÓLFFLÍSAR eru sterkar og endingargóðar. E inka umboðsmenn: LUDViG STORR & CO símar 1-33-33 og 1-16-20. I* p : M U IM K s rafmagns talíur til allra lyftinota. . Sly.Sveinbjörnssonlif. Reykjavík. Sumarbúðir á fögrum stað Sumarbúðir kirkjunnar hafa stórt hlutverk. Hér á landi eru margir staðir sem hægt er að reisa sumarbúðir á. Fegurð ís- lenzkrar riáttúru þekkjurri vér. í öllum landshlutum erú tilvalin svæði með vötnum, skógarrjóðri og öðrum landkostum. Vér höf- um fundið hve dásamlegt það er, að geta numið þar staðar og notið hinnar djúpu kyrrðar, hlustað á raddir náttúrunnar, nið fossa, hjal lækjanna og söng fuglanna. Dettur mér í hug, það sem Valdimar Briem sagði: „Guð, allur heimur, eins í lágu og háu, er opin bók um þig, sem fræðir mig. Já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu er blað, sem margt er skrifað á um þig“. Námskeið í sumarbúðum eru starfrækt námskeið fyrir aldursflokkana, viku eða hálfan mánuð í einu. Þegar einn hópurinn fer, kemur annar í staðinn. Starfsfólkið dvelst allt sumarið og annast rekstur búðanna. Það er mikil stund fyrir ungan dreng eða telpu að koma á námskeiðin. — Margt heillar hugann í hinu nýja umhverfi. Ný verkefni blasa við, nýr heimur. Hver dag- ur byrjar með helgistund, og ljúft er að safnast saman í sum- arbúðum til þess að lofa Drott- in. Hver dagskrárliður tekur við af öðrum. Mikið er hægt að læra á einum degi, þegar stefnt er að ákveðnu marki, og allt hefur sama tilgang. Loks hljóðna radd ir í sumarskálanum. Himneskur friður ríkir eftir hamingjusam- an dag. Mót Þá eru skipulögð mót um helg ar. Komið er í búðirpar á iaua- ardegi. Þátttakendur iará í leM og iðka íþróttir. Um kvöldið er kvöldvaka og varðeldur og ideg- inum lýkur með sameiginlegri bæn. Daginn eftir er hóprium skipt í smærri flokka til biblíu- lesturs. Valið er ákveðið um- ræðuefni og lesinn ritnirigar- kafli. Svo er tími til leikja eða sunds. Eftir hádegið er g.uðs- þjónusta og þannig lýkur mót- inu. ( ‘ ■ Fræðsludagar I búðunum er þörf fræðsiu- daga fyrir sérstaka námsljópa. Þar er gott að hafa foringjanám- skeið,- biblíulestrarflokka og. svo framvegis. Þannig bætist prest- inum aðstoðarfólk við hið frjálsa kirkjulega starf. A margan hátt eru sumarbúðir orkustöð, þar sem fegurstu hugsjónir manns- andans hafa djúptæk og varan- leg áhrif á aeskufólkið, sem þangað kemur. Heilög jörð Förum að dæmi Jesú og fylgj- um honum, er hann kallar á oss. Við fótskör Meistarans úti í ríki náttúrunnar er jörðin heilög og þrungin af mætti til að byggja upp fagurt æskulíf og gróður- setja það bezta í ungum sálum. Þess vegna skulum vér taka höndum saman og hjálpa ís- lenzkri æsku að leggja leið sína út í sumarbúðir, meðan íslenzka sumarið skartar sínum fegursta skrúða. Eftir dvölina þar verð- ur unglingurinn sem nýr mað- ur. Hann gleymir ekki, að eitt sinn var hann í sumarbúðúm, þar sem hánn eignaðist margar unaðssturtdir, lærði að trúa: og biðja; til Guðs. •!; j ' ■ ’’ ' ’ l’étuí Sigttrgeirsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.